Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2003, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2003, Qupperneq 2
2 FRÉTTtR MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003 ÚTGAFUFÉLAG: Otgáfufélagið DV ehf. FRAMKVÆMDASTJÓRI: ðm Valdimarsson AÐALRrrSTJÓRI: Óli Björn Kárason AÐSTOÐARRÍTSTJÓRI: Jónas Haraldsson DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749 Ritstjóm: ritstjorn@dv,is - Auglýsingar: auglys- ingar@dv.is. - Dreiflng: dreifmg@dv.is Akureyri: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot Útgáfufélagið D V ehf. Plötugerð og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endur- gjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fýrir myndbirtingar af þeim. Kemst á kvennafar - frétt bls. 8 Borgin breytist -fréttbls. 10-11 Tískuvikan í London -fréttbls. 12-13 Lifandi grasrót - Menning bls. 18 Mark hjá Jóa Kaila - DV Sport bls. 37 Sumarið hjá ÍA - DV Sport bls. 39 Reyndi að smygla snákum í buxunum 28 ára Svíi var handtekinn á flugvellinum í Sydney í Ástralíu á mánudagskvöldið þegar hann reyndi að smygla átta hættulegum snákum til landsins með því að líma þá við fótleggina á sér. Að sögn Chris Ellisons, dóms- málaráðherra Ástralíu, var mað- urinn, sem er 28 ára, að koma frá Taflandi þegar tollþjónar upp- götvuðu snákana sem hann hafði vafið inn í pappír áður en hann límdi þá fasta við fótleggina. Meðal snákanna voru íjórar baneitraðar kóngakóbrur sem þegar voru settar í örugga geymslu hjá sóttvarnareftirlitinu í Sydney. Að sögn Ellisons helur maður- inn verið ákærður fyrir ólöglegan innflutning á dýrum og mun koma fyrir rétt á morgun. Gengi deCODE upp VÍSINDI: Gengi hlutabréfa í deCODE, móðurfélagi Is- lenskrar erfðagreiningar, hækkað um 14 á hlutabréfa- markaði Nasdaq í Bandaríkj- unum í gær. Lokagengi var 4,75 dalir og hefur ekki verið hærra í rúmt ár. Nýleg upp- götvun lE á geni sem tengist hættu á heilablóðfalli hefur vakið mikla athygli. Stórblað- ið New YorkTimes greindi frá upptgötvuninni á forsíðu sinni og aðrir stórir fjölmiðlar hafa fylgt í kjölfarið. Fundur (E á heilablóðfallsgeninu vek- ur ekki síst athygli fyrir þá sök að heilablóðfall er ein af al- gengari dánarorsökum hins vestræna heims auk þess að vera algeng ástæða fyrir langtímaörorku fólks. Lægri einkunnir LAGANÁM: Lágmarkseinkunn í þremur námsgreinum á fyrsta ári lögfræði við Háskóla (slands verður lækkuð úr 7 í 6. Ákvörð- unin var tekin á deildarfundi lagadeildar. Orator, félaga laga- nema, fagnar þessari ákvörðun og telur félagið að hún geti ver- ið til þess fallin að fjölga nem- um í deildinni. Neyðarkall móður geðsjúkrar 16 ára stúlku sem fær hvergi aðstoð: Sextán ára reykvísk stúlka, sem þjáist af þunglyndi og geð- hvarfasýki, fær hvergi þá að- stoð sem hún þarf. Hún býr hjá móður sinni og þær eru báðar að gefast upp. DV hitti móður stúlkunnar, Sess- elju Garðarsdóttur, í gærkvöld. Hún féllst á að segja sögu dóttur sinnar sem er í einu orði sagt harm- saga. Vandamálin hófust í Rimaskóla, þar sem stúlkan var við nám. Þar lenti hún í alvarlegu líkamlegu og andlegu einelti. Hún skipti um skóla, en það dugði ekki til. Bera fór á þunglyndi hjá henni um 12 ára aldur og ágerðist það mjög fljótt. Það varð svo alvarlegt að hún fór að skera sig f handleggi, klóra sig, var með miklar svefntuflanir og átti það til að rústa heimilið. Allur líf- sneisti virtist úr henni, hún brosti aldrei og var orðin alvarlega veik. „Það er ólýsanlega sárt að horfa upp á barnið sittskera sig og mis- þyrma sjálfu sér mán- uðum saman." Stúlkan gekk til sálfræðings á þessum tíma og þar fékk hún þann úrskurð að auk eineltisins hefði hún trúlega verið ofvirk sem bam. Ofvirkni leiddi gjarna til þunglynd- is. Stúlkan endaði í neyðarvistun á geðdeild, sem leiddi til þess að hún fékk lyf sem hjálpuðu henni mikið. „Þá fékk ég dóttur mína aftur," segir Sesselja. „Hún fór að brosa og var róleg og yflrveguð." En það reyndist aðeins stund milli stríða. Fyrir rúmum tveimur ámm lenti stúlkan í slæmum fé- lagsskap, fór að neyta eiturlyfja og missti afar fljótt alla stjóm á neysl- unni. í desember 2002 var hún svo lögð inn á geðdeild á Akureyri vegna sjálfsvígshættu.