Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2003, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2003, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2003 MENNING 15 Var Tyrkjaránið heilagt stríð? KVIKMYNDIR: 28.sept.verður sýnd í Sjónvarpinu heimilda- kvikmyndin Atlantic Jihad eða Heilagt stríð í norðurhöfum. Þar er því haldið fram að Tyrkjarániðá (slandi árið 1627 hafi verið heilagt stríð og sýnt hve þræðir þess lágu víða. Árásin áTvíturnana 11. sept- ember 2001 var einföld miðað við þetta! Atlantic Jihad er framleidd af kvikmyndafélag- inu Seylan og er alþjóðleg út- gáfa af heimildakvikmyndinni Tyrkjaránið eftir Þorstein Helgason sem sýnd var í Sjón- varpinu í maí 2002. Alþjóðaút- gáfan er 52 mínútur og inni- heldur mikið af nýju myndefni. Hún hefur þegar verið sýnd í sjónvarpi í Hollandi og írlandi og verður dreift á heimsvísu. Myndasagan - níunda listformið NÁMSKEIÐ: Á námskeiði um myndasögur sem hefst 22. sept. hjá Endurmenntun verð- ur lögð áhersla á sérstöðu myndasögunnar sem listforms og frásagnarforms. Myndasag- an er kölluð níunda listformið (kvikmyndin er það áttunda, á eftir klassísku formunum sjö). Ætlunin er að skoða sögu myndasögunnar, einnig er far- ið í myndlestur og greiningu og myndmál og frásagnar- tækni formsins skoðuð með dæmum úr fjölmörgum myndasögum frá ólíkum tím- um og landsvæðum. Kennari er Úlfhildur Dagsdóttir bók- menntafræðingur. Skráning á http://www.endurmennt- un.hi.is/menning-flokk.asp?ID =3h03 Og upp úr þessu fór ég oð bera oukno vírðingu fýrtr mtmm *rinr>i $«« er hofsjör of sðguM un fótk $e* ég þekki •kki, mrö, hneyksli, frowhjóhöld, heimildir m sora «ormkymtns, svo er hún Uko «eiri aólcMúnneskja en 6g. Fyrir aér «r hún Norrano hösið, utort við horrano húsið. Of felt fyrir mig ÚTVARP: Kristín Einarsdóttir þjóðfræðingur skoðar efni grín- texta í íslenskum dægurlögum í þætti á Rás 1 kl. 13.05 á föstu- daginn. Feitar konur, litlir karlar, sveitamenn og hræðsla við að standa sig ekki í lífinu virðist vera meginþema þessa skáld- skapar - hvers vegna er hann svona vinsæll? TÓNUSTARGAGNRÝNI JónasSen Fagra veröld, hvar ert þú? var yfirskrift sérstæðra tónleika sem haldnir voru í Salnum í Kópavogi á sunnudagskvöldið. Þar kom fram sönghópurinn Voces Wien ásamt Jónasi Ingimundarsyni píanóleikara og voru flutt verk eftir Schubert, en einnig var lesið upp úr bréfum nokkurra vina hans. Fyrsta bréfið var frá Moritz von Schwind til Franz von Schober þar sem hann talar um að hann hafi nýlega frétt að Schúbert sé dáinn, og voru hin bréfin nokkurs konar minningar- greinar um tónskáldið. Til að skapa óform- lega stemningu sátu söngvaramir við borð allan tímann, líka þegar þeir voru að syngja, eins og þeir væm vinir Schuberts að rifja upp atvik úr lífi hans. Yfirskrift tónleikanna var fengin úr upp- hafsljóðlínu lagsins Guðir Grikklands sem ekki heyrist oft. Að þessu leyti vom tónleik- arnir áhugaverðir; maður fékk að hlýða á sjaldheyrða tónlist eftir Schubert og var megnið af verkunum fyrir eina, tvær, þrjár eða fjórar raddir. Inn á milli lék Jónas nokkur stutt einleiksverk á píanóið, sem að þessu sinni var gamli Bösendorferinn. Það kom ágædega út, Bösendorfer er „heimilislegra“ hljóðfæri en Steinway, tónninn er ekki eins kraftmikill en mýkri og hlýlegri, og Jónas spil- VOCES WIEN: Fluttu sjaldheyrð lög eftir