Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2003, Qupperneq 19
í konuleit
SETNINGAFRÆÐI: (kvöld kl.
20.30 heldur Félag íslenskra
fræða fyrsta rannsóknakvöld
vetrarins í Sögufélagshúsinu í
Fischersundi. Þá flytur Ásgrím-
ur Angantýsson málfræðingur
erindið „Karlarnir, þeir eru í
konuleit og konurnar, þær eru
í karlaleit. Um orðaröð, tónfall
og setningaráherslu í íslensku".
Allir velkomnir, frítt inn.
Jón á Bægisá
TÍMARrT: Sjöunda hefti af þýð-
ingatímaritinu Jóni á Bægisá er
komið út. „Þegar stríðið að
stríðinu verður" eru einkunnar-
orð þessa tölublaðs en í því er
að finna smásögur og Ijóð frá
Mið-Austurlöndum sem opna
okkur hugarheim fólksins þar
betur en fréttir fjölmiðla. Af
fræðilegu efni má nefna fróð-
lega grein eftir Auðnu Hödd
Jónatans-
dóttur og
Rannveigu
Jónsdóttur
um hagnýtar
hliðar þýð-
inga hérá
landi. Gtgef-
andi er Ormstunga og eru
nánari upþlýsingar á vefsetrinu
www.ormstunga.is.
Júlíana íheild
á tímabærri yfirlitssýningu í Listasafni íslands
Nú stenduryfir í Listasafni fslands yfirlitssýning
á verkum Júlíönu Sveinsdóttur (1889-1966)
sem dregur fram öll meginþemu í list hennar.
Júlíana tilheyrir brautryðjendum íslenskrar mál-
aralistar og er ein affyrstu konunum hér á landi
sem gerði þá list að ævistarfi sínu.
Á sýningunni, sem ber yfirskriftina „Vefur
lands og lita", gefst einstakt tækifæri til að
kynnast list júlíönu því að svo yfirgripsmikil
sýning á verkum hennar hefiir ekki verið
haldin áður. Verk hennar eiga sér fastan sess
í íslenskri listasögu og ljóðræn túlkun hennar
á íslenskri náttúru markar henni sérstöðu í
íslenskri myndlist.
Júlíana var einnig mikilvirkur listvefari og
vel metinn frumkvöðull á því sviði og á sýn-
ingunni eru listvefnaði hennar gerð góð skil.
Á sínum tíma vakti hún athygli bæði fyrir ný-
tískuleg fataefni og listrænan myndvefnað.
Júlíana Sveinsdóttir bjó mestan hluta ævi
sinnar í Danmörku en var alla tíð nátengd ís-
landi. Töluvert af verkum sem ekki hafa verið
sýnd hérlendis áður má sjá á sýningunni. Þar
SJÁLFSMYND LISTAKONU: Júlíana Sveinsdóttir, séð
með eigin augum (1956). Hún málaði hátt á annan tug
sjálfsmynda.
MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003 MENNING 79
Leikið lausum hala
Stuttmyndir
KVIKMYNDIR: Lundabíó heldur
stuttmyndakvöld í Norræna
húsinu í kvöld kl. 20. Verða
sýndar sjö stuttmyndir frá Ind-
landi, Bretlandi, Bandaríkjun-
um, Hollandi og Kanada. Að
lokum verður sýnd klassísk
bresk mynd frá sjöunda ára-
tugnum.
Vetrardagskránni verður dreift
á staðnum.
TÓNLIST: Kl. 12 á hádegi á
morgun halda fiðluleikarinn
HjörleifurValsson og Antonia
Hevesi píanóleikari tónleika í
Hafnarborg. Hjörleifur lauk ein-
leikaraprófi frá tónlistarháskól-
anum í Ósló árið 1993 og hlaut
þá styrk frá tékkneska ríkinu til
náms við Prag-konservatóríið.
Hann hefur komið fram á fjölda
tónleika víða um Evrópu, samið
og útsett tónlist fyrir leikhús og
tekið þátt í upptökum fyrir út-
varp, sjónvarp, kvikmyndir og
hljómplötuútgáfur. Antonia
Hevesi er vel kunn hér á landi.
Hún hefur haldið fjölda tón-
leika í Ungverjalandi, Austurrík ,
Svíþjóð og fslandi. Á efnisskrá
hádegistónleikanna eru m.a.
verk eftir Brahms og Smetana.
Frítt inn.
LISTAKONAN Á UÓSMYND:
Júlíana Sveinsdóttir mynd-
listarmaður (1889-1966) við
trönurnar.
ber hæst ofið veggteppi sem Júlíana hannaði
fyrir Hæstarétt Dana á 300 ára afmæli réttar-
ins árið 1962. Auk teppa má sjá vefstól
Júlíönu og skissur á sýningunni nú og gefa
þær góða mynd af því hvernig hún vann. Til
marks um stöðu Júlíönu í danska listheimin-
um hlaut hún hin virtu Eckersbergs-verðlaun
árið 1947 og 1951 var hún fulltrúi Dana á IX.
