Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2003, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2003, Page 28
56 TILVERA MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2003 íslendingar Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson Netfang: aettir@dv.is Sími: 550 5826 Fólk í fréttum Hafsteinn Þór Hauksson nýkjörinn formaöur SLIS Hafsteinn Þór Hauksson laga- nemi var kjörinn formaður SUS, Sambands ungra sjálfstæðis- manna, á þingi sambandsins í Borgarnesi um síðustu helgi. Starfsferill Hafsteinn fæddist í Reykjavík 11.8.1978 en ólst upp í Garðabæ frá tveggja ára aldri. Hann var í Flata- skóla, Garðaskóla, lauk stúdents- prófi frá VI 1998, hefur stundað nám í lögfræði við HÍ og er nú að ljúka þar lokaritgerð. Hafsteinn var í unglingavinn- unni á unglingsárunum, var í sum- arvinnu hjá Sorpu, var blaðamaður við Vísi.is og Fókus á DV sumarið 1998, var starfsmaður Umferðar- ráðs sumarið 1999, var í námsvist hjá Lögmönnum, Skólavörðustíg 6B, sumarið 2001, og starfaði við einkamáladeild dómsmálaráðu- neytisins sumarið 2002. Hafsteinn var formaður Mál- fundafélags VÍ 1997-98, keppti til úrslita í MORFÍS-keppninni fjögur ár í röð og var tvisvar sigurvegari hennar, þjálfaði um skeið ræðulið og spurningalið skóians, sat í rit- stjórn Úlfljóts, tímarits laganema, var formaður Hugins, félags ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ í þrjú ár, hefur setið í stjórn SUS frá 1997 og áður í varastjórn, hefur verið rit- ari SUS og umsjónarmaður mál- efnastarfs 1999-2001 oghefurverið varaformaður SUS frá 2001 og sat í stjórn Varðbergs 2001. Hafsteinn hefur skrifað reglulega pistla á vef Heimdallar, Frelsi.is. Hann var kosningastjóri Sigurðar Kára Kristjánssonar í framboði hans til formennsku í SUS 1999 og kosningastjóri Björns Bjamasonar f prófkjöri fyrir alþingiskosningarnar 2002. Fjörutíu ára Fjölskylda Unnusta Hafsteins er Hrefna Ástmarsdóttir, f. 25.4. 1977, sem nú er að ljúka lokaritgerð í stjórn- málafræði við HÍ. Hún er dóttir Ást- mars Þorkelssonar, f. 23.5. 1955, starfsmanns SH, og Margrétar Yngvadóttur, f. 21.1.1956, húsmóð- ur. Systkini Hafsteins em Guðný Kristín Hauksdóttir, f. 1971, tann- smiður, búsett í Montreal í Kanada; Haukur Þór Hauksson, f. 1974, við- skiptafræðingur, fjármálaráðgjafi hjá GJ, kennari og varabæjarfulltrúi í Garðabæ. Foreldrar Hafsteins em Haukur Ragnar Hauksson, f. 10.2. 1948, kennari við Iðnskólann í Reykjavfk, og k.h., Rannveig Kristín Hafsteins- dóttir, f. 24.11. 1948, húsmóðir. Ætt Haukur Ragnar er sonur Hauks, hárskerameistara við Kirkjutorg í Reykjavík, Óskarssonar, hárskera- meistara í Reykjavík, Árnasonar. Móðir Hauks Ragnars er Þor- björg Ragna Magnúsdóttir, skip- stjóra í Hafnarfirði, Magnússonar, í Skuld í Hafnarfirði, frá Múla í Bisk- upstungum, Sigurðssonar. Móðir Magnúsar skipstjóra var Guðlaug Björnsdóttir, frá Sölvakoti í Flóa, Móðir Þorbjargar var Ragnheiður Þorkelsdóttir kaupkona. Rannveig er dóttir Hafsteins, húsgagnabólstrara í Reykjavík, Ás- björnssonar, sjómanns í Reykjavík, Pálssonar. Móðir Hafsteins var Rannveig Ólafsdóttir. Móðir Rannveigar Hafsteinsdótt- ur er Guðný, systir Matthíasar tannlæknis. Hálfsystir Guðnýjar, sammæðra, er Sólveig Ásgeirsdótt- ur biskupsfrú. Guðný er dóttir Hreiðars Geirdals, kennara í Grímsey, söðlasmiðs á Húsavík og verslunarmanns á ísafirði, bróður Guðmundar Geirdals