Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2003, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2003 FERÐIR 47
Ræktun lýðs og lands
Umsjón: Páll Guðmundsson
Netfang: palli@umfi.is
Sími: 568 2929
LANDSMÓT
LE1£
SKOUNN
Utivist á að vera
hluti afdaglegu
Segir Hilmar Hólmgeirsson, íbúi í Grafarvogi
NÁTTURUSKOÐUN: Gönguferðirnar þurfa ekki að vera langar, aðalatriðið er að komast út og slaka á með fjölskyldunni
Tímarnir breytast og mennirn-
ir með. Áður fyrr unnu menn
hörðum höndum við hin ýmsu
erfiðisstörf. Nú eru allir meira
og minna sestir á rassinn við
tölvuna og hreyfing fólks hef-
ur minnkað. Afþreying hefur
einnig breyst með aukinni
tækni og kyrrseta aukist. Hilm-
ar Hólmgeirsson bílasali segist
reyna að mæta hreyfingarleysi
með ýmsum leiðum, hann
gengur til dæmis út á vídeó-
leigu til að leigja sér spólu.
„Ég var fimm ára þegar ég gekk í
ungmennafélagið," segir Hilmar
Hðlmgeirsson, bílasali og íbúi í
Grafarvogi. „Fyrst til að æfa frjálsar
en síðar handbolta, fótbolta og
sund. Þetta var ofsalega gaman og
kannski ekki sfst félagsskapurinn og
vinimir sem maður eignaðist. Auð-
vitað vorum við alltaf að reyna að
vinna, kannski of mikið og finnst
mér að í öllu yngri flokka starfí ætti
að mæla árangurinn í öðru en úr-
slitum, þá er ég að tala um gæði
starfsins, faglegu vinnu og kennslu,
félagslega uppbyggingu og ekki síst
ánægjuna af starfínu." Hilmar segir
afar dapurt að standa sjálfan sig og
aðra að því að öskra á litla krakka í
keppni. „Það nær náttúrlega ekki
nokkurri átt þegar fullorðið fólk er
að öskra á átta, tíu eða tólf ára
krakka í leikjum og svo fara börnin
að gráta ef þau tapa leiknum. Hér
þarf að koma til breyting. Fram yfir
unglingsárin á keppnin ekki að vera
í fyrirrúmi heldur þátttakan, leikur-
inn og ánægjan, það skilar sér síðan
í betri árangri. Það er eins og með
annað í lífinu, ef fólk hefúr gaman
af því sem það er að gera þá ganga
hlutirnir betur."
Passa bara í jogginggallann
Eftir margra ára þátttöku í íþrótt-
um, útivist og margs konar félags-
störfum breyttist líkamlegt ástand
og útlit töluvert hjá Hilmari þegar
íþróttaferlinum lauk. Hann segir
það hafa tekið sig nokkurn tíma að
átta sig á því. „Það var náttúrlega
ekki gaman að vakna upp við það
einn daginn rúmlega þrítugur að
það eina sem maður komst í var
jogginggallinn. Ég hafði stundað
margs konar íþróttir og ekki þurft
að hafa áhyggjur af líkamlegu
ástandi eða lítilli hreyfingu. Þegar
maður hætti í íþróttum og erfiðis-
vinnu fór sósan og frönsku kartöfl-
umar að setjast utan á mann og
maður verður auðvitað að bregðast
við og það geri ég með því að fara f
golf, sund, fótbolta og í ræktina."
Gönguferðir
Gönguferðir í náttúmnni njóta
vaxandi vinsælda meðal almenn-
ings. Hilmar segist reyna að fara
reglulega með fjölskyldunni í stutt-
ar gönguferðir að loknum vinnu-
degi. „Það þarf ekki alltaf að fara
langt eða vera lengi heidur bara að
komast út og hreyfa sig. Manni veit-
ir víst ekki af slökun eftir eril dags-
ins og gönguferðirnar auka sam-
vemstundir íjölskyldunnar. Þrátt ^
íýrir allt hversdagsamstrið má mað- '
ur ekki gleyma að rækta sjálfan sig,
fjölskylduna og nánasta umhverfi.
Skipuleggja frítímann
Hilmar segir áreitið í samfélaginu
vera of mikið og ófjölskylduvænt.
„Við vinnum langan vinnudag og
emm flestir á fullu í lífsgæðakapp-
hlaupinu og ég velti stundum fýrir
Ég hafði stundað margs
konar íþróttir og ekki
þurft að hafa áhyggjur *
af líkamlegu ástandi
eða lítilli hreyfingu.
mér hvort við séum á réttri leið.
Þegar vel er að gáð er það ekki
stærðin á dekkjunum eða leðursæt-
in í bílnum sem veita okkur ham-
ingju, heldur fjölskyldan og vinirnir,
áhugamálin og það að vera sáttur
við sjálfan sig, guð og menn. í þeim
efnum skiptir líkamleg hreyfing
miklu máli. Þátttaka í almenningsf-
þróttum veitir líkamlega útrás og
andlega vellíðan, það skiptir miklu
að skipuleggja frítímann vel og eiga
sína föstu tíma til íþrótta og útivist- -c
ar. Þetta verður að vera hluti af dag-
Iegu lffi.“
LEríAÐ AÐ KRÖBBUM OG SKEUUM: (fjörunni leynist margt merkilegt og ævintýri
við hvert fótmál og sjávarniðurinn verkar róandi eftir amstur dagsins.
I. HM ■
Alltaf ódýrast
^ á www.flugfelag.is
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
—