Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2003, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2003, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2003 UTGÁFUFÉLA& Útgáfufélagið DV ehf. FRAMKVÆMDASTJÓRI: örn Valdimarsson AÐALRITSTJÓRI: Óli Björn Kárason AÐSTOÐARRrTSTJÓRI: Jónas Haraldsson DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjóm: 550 5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749 Ritstjóm: ritstjorn@dv,is - Auglýsingar auglys- ingar@dvJs. - Dreffing: dreifing@dv.is Akureyrl: Hafnarstræti 94, sími:462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerð og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endur- gjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Efni blaðsins Ekki hreppsnefndar að hafna framkvæmd - frétt bls. 4 Vantar úrræði gegn síbrotamönnum - frétt bls. 6 Of hátt íbúðaverð - Lesendur bls. 18 Stofna vínklúbb -Tilvera bls. 49 Handboltinn á fullu - DV Sport bls. 62-63 Keyrði tvisvar sinn- um yfir manninn Svissneskur vegavinnumaður var f fyrradag fluttur með sjúkra- þyrlu til bráðamóttökunnar á héraðssjúkrahúsinu í Chur í Sviss eftir að bóndi á traktor hafði keyrt tvisvar sinnum yflr fætuma á honum. Að sögn bóndans sá hann ekki vegagerðarmanninn þar sem hann lá á fjómm fótum við vinnu sína í vegkantinum f Brigels- héraði. „Ég fann að traktorinn lyftist en hélt að eitthvað hefði dottið af kermnni og bakkaði því út f kant- inn. Það var þá sem hann ók yfir fæturna á vegavinnumanninum í annað sinn. Bóndinn hringdi strax á sjúkralið og var maðurinn fluttur stórslasaður á bráðamóttökuna. Mannbjörg BÁTSSKAÐI: Báturmeðfimm manns um borð, Inga Dís frá Reykjavík, sökk við Þerney í ná- grenni Reykjavíkur um níuleytið í gærkvöld. Þyrla Landhelgis- gæslunnar var send á vettvang en sneri frá þegar Ijóst var að all- ir um borð höfðu komist heilu og höldnu upp á pramma milli Þerneyjar og lands. Gott veður var og fjöldi báta á svæðinu. Sýnið varúð vegna rétta RÉTTIR: Göngur og réttir verða í Landnámi Ingólfs Arnarsonar um helgina. Otivistarfólk er beðið að taka tillit til þess og sérstaklega er fólk á háværum torfærumótorhjólum beðið að vera ekki á ferðinni í afréttum og öðrum beitilöndum á svæð- inu frá og með föstudegi. Þá eru ökumenn beðnir að gæta sérstakrar varúðar og sýna þol- inmæði þegar verið er að reka fé yfir vegi. Yfir Suðurlandsveg þarf að reka safn til Fossvalla- réttar við Lækjarþotna neðan Sandskeiðs um kl. 14-15 á laugardaginn og yfir veginn í Kömbum þarf að reka safnið til Ölfusréttar síðdegis á sunnu- daginn. Seinni leitir og réttir í Landnáminu verða 11.-14. október. Sami maður ákærður fyrir að stinga 5 manns með hnífi og árás með bjórkönnu: Tvær manndrápstilraunir og fjórar aðrar hnífaárásir STAKK5 MANNS: Hann huldi höfuðið fyrir dómi. Það gerði hann hins vegar ekki þegar hann stakk 5 karlmenn er hann ruddist inn í íbúð á þriðju hæð fjöibýlishúss í Mosfellsbæ í vor. Þessi ungi maður er ákærður fyrir tvær tilraunir til manndráps með hnífi, þrjár stór- felldar líkamsrárásir með hnífi, eina stórfellda árás með bjórkönnu og hnefum, eina árás á lögreglumann með því að bíta hann en einnig að neyða mann með hnífi til að hleypa sér inn í íbúðina í Mosfellsbæ, þar sem nokkrar af hnífstungunum áttu sér stað. DV-myndGVA Þegar saksóknari las upp ákæru á hendur 23 ára íbúa í Mosfells- bæ í dómsal í gær var Ijóst að sjaldan hafa eins miklar sakar- giftir verið bornar á einn mann í einu lagi á íslandi fyrir ofbeldi. Tvær tilraunir til manndráps með því að leggja til tveggja ungra manna með hnífi, þrjár aðrar hnífstungur gegn jafnmörgum mönnum og ein önnur stórfelld lfk- amsárás með því að berja mann við annað tækifæri með bjórkönnu í höfuð, eftir að hafa lagst ofan á hann og margbarið með hnefum í andlit. Að auki er sama sakborningi gefið að sök að hafa neytt mann til að hleypa sér inn í íbúð með því að beita hnífi og síðan að bíta lögreglu- mann harkalega eftir handtöku. Samkvæmt upplýsing- um DV eru megin- ástæður þessa augljósa tryllings að afbrýði- semikast virðist hafði gripið unga árás- armanninn en hann var ölvaður og hafði tekið inn örvandi fíkniefni. Samkvæmt upplýsingum DV eru meginástæður þessa augljósa tryll- ings