Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2003, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2003
Útlönd
Heimurinn í hnotskurn
Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson, Erlingur Kristensson
Netfang: gube@dv.is, erlingur@dv.is
Sími: 550 5829
Bono þrasaði við Bush
ALNÆMI: írski rokksöngvarinn
Bono fór bónleiður til búðar
þegar hann ræddi í gær við
George W. Bush Bandaríkjafor-
seta um að stjórnvöld í Was-
hington legðu meira fé til bar-
áttunnar gegn alnæmi.
„Við áttum í gamla góða þras-
inu," sagði Bono eftir fundinn
með forsetanum í Hvíta hús-
inu. „Ég get bara ekki verið
sammála honum um upphæð-
irnar."
Bono, sem hefur látið málefni
Afríku mjög til sín taka, hvatti
Bush til að veita þremur millj-
örðum dollara á næsta fjár-
hagsári til alnæmisbaráttunn-
ar. Það er milljarði dollara
meira en Bush hefur í huga.
Bono benti á að sjö þúsund
létust úr alnæmi á dag.
Bíll sprakk
Danmörk: Einn maður fórst
þegar bifreið sprakk í tætlur
fyrir utan amtssjúkrahúsið í
Glostrup, skammt frá Kaup-
mannahöfn, í morgun.
Að sögn vakthafandi lögreglu-
þjóns var nánast ekkert eftir af
bílnum. „Bíll springur ekki
svona af sjálfu sér," sagði lög-
regluþjónninn í viðtali við
danska útvarpið.
Meintur morðingi Önnu Lindh handtekinn í gærkvöld:
Heillaðist mjög af
hryðjuverkahópum
Lögreglan í Stokkhólmi hand-
tók í gærkvöld 35 ára gamlan
mann sem grunaður er um
morðið á Önnu Lindh, utanrík-
isráðherra Svíþjóðar, í NK-vöru-
húsinu á miðvikudaginn.
Maðurinn hefur ekki enn verið
nafngreindur en að sögn talsmanns
Stokkhólmslögreglunnar var hann
handtekinn um níuleytið í gær-
kvöldi þar sem hann var staddur á
East End veitingastaðnum í ná-
grenni Rásunda-leikvangsins í
Solna, í útjaðri Stokkhólms, á með-
an leikur Hammerby og Djurgárd-
en fór fram á vellinum.
„Sá sem við með réttmætum
rökum grunum um morðið á Önnu
Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar,
hefúr verið handtekinn og færður
til yfirheyrslu," sagði Carin Got-
blad, yfirmaður Stokkhólmslög-
reglunnar, á blaðamannafundi
seint í gærkvöld.
Fylgdist með fótboltaleik
Að sögn Magnúsar Bruun, sem
vinnur sem þjónn á veitingastaðn-
um þar sem maðurinn var hand-
tekinn, var hann þar ásamt hópi
fólks sem fylgdist með leik ná-
grannaliðanna Hammerby og
Djurgárdan á stórum sjónvarpsskjá
þegar tveir óeinkennisklæddir lög-
reglumenn birtust allt í einu og
handtóku hann án þess að hann
sýndi nokkurn mótþróa.
„Það kom ekki til neinna átaka og
maðurinn var alveg rólegur þegar
hann var handtekinn," sagði Leif
Jennekvist lögregluforingi sem
stjórnað hefur rannsókn málsins.
Vísbendingar streymdu inn
„Manninum sem við handtókum
í kvöld svipar mjög til þess sem
kemur fram á myndbandsupptök-
um frá NK-vöruhúsinu og grunaðar
er um að vera morðingi Önnu
Lindh," sagði Jennakvist á blaða-
mannafundinum í gær en birting
myndanna um helgina leiddi til
þess að vísbendingar streymdu inn
á borð lögreglunnar, þar á meðal
frá ættingjum mannsins.
Jennakvist sagði að maðurinn
hefði strax verið yflrheyrður og að
hann myndi síðan gangast undir
nálcvæma læknisrannsókn strax í
nótt. '»
Samkvæmt fréttum
sænskra fjölmiðla er
hinn handtekni þekktur
afbrotamaður og hefur
hlotið alls átján dóma
fyrir hina ýmsu glæpi
eins og skemmdarverk,
fjársvik, þjófnaði,
ofbeldi og hótanir
um ofbeldi.
Að sögn lögreglunnar er það nú í
höndum saksóknara, sem gaf út
handtökuheimildina, að ákveða
hvort maðurinn verður ákærður en
samkvæmt sænskum lögum má
hafa hann í haldi f allt að þrjá daga
áður en ákæra er lögð fram.
Þekktur afbrotamaður
Samkvæmt fréttum sænskra fjöl-
miðla er hinn handtekni þekktur
afbrotamaður og hefur hlotið alls
átján dóma fyrir hina ýmsu glæpi
eins og skemmdarverk, fjársvik,
þjófnaði, ofbeldi, hótanir um of-
beldi og ólöglegan vopnaburð eða
brot á lögum um merðferð hnífa.
