Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2003, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2003, Síða 4
4 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2003 Snörp hrina í Kötlu KATLA: Engar hræringar hafa verið í Mýrdalsjökli frá því um níuleytið í gærkvöld jarða- skjálftahrina varð í jöklinum fyrr um kvöldið. Nokkrir skjálft- ar á bilinu 2 til 2,9 á Richter mældust og voru upptökin nærri Kötlu. Hrinan þykir hafa verið snörp og upptökin nú á Kötlusvæðinu sjálfu en algeng- ara mun að upptök sjálfta í Mýrdalsjökli séu í Goðabungu. Jarðvísindamenn gerðu Al- mannavarnardeild Ríkislög- reglustjóra viðvart og voru starfsmenn í samhæfingarstöð kallaðir út. Engar vísbendingar komu fram um að eldgos væri að hefjast og var samhæfingar- stöð lokað á ellefta tímanum og starfsmenn settir aftur á bakvakt. Ásókn í tónlist GfTARNÁM: Nemendur ÍTónlist- arskóla Garðabæjar eru 70 fleiri í vetur en sl. vetur en alls hófu 485 nemendur nám við skólann í haust. Agnes Löve, skólastjóri tónlistarskólans, segir þetta mjög ánægjulega þróun og hana megi ekki síst rekja til mik- illar fjölgunar nemenda í gítar- námi. Líkamsárás LÖGREGLA: Hópur ungra manna réðist inn í íbúð í Austurborg- inni skömmu fýrir miðnætti í gærkvöld. Mennirnir réðust að íbúa með golfkylfu og veittu honum nokkra áverka. Þá brutu þeirog brömluðu innanstokks- muni. Lögregla ræddi við sjón- arvotta og voru nokkrir menn yfirheyrðir í kjölfarið. Rannsókn málsins verður framhaldið í dag. Vel gekk að flytja íslandsstorkinn til Svíþjóðar um Danaveldi í gær: Svíum líst vel á Styrmi sem hittir brátt dömu Storkurinn Styrmir kom síðdeg- is í gær á eitt af sjö storkabúum sem Storkprojektet rekur á Skáni í Suður-Svíþjóð. í vetur verður Styrmi fundinn maki og parinu svo að líkindum sleppt f vor. „Hann var bara spræk- ur þegar ég sá hann loksins í kass- anum sínum á Kastrup-flugvellin- um í gær eftir að hafa gengið frá ýmsum pappírum,“ sagði Margrét Dögg Halldórsdóttir, yfirdýrahirðir Húsdýragarðsins, sem fylgdi Styrmi til Danmerkur. Thomas Ohlsson, starfsmaður Storkprojektet, sótti storkinn á Kastrup-flugvöll en þaðan var að- eins klukkustundar akstur fram undan - meðal annars yflr Eyrar- sundsbrú - með hinn „íslenska" stork til vetrardvalarstaðar síns á Skáni. „Thomas var hrifinn af því hve Styrmir leit vel út en þó virðist hann vera um einu kílói of þungur, sem er talsvert fyrir stork,“ sagði Margrét. „Styrmir fór í fraktgeymslu Sfðustu (slandsstundirnan Styrmi leið vel í búrinu sínu í Laugardalnum. Myndin er tekin skömmu áður en hann kvaddi Island. fremst í vélinni og ég gat ekkert skipt mér af honum á leiðinni,“ sagði Margrét en storkurinn fór yfir hafið í boði Flugleiða. „Ég beið svo í ofvæni eftir að sjá hann en það var ekki hægt fyrr en búið var að ganga frá öllu. „Thomas var hrifinn af því hve Styrmir leit vel út en þó virðist hann vera um einu kílói of þungur, sem er talsvert fyrir stork," Hrikalega glöð Styrmir var aðeins sveltur fyrir ferðina enda var reiknað með að hann yrði veikur af að fljúga með fullan maga. Hann fékk ekkert að borða fyrr en komið var á áfanga- stað. „Nú tekur einangrun við hjá honum í mánuð, hann settur í ýmis heilsufarspróf og kyngreindur. Hins vegar var Thomas, sem kom og sótti hann, nánast fullviss um að hann væri karlkyns," sagði Mar- grét. Erfitt er að greina kyn storka, það sést hins vegar á lengd goggs- ins. Þannig getur t.d. verið erfitt að sjá hvort um er að ræða lítinn karl- fugl eða stóran kvenfugl. Ekki er vitað um aldur Styrmis. Hann kom til íslands upp úr miðjum október. Hann var fangað- ur austur á Fljótsdalshéraði rétt fyr- ir jól og fluttur þaðan sem leið lá í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. í mars var hann settur í 180 fermetra fuglabúr. Styrmir veiktist í nokkrar vikur í vor en nú er hann, eins og Margrét segir, sprækur, í góðum holdum og vel vakandi fyrir um- hverfinu. Bíður nú margur aðdá- andi Styrmis spenntur eftir að sjá hvernig gengur að finna maka. „Ég er hrikalega ánægð með að þetta verkefni skuli hafa tekist í heild,“ sagði Margrét. ottar@dv.is Festur á Kastrup:Thomas Ohlsson, starfsmaður storkabúgarðsins á Skáni, festir kassann hans Styrmis á palli bílsins sem flutti storkinn yfir til Svíþjóðar. í kassanum: Styrmir flaug yfir hafið í sérsmíðuðum kassa sem Náttúrufræðistofnun (slands sá um að smíða. Virðist honum hafa liðið vel á leiðinni. DV-myndirMargrét Dögg Freyjafærferðafé Söfnun fyrir Freyju Haralds- dóttur, sem glímir við sjaldgæf- an erfðagalla, gekk framar von- um. Söfnunin fór fram á vegum heilsu- ræktarfyrirtækisins Hreyfingar á dög- unum og var markmiðið að safna í ferðasjóð þannig að Freyja kæmist á ráðstefnu í útlöndum þar sem saman kemur fólk er þjáist af sama sjúkdómi. Hreyfing og Landsbanki íslands höfðu heitið að jafna það ffamlag sem yrði og vom Freyju afhentar tæplega ein og hálf milljón króna í gær. ' Sjúkdómur Freyju kallast Osteo- genesis Imperfecta og er hún sú eina sem þjáist af sjúkdómnum á svo alvar- legu stigi hérlendis. Það hefur lengi verið draumur Freyju að hitta aðra með sjúkdóminn; skiptast á upplýs- ingum og deila erfiðri reynslu sinni með öðmm. GJÖF: Ágústa Johnson, framkvæmastjóri Hreyfingar, og Björgólfur Guðmundsson, stjórnarformaður Landsbankans, afhentu Freyju söfnunarféð við hátíðlega athöfn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.