Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2003, Blaðsíða 17
16 TILVERA ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 2003
+
ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 2003 TILVERA 17
Tilvera
Fólk ■ Heimilið ■ Dægradvöl
Netfang: tilvera@dv.is
Sími: 550 5813 -550 5810
Skónum stolið frá Cindy Crawford
BERFÆTT (GEGN: Fyrrum súper-
módelið Cindy Crawford lenti held-
ur betur í vandræðum um helgina
þegar hún var að fara í gegnum
vopnaleit á John F. Kennedy-flug-
velli í New York. Eins og aðrir lét
Crawford lausamuni sína í bakka
við vopnaleit en það reyndist ekki
nóg því að þegar hún gekk sjálf í
gegnum hliðið fór pípið í gang. Ör-
yggisverðir skipuðu henni þá að
setja skóna sína í gegnumlýsingar-
tækið og reyna aftur berfætt en
þegar það gekk ekki heldur upp
var hún látin taka af sér beltið og
reyna í þriðja skipti. Þá loksins
þagði tækið en þegarCrawford
ætlaði að sækja skóna í plastbakk-
ann greip hún í tómt því að ein-
hver óprúttinn hafði stolið skónum
á meðan hún stóð í stórræðunum.
Öryggisverðirnir urðu að vonum
vandræðalegir og þrátt fyrir mikla
leit fannst hvorki tangur né tetur af
skónum, sem sagðir voru í dýrari
kantinum, enda hannaðir af Jimmy
Choos og kosta ekki minna en átta-
tíu þúsund krónur út úr búð. Það
eina sem öryggisverðirnir gátu
gert fýrir Crawford var að láta hana
hafa sandala úróskilamunum og
sást hún þramma á þeim í gegnum
flugstöðina heldur betur súr á svip.
Mariah Carey hefur ekki gert það í tvö ár
FRÆGÐINNIAÐ KENNA:
Söngkonan Mariah Carey kvart-
ar sáran yfir því í nýlegu viðtali
við þýska blaðið Bild, að hún sé
í mestu vandræðum með að
finna þann eina rétta. Hún við-
urkennir einnig að hingað til
hafi aðeins verið þrír karlmenn í
hennar lífi „Ég var giftTommy
Mottola, síðan var ég á föstu
með bandaríska ruðningsmann-
inum Derek Jeter áður en ég fór
að fara út með mexíkanska
söngvaranum Luis Miguel," seg-
ir hin 33 ára gamla Carey og
bætir við að sambandi hennar
við Miguel hefði lokið sumarið
2001. „Síðan hef ég ekki haft
kynmök," segir Carey.
Hún segist ekkert skilja í því af
hverju enginn sýni henni áhuga
og segist ekki hafa nema eina
skýringu á því, sem sé frægðin.
„Það hlýtur að vera frægðinni að
kenna. Aðstoðarkona mín er til
dæmis alltaf í partíum og er á
endalausum stefnumótum. Ég
spyr sjálfa mig oft að því af
hverju mér sé aldrei boðið út.
En þannig er það bara og það
hlýtur að vera frægðinni að
kenna. Þeir hljóta að halda að
ég hafi engan áhuga."
KYNNIRINN MIKE TYSON: Vandraeöaboxarinn Mike Tyson er hér í hlutverki kynnis
ásamt þeim Angelu Spivey og Flex Alexander á árlegri Lady of Soul-verölaunahátið sem
haldin var i Pasadena (Kaliforníu um síðustu helgi. Tyson fékk það hlutverk að kynna
besta R&B-disk ársins en verölaunin hlaut breska dúóið Floetry fyrir disk sinn, Floetic
4
KVIKMYNDIR HELGIN 29. ÁGÚST-1. SEPT.
