Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2003, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2003, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003 Samið um rekstur Nesstofu SAFN: Seltjarnarnesbær og Þjóðminjasafn Islands hafa samið um rekstur, viðhald og umsjón Nesstofu. Seltjarnar- nesbær og Þjóðminjasafnið taka höndum saman um við- gerðir og viðhald Nesstofu og þannig fær Seltjarnarnesbær nú tækifæri til að sinna þess- um miklu menningarverð- mætum á viðeigandi hátt. Bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi, Jónmundur Guðmarsson, hef- ur barist ötullega fyrir fram- gangi málsins og að hans und- irlagi voru m.a. teknar upp við ræður við menntamálaráðu- neyti og Þjóðminjasafn fyrir rösku ári. Þjóðminjasafnið hefur gætt þess með ágætum en margir hafa þó vissulega viljað sjá Nesstofu fá þann veigamikla sess sem þessari þjóðarger- semi hæfir í bæjarlífi Seltirn- inga og með það fyrir augum er þessi samningur gerður. Samkvæmt samningsdrögum mun Seltjarnarnesbær kosta hönnun og frágang á lóð en Þjóðminjasafnið greiðir kostn- að vegna endurbóta á húsinu sjálfu. Nesstofa er eitt af elstu stein- húsum landsins, reist á árun- um 1761 til 1763 fyrir fyrsta landlækni Islands, Bjarna Páls- son. NESSTOFA: Aðseturfyrsta land- læknis Islands fær nú viðhlítandi meðferð og verður miðstöð heilbrigðisminja landsins alls. Styrmir kominn í dýragarð í Svíþjóð: Kemst líklega á kvennafar „Styrmir var þreyttur þegar ég kom með hann í sóttkvína. Hann skalf á leggjunum en lagðist svo bara, en hann lítur vel út. Þetta er vel haldinn fugl," sagði Thomas Ohlsson, umsjónarmaður storksins Styrmis, þegar DV talaði við hann í dýragarði sem opinn er almenningi alla daga í þorpinu Höör á Skáni í Suður-Svíðþjóð. „Ég er 99 prósent viss um að þessi storkur er karlkyns og að hann er að minnsta kosti tveggja ára. Styrmir er því rétt nafn,“ sagði Thomas. „Hér verður storkurinn í 20 daga. Þá flytjum við hann senni- lega til Karup, sem er einn af þeim sjö stöðum þar sem við erum með storka. Þar hittir hann fleiri fugla, bæði karl- og kvenkyns," sagði Thomas, sem starfar fyrir Fugla- fræðifélagið á Skáni en að því koma einnig opinberir aðilar auk World Wide Fund for Nature. Thomas segir að verði Styrmir búinn að aðlag- ast kvenfugli í vor verði parinu sleppt árið 2005. Ég hefenga ástæðu til að ætla ann- að en að Styrmir muni para sig og síðan fjölga sér. Fer sennilega til Afríku Thomas segir að verði Styrmir búinn að aðlagast kvenfugli í vor verði parinu sleppt árið 2005. „Ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að Styrmir muni para sig og síð- an fjölga sér. Mér fmnst álitlegast að hann geri það í haldi eins og Sví- arnir ætla sér,“ sagði Ólafur Niel- sen, fuglafræðingur hjá Náttúru- fræðistofnun íslands, við DV en hann fangaði Styrmi rétt fyrir síð- ustu jól austur í Breiðdal. Var það Siðustu sætin! R Veðrið í Algarve í september er rómað enda meðalhiti | 22-26°C. Fjölbreytt þjónusta fararstjóra okkar, vandaðar ? skoðunarferðir og sérsamningar um vallargjöld á alla z helstu golfvelli Algarve ásamt vönduðum gisti- stöðum er trygging fyrir ánægulegri haustferð. TERRA vyiv NOVfi jsól - 25 ÁRA 0C TRAUSTSINS ViRB Stanyáíayl 3-110 Reykjaíik S: 591 9000 • terranova.is • info@terranova.is UPPELDI: Nú er Styrmir kominn til Svíþjóðar þar sem hann verður sennilega fram á árið 2005. Með honum fór Margrét Dögg Halldórsdóttir, yfirdýrahirðir Húsdýragarðsins. Hún er lengst til hægri á myndinni sem tekin var þegar verið var að þvo storknum hátt og lágt áður en hann var sendur úr landi. DV-myndGVA gert samkvæmt leiðbeiningum frá framangreindum samtökum í Sví- þjóð. „Storkurinn er viðráðanlegur fugl og fljótur að venjast nýjum að- stæðum," sagði Ólafur. Þegar DV spurði Thomas Ohls- son hvert hann teldi að hin vænt- anlega fjölskylda Styrmis færi þegar henni yrði sleppt, sagði hann: „Eiginlega veit ég það ekki. Kannski aftur til fslands! Nei, sennilega ekki. Að líkindum fljúga fuglarnir þá til Afríku til vetursetu haustið 2005. Svo gætu þeir komið aftur til Svíþjóðar, annars veit mað- ur það ekki,“ sagði Thomas. Hann segir ástæðuna fyrir því að Styrmir kom upphaflega til íslands líklega þá að hann hafi lent í stormi og hreinlega fokið af leið. Önnur gæti verið sú að áttaskyn hans, „innri kompásinn“, hafi brenglast. Það fyrrnefnda sé þó líklegra. - En hvaðan kom þá Styrmir til íslands? „Ég efast um að það hafi verið frá Svfþjóð því flestir storkar hér hafa verið merktir. Mér finnst líklegast að hann hafi komið frá Þýskalandi, Póllandi eða Eistlandi," sagði Thomas Ohlsson. ottar@dv.is Dálítið stirður. Þegar Styrmir kom loks í dýragarðinn í Sviþjóð og losnaði eftir langa prísund úr búrinu alla leið frá Reykjavík, titruðu fæturnir. Hann var orð- inn þreyttur og lagðist til hvíldar. DV-mynd Margrét Dögg Fjölbrautaskóli í Grundarfirði 2004 Fjölbrautaskóli Snæfellinga mun taka til starfa haustið 2004 og verð- ur skólabyggingin við Grundargötu í Grundarfirði.Ýsamkvæmt sam- komulagi sveitarfélaganna á norð- anverðu Snæfellsnesi.ÝSkólanum er ætlað að vera leiðandi í breyttum námsháttum með notkun upplýs- ingatækninnar.ÝEr áætlað að nem- endur verði alls um 170 talsins, fyrstu tvö skólaárin verði í boði haustið 2004, þriðja árið bætist við haustið 2005 og það fjórða 2006. Arkitektar eru þegar langt komn- ,ir með að vinna fyrstu teikningar að skólahúsnæðinu.ÝGert er ráð fyrir að starf skólameistara verði auglýst fyrir áramót og annarra starfs- manna á fyrstu mánuðum ársins 2004.ÝSkólameistari mun taka endanlega ákvörðun um hvaða námsbrautir verða í boði við skól- ann, en fyrirsjáanlegt er að hægt verði að bjóða upp á almenna braut, 2 stúdentsbrautir og nokkrar starfsnámsbrautir, með því að nýta fyrirkomulag dreifnáms.Ý Nem- endur sem hafa áhuga á öðrum námsbrautum ættu síðan að geta tekið ákveðin grunnfög í stað- bundnu námi við skólann og frek- ari áfanga í fjarnámi frá skólanum. gg@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.