Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2003, Blaðsíða 6
06 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2003
Viðvörun Fjármálaeftirlitsins
Opnun nýrrar Þjórsárbrúar tefst
VIÐVÖRUN: Vegna fyrirspurna
og athugasemda sem Fjármála-
eftirlitinu hafa borist vill það
vekja athygli á því að eftirtalin
fyrirtæki/aðilar hafa ekki starfs-
leyfi sem fjármálafyrirtæki á Is-
landi né heldur hafa þau heim-
ild til stofnunar útibús fjármála-
fyrirtækis eða til að veita þjón-
ustu fjármálafyrirtækis án
stofnunar útibús: De Verre Ll-
oyd & Co. Ltd., Drexel Asset
Management, Mutual Capital
og Solomon Christie. Fyrirtæki
sem skortir áðurnefndar heim-
ildir hafa m.a. ekki heimild til
móttöku endurgreiðanlegra
fjármuna frá almenningi (inn-
lán), útgáfu og umsýslu
greiðslukorta eða viðskipta og
þjónustu með fjármálagern-
inga samkvæmt lögum um
verðbréfaviðskipti. Fjármálaeft-
irlitið leggur sérstaka áherslu á
hvað mikilvægt er að þeim sem
er boðin þjónusta eða fjármála-
ráðgjöf erlendra fyrirtækja leiti
upplýsinga hjá fjármálaeftirlit-
inu um viðurkenningu eða
heimild þeirra til fjármálastarf-
semi á (slandi. Nánari upplýs-
ingar eru veittar í síma 525
2700.
SAMGÖNGUR: Opnun nýrrar
brúr yfir Þjórsá tefst fram í lok
október en áætlanir stóðu fyrst
til þess að hún yrði opnuð þann
1. októþer. Svanur Bjarnason,
umdæmisstjóri Vegagerðar rík-
isins á Suðurlandi, sagði við DV
í morgun að ástæða seinkunar
verksins væri af ýmsum atrið-
um - „uppsöfnuðum" á verk-
tímanum. Nýlega kom á daginn
að stálpinnar sem ganga upp í
forsteyptar einingar í burðar-
virki brúarinnar voru ekki rétt
smíðaðir. Svanur sagði hins
vegar að þetta atriði myndi ekki
tefja verkið nema í þrjá til fjóra
daga. Nýja Þjórsárbrúin var
boðin út undir lok síðasta árs
en framkvæmdir hófust í árs-
byrjun. Það er Vélsmiðjan
Normi sem hefur unnið verkið.
Framkvæmdastjóri Félags fasteignasala:
Yfirdýralæknir um breyttar reglur um innflutning á hundum:
Stuðla að bættri ræktun
HALDIÐTIL HAGA: Meðfylgjandi yfirlitsmynd úr Reykjavík, sem birtist með frétt um
meint skjalafals fasteignasala og misferli með vörslufé (DV í gær, tengist á engan
hátt efni fréttarinnar sem hún birtist með. Hafi einhverjir orðið fýrir óþægindum
vegna þessa eru þeir beðnirvelvirðingar.
„Enn sem komið er vantar vald
til skyndiákvarðana til að svipta
síbrotamenn af þessu tagi leyfi
tímabundið," segir Magnús Ein-
arsson, framkvæmdastjóri Fé-
lags fasteignasala, um þá fast-
eignasala sem hafa verið kærðir
til lögreglu fyrir meint misferli
með vörslufé.
DV hefur undanfarna daga fjall-
að um slík mál, þar sem tilteknir
fasteignasalar hafa fengið á sig lög-
reglukæru vegna meintra slæmra
viðskiptahátta. Annar þeirra hefur
látið af störfum en hinn rekur enn
fasteignasölu og heldur löggilding-
arieyfi sínu.
Magnús sagði að umræddir tveir
menn væru þeir einu sem kærðir
hefðu verið til lögreglu, að því er
hann best vissi.
ALMENN ÁNÆGJA: Allir félagsmenn í Félagi fasteignasala eru ánægðir með þær breytingar sem gert er ráð fyrir bæði í frumvarpinu og reglugerðinni.
Magnús lagði áherslu á að lausn
á vandanum væri nú loks í sjónmáli
ef fyrirliggjandi frumvarp um fast-
eignasölu yrði að lögum.
Reglugerð í burðarliðnum
DV hefur fjallað um þýðingar-
mestu breytingarnar sem frum-
varpið kveður á um, þ.e. stofnun
nýrrar eftirlitsnefndar, skylduaðild
að Félagi fasteignasala og nýjar
reglur um meðferð vörsiufjár.
Magnús sagði að vonir manna
stæðu til þess að Alþingi samþykkti
lögin nú um miðjan vetur.
