Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2003, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003 FÓKUS 23
Það hefur skapast mikil eftirvænting eftir nýju Muse-plötunni,
Absolution, sem er nýkomin út. Trausti Júlíusson rifjaði upp sögu
hljómsveitarinnar og hlustaði á plötuna sem margir gagnrýnendur
eru þegar farnir að kalla bestu rokkplötu ársins.
Kraftmikið og marg-
slungiS rokktónverk
„Það truflar okkur ekkert,“ segir Dominic Howard,
trommuleikari bresku hljómsveitarinnar Muse, þegar hann
er spurður út í staðhæfingar um að hljómsveitin sé offnetin.
„Þetta eru bara skoðanir fólks. Þær hafa engin áhrif á það
hvemig við búum til okkar tónlist. Við gerum bara nákvæm-
lega það sem við viljum gera.“ Hafi Muse einhvem tímann
verið hampað mikið í tónlistarpressunni þá eru engar líkur á að
það minnki í kjölfar nýju plötunnar, Absolution, sem kom út
á mánudaginn. Hún er enn þá öflugri heldur en síðasta plata,
Origin Of Symmetry sem kom út árið 2001. Absolution er
margbrotin og kraftmikil plata, óslitin rokkveisla ffá fyrsta
laginu Apocalypse Please og til þess síðasta Rule By Secrecy.
Skólafélacar frá Devon
Muse er tríó, skipað þeim Matthew Bellamy, söngvara og
gítarleikara, Chris Wolstenhome bassaleikara og Dominic
Howard trommuleikara. Þeir eru frá smábænum Teignmouth
í Devon á Suður-Englandi. Þeir vom skólafélagar og stofnuðu
hljómsveitina þegar þeir voru 13 ára. Þeir kölluðu hana ýms-
um nöfhum áður en þeir duttu niður á Muse-nafhið, þ.á m.
Gothic Plague, Fixed Penalty og Rocket Baby Dolls. Árið
1998 gaf tríóið út sína fyrstu ep-plötu sem það nefridi einfald-
lega Muse. Hún innihélt fjögur lög og var gefin út af smáfyr-
irtækinu Dangerous Records. Hin 6 laga Muscle Museum
fylgdi í kjölfarið árið eftir. Muse þótti minna mikið á Radio-
head í upphafi ferilsins. Effir ffábæra tónleika á CMJ-tónlist'
arhátfðinni í New York 1999 gerðu félagamir samning við
plötufyrirtæki Madonnu, Maverick Records í Bandaríkjun-
um og Mushroom Records f Bretlandi. Fyrsta stóra platan
þeirra Showbiz kom út seint á árinu 1999 og fékk ágætar við-
tökur. Fyrir tveimur árum kom svo önnur platan, Origin Of
Symmetry. Frábær plata sem var töluvert betri en frumburð-
urinn.
SUKK OG SYNDAAFLAUSN
Origin Of Symmetry sló rækilega í gegn í Bretlandi og náði
platfnusölu. Muse fylgdi henni eftir með 18 mánaða tónleika-
ferðalagi sem lauk á Reading tónlistarhátíðinni 2002. Platan
var hins vegar ekki einu sinni gefin út í Bandaríkjunum. Ma-
verick fannst hún ekki nógu útvarpsvæn og þegar forsvars-
menn útgáfunnar fóru ffam á að hljómsveitin endurhljóðritaði
smáskífulagið Plug In Baby án falsettu-söngsins fyrir banda-
rískar útvarpsstöðvar þá ákváðu Muse-menn að þeir ættu ekki
samleið með Maverick lengur. Origin Of Symmetry tónleika-
ferðin var mikil sukkferð. Matt söngvari hætti með kærust-
unni sem hann hafði verið með síðan hann var 16 ára þegar
ferðin var hálfnuð og upp úr því var hljómsveitarrútan að sögn
oft fhll af klæðalausum grúpppíum. Eftir tónleikana á Read-
ing í fyrra tók sveitin sér nokkurra mánaða ffí til þess að ná
áttum og hlaða batteríin, en svo var leigt æfingahúsnæði í
London. Áður en byrjað var að taka upp nýju plötuna sem eins
og áður segir heitir Ábsolution (syndaaflausn) gerðu þeir alls
konar tilraunir með hugmyndir og hljóm. Origin Of
Symmetry var tekin upp á hlaupum á milli tónleika, en þeg-
ar þeir voru að vinna Ábsolution gátu þeir einbeitt sér algjör-
lega að plötunni og höfðu engar aðra skyldur. I fyrra, á milli
Origin Of Symmetry og Absolution, kom út tvöföld plata
Hullabaloo Soundtracks sem innihélt 10 b-hliðalög og 11 lög
tekin upp á tónleikum, þar af tvö ný.
