Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2003, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2003, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2003 Breytt rekstrarumhverfi RUV FJÖLMIÐLAR: Ríkisútvarpið hélt í gær upplýsingafund um málefni stofnunarinnar þar sem meðal annars kom fram að mikil hagræðing hefði náðst í rekstri RÚV á síðustu 10 árum. Raktar voru breytingar á rekstr- arumhverfi stofnunaninnar frá því 1992 til loka síðasta árs en á þessum tíma hefur náðst hagræðing upp á 20% auk þess sem fastráðnum starfs- mönnum hefur fækkað talsvert á tímabilinu. Þá var vetrardag- skráin kynnt en þar ber hæst að vægi frétta og fréttaskýr- ingaþátta mun aukast veru- lega á komandi vetri, bæði í sjónvarpi og útvarpi. Auk þess kom fram að sérstakt svæðisút- varp fyrir suðurhluta landsins tæki til starfa í næsta mánuði. Saltfiskvinnsla á Raufarhöfn ATVINNUBÓT: Heldur mun vera að léttast brúnin á Raufarhafnar- búum þar sem nú mun vera ákveðið að hefja saltfiskverkun í húsnæði Jökuls á staðnum, en þar var áður unninn svokallaður „Rússafiskur". Nú verða þarna léttsöltuð og síðan lausfryst flök en helsti markaðurinn fyrir þessa tegund fiskverkunar er Suður-Evrópa, aðallega Spánn. Um 25 manns fá atvinnu við sal- fiskverkunina en hjá Jökli störf- uðu mest 45 manns. Það er GPG á Húsavík sem tekur húsnæðið á leigu af ÚA á Akureyri sem rak Rússafiskverkunina. Vegna at- vinnuleysis hefur nokkuð verið um fólksflutninga af staðnum og m.a. er oddvitinn, Hafþór Sig- urðsson, fluttur burt og tekinn við rekstri fýrirtækisins Málms í Reykjavík. Átök hafa verið í skóla- nefnd staðarins; hefur Hildur Harðardóttir sagt sig úr henni og Herði Þorgeirssyni jafnframt ver- ið vikið úr henni.Til stóð að fækka skóladögum úr 180 á ári, sem er lögbundið, í 170. Mennta- málaráðherra var sagður hafa samþykkt það en þegar hann bar það til baka varð hálfgerð upp- lausn í skólanefndinni. ______________________________________ Þjónustu Geðhjálpar við hundruð skjólstæðinga stefnt í hættu: Svikin loforð um að- stoð við geðsjúka Mikil vonbrigði eru ríkjandi hjá stjórn Geðhjálpar vegna þeirrar ákvörðunar heilbrigðis- og tryggingaráðuneytisins að hafna áframhaldandi þáttöku í þjónustusamningi ráðuneytis- ins og Geðhjálpar. Samningur þessi hefur gert ráð fyrir tveimur stöðugildum til end- urhæfingar í þjónustumiðstöð Geðhjálpar í Túngötu 7. Embættis- menn ráðuneytisins segja tækni- lega örðugleika standa í vegi fyrir því að hægt sé að framkvæma samninginn, að því er fram kemur í nýrri ályktun stjórnarinnar. Sfðla septembermánaðar árið 2002 gaf heilbrigðisráðherra Geð- hjálp loforð um lokaða geðdeild fyrir veikustu einstaklingana. Það loforð hefur verið ítrekað útfært af ráðherra á þessu ári en ekkert bólar á efndum, að því er segir í ályktun- inni. Þá bendir stjórn Geðhjálpar á að dómsmálaráðherra og heilbrigðis- ráðherra hafi samþykkt, 30. sept- ember árið 2002, stofnun starfs- hóps sem upphaflega hafi átt að vera ráðgefandi gagnvart opinber- um aðilum í einstökum málum. Hann haft fljótt orðið starfshópur sem hafí haft það hlutverk að gera tillögur um úrbætur fyrir allra veik- ustu einstaklingana. Sú þarfagrein- ing hafði lengi legið fyrir af hálfu Geðhjálpar og margra fleiri félaga og opinberra stofnana. Ekkert hafi orðið úr verkefninu. Stjórnin bendir á að þann 10. október árið 2002, á alþjóða geð- heilbrigðisdaginn, hafi Jón Krist- jánsson heilbrigðisráðherra sagt eftirfarandi á Alþingi: „Varðandi þau alvarlegu mál sem upp hafa komið hef ég undanfarið rætt við fjölda sérfræðinga og leik- manna um stöðu mála og þær leið- ir sem færar eru til að auka þjón- ustu við alvarlega geðsjúka einstak- linga. Efla þyrfti þjónustu í fangels- um og koma upp sérstakri lokaðri meðferðardeild og síðan að efla þjónustu við þá sem eru úti í sam- félaginu með sérhæfðum starfs- kröftum til að sinna þeim hlutum." Nú, ári síðar, segir í ályktuninni, hefur ekkert orðið úr efndum en frekar dregið úr þjónustunni. íhúsnæði Geðhjálpar sækja 115 manns starfsendurhæfingu og menntun á haustönn 2003. 