Schubert með Jónasi Ingimundarsyni. DV-mynd Pjetur aði sérlega fallega. Best var Ecossaisen, danslag sem í túlkun Jónasar var þmngið un- aðskenndri nostalgíu. Ekki er hægt að gefa söngvurunum eins góða einkunn, því þótt söngvararnir, sem vom Qórir, hafi sungið af öryggi sem hópur, syrti í álinn er sumir þeirra þurftu að standa á eigin fótum. Gamla kempan Kurt Widmer söng að vísu prýðilega, með mikla og breiða rödd sem hljómaði vel í Salnum, en altrödd Mariu Bayer var fremur sár og óþægileg áheyrnar. Bernd Oliver Fröhlich tenór olli einnig vonbrigðum; rödd hans var einkenni- lega mjó og einstaka sinnum fölsk, og Renate Burtscher sópran var sömuleiðis ekki góð. Hún söng fallega í sjálfu sér en hefur ekki mikla rödd og missti stundum fókusinn á efstu tónunum. Þegar það gerðist hljómaði söngurinn eins og mjálm og dró það mjög úr áhrifamætti tónlistarinnar. Óneitanlega var það Widmer sem hélt söngnum uppi, og best var þegar hann raulaði í lágum hljóðum lokalag Vetrarferð- arinnar, Lírukassaleikarann, án undirleiks. Það hefur maður ekki heyrt áður, en var við hæfi eftir upplestur bréfs þar sem sagði frá undarlegum lírukassaleikara er átti að hafa hneppt hóp fólks í álög. Álögin fólust í því að fólkið breyttist í litlar íígúrur inni í lírukassa, en öðlaðist frelsi einn klukkutíma á sólar- hring. Að sjálfsögðu hefur maður heyrt svona sögur áður, en lágvært raulið í Widmer á eftir var svo kynngimagnað að það fór um mann engu að síður. 77/ að skapa óformlega stemn- ingu sátu söngvararnir við borð allan tímann, líka þegar þeir voru að syngja, eins og þeir væru vinir Schuberts að rifja upp atvik úr lífi hans. Eins og fyrr var greint frá var þetta spenn- andi efnisskrá og nýstárlegt tónleikaform, og vó það upp á móti misjöfnum söngnum. Manni leiddist að minnsta kosti ekld. En greinilegt var að áheyrendur voru ekki hrifnir því dræmara lófatak í lok tónleika hefúr ekki heyrst í langan tíma. BORGARLEIKHÚSIÐ Miðnsala 568 8000 1897-1997 BORGARLEIKHUSIÐ STÓRA SVIÐ LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Lau. 20/9, kl. 14 - UPPSELT Su. 21/9, kl. 14 ~ UPPSELT Lau. 27/9, kl. 14 Su. 28/9, kl. 14 Lau. 4/10, kl. 14 Su. 5/10, kl. 14 - UPPSELT Lau. 11/10, kl. 14 Su. 12/10, kl, 14 ÖFUGU MEGIN UPP í e. Derek Benfield Lau. 20/9, kl. 20 Lau. 27/9, kl. 20 Lau. 4/10, kl. 20 PUNTILA OG MATTI e. Bertolt Brecht Fö. 19/9, kl. 20 Fi. 25/9, kl. 20 Fö. 3/10, kl. 20 Lau. 11/10, kl. 20 Su. 19/10, kl. 20 Su. 26/10, kl. 20 Ath.: Aðeins þessar sýningar Sala áskriftarkorta og afsláttarkorta stendur yfir. Sex sýningar: Þrjár á Stóra sviði, þrjár að eigin vali. Kr. 9.900 Tíumiðakort: Notkun að eigin vali. Kr. 16.900 Komið á kortið: Fjórir miðar á Nýja svið/Litla svið. Kr. 6.400 VERTU MEÐ f VETUR. VcVOlU" Ofugu .MKK, Þau leika við hvum sinn fingur: Eggert Þorleifsson Bjöm Ingi Hilmarsson Eilert A. Ingimundarson Jóhanna Vigdfs Amardóttir Sigrún Edda Bjömsdóttir Leikstjóri: María Slgurðardóttir megin /i'tLirlliLll lieLlSÍLLlU i-l».trllÍlllarÍeLUÍÍ eftir Derek Benfield „Farsi seni svínvirkar" SH Mbl. Friðþjófur (Eggeit Þorleifsson) hefur tekið að sér að gæta sveitahótels systur sinnar á meðan hun bregður sér í Munaðarnes. Hann ætlar að eiga náðuga helgi - en það gengur illa með 2 eiginkonur, 2 eiginmenn = 4 viðhöld á litlu hóteli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.