Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2003, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2003, Page 14
74 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003 SIGURSTUND: Unglr Palestínumenn fagna fréttum af hryðjuverkaárás Hamasliða á Israela. Ekkert bendir tii að hægt verði að kveða múslímska hryðju- verkamenn í kútinn með skyndilausnum, heldur eflast þeir við hverja raun og fjölgar eftir því sem harðar er gengið að þeim. Þrjátíu ára stríðið er rétt að hefjast. Þetta eru skoð- anir M. C. Clemmesen hershöfð- ingja sem hann setur fram í grein í Weekendavisen. Árásirnar á Miðstöð alþjóðavið- skipta og Pentagon fyrir tveim árum varð til þess að múslímskum hryðjuverkamönnum var sagt stríð á hendur og að þeir yrðu hundeltir um öll lönd veraldar og felldir hvar . sem til þeirra næðist. Með amer- ískri bjartsýni og hæfileikum til að skilgreina var auðvelt að ákvarða hvar rætur hins illa liggja. Farið var í stríð í Afganistan, sím- ar allra landa hleraðir, nokkrir hermdarverkamenn teknir af lífi í Yemen með fjarstýrðri sprengju- flugvél og sérfræðingar bandarísku alríkislögreglunnar voru sendir til að rannsaka hryðjuverkaárásir á Balí, í Kenía, Filippseyjum og loks í írak. Ríki sem iengi hafa mátt þola skærur og árásir múslíma, eins og Indland og fsrael, nutu vaxandi samúðar og aðstoðar. Pakistan, Saudi-Arabía ásamt því sem eftir er af sjálfstjórn Palestínu fengu að heyra að BNA grunaði ríkin um græsku og var krafist að þau sýndu samvinnuvilja. Hins vegar er dagljóst að hvergi er gerð tilraun til að huga að upp- tökum vandamálsins eða hvaða hugmyndafræði og hugsjónir liggja að baki hermdarverkunum eða reynt að skilja hvemig stendur á heiftarhug margra múslíma gagn- vart vestrænum áhrifum og lífsgild- um. Því munu átökin harðna og munu magnast næstu áratugina og ná til flestra heimshorna. Innrásin í írak var skipulögð í Pentagon þar sem fljótfæmislegar stríðsaðgerðir vom ákveðnar og vom þær einstaklega ófagmann- lega unnar. Vandaðar áætlanir ut- anríkisráðuneytisins um hvernig staðið skyldi að uppbyggingunni ÁFRAM VERÐUR DEILT: Ekkert útlit er fyrir að deilurnar milli Israela og Palestlnumanna séu I rénun eða að endanlegar sættir séu í augsýn. eftir hemámið vom hunsaðar. Þau alvarlegu mistök verða til þess að Bandaríkjamenn hafa lagt gmnn- inn að andspyrnuhreyfingum í landinu og nýjum vígvöllum fyrir andstæðingana að sækja fram á í stað stöðugleika og vinsamlegrar samvinnu til að byggja upp landið sem nú er í rústum, bæði hvað snertir alla innviði og pólitíska stjórnun. Menntun án tækifæra Þeir heimshlutar sem teljast múslímskir, ekki síst þjóðirnar í Mið-Austurlöndum, em að stíga fyrstu skrefin frá því að vera strjál- býl og fátæk landbúnaðarsvæði þar sem hirðingjar reikuðu um og ólæsi var almennt, í að skipa sér í sveit með þróaðri iðnríkjum. Það vom aðeins böm ríkra yfirstéttarmanna sem nutu menntunar. Börn sívaxandi millistéttar eiga þess nú kost að ganga í skóla og læra að lesa, en verða að gera sér að góðu að safnast saman í fátækra- hverfum stórborganna. En hvorki efnahagsástandið né hæfni yflr-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.