Hann er sagður hafa átt við
áfengis- og fíkniefnavanda að
stríða og mun afbrotaferill hans ná
allt aftur til ársins 1987.
Þyngsta dóminn mun hann hafa
fengið fyrir fjársvik, eða átta mán-
aða dóm, og í fyrra var krafist geð-
rannsóknar. vegna brots þar sem
niðurstaða lækna var að hann ætti
ekki við nein geðræn vandamál að
stríða.
Vel gefinn og aðlaðandi
Þrátt fyrir að lögreglan hafi ekki
viljað gefa neinar upplýsingar um
hinn grunaða segjast sænskir fjöl-
miðlar vita hver hann er án þess að
birta nafn hans.
Hann er sagður fæddur og upp-
alinn í Varberg, rétt suður af Gauta-
borg, og hafði síðan flutt til Stokk-
hólms einn síns liðs.
Ekki er vitað til þess að hann hafi
haft neitt fast aðsetur á undanförn-
um árum heldur hafi hann aðallega
búið hjá ýmsum vinum sínum sem
skotið hafi yfir hann skjólshúsi.
Haft er eftir ónafngreindum fyrr-
verandi vini mannsins að hann sé
bæði vel gefinn og aðlaðandi en
skapmikill. Honum er einnig lýst
sem ofbeldishneigðum og sem slík-
ur hafi hann farið fremstur í
stuðningsmannaliði Djurgárden.
Ofbeldishneigður
Annar fyrrverandi vinur manns-
ins sagði að hann ætti það til að
vera árásargjarn og ofbeldishneigð-
ur. „Hann átti það til að rjúka upp
án minnsta tilefnis," sagði þessi
fyrrverandi vinur og bætti við að
hann hefði verið mjög upptekinn af
öllu sem heitir hryðjuverk. „Hann
talaði oft um Baader-Meinhof-
hópinn og virtist heillaður af
hryðjuverkatímabilinu á áttunda
áratugnum. Það var stundum eins
og hann lifði í eigin draumaheimi.
Hann vildi helst vera ósýnilegur í
samfélaginu og láta sem minnst
fara fyrir sér. Var alltaf eins og í fel-
um,“ sagði vinurinn fyrrverandi.
FRÁ HANDTÖKUSTAÐNUM: Hinn grunaði
var handtekinn á East End veitingastaðn-
um í nágrenni RSsunda-leikvangsins í
Solna, í útjaðri Stokkhólms.
Bandaríkjamenn beittu neit-
unarvaldi í Öryggisráði SÞ
Sendiherrar arabalandanna hjá
Sameinuðu þjóðunum hafa for-
dæmt þá ákvörðum banda-
rískra stjórnvalda að beita neit-
unarvaldi gegn ályktunartil-
lögu Sýrlendinga í Öryggisráð-
inu í gær um að hvetja íraels-
menn til þess að hætta við þær
ráðagerðir að losa sig við Yasser
Arafat, réttkjörinn forseta
Palestínu.
Atkvæðagreiðslan í ráðinu fór
þannig að fulltrúar ellefu af fimmt-
án ríkjum greiddu tillögunni at-
kvæði sitt en Bandaríkin beittu
neitunarvaldi sínu og fúlltrúar
þriggja rfkja - í>ýskalands, Bret-
lands og Búlgaríu - sátu hjá.
YASSER ARAFAT: (sraelar hafa lýst því yfir
að þeir hyggist losa sig við hann.
Að sögn Johns Negropontes,
sendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ,
var tillagan gölluð af því leyti að
hún hefði ekld falið í sér harða for-
dæmingu á hryðjuverkum eins og
þeim sem palestínskir hryðjuverka-
hópar eins og Hamas-samtöldn og
Jihah-hreyfingin hafa staðið fyrir
að undanförnu.
Nasser al-Kidwa, fulltrúi palest-
ínskra stjórnvalda hjá SÞ, sagði að
þessi afstaða Bandaríkjamanna
gæti haft alvarlegar afleiðingar,
sem þeir einir bæru ábyrgð á, og
Fayssal Mekdad, fulltrúi Sýrlend-
inga, sem bar fram tillöguna, sagð-
ist harma afstöðu þeirra sem gerði
ekki annað en auka á spennuna
sem væri næg fyrir.
Herforinginn í
forsetaslaginn
Wesley Clark viðurkennir að
hann sé algjör nýgræðingur í
stjórnmálum. Samt ætlar
þessi fyrrum yfirhershöfðingi
NATO að keppa við níu aðra
demókrata um að verða for-
setaefni flokksins 2004.
Clark, sem stjórnaði loftárás-
unum á Kosovo árið 1999, til-
kynnir fyrirætlanir sínar í heima-
bænum Little Rock í Arkansas
síðdegis í dag.
Afstaða Clarks til alþjóðamála
er vel þekkt vestra, hann var til
dæmis á móti stríðinu í írak.
Minna er aftur á móti vitað um
stefnu hans í innanríkismálum.
ÍKAPPHLAUPIÐ: Wesley Clark, fyrr-
verandi hershöfðingi, hefur hug á að
verða forsetaefni demókrata á næsta ári.