Sætf Fyrlr vlku Titill Innkoma, helgln Innkoma alls Fjöldi blósala
1. JEEPERS CREEPERS 2 18.500 18.500 3124
2. 4 FREAKY FRIDAY 11.744 89.986 3067
3. 2 S.WJt.T. 10.500 102.422 2781
4. 6 PIRATES OF THE CARIBBEAN 10.222 274.422 2227
S. 3 OPEN RANGE 10.165 42.900 2244
6. 7 SEABISCUIT 8.154 103.738 2556
7. 1 FREDDY VS. JASON 8.125 73.409 2929
8. 5 THE MEDALLION 5.700 16.357 2652
9. 8 UPTOWN GIRLS 5.240 30.060 2166
10. 10 MY BOSS'S DAUGHTER 4.538 11.639 2206
11. 9 AMERICAN WEDDING 4.498 97.431 1810
12. THE ITALIAN JOB 3.800 100.745 1964
13. 11 SPY KIDS 3D: GAME OVER 3.352 107.036 2385
14. 14 LE DIVORCE 2.050 6.240 701
15. 15 FINDING NEMO 2.005 332.390 838
16. 12 BAD BOYS II 2.000 135.114 869
17. 19 DIRTY PRETTY THINGS 1.417 4.678 383
18 WHALE RIDER 1.369 16.758 503
19 AMERICAN SPLENDOR 1.075 2.012 88
20. THE MAGDALENE SISTERS 820 1.948 203
ALLAR UPPHÆOIRIÞÚSUNDUM BANDARlKJADOLLARA
Hryllingur ieysir hrylling afhólmi
Eftir að hafa verið tvær vikur í
efsta sæti vinsældalistans í Banda-
ríkjunum dettur Freddy vs. Jason
úr efsta sætinu í það sjöunda. önn-
ur hryllingsmynd leysir hana af
hólmi og er sú örugglega jafn ógeð-
felld öllum þeim sem ekki vilja sjá
hryllingsmyndir. Er um að ræða
enn eina framhaldsmyndina,
Jeepers Creepers II. í henni segir frá
skólarútu, sem erfull af körfubolta-
strákum sem eru að koma af kapp-
leik. Á vegi þeirra verður mannætu-
skrímsli sem kemur upp á yfirborð
jarðar á 23 ára fresti til að nærast.
Full skólarúta af krökkum er sann-
kallaður veislumatur fyrir skepn-
una.
Engar aðar nýjar kvikmyndir er
að fmna á listanum en athyglisvert
er að Freaky Friday, enn einn ung-
lingahryllingurinn, skýst upp í 2.
sæti listans.
Það er ekki oft sem vinsælar kvik-
JEEPERS CREEPERS II: Körfuboltastrákar
lenda i klónum á skrímsli sem er í leit að
æti.
myndir, sem hætt er að sýna í kvik-
myndahúsum, eru aftur settar á
fullan skrið. Þetta var samt gert í
vikunni með The Italian Job sem
frumsýnd verður hér á landi um
helgina. Ástæðan er sú að framleið-
endur vildu koma henni yfir 100
milljón dollara í Bandaríkjunum
einum og það hefur tekist, naum-
lega þó.
Oskubuskuævintýri
Það þarf svo sem ekld að koma
neinum á óvart þótt Lord of the
Rings: The Two Towers verði að láta
sér nægja annað sætið, fyrstu vik-
una á lista. Þetta er greinilega kvik-
mynd sem fólk vill eignast. Svo segja
sölutölur, en met var slegið í síðustu
viku hvað varðar sölu á DVD-diski á
einum sólarhring. Það er því hlut-
verk hinnar rómantísku gaman-
myndar Maid in Manhattan að
verma efsta sæti myndbandalistans.
Maid in Manhattan náði góðri að-
sókn í Bandaríkjunum og má það að
hluta til þakka miklum vinsældum
Jennifer Lopez. Þykir hún standa sig
vel í hlutverki þjónustustúlkunnar.
Að vísu fær hún
verðugan módeik-
ara sem er Ralph
Fiennes. I mynd-
inni leikur Lopez
Marisa Ventura
sem er einstæð
móðir í New York.
Flún vinnur sem
herbergisþerna á
einu glæsilegasta
hóteli í Manhatt-
an. Ótrúleg at-
burðarás veldur
því að hún hittir
Christopher Mars-
hall (Fiennes),
myndarlegan erf-
ingja stjórnmála-
veldis sem heldur
að hún sé gestur á
MAID IN MANHATTAN: Jennifer Lopez
og Ralph Fiennes í hlutverkum sínum.
hótelinu. Örlögin taka síðan málin í
sínar hendur.
Með önnur hlutverk fara Stanley
Tucci, Natasha Richardson og Bob
Hoskins. Leikstjóri er Wayne Wang.