að afbrýðisemikast virðist hafði gripið þennan unga árás- armann en hann var ölvaður og hafði tekið inn örvandi fíkniefni, samkvæmt upplýsingum DV. Lög- reglu er ekki kunnugt um aðra árás þar sem lagt er til eins margra með hnífi í einu - fimm manns. Það að ríkissaksóknari ákærir fyrir tilraun til manndráps í tvígang gefúr til kynna hve alvarlegum augum árás- irnar eru litnar. Hnífstungurnar fimm En víkjum þá að Klapparhlíð í Mosfellsbæ að morgni laugardags- ins 10. maí síðastliðins. í íbúð þar var fyrrverandi unnusta árás- armannsins. Þegar hann kom á staðinn er honum gefið að sök að hafa lagt hnífsblað að hálsi húsráð- anda íbúðarinnar, sem er á 3. hæð fjölbýlishúss, og neytt hann til að opna útidyr. Hnífstungurnar áttu sér stað ýmist þegar piltar komu á móti árásarmanninum í stigagang- inum eða inni í íbúðinni. Önnur árásin, sem telst tilraun til mann- dráps, var með þeim hætti að tví- tugur piltur hlaut 10 cm langan skurð rétt yfir lifur. í hinu tilvikinu er árásarmanninum gefið að sök að hafa skallað 25 ára mann í andlit þannig að framtennur í efri gómi brotnuðu en því næst að skera hann á hálsi þannig að af hlaust 15 cm langur og nokkuð djúpur skurð- ur ofan við viðbein, en þar undir liggja stórar slagæðar til höfuðsins. 19 ára piltur hlaut síðan langan og djúpan skurð á handlegg sem náði frá neðanverðum olnboga þvert yfir olnboga og upp fyrir handlegginn innanverðan þannig að stór bláæð fór í sundur sem leiddi til mikillar blæðingar. Fjórði pilturinn, sem er tvítugur, hlaut djúpan og stóran skurð á handlegg en sá fimmti hlaut stungusár á hendi, handarbaki og fingri. Mikið blóð og ummerki eftir gríðarlegar aðfarir voru þegar lög- reglan kom á vettvang. Þegar á stöðina kom var reiðin ekki runnin af hinum í meira lagi öra sakborn- ingi. Ríkissaksóknari gefúr honum að sök að bíta lögreglumann við skyldustörf í aftanverðan upp- handlegg svo af hlaust stórt mar með tannaförum. Þeir tveir sem ofbeldismaðurinn er ákærður fyrir að reyna að bana með hnífnum fara fram á rúmlega 2 milljónir króna í skaðabætur úr hans hendi. Sá sem hann skar á bláæð í handlegg fer fram á 630 þúsund krónur en lögreglumaður- inn krefst 350 þúsund króna. Málið var þingfest í gær en því hefur verið frestað óákveðið þar sem skipa þarf nýjan dómara vegna hlutleysisá- kvæða í hegningarlögunum. Sak- borningurinn hefur setið f gæslu- varðhaldi frá því eftir að hnífstungumálið átti sér stað. Bjórkannan Framangreind árás, þar sem bjórkanna kemur við sögu, átti sér stað þann 24. mars. Þar er mannin- um gefið að sök að hafa komið á heimili manns í Meðalholti og sleg- ið hann með hnefa í höfuð þannig að hann féll í gólfið. Við svo búið settist hann klofvega ofan á hann, sló hann margsinnis með báðum hnefum í höfuðið og síðan með bjórkönnu. Nokkuð djúp sár hlut- ust af á 10 cm löngu svæði frá hvirfli húsráðandans. onar@dv.is Ríkissaksóknari ákærir 37 ára karlmann í Reykjavík: Með mikið magn barnakláms heima 37 ára Reykvíkingur hefur verið ákærður fyrir að hafa haft í fór- um sínum mikið af efni sem sýnir börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Lögreglan fór inn á heimili mannsins í jan- úar 2002, en þá var það við Lindargötu. Þegar lögreglan hafði farið yfir efnið kom í ljós að maðurinn hafði 29.800 ljósmyndir af börnum sem sýndu þau á klámfenginn hátt, 176 hreyfimyndaskrár og 4 mynd- bandsspólur. Þetta var geymt á hörðum tölvudiskum í þremur tölvum, 66 tölvudisklingum og 79 geisladiskum. Ríkissaksóknari krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refs- ingar og einnig að hann sæti upp- töku á þremur tölvum, Hewlett Packard, Hyundai og Compaq ásamt fylgihlutum, auk klámefnis- ins sem lögreglan lagði hald á. Maðurinn er einnig ákærður íyr- ir að hafa haft í fórum sínum myndbandsspólu sem sýnir unga pilta á klám- og kynferðislegan hátt. Á þetta var lagt hald þegar Ríkissaksóknari krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar. hann kom til Keflavíkurflugvallar í nóvember 2001. Ákærði ætlar að taka sér frest til að gera grein fyrir afstöðu sinni til sakarefna rfldssaksóknara en rétt- arhöldum hefur verið frestað fram í október. onar@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.