Þar kom í ljós að lyfin sem hún var á vom hætt að virka. Skipta hefði þurft um lyf eða breyta skammtinum fyrir löngu. Geðlæknar og vistanir Nú hófst þrautaganga milli með- ferðarheimila og geðlækna. Stúlkan var greind með geðhvarfasýki 2. Hún talaði stöðugt um sjálfsvíg, skaðaði sjálfa sig með eggvopnum og var í botnlausri neyslu. Hún var vistuð nokkrum sinnum í neyðar- vistun, „sem er bara geymsla," seg- ir móðir hennar. Hún dvaldi á meðferðarheimilum, þ. á m. á Stuðlum. Þaðan strauk hún sex sinnum. Stúlkan fór síðan að Ár- NEYÐARKALL MÓÐUR: „Oll börn eiga rétt á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma er unnt að veita til verndar andlegu, líkamlegu og félagslegu heilbrigði þeirra," segir m.a. í Lögbók barnanna, þar sem er að finna helstu lagaákvæði, sem snerta börn og ung- linga hér á landi. Þetta má finna á vefsíðu Umboðsmanns barna, sem annaðist samantektina. Myndin er sviðsett. völlum. Þar líkaði henni vel. Eftir það fór hún f skóla. Þar var neysla í gangi og hún féll aftur. Hún hefur einnig dvalið á Vogi. Síðustu mán- uðir hafa verið hryggileg barátta upp á líf og dauða. Hún býr hjá móður sinni en hefur lagst út um helgar og verið þá á götunni. „Hún þolir ekki lengri tíma en helgarnar í senn," segir Sesselja. Um vistun og viðeigandi með- ferðarúrræði á geðdeild hefur ekki verið að ræða. Sesselja hefur margoft farið með dóttur sína að- framkomna á Barna- og unglinga- geðdeild LHS og reynt að koma henni þar inn, en ætíð verið vísað frá, m.a. „vegna fjársveltis". Síðast- liðið miðvikudagskvöld gafst stúlk- an svo upp og kvaðst vilja komast inn á geðdeild. Móðir hennar fór með hana á LHS við Hringbraut, þær hittu fagfólk og farið var yfir sögu stúlkunnar, bæði andleg veik- indi, stöðugar sjálfsvígstilraunir og ömurlega vanlfðan líkamlega og andlega. Eftir hátt í þrjá klukkutíma var henni tilkynnt að geðdeildin væri enginn staður fýrir unglinga, hún ætti að reyna neyðarvistun á Stuðlum eða Vogi. Þar með voru öll sund lokuð. Óiýsanlega sárt „Það er ólýsanlega sárt að horfa upp á barnið sitt skera sig og mis- þyrma sjálfu sér mánuðum saman," segir Sesselja. „Henni líður svo Ula innan í sér að hún reynir að yfirfæra andlegan sársauka yfir á lfkama sinn. Hún talar oft um að lífið sé ömurlegt, henni líði svo iHa. Hún geti ekki Ufað lengur, hún sjái engan tUgang með því. Hún vilji bara deyja. Hún eygir enga von, engin úrræði. Hún er ekki á lyfjum núna, því það er gagnslaust þegar hún er f eiturlyfjum. En hún segir að í vímu líði sér skást, þá gleymi hún ömurlegri andlegri van- h'ðan sinni um stund. Hún sendir með ýmsu móú frá sér neyðarkall um hjálp en fær engin svör. En sannast sagna er dóttir mín frá- bær stelpa," segir Sesselja enn frem- ur. „Hún á auðvelt með að læra, hún er listræn og músíkölsk og á ótrúlega framtíð fyrir sér, bara ef þjóðfélagið gefst ekki upp á henni eða hún á því. Ég trúi því ekki fyrr en í lengstu lög að það sé búið að loka á hana. Ég veit að það er ég sem stoppa hana af við að taka líf sitt. Hún veit hvers virði hún er mér, einkadóttirin mín, og hún veit að ef hún íyrirfer sér, þá fer ég líka. Ég get ekki lifað það af.“ iss@dv.is Ef hún deyr þá fer ég líka

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.