ítalska þríæringnum í Mílanó og vann þar
gullverðlaun fyrir vefnað.
Júlíana Sveinsdóttir hefur
sýnt íslendingum fegurð og
fjölbreytileika íslenskrar nátt-
úru á einkar persónulegan og
einlægan hátt.
Á sýningu Listasafns íslands eru yfir 100
verk, málverk, vefnaður, teikningar og skissur
sem varpa ljósi á feril Júlíönu. Auk þess gefúr
Listasafn íslands út bók með greinum um
ævi og list Júlíönu Sveinsdóttur og fjöldaljós-
mynda af verkum hennar. Þar fjalla þrír list-
fræðingar um Júlíönu og framlag hennar:
Dagný Heiðdal skrifar greinina „fslenskur
listamaður í Danmörku", Harpa Þórsdóttir
greinina „Ofið úr íslenskri ull“ og Hrafnhild-
ur Schram „Svart grjót, blátt haf'. Hrafnhild-
ur lýkur umfjöllun sinni á þessum orðum:
Þegarlitið er yfír ferii Júhonu Sveinsdóttur
má segja að lífsverk hennar hafí veríð óður til
landsins sem hún var iangtímum fjarri. Hún
hefur sýnt ísiendingum fegurð og fjölbreyti-
leika íslenskrar náttúru á einkar persónuleg-
an og einlægan hátt. Þar fer saman sterkur
expressjónískur strengur, Ijóðrænt viðhorftil
náttúrunnar og hrífandi, dramatísk litasýn.
Sýningarstjórar eru Harpa Þórsdóttir og dr.
Ólafúr Kvaran. Sýningin stendur til 26. októ-
ber og safnið er opið kl. 11-17 alla daga nema
mánudaga.
—
1897-1997
BORGARLEIKHÚSIÐ
FÖSTUDAGUR
26. SEPT. kl. 20
STÓRTÓNLEIKAR.
ÖRFÁSÆTILAUS
Sigrún Hjálmtýsdóttir,
Gunnar Guðbjörnsson,
Kristinn Sigmundsson og
Jónas Ingimundarson.
íslensk sönglög og
óperuaríur.
Miðaverð: 2.500 kr.
LAUGARDAGUR
27. SEPT. kl. 21
FERÐALÖG UM ÍSLAND
KK og Magnús Eiríksson
flytja lög af nýútkominni
geislaplötu.
Miðaverð: 2.000 kr.
MUNIÐ NETSÖLUNA:
www.salurinn.is
Auöi(
3gÆÆSfel::
Miðasala 5 700 400
■' - 'ý',;:':;
leikfélagSII
BfREYKJAVÍKUR^
1897-1997 ^
STÓRA SVIÐ I
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Lau. 27/9 kl. 14 - UPPSELT
Su. 28/9 kl. 14 - UPPSELT
Lau. 4/10 kl. 14 - UPPSELT
Su. 5/10 kl. 14 - UPPSELT
Su. 5/10 kl. 17 - AUKASÝNING
Lau. 11/10 kl. 14 - UPPSELT
Su. 12/10 kl. 14 - UPPSELT
Lau. 18/10 kl. 14
Su. 25/10 kl. 14
Su. 26/10 kl. 14
ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield
Lau. 27/9 kl. 20
Lau. 4/10 kl. 20
Fö. 10/10 kl. 20
PÚNTILA OG MATTI e. Bertolt Brecht
Fi. 25/9 kl. 20
Fö. 3/10 kl. 20
Lau. 11/10 kl. 20
Su. 19/10 kl. 20
Su. 26/10 kl. 20
Ath. Aðeins þessar sýningar
VERTU MEÐ! Á kynningarkvöldi.
Við kynnum leikárið
fyrir gestum og gangandi!
Fjölbreytt - Frábært - Óvænt
Leikur - Söngur - Dans - Veitingar
í kvöld kl. 20 - Aðgangur ókeypis
Sala áskriftarkorta og
afsláttarkorta stendur yfir.
Sex sýningar: Þrjár á Stóra sviði,
erjár að eigin vali.
r. 9.900
Tíumiðakort: Notkun að eigin
vali.
Kr. 16.900
Komið á kortið: Fjórir miðar á
Nýja svið/Litla svið.
Kr. 6.400
VERTU MEÐ
í VETUR.
3 tilnefningar til Grímuverðlaunanna 2003!
Sýningar hefjast á föstudag - Örfáar sýningar í haust
"...Theodórjúlíusson fór hamförum á svióinu
og sýndi svo stórkostlegan leik aó helst væri hægt
aó kalla slíkt leiftursókn til leiksigurs." shmöi.
Púntila bóndi
og Matti vinnumaður
eítir Bcrtolt Brecht. Leikstjóri: Guðjóri Pederscn
BORGARLEIKHUSIÐ
l elkíélítji Ktykjftvrt'iuf * ibfabniui * * \ 03 Rv'ykjðVlk
MlðaHwlri StS8 8000 • www .boi^aflölkJtftft is
) ií
017 il