77/ félagsins leita tugir til viðbótar á degi hverjum. í húsnæði Geðhjálpar sækja 115 manns starfsendurhæfingu og menntun nú á haustönn 2003. Til félagsins leita tugir til viðbótar á degi hverjum. Þjónusta við alla þessa aðila er í hættu verði samn- ingur Geðhjálpar og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins ekki efndur, að því er segir í ályktun stjórnarinnar. Félagið Geðhjálp muni leita réttar síns í þessu máli og harmi að heilbrigðisráðuneytið skuli enn hafa kosið að draga úr þjónustu við geðsjúka, þvert ofan í fyrri loforð og yfirlýsingar. -JSS Magasín meira lesið en Birta Fréttablaðið eykur lesturinn Lestur Morgunblaðsins og DV minnkaði í ágúst frá síðustu fjölmiðlakönnun Gallup en Fréttablaðið bætir lítillega við lesturinn. Magasín er meira les- ið en Birta, dagskrárblað Fréttablaðsins, hvort sem litið er til lesenda á höfuðborgar- svæðinu eða lesenda á landinu öllu. Fleiri konur segjast lesa allt Magasín en Birtu. Greinilegt er að breytingar á útliti og efn- istökum Magasíns hafa styrkt stöðu blaðsins meðal lesenda. Magasín, sem dreift er á höfuð- borgarsvæðinu, Akranesi, Akureyri og til áskrifenda DV um allt land, getur státað af meiri lestri á öllu blaðinu en Birta, sem fylgir Frétta- blaðinu á föstudögum. Á þetta við um allar lestrarkannanir Gallups á UéWHi-t ''r’'- þessu ári. í könnuninni sem birt var í gær kemur fram að á höfuðborg- arsvæðinu segjast 38,4 prósent lesa allt blaðið þegar spurt er um lestur á Magasíni en aðeins 24,4 prósent Birtu. Hefur Magasfn haft vinning- inn á Birtu í öllum fjölmiðlakönn- unum Gallups á þessu ári eins og sést á meðfylgjandi grafi. Þegar litið er til lesenda á landinu öllu segjast 35 prósent lesa allt Magasín en 27,1 prósent Birtu. Munurinn er um 8 prósentustig og hefur aukist úr 5 prósentustiga mun sem var á lestri blaðanna í mars, Magasín í vil. Meðal kvenna á landinu öllu eru samsvarandi tölur 45,7 og 35,3 pró- sent. Um 10 prósentustiga munur er á lestri alls Magasíns og allrar Birtu meðal kvenna í lestrarkönn- unum Gallup á árinu. Lestur á Fókus hefur aukist milli kannana. í þessari könnun Gallup sögðust 45,3 prósent lesenda á landinu öllu hafa lesið eitthvað í Fókusi, samanborið við 37,5 pró- sent í júní. Fréttablaðið, sem dreift er ókeypis, er mest lesna dagblaðið samkvæmt nýrri könnun Gallups, með 67,7 prósent meðallestur. Meðallestur Morgunblaðsins, sem selt er í áskrift og lausasölu eins og DV, mældist 50,1 prósent og DV 22,6 prósent. Tölurnar „eitthvað lesið í vikunni" eru 90,8 prósent fyrir Fréttablaðið, 69,6 fyrir Morg- unblaðið og 44,4 prósent fyrir DV. Þess má geta að frídreifing DV mældist 6 prósent þegar Gallup gerði fjölmiðlakönnun í júní og meðallestur DV mældist 29 pró- sent. í þessari könnun, þar sem meðallesturinn mældist 23 pró- sent, mældist frídreifmgin hins vegar ekki nema um 2 prósent. Til samanburðar má þess geta að frídreifmg Fréttablaðsins er 100 prósent. Könnun Gallups var gerð 26. ágúst til 1. september. Úrtakið var 800 manns á aldrinum 12-80 ára, tilviljunarúrtak úr þjóðskrá. Nettósvarhlutfall var 62 prósent. hlh@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.