Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2003, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2003, Page 20
20 SKOÐUN MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 20033 Eðlileg uppstokkun atvinnulífsins Þeir sem halda því fram að atburðir síðustu viku, þegar gríðarleg uppstokkun átti sér stað í viðskiptalífmu undir forystu fslandsbanka og Landsbanka, sýni óeðlilega samþjöppun valds og auðs, hafa rangt fyrir sér. Valdabarátta í íslensku atvinnulífi er ekki ný, en með þróun hlutabréfamarkaðar og opinni umfjöllun fjölmiðla hefur hún orðið meira áberandi. Og valdabarátta í viðskiptalífinu er eðlilegur fylgifiskur frjáls markaðsbúskapar og getur skapað farveg fyrir nauðsynlegar breyt- ingar. Fjölmiðlar þurfa oft að einfalda hlutina til að draga upp skýrari mynd af því sem er að gerast í þjóðfélaginu á hverjum tíma. Á stundum gengur sú einföldun út í öfgar. Þetta á ekki hvað síst við um þá áráttu fjölmiðla að stilla við- skiptalífinu upp í tvennt; kolkrabba og smokk- fisk. Háhyrningurinn kom síðar. í sinni einföldu mynd má halda því fram að fýrir áratug eða svo hafi verið réttlætanlegt að styðjast við lífríki sjávar til að lýsa viðskiptalífinu og valdabaráttu innan þess. Gömlu valdablokkirnar voru fyrir löngu farn- ar að riðlast áður en uppstokkunin í síðustu viku átti sér stað. Raunar má halda því fram að þær hafi í raun heyrt sögunni til fyrir nokkrum árum, a.m.k. þegar rætt er um hlutfallsleg völd og áhrif í íslensku viðskiptalífi. Og hin sögulega skipting atvinnulífsins í Sambandið og einkaframtakið - í smokkfiskinn og kolkrabbann, er aðeins í sögubókum og flestum óskiljanleg - jafnvel þeim sem eldri eru. Skiptin sem þrifust í skjóli hafta og opinberra afskipta af atvinnulífinu. Uppskiptin íliðinni viku eru aðeins einn kafli í rúmlega áratugar sögu minnkandi áhrifa gamalla valda- blokka sem raunar voru farnar að riðlast verulega. Þrír meginþættir hafa öðrum fremur orðið til að ýta undir þessa þróun. Múrar valdsins molna Stjórnarformennska í Eimskip tryggði við- komandi einstaklingi meiri völd og áhrif í ís- lensku viðskiptalífi en flestar ef ekki allar aðrar stöður. Og þegar tengdir aðilar stjórnuðu stærsta tryggingafélagi landsins, sem teygir anga sína um allt atvinnulífið líkt og Eimskip gerir, er óhætt að fullyrða að völdin og áhrifin voru mikil. Samþætting Eimskips og Sjóvár-Al- mennra tryggði valdaþræði í allar atvinnugrein- ar, frá sjávarútvegi til flutninga, frá olíufélögum til útflutningsfyrirtækja, frá iðnfyrirtækjum til trygginga, frá bönkum til hátæknifyrirtækja. En þótt enginn hefði átt að fara í grafgötur um það hverjir hefðu valdaþræðina í sínum hönd- um var eignarhald þessara fyrirtækja, og þá fyrst og fremst Eimskips, orðið óskýrt og út- þynnt. Uppskiptin í liðinni viku breyta þessu. Eignarhaldið verður skýrara og skýrt eignarhald ætti að öðru óbreyttu að vera kostur og auka styrk fyrirtækisins og treysta bakland stjórn- enda þess. Uppskiptin í liðinni viku eru aðeins einn kafli í rúmfega áratugar sögu minnkandi áhrifa gam- alla valdablokka sem raunar voru farnar að riðl- ast verulega. Þrír meginþættir hafa öðrum fremur orðið til að ýta undir þessa þróun: Markaðsvæðing sjávarútvegsins með innleið- ingu kvótakerfisins hefur aftur gert mönnum kleift að efnast á sjávarútvegi. Glæsileg