Þess mætti þó vænta að takmörk
yrðu sett við meðferð vörslufjár því
nú væri í burðarliðnum reglugerð-
arbreyting um vörslufé sem Ingólf-
ur Hjartarson hefði unnið. Stæði
einungis á því að Reiknistofa bank-
anna setti hana formlega upp. í
reglugerðinni væri kveðið á um að
fasteignasalar héldu vörslufé á sér-
greindum reikningum, svokölluð-
um vörslureikningum. Kaupendur
og seljendur ættu sfðan greitt að-
gengi að yfirliti yfir færslur sem þá
vörðuðu á þeim reikningum.
„Hugmyndin að þessari reglu-
gerð vaknaði í kjölfar Holtsmálsins
svonefnda, þar sem einstakir við-
skiptavinir urðu fyrir stórfelldu
fjárhagslegu tjóni,“ sagði Magnús.
„Hún er nú að verða að veruleika.
Allir félagsmenn í Félagi fasteigna-
sala eru ánægðir með þær breyt-
ingar sem gert er ráð fýrir bæði í
frumvarpinu og reglugerðinni.
Það hefur sannast sagna stundum
skapast vandræðaástand á skrif-
stofu Félags fasteignasala. Fólk hef-
ur verið að koma og kvarta en við
höfum ekki haft nein úrræði. Mikill
meirihluti þeirra kvartana sem hafa
borist hefur varðað fasteignasala
sem standa utan félagsins en þeir
eru ekki undir okkar agavaldi. Gagn-
vart þeim eru hendur okkar bundn-
ar, við höfum ekkert vald og getum
ekkert sagt.“ -jSS&dv.is
Hann sagði enn fremur að um-
fjöllun af því tagi sem verið hefur í
DV væri mjög af hinu góða. Þar
með kæmi þessi vandi í umræðuna
svo að fólk færi fremur með varúð
þegar það ætlaði að selja eða kauþa
eignir.
Það hefur sannast
sagna stundum skapast
vandræðaástand á
skrifstofu Félags fast-
eignasala. Fólk hefur
verið að koma og
kvarta en við höfum
ekki haft nein úrræði.
-
.....
P$s. - ‘::::
................... ' --
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------,-------------------------------------------------------------------
^wirrTi
# »• ts b;r
* rt*>
*!•**
It«* <■ V
m wt*: ~:‘l* *
«* * Ifei
Vantar vald til að svipta
síbrotamenn leyfi
Nýjar reglugerðir um innflutn-
ing á hundum gefa hundarækt-
endum hér á landi aukna mögu-
leika á betri ræktun, að mati
Halldórs Runólfssonar yfirdýra-
læknis. Þá telur hann að þær
leiði jafnvel til þess að dragi úr
innflutningi frá því sem verið
hefur.
Reglugerðir landbúnaðarráðu-
neytisins um innflutning hunda
kveða á um að nú sé leyfilegt að
flytja hingað inn sæði úr hundum.
Einnig að dvöl í einangrunarstöð sé
stytt í fjórar vikur. Áður nam ein-
angrunartíminn átta vikum fyrir
hunda sem fluttir voru frá löndum
þar sem hundaæði var til staðar en
sex vikum fýrir hunda frá löndum
án hundaæðis. Hægt er að nálgast
nýju reglurnar á heimasíðu emb-
ættis yfirdýralæknis.
Yfirdýralæknir sagði við DV að á
móti styttingu einangrunartímans í
Hrísey kæmu hertar kröfur um
bólusetningar og rannsóknir sem
framkvæma skyldi í heimalandi
hundanna fyrir innflutning. Því
væri alls ekki um að ræða neina
slökun hvað varðaði öryggiskröfúr
fyrir innflutning.
Leyfi til innflutnings á hunda-
sæði, sem væri nýjung í dæminu,
myndi trúlega bæði leiða til betri
ræktunar hér á landi og minni inn-
flutnings. Yfirdýralæknir benti á í
því sambandi að fram til þessa
hefðu ræktendur þurft að flytja inn
hund og tík til ræktunar á hinum
AUKINTÆKIFÆRI: Hundaræktendur hafa nú aukin tækifæri til að bæta ræktun sína með
tilkomu leyfis til innflutnings á hundasæði.
ýmsu tegundum. Nú væri nóg að
flytja inn tík sem síðan væri hægt
að sæða með innfluttu sæði.
„Ég hef þá trú að þetta bæti rækt-
unina að því leytinu til að nú er
hægt að kaupa sæði úr margverð-
launuðum hundum sem eru alls
ekki til sölu til útflutnings," sagði
yfirdýralæknir. „Þetta þýðir að nú
er hægt að kaupa bestu fáanlegu
erfðagenin til landsins, bæði hvað
varðar útlit og skapgerð.“
Yfirdýralæknir sagði að nákvæm-
lega sömu kröfur væru gerðar til
undirbúnings á hundum sem flytja
ætti sæði úr og hinum sem flytja
ætti inn. Með því móti væri öryggið
við innflutninginn aukið. -JSS