skálds, Höllu á Laugabóli og Steinólfs skóla- stjóra, afa Sigurðar Geirdals, bæjar- stjóra í Kópavogi. Hreiðar var sonur Eyjólfs, b. á Kleifum í Gilsfirði, Bjarnasonar, pr. og læknis í Garps- dal, Eggertssonar, pr. í Stafholti, bróður Steinunnar, móður Bjama, amtmanns og skálds, og Guðrúnar, móður Vigfúsar, sýslumanns á Borðeyri, langafa Steinþórs Gests- sonar, fyrrv. alþm. á Hæli; Helgu, móður Benedikts Sveinssonar, hrl. og fyrrv. stjórnarformanns Eim- skips, föður Bjarna, alþm. og langafa Ástu, ömmu Davíðs Odds- sonar forsætisráðherra. Eggert var sonur Bjarna landlæknis Pálssonar. Móðir Eggerts var Rannveig Skúla- dóttir landfógeta Magnússonar. Móðir Guðnýjar var Kristín, systir Guðmundar, föður Guðnýjar konsertmeistara. Kristín var dóttir Matthíasar, pr. í Grímsey, Eggerts- sonar, skólastjóra í Hnífsdal, bróð- ur Matthíasar skálds. Eggert var sonur Jochums, b. í Skógum í Þorskafirði, Magnússonar. Móðir Jochums var Sigríður, systir Guð- rúnar, langömmu Áslaugar, móður Geirs Hallgrímssonar forsætisráð- herra. Sigríður var dóttir Ara Jóns- sonar, b. á Reykhólum, og Helgu Ámadóttur, pr. í Gufúdal, Óiafs- sonar, ættföður Eyrarættar, Jóns- sonar, langafa Jóns forseta og Jens rektors, langafa Jóhannesar Nor- dals. Móðir Eggerts var Þóra, systir Guðrúnar, ömmu skáldanna Her- dísar og Ólínu Andrésdætra. Þóra var einnig systir Guðmundar, pr. og alþm. á Kvennabrekku, föður Theodóm skáldkonu. Móðir Krist- ínar var Guðný Guðmundsdóttir. Elva Björk Birgisdóttir bóndií Hlíö, Austur-Eyjafjallahreppi Elva Björk Birgisdóttir, húsfreyja og bóndi í Hlíð undir Eyjafjöllum, er fertug í dag. Starfsferill Elva fæddist í Vestmannaeyjum og ólst þar upp. Að loknu gruijn- skólaprófi stundaði hún nám við Framhaldsskólann f Vestmanna- eyjum. Þá hefur hún sótt ýmis námskeið, s.s. fyrir starfsfólk leik- skóla og námskeið er lúta að um- önnun aldraðra. Elva vann við fiskvinnslu í Vest- mannaeyjum á unglingsárunum, fyrst hjá Isfélagi Vestmannaeyja og síðan hjá Hraðfrystistöð Vest- mannaeyja. Elva flutti ásamt manni sínum á æskuslóðir hans í Austur-Eyja- fjallahreppi 1986. Hún starfaði síð- an við leikskólann Foss í Fossbúð að Skógum frá 1992 og þar til leik- skólinn var lagður niður, starfaði við grunnskólann í Skógum um níu ára skeið, þar til hann var lagður niður 2001, og hefur stundað heim- ilishjálp, fyrst hjá Austur-Eyjafjalla- hreppi og síðan Rangárþingi eystra eftir sameiningu sveitarfélaganna í austanverðri sýslunni. Elva og eiginmaður hennar tóku jörðina Hlíð í Austur-Eyjafjalla- hreppi á leigu til þriggja ára, 1988 og stunduðu þar hefðbundinn kúa- búskap. Þau tóku síðan við ábúð á jörðinni 1997 og stunda þar nú sauðfjárbúskap. Elva hefur tekið virkan þátt í fé- lagsstörfum, m.a. í kvenfélaginu Fjallkonunni og ungmennafélag- inu Eyfellingi, og syngur auk þess í kirkjukór Holtsprestakalls. Fjölskylda Elva giftist 6.6. 1987 Sigurgeiri Líndal Ingólfssyni, f. 25.7. 1960, bónda og héraðslögreglumanni. Hann er sonur Ingólfs Björnssonar og Lilju Sigurgeirsdóttur, fyrrv. bænda. Synir Elvu og Sigurgeirs eru Ingólfur Birgir Sigurgeirsson, f. 4.9. 1982, öryggisvörður hjá Securitas, búsettur í Hlíð; Símon Bergur Sig- urgeirsson, f. 29.1. 1989, grunn- skólanemi í Hlíð. Systkini Elvu eru Jóhanna Birgis- dóttir, f. 26.2. 1968, nemi í Dan- mörku; Rúnar Þór Birgisson, f. 1.10. 