fyrirtæki í sjávarútvegi hafa orðið til - fyrirtæki sem hafa fjárhagslega burði til að taka þátt í atvinnulífinu á öðrum sviðum. Sá tími er liðinn að sjávarút- vegsfyrirtæki séu rekin upp á náð og miskunn banka og þjónustufyrirtækja sem reglulega breyttu skuldum í híutafé. Nú hafa hlutirnir sem betur fer snúist við, bankar keppast við að ná viðskiptum við útgerðina og útgerðarmenn eru þátttakendur í öðrum fyrirtækjum. Aukið frelsi á fjármálamarkaði með uppbygg- ingu hlutabréfamarkaðar og að mestu frjálsu fjármagnsflæði hefur gert fýrirtækjum, fjárfest- ingarfélögum og einstaklingum, að ógleymdum lífeyrissjóðunum, kleift að taka beinan þátt í at- vinnurekstri og auðgast á stundum verulega. Frjálsræðinu og hlutabréfamarkaðinum fýlgir krafan um arðsemi. Völd og áhrif eru ekki leng- ur drifkraftur viðskiptalífsins eða mælikvarði á árangur. Þróun fjármálamarkaðarins hefur dregið hægt en örugglega úr áhrifum stjórn- málamanna og valdsherra einkaframtaksins og Sambandsins. Möguleikar til fjármögnunar fyr- irtækja eru allt aðrir en áður. Menn með góðar hugmyndir og arðvænlegar ganga ekki lengur með bedistaf í hendi. Ein mesta hætta sem steðjar að ís- lenskum fjármálastofnunum, og þar með að íslensku viðskipta- og efna- hagslífi, erað tilfinningin fyrirís- lensku þjóðfélagi - fyrir íslensku þjóðarsálinni - dofni í flóknum excel-æfingum. Jafnvægi í efnahagsmálum vegna skynsam- legrar stefnu Seðlabankans í peningamálum samhliða auknu (en því miður ekki nægilega miklu) aðhaldi í ijármálum ríkisins, hefur gert markaðsvæðingu sjávarútvegsins og þróun fjármálamarkaðarins mögulega. Þessir þrír þættir hafa lagt grunninn að auð- legð fjölda einstaklinga og gert það fýsilegt fyrir aðra að fjárfesta erlendan hagnað hér á landi. „Utangarðsmennirnir" hafa á síðustu 10-15 árum orðið valdamiklir leikendur í viðskiptalíf- inu og múrar hins gamla valds hafa molnað niður hægt en örugglega - löngu áður en upp- skiptin miklu áttu sér stað í liðinni viku. Og til þess var leikurinn gerður. Hætturnar fyrir bankana Ein mesta hætta sem steðjar að íslenskum fjármálastofnunum, og þar með að íslensku viðskipta- og efnahagslífi, er að tilfinningin fyr- ir íslensku þjóðfélagi - fyrir íslensku þjóðarsál- inni - dofni í flóknum excel-æfingum. Sérfræðingar bankanna geta reiknað sig fram og til baka. Búið tíl fyrirtæki, sameinað fyrirtæki eða sundrað þeim í margbrotum töflureiknum og reiknilíkönum. En niðurstaða fallega upp- settra excel-skjala er eitt. Þekking á viðskiptalíf- inu og á þjóðfélaginu og skilningur á þeim und- irstraumum sem alltaf eru til staðar, er annað. Ef ákvarðanir banka verða í framtíðinni tekn- ar á grundvelli excel-æfinga en þekking og skilningur á þjóðfélaginu eru látin lönd og leið, mun það hafa skelfilegar afleiðingar í för með sér. Ekki aðeins fyrir bankana sjálfa heldur fyrir þjóðfélagið allt. Áhyggjur af því að bankar séu farnir að sitja báðum megin við borðið eru ekki ástæðulausar. Ekki aðeins eru bankarnir viðskiptabankar fyr- irtækja heldur eru þeir einnig orðnir stórir eig- endur sinna eigin viðskiptavina. Þessu til við- bótar vakna grunsemdir þeirra sem eru keppi- j nautar viðkomandi fyrirtækis og um leið við- skiptavinir banka um að þeirra hagsmunum verði kastað fýrir róða. Fyrir banka eru grun- semdir af þessu tagi