Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2003, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2003 TILVERA 49
x
Að verða pabbi á ný
Apakattalagið vinsælast
SVEFNLAUS: Ólátabelgurinn
og Hollywoodleikarinn Charlie
Sheen sérfram á svefnlausar
nætur á vori komanda þar sem
eiginkona hans, hasarkroppur-
inn Denise Richards, gengur
með fyrsta barn þeirra. Charlie
og Denise gengu í heilagt
hjónaband í júní í fyrra og inn-
an tíðar má sjá þau saman á
hvíta tjaldinu, í myndinni Scary
Movie 3. Faðirinn verðandi,
sem hefur orð á sér fyrir að
vera helduródæll og hneigður
til áfengisdrykkju, að minnsta
kosti hér áður fyrr, á átján ára
dóttur frá eldgömlu hjóna-
bandi en þetta verður
frumraun Bond-gellunnar
Denise í barnauppeldi.
ALLTÍGÓÐULAGI: CharlieSheen
og Denise Richards eiga von á sér.
LAGAKÖNNUN: Samkvæmt nýrri
skoðanakönnun er lagið Day-
dream Believer, semThe Monkees
gerðu ódauðlegt á sjöunda ára-
tugnum, nú langvinsælasta kara-
oke-lagið í Bretaveldi. Sinatra-lag-
ið My Way lenti í öðru sæti, rétt á
undan smellinum hennar Gloriu
Gaynor, I Will Survive, sem er vin-
sælastur meðal kvenna. New York,
New York með 01' Blue Eyes lenti í
fjórða sæti og Englarnir hans
Robbie Williams í því fimmta.
Könnunin var gerð meðal þúsund
karaoke-aðdáenda og voru þeir
beðnir um að nefna uppáhalds-
lagið sitt og auk þess það sem
þeim þætti síst. Þar náði Barbie
Girl með Aqua toppsætinu, næst
á undan Bat Out of Hell með
Meatloaf og My Heart Will Go On
með Celine Dion.
DV-mynd ÞÖK
Haraldur Halldórsson boðar stofnun Vínklúbbs Sommelier í kvöld:
ígóðum
„Við innheimtum ekkert félags-
gjald heldur greiða meðlimir fyrir
þátttöku í ýmsum viðburðum á
vegum Vínklúbbsins. Við viljum fá
sem flesta í klúbbinn og hvetjum
fólk til að taka maka sína með.
Þetta er alls ekki einhver lokaður
klúbbur fyrir þá sem vita mikið um
vín eða þykjast vita allt um vín
heldur fyrir fólk sem þyrstir al-
mennt í fróðleik um vín og vín og
mat og vill upplifa hvort tveggja í
góðum félagsskap. Við ætlum að
njóta þess að njóta,“ sagði Harald-
ur í samtali við DV.
Stefnt er að því að félagsmenn
hittist mánaðarlega og smakki á
góðum vínum og afbragðsmat
með. Samsetning víns og matar er
lykilatriði í Vínklúbbi Sommelier.
Fyrirkomulagið í starfsemi
klúbbsins verður rætt á fyrsta
kvöldinu, þ.e. í kvöld, og verður
mikið lagt upp úr að félagsmenn
taki virkan þátt í mótun starfsem-
innar. Félagaskrá verður opnuð
stofnkvöldið sem hefst með for-
drykk kl. 19.30. Dagskráin hefst
stundvíslega kl. 20. Franskt þema
setur svip sinn á kvöldið í kvöld en
viðeigandi þykir að hefja starfsem-
ina í „gamla landinu". Boðið verður
upp á tvíréttaðan matseðil og úr-
valsvín með á 4.500 krónur.