1970, netagerðarmaður í Vest- mannaeyjum. Foreldrar Elvu eru Birgir Símon- arson, f. 16.9.1940, starfsmaður hjá Áhaldahúsi Vestmannaeyja, og Margrét Klara Bergsdóttir, f. 13.8. 1941, skrifstofumaður við Heild- verslun KK í Vestmannaeyjum. Ætt Birgir er sonur Símonar í Vest- mannaeyjum Bárðarsonar, b. í Holti í Þykkvabæ, Pálssonar, Símonarsonar. Móðir Bárðar var Kristín Bárðardóttir. Móðir Símon- ar var Sigríður Jónsdóttir, dóttir Árna Sigurðssonar og Ásthildar Einarsdóttur. Móðir Birgis er Þórhildur, dóttir Bárðar, vinnumanns í Grafarsókn, Gestssonar, Bárðarsonar. Móðir Þórhildar var Guðrún, dóttir Þórðar yngra Jónssonar, og Ragnheiðar Jónsdóttur. Elva Björk verður að heiman á af- mælisdaginn. Þú nærö alltaf sambandi viö okkur! Smáauglýsingar 550 5000 mánudaga tll fimmtudaga kl. 9 — 20 föstudaga kl. 9 — 18 sunnudaga kl. ±6 - 20 550 5000 smaauglysingar@dv.is hvenær sólarhrlngslns sem er Stórafmæli 90 ára Anna Sigurbjörnsdóttir, Heiðarbraut f, Blönduósi. Guðmundur Ámundason, Ásum, Selfossi. Þurfður Sigurjónsdóttir, Hraunvangi 7, Hafnarfirði. 85 ára Steingerður Kristjánsdóttir, Ægissíðu 10, Grenivík. Svala Sigurðardóttir, Nýlendu 1, Sandgerði. Þórhildur Þórarinsdóttir, Engihjalla 3, Kópavogi. 80 ára Björgvin Alexandersson, Ljósheimum 20, Reykjavík. Guðný Ásgeirsdóttir, Hæðargarði 33, Reykjavík. Jón Hermundsson, Birkigrund 64, Kópavogi. Sigrfður Guðjónsdóttir, Bláhömrum 2, Reykjavík. 75 ára Eirfkur Runólfsson, Eyrargötu 5, Eyrarbakka. Haukur Haraldsson, Hlíðarlundi 2, Akureyri. Jakob Valdimarsson, Löngufit 18, Garðabæ. Lára Vilhelmsdóttir, Ægisgötu 14, Ólafsfirði. Magnea Garðarsdóttir, Skarðshlíð 23c, Akureyri. 70 ára Ása Guðmundsdóttir, Hjallavegi 14, Hvammstanga. Björg B. Sigurðardóttir, Boðahlein 15, Garðabæ. Margrét Magnúsdóttir, Garðavegi 2, (safirði. Ragnhildur Einarsdóttir, Sólheimum 25, Reykjavík. Theodór Þorvaldsson, Fjallalind 98, Kópavogi. Þorgrfmur Guðnason, Torfnesi, Hlíf 1, ísafirði. 60 ára Guðjón Páisson, framkvæmdastjóri, byggingarmeistari og nýsköpunarhönnuður, Dúfnahólum 2, Reykjavík. Sif Aðalsteinsdóttir, Geitlandi 1, Reykjavík. Þorvaldur Ágústsson, Hásteinsvegi 31, Stokkseyri. 50ára Freddy Dan Roger Söderberg, Bræðraborgarstíg 7, Reykjavík. Fríða Arnþórsdóttir, Smárahlíð 16d, Akureyri. Grazyna Anna Mróz, Hafnargötu 17, Grindavík. Guðlaug Steinunn Ólafsdóttir, Stararima 27, Reykjavík. Guðmundur Hauksson, Ási 1, Hellu. Henrietta G. Kristinsdóttir, Kjalarsíðu 14b, Akureyri. Inga S. Stefánsdóttir, Berjarima 28, Reykjavík. Ingibjörg Guðlaug Aradóttir, Þverholti 1, Keflavík. Ingimar Kristinn Þorsteinsson, Egilsgötu 11, Borgarnesi. Hann er að heiman. Kolbrún Ólafsdóttir, Hraunbæ 190, Reykjavík. Kristfn Pétursdóttir, Raufarseli 13, Reykjavík. Lárus Sverrisson, Miðteigi 1, Akureyri. Reynir Kárason, Laugatúni 12, Sauðárkróki. Sigrún Þórarínsdóttir, Álfheimum 64, Reykjavík. Sigurborg Sigurðardóttir, Selási 16, Egilsstöðum. Sigurður Ólafsson, Hjálmholti, Selfossi. 40ára Ásgrímur Lárus Ásgrfmsson, Fjallalind 30, Kópavogi. Bima Oddný Bjömsdóttir, Garðbraut 79, Garði. Bryndís Aradóttir, Hlíðarvegi 7, Seyðisfirði. Guðrún BJörk Benediktsdóttir, Malarási 11, Reykjavík. Hreiðar Gunnarsson, Kveldúlfsgötu 14, Borgarnesi. Ólaffa Sigrún Einarsdóttir, Kirkjubóli, Neskaupstað. Sveinbjörn Halldórsson, Ásbúð 104, Garðabæ. Valgerður Hrund Skúladóttir, Breiðuvík 24, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.