hættulegar. Ásýnd og trú- verðugleiki eru gríðarlega mikilvægir þættir í | starfsemi allra fjármálastofnana - eru raunar hornsteinar þeirra. Hætta á hagsmunaárekstrum verð- ur alltaffyrir hendi þegar bankar taka afskarið og taka með beinum hætti þátt í rekstri sem er alls óskyldur fjármálastarfsemi. Á sínum tíma töldu Eimskipafélagsmenn að Landsbankinn væri kominn út á hálan ís þegar bankinn átti gríðarlegra hagsmuna að gæta í | Samskipum og tók virkan þátt í uppbyggingu skipafélagsins enda með stóran eignarhlut. Forráðamenn bankans tóku myndarlegan þátt í viðskiptasamningum Samskipa þegar verið var að byggja félagið upp. í ljósi þess að Lands- bankinn var, og er raunar enn, viðskiptabanki Eimskips voru áhyggjur Eimskipafélagsmanna skiljanlegar - þátttaka bankans í Samskipum var að þeirra mati óeðlileg og þó ekki síður óþægileg. Svipuð staða kann að koma upp aftur. Hætta á hagsmunaárekstrum verður alltaf fyrir hendi þegar bankar taka af skarið og taka með beinum hætti þátt í rekstri sem er alls óskyldur fjármálastarfsemi. Einmitt þess vegna getur það aldrei og má aldrei vera markmið banka að eiga til lengri tíma ráðandi hlut í fyrir- tækjum í ólíkri starfsemi. En á stundum neyðast bankar til að taka fyr- irtæki yfir eða að hrein skynsemi segir að nauð- synlegt sé að taka þátt í umbreytingu fyrirtækis eða leiða uppstokkun á markaði. Fjármálafyrirtækin hafa á undanförnum árum verið drifkraftur róttækra en nauðsyn- legra breytinga í íslensku viðskiptalífi. Breytt eignarhald og nýsköpun hefur að stórum hluta verið fjármagnað af fjármálafyrirtækjunum sem aftur hafa gert tugþúsundum íslendinga kleift að taka þátt í atvinnulífinu með beinum hætti. Stofnun Baugs er að líkindum eitt skýrasta dæmið um hvernig fjármálafyrirtækin mynduðu farveg fyrir breytingar og umpólun í íslensku viðskiptalífi. Skrattanum skemmt Þeir sem halda því fram að atburðir síðustu j viku sýni og sanni (í það minnsta veki spurn- ingar um) að valdasamþjöppun og auðsöfnun fárra hafi aukist hafa rangt fýrir sér. Þvert á móti hefur valddreifing aldrei verið meiri og íslensk- ir auðmenn hafa aldrei verið fleiri. Aukið frjáls- ræði hefur því skilað gríðarlegum árangri. Hitt er svo annað að einhverjum kann að mislíka I hverjir hafa efnast og hverjir hafa þurft að láta eftir völd og áhrif. Þetta er eðli frjálsræðisins - j frelsið er fyrir alla en ekki aðeins hina útvöldu. Hvort uppstokkunin var skynsam- leg eða ekki getur enginn dæmt um á þessu stigi. Eini dómarinn er reynslan. Og efskilningur og þekk- ing á þjóðfélaginu fá að vera með í för er ekki ástæða til að óttast að illa takist til. 11 Breytingarnar á eignarhaldi Eimskips, Sjóvár- Almennra og tengdra fyrirtækja eru í sjálfu sér eðlilegur hluti af þeirri þróun sem átt hefur sér stað á síðustu árum. Hvort uppstokkunin var skynsamleg eða ekki getur enginn dæmt um á | þessu stigi. Eini dómarinn er reynslan. Ef skiln- 1 ingur og þekking á þjóðfélaginu fá að vera með í för er ekld ástæða til að óttast að illa takist til. Rangt er að reyna að gera eðlileg viðskipti - sem þrátt fyrir allt eru gerð með fyrirvara um j samþykki hluthafa - tortryggileg. Slíkt er aðeins | til að skemmta skrattanum og þeim fáu sem ;; alla tíð hafa haft horn í síðu frjálsræðis.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.