„Við verðum með fjölbreyttar
uppákomur, til dæmis námskeið
fyrir byrjendur og sömuleiðis nám-
skeið fyrir lengra komna. Einnig
þemakvöld sem geta bæði tengst
vínum og ákveðnum menningar-
svæðum í vínlöndum, galakvöld og
margt fleira. Megináherslan er á vín
Vín og matur
félagsskap
leitingastaðurinn Sommelier gengst
fyrirstofnun Vínklúbbs Sommelier og
verður stofnfundur hans haldinn á
veitingastaðnum í kvöld. Haraldur
Halldórsson, vínþjónn og einn eig-
enda Sommelier, segir mikinn áhuga
á klúbbnum en þegar hafa nokkrir
tugir áhugasamra skráð sig.
DÝRIR DROPAR: Haraldur Halldórsson, vínþjónn og einn eigenda veitingastaðarins
Sommelier, boðar til stofnunar Vínklúbbs Sommelier í kvöld. Haraldur er hér i víngeymslu
veitingastaðarins.
og mat en andrúmsloftið í klúbbn-
um verður afslappað og óformlegt.
Meginmarkmiðið með stofnun
klúbbsins er að skapa vettvang fyrir
áhugafólk um vín þar sem það get-
ur kynnt sér það besta sem gerist í
vínheiminum í góðum félagsskap,"
sagði Haraldur.
Á vínklúbbskvöldum verður boð-
ið upp á fjölmörg gæðavín á inn-
kaupsverði til smökkunar eða
geymslu í víngeymslum staðarins
en félagsmenn Vínklúbbsins munu
eiga kost á sjaldgæfum vínum fyrir
milligöngu Sommelier.
hlh@dv.is
Septemberfest
áVídalín
Tónlistarhátíð er hafin á Vídalín. Há-
tíðin kallast Septemberfest, tónlistar-
hátíð haustsins. Hátíðin byrjaði 5. sept-
ember síOastliðinn og sér umboðsskrif-
stofan Virgo um skipulagningu og und-
irbúning hátíðarinnar, í samvinnu við
aðstandendur Vídalíns. Boðið verður
upp á fjölbreytta tónlist af öllu tagi, allt
frá blues, pönki, rokki og poppi, alla
daga vikunnar. Meðal þess sem í boði
verður á næstu dögum er Dmm and
Base, Blues Binns, vísnakvöld með
Bjarna Tryggva, Einar Ágúst og Gunni
Óla, Vinir Dóra, Sein (pönk-tónleikar),
Blues Binns, Touch (popp/rokk) og
vísnakvöld.
ROTTUGENGIÐ: Geir Ólafsson, Harold Burr og Páll Rósinkranz ætla að endurvekja stemn-
inguna sem var á skemmtistöðum um miðbik tuttugustu aldarinnar á Broadway á föstu-
dagskvöldið.
Rottugengið með
tónleika á Broadway
Rottugengið - þeir Geir Ólafsson,
Harold Burr og Páll Rósinkranz -
verður með tónleika á Broadway
föstudagskvöldið 19. september.
Að sögn Geirs ætla þeir félagar að
endurvekja stemninguna sem var á
skemmtistöðum um miðbik tuttug-
ustu aldarinnar. „Eins og allir vita
sem eitthvað hafa fylgst með tónlist
var upprunalega Rottugengið, The
Rat Pack, skipað þeim Frank
Sinatra, Sammy Davis jr. og Dean
Martin auk þess sem Peter Lawford
átti það tíl að slarka með þeim."
Geir segir að Rottugengið ætli sér að
endurvekja stemninguna með að-
stoð tuttugu manna hljómsveitar,
undir stjórn Ólafs Gauks, og söng-
konunnar Bryndísar Ásmundsdótt-
ur en Hemmi Gunn verður kynnir.
„Ég lofa fólki góðri skemmtun því
að við ætlum að gera allt vitlaust
með lögum eins og New York New
York, All That Jazz, My Way og Ain’t
That a Kick in the Head auk fjölda
annarra þekktra laga.“ Sýningin
hefst klukkan 22 og aðgangseyrir er
2.000 krónur.
■*—
r