Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2003, Page 13
b
ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2003 FRÉTTIR 13
Vildu notfæra sér Kelly
Harrý hjá andfætlingum
RANNSÓKN: AlastairCamp-
bell, fyrrverandi fjölmiðlafull-
trúiTonys Blairs, forsætisráð-
herra Bretlands, segir í dag-
bókum sínum að hann og
Geoff Hoon landvarnaráðherra
hafi viljað notfæra sér vopna-
sérfræðinginn David Kelly til
að hafa betur í heiftarlegri
deilu við ríkisútvarpið, BBC.
Kelly svipti sig lífi eftir að hann
hafði verið nafngreindur sem
heimildarmaður umdeildrar
fréttar BBC um að stjórnvöld
hefðu ýkt hættuna af meintum
gjöreyðingarvopnum íraka.
Campbell og Hoon vildu not-
færa sér játningu Kellys um að
hann hefði rætt við fréttamann
BBC, Andrew Gilligan, til að
grafa undan trúverðugleika
fréttar hans.
MANNDÓMSVÍGSLA: Harrý
Karlsson prins á Englandi ætlar
að starfa á sauðfjár- og naut-
gripabúum í Ástralíu næstu
þrjá mánuðina. Prinsinn ætlar
að taka sér frí frá námi í eitt ár,
á meðan hann ákveður hvað
hann ætlar að verða þegar
hann verðurstór. Ástralíudvöl-
in er liður í þeirri sjálfskoðun.
Ástralskir lýðveldissinnar, sem
vilja slíta tengslunum við
bresku krúnuna, eru hins vegar
lítt hrifnir af því að þurfa að
taka þátt í kostnaðinum við ör-
yggisgæslu prinsins, yngri son-
ar Karls ríkisarfa og Díönu heit-
innar prinsessu.
Harry kom til Sydney í morgun
að staðartíma. Farið var með
hann í dýragarð borgarinnar til
að heilsa upp á dýr og menn.
Rannsóknin á morðinu á Önnu Lindh:
Þrjú vitni viss í sinni sök
Þrjú vitni segjast handviss um
að hinn 35 ára gamli Per Olof
Svensson, sem er í haldi lög-
reglunnar, grunaður um morðið
á Önnu Lindh, utanríkisráð-
herra Svíþjóðar, sé maðurinn
sem öryggismyndavélar í NK-
vöruhúsinu festu á filmu. Lindh
var stungin til bana í NK fyrir
tæpum hálfum mánuði.
Aftonbladet í Svlþjóð segir í dag
að vitnin hafi gefið sig fram við lög-
regluna eftir að myndir af hinum
grunaða birtust í fjölmiðlum. Að
sögn blaðsins er vitnisburður þessa
fólks helsta tromp lögreglunnar.
Svensson var handtekinn fyrir
viku og síðastliðinn föstudag var
hann úrskurðaður í einnar viku
gæsluvarðhald. Lögreglan er því
L
ALVEG VISS: Vitni segjast klár á því að
þessi maður sé hinn sami og sænska lög-
reglan hefur í haldi, grunaðan um morðið
á Önnu Lindh utanríkisráðherra.
undir miklum þrýstingi að leggja
fram nægilega sterkar vísbendingar
um sekt Svenssons til að fá gæslu-
varðhaldið framlengt. Svensson
neitar statt og stöðugt að hafa myrt
Önnu Lindh.
Sænska blaðið Expressen segir í
morgun að fingraför sem talið er að
morðinginn hafi skilið eftir sig á
rúllustiga vöruhússins á flótta sín-
um séu ekki frá Svensson komin.
Expressen segir einnig frá því að
sænskir sérfræðingar hafi ekki lagt í
að rannsaka smásætt lífsýni sem
fannst á morðvopninu og gæti leitt
lögregluna á slóð morðingjans.
Ástæðan sé sú að þeir fá aðeins eitt
tækifæri. Sýnið var þvf sent til Bret-
lands þar sem færustu sérfræðing-
ar Evrópu rannsaka það.
Nýr framkvæmdastjóri í Briissel:
NATO er ekki
úrelt bandalag
Atlantshafsbandalagið (NATO),
sem stofnað var fyrir hálfri öld
til að heyja kalda stríðið, hefur
fengið nýtt hlutverk í glímunni
við viðsjárverðan heim, segir
tilvonandi framkvæmdastjóri
þess, Hollendingurinn Jaap de
Hoop Scheffer.
Framkvæmdastjórinn væntan-
legi hafnaði þeirri gagnrýni að
NATO væri úrelt fyrirbæri í leit að
nýjum tilgangi.
„Óvinurinn er ekki lengur hinn
hefðbundni óvinur heldur er óvin-
urinn til dæmis alþjóðleg hryðju-
verkastarfsemi, óvinurinn er við-
sjár, óvinurinn er óöryggi. Það er
ástæðan fyrir því að NATO er í
Afganistan og styður pólska herlið-
ið í írak. Það er hinn nýi óvinur,"
sagði hann í viðtali við breská ríkis-
útvarpið, BBC.
Evrópusinni
Jaap de Hoop Scheffer, sem nú
gegnir starfi utanríkisráðherra
Hollands, var í gær tilnefndur sem
eftirmaður Georges Robertsons lá-
varðar á stóli framkvæmdastjóra
NATO. Ráðamenn í Washington og
London fögnuðu tilnefningu hans.
De Hoop Scheffer lýsti sjálfum
sér, á fundi með fréttamönnum,
sem eindregnum evrópusinna og
stuðningsmanni samvinnu yfir Atl-
antshafið.
„Ég hef þegið tilnefninguna sem
Atlantshafssinni og sem Evrópu-
NÝR í BRÚNNI: Hollenski utanríkisráðherr-
ann, Jaap de Hoop Scheffer, hefur verið til-
nefndur framkvæmdastjóri NATO og tekur
við bandalaginu á umbrotatímum.
maður. Ég held að mjög vel sé hægt
að sameina þessa þætti þar sem
eðli NATO er að byggja á þeirri var-
anlegu brú milli heimsálfanna
tveggja," sagði hollenski utanríkis-
ráðherrann.
De Hoop Scheffer er 55 ára gam-
all og hefur lengið starfað í utanrík-
isþjónustu Hollands. Hann hefur
gegnt starfi utanríkisráðherra í
tveimur ríkisstjórnum hægri- og
miðflokkanna og hefur starfað sem
diplómat í höfuðstöðvum NATO í
Brússel.
ÞARFASTI
ÞJÓNNINN!
Leigan i þbm hverfi