MYNDBÖND VIKAN 23.-30 ÁGÚST
Sæti Áður Titill Vikur á lista
i. MAID IN MANHATTAN 1
2. LOTR: THE TWO TOWERS 1
3. 1 TWO WEEKS NOTICE 4
4. NARC 1
5. 4 HUNTED 3
6. 3 JUST MARRIED 4
7. 7 CHICAGO 2
8. 2 THE RING 2
9. 5 NATIONAL SECRETARY 5
10. 8 THE PIANIST 4
11. 9 ANALYZETHAT 5
12. 6 FINAL DESTINATION 2 3
13. ADAPTATION 1
14. 11 LIFE OR SOMETHING LIKE IT 3
15. 10 THEY 3
16. 13 CATCHMEIFYOU CAN 9
17. 12 DAREDEVIL 6
18. SOLARIS 1
19. 14 BOWLING FOR COLUMBINE 5
20. FEARDOTCOM 1
Charles Bronson 1921-2003:
Úrkolanámuhum
í hæstu hæðil
í Hollywood
Charles Bronson, sem lést á laugardag-
inn, vareinn helsti hasarmyndaleikarinn
í Hollywood á sjöunda, áttunda og ní-
unda áratugnum og hann héltáfram að
leika töffara fram á tíunda áratuginn
þótt hann væri þá kominn á áttræðis-
aldur. Bronson ersönnun þess að aldur
er afstæður þegar um kvikmyndahetjur
eraðræða.
Bronson var kominn á fimmtugs-
aldur þegar hann loks varð kvik-
myndastjama því að þótt hann væri
orðinn viðurkennd hasarmyndahetja
var það ekki fyrr en með Death Wish,
sem gerð var 1974, að hann fór upp í
hæstu hæðir í Hollywood og má segja
að næstu tíu árin hafi hann staðið
jafnfætis Clint Eastwood í leik í hasar-
myndum.
Áður en kom að Death Wish var
hann löngu orðinn viðurkenndur
sem góður karakterleikari í spennu-
myndum, hvort sem það voru vestrar,
stríðsmyndir eða sakamálamyndir og
lék hann stór hlutverk í mörgum
þekktum kvikmyndum á sjöundaára-
tugnum.
Einn af 15 systkinum
Charles Buchinski (tók upp nafnið
Bronson nokkrum árum eftir að hann
gerðist leikari) fæddist 3. nóvember
1921 í kolanámubænum Ehrenfield í
Pennsylvaníu. Foreldrar hans voru
innflytjendur frá Litháen. Hann var
einn af fimmtán systkinum og sá eini
sem kláraði grunnskólanám. Bronson
hefur sfðan sagt að í barnæsku hans
hafi aldrei verið töluð enska á heimil-
inu. Lífið var erfitt hjá stórri fjölskyldu
og leið Bronsons lá í fótspor föður og
bræðra niður í kolanámurnar.
Það sem gerði það að verkum að
Bronson sneri við blaðinu var síðari
heimsstyrjöldin. Þetta var í fyrsta sinn
sem hann sá eitthvað annað af heim-
inum heldur.en kolanámubæinn sem
hann bjó í. Þegar herskyldunni lauk
var hann ákveðinn í að reyna fyrir sér
í leikhúsi. Hann hélt til New York og
fékk vinnu sem aðstoðarmaður. Það
starf leiddi til smáhlutverka og hann
var kominn með bakteríuna.
Eftir að hafa reynt sig í New York
með litlum árangri fór hann til Los
Angeles árið 1949. Þar má segja að
hann hafi haft útlitið með sér. Fékk
hann lítil hlutverk í kvikmyndum og
var oftast ekki nefndur á nafn. Fyrsta
hlutverkið sem hægt er að tala um var
í The House of Wax (1953) þar sem
Vincent Price lék aðalhlutverkið. Eftir
Að leika erþað auð-
veldasta sem ég hef
gert um ævina. Það er
líklegast ástæðan fyrir
því að ég gerði það að
ævistarfi mínu.
Charles Bronson var þrígiftur.
Fyrsta eiginkona hans hét Harriet
Tendler og stóð það hjónaband í átján
ár, 1949-1967, og áttu þau tvö böm.
Önnur eiginkona hans var svo leik-
konan Jill Ireland. Léku þau saman í
nokkrum kvikmyndum á áttunda ára-
tugnum. Hún greindist með krabba-
mein og háði langa og stranga baráttu
við sjúkdóminn og varð að lúta í lægra
haldi 1990. Áttu þau saman eina dótt-
ur. Þriðja eiginkona hans hét Kim
Weeks og lifír hún mann sinn.
hkarl@dv.is
TÖFFARINN: Charles Bronson ÍThe
Mechanic frá árinu 1972 þar sem hann lék
atvinnumorðingja sem snýr við blaðinu.
þá mynd breytti hann nafninu í Bron-
son og kemur nafnið úr Paramount-
kvikmyndaverinu þar sem einn stíg-
urinn heitir Bronson Gate. Næstu
fjögur ár var hann enn að leika lítil
hlutverk eða þar til hann fék loks stórt
hlutverk í Machine Gun KeUy (1958).
Eftir það fóm hlutverkin að verða
betri. Það var samt löng leið fram
undan á stjömuhimininn í Holly-
wood.
Charles Bronson yfirgaf
kolanámurnar til að
gegna herþjónustu í síð-
ari heimsstyrjöldinni.
Þetta var í fyrsta sinn
sem hann sá eitthvað
annað afheiminum
heldur en kolanámubæ-
inn sem hann bjó í.
TRAUSTVEKJANDI: Þetta andlit þekkja allir kvikmyndaunnendur,
gróft andlit sem vekurtraust.
vina sinna. Hann segist hafa mótast af
uppeldi sínu og þar hafi engar ofur-
hetjur verið að finna. Smekk sjálfs sín
fyrir hlutverkum þeim sem hann lék
lýsir hann í þessum orðum: „Ég hef
gaman af kvikmyndum og veit hvað
ég vil horfa á og það er ekki Charles
Bronson." Og ekki hafði hann mikið
álit á leikhæfileikum sínum: „Að leika
er það auðveldasta sem ég hef gert
um ævina. Það er lfklegast ástæðan
fyrir því að ég gerði það að ævistarfi
mínu.“
FLÓTTINN MIKLI: Bronson lék í mörgum stórum kvikmyndum í Hollywood á sjöunda
áratugnum, meðál annars Flóttanum mikla sem naut mikilla vinsaélda.
Sjö hetjur
Stóra stökldð hjá Bronson kom
með The Magnificent Seven, vestra
sem sló í gegn. Myndin var stjömum
prýdd, með Steve McQueen, og Yul
Brynner fremsta í flokki. Charles
Bronson náði samt að skyggja á þá
báða svo að eftir var tekið. Fékk hann
í kjölfarið mörg góð hlutverk í stórum
kvikmyndum, oftast þó til hliðar við
enn stærri stjömur.
Um miðjan sjöunda áratuginn hélt
hann til Evrópu þar sem hann lék í
nokkur ár, meðal annars í vestranum
sfgilda, Once Upon a Time in the
West, Adieu l’ami, Guns for San
Sebasúan og Villa Rides, svo að ein-
hveijar séu nefridar. Þegar hann svo
sneri aftur úl Hollywood snemma á
áttunda áratugnum varð ekki fram
hjá honum gengið. Charles Bronson
var orðin kvikmyndastjama. Staðfest-
ingin fékkst síðan með Death Wish
sem sjálfsagt verður að telja frægustu
kvikmynd Bronsons. Þá var Bronson
orðinn 53 ára. Death Wish-kvik-
myndimar urðu aUs sex.
Mjúkur maður
Charles Bronson var í einkalífinu
allt önnur manneskja en hann yfir-
leitt lék, heimakær og góður vinur
10TO MIDNIGHT: Eittafmörgum
löggu-hlutverkum Bronsons var í þessari
mynd frá 1983.
Michael Winner minnist
Charles Bronsons:
Varaldrei
metinn að
verðleikum
Breski leikstjórinn Michael
Winner leikstýrði Charles Bronson
í sex kvikmyndum, meðal annars í
þremur fyrstu Death Wish-kvik-
myndunum: Winner, sem er nú
ekki vanur að spara fúkyrðin þegar
kemur að kollegum hans í kvik-
myndageiranum, hefur ekkert ann-
að en gott að segja um Bronson:
„Við vorum vinir í þrjátíu ár.
Bronson var samviskusamur og
góður leikari sem var aldrei metinn
að verðleikum. Hann hafði yfir-
bragð sem er sjaldgæft í kvikmynd-
um, gróft andlit sem jafnframt
hafði mikið aðdráttarafl. Bronson
var margslunginn persónuleiki. Ég
held að sú reynsla sem hann varð
fyrir í kolanámunum hafi alltaf fylgt
honum. Það var eitthvað við hann
sem ávallt minnti á fortíð hans.
Sem leikara var alltaf hægt að
treysta honum. Hann var atvinnu-
maður fram í fingurgóma og þó að
hann gerði lítið úr hæfileikum sín-
um hafði hann það fram yfir marga
aðra sem ég hef starfað með að
hann var ávallt með það á hreinu
hversu hæfileikar hans náðu
langt."
SENDIBOÐI DAUÐANS: [ Messenger
of Death lék Bronson blaðamann
semleysir morðmál.
+
V