ÁHRIF FRÁ KLASSÍSKRI TÓNLIST
Matt Bellamy hefur mikið dálæti á klassískri endurreisnar-
tónlist. Hann heldur m.a. upp á Bach, Palestrina og kóratón-
list. Áhrif ffá klassískri tónlist eru nokkuð áberandi á
Absolution. Sum laganna hafa svipaða uppbyggingu og
klassík; kaflaskiptin og áherslubreytingamar eru svipaðar og í
klassfskum verkum og svo njóta þeir líka fulltingis klassískra
tónlistarmanna í nokkrum laganna. Sumir tónlistargagn-
rýnendur hafa gengið svo langt að tala um rokkóperu og vissu-
lega eiga sum lögin á plötunni ýmislegt sameiginlegt með
rokkóperu-pælingum hljómsveita eins og Queen þó að það sé
að mínu mati fullmikið að tala um rokkópem. Þetta er fyrst og
ffemst kraftmikið og hugmyndaríkt gftarrokk, margslungið og
dramatfskt og ólíkt öllu öðru sem er í boði í tónlist í dag.
Textamir á plötunni em í svartsýnni kantinum. Laganöfn
eins og Apocalypse Please, Time Is Running Out, Falling
Away With You, Hysteria og Blackout segja sitt um innihald-
ið. Matt segir þetta vera bæði vegna þess að hann var nýhætt-
ur í sex ára sambandi þegar hann byrjaði á plötunni og líka
vegna ástandsins í heimsmálum undanfarin tvö ár. Nú er
hann hins vegar byrjaður með nýrri kæmstu og í góðum mál-
um persónulega þó að ástandið í heiminum sé enn við það
sama.
U ÁRUNUM
Hin frábæra
plötuútgáfa' Dom-
ino, sem gefurm.a.
út Bonnie „Prince"
Billy, Four Tet,
(Smog) og The
Kills, ætlar að
halda upp á tfu ára
afmælið með því
að gefa út tvö-
falda safnplötu.
Hún á að heita
Worlds of Possi-
bility og kemur út
6. október. Á henni
verða 36 lög, m.a.
með fyrrnefndum
listamönnum en líka með Clinic, Max Tundra, Mouse on Mars,
Pram, Quasi. Stephen Malkmus 6 The Jicks, The Btueskins,
The Pastels, Sebadoh, Elliott Smith, Jim O’Rourke, To
RococcoRoto.fi. ítengslum við útkomu ptötunnar og ftilefni
af afmælinu verður röð tónleika í London þar sem margir af
listamönnum hennar koma fram. Það gengur vel hjá Domino
á afmælisárinu. Margir telja plötuna Four Tet, Rounds eina af
bestu plötum ársins hingað til og The Kills, sem eru eins og
kunnugt er væntanlegir á Airwaves-tónlistarhátíðina f næsta
mánuði, eru eitt af heitustu nýju nöfnunum í rokkinu beggja
vegna Atlandshafsins.
Yfirlitsútcáfa með Talking Heads
Bandarfska ný-
bylgjuhljómsveit-
in Talking Heads,
sem naut mikilla
vinsætda og virð-
ingar á áttunda
og níunda ára-
tugnum, er að
fara að gefa út
pakka með helstu verkum sveitarinnar. Endurútgáfusérfræð-
ingarnir hjá Rhino sjá um útgáfuna sem á að heita Once in a
Lifetime og er væntanleg II. nóvember. f henni verða þrír
geisladiskar og DVD. Á geisladiskunum verða 55 lög, þ.á m. öll
þekktustu lög sveitarinnar (Psycho Killer, Life During
Wartime, Once in a Lifetime, Burning Down the House, Road
to Nowhere...). Auk þess verða þar sjaldgæf og itlfáanleg lög
og svo fimm tög sem ekki hafa komið út áður: In Asking Land
(frá 1988) og áður óútgefnar útgáfur af Uh-Oh Love Comes to
Town, New Feeling, Cities og Drugs. Á DVD-inu verða þrettán
myndbönd. Allir fjórir meðlimir Talking Heads (David Byrne,
Jerry Harrison, Chris Franti og Tina Weymouth) komu að út-
gáfu plötunnar en Byrne hefur ekkert viljað hafa með hina
meðlimina sfðan 1991 þó að hann hafi gert undantekningu
þegar sveitin var tekin í heiðursflokk rokkara á Rock’N'Roll
Hall of Fame hátfðinni í fyrra.
Og líka .
Morrissey byrjar að taka upp nýja plötu ÍDublin foktóber.
Hún hefur fengið vinnuheitið Irish Blood, English Heart og
verðurtekin upp af Jerry Finn sem er þekktasturfyrir að hafa
unnið með Blink 182 og Green Day ... Næsta plata Van Morri-
sons, What's Wrong with This Picture, kemur út 21. október.
Það er Blue Note útgáfan sem gefur hana út... Basement Jaxx
ætla að fylgja nýju plötunni sinni, Kish Kash, sem kemur út í
október, eftir með tónleikahaldi. Fyrstu fjórir tónleikarnir
verða í London í desembcr... Nýja Travis-platan, 12 Memories,
kemur út 13. október... Á fyrstu sólóplötu Gwen Stefani úr No
Doubt verða m.a. lög sem hún vinnur með Missy Elliott og
OutKast ... Næsta Belle 6 Sebastian plata á að heita Dear
Catastrophe Waitress og er væntanleg 13. október...
sk<
itili
omar
Flytjandi: David Bowie
Platan: Reality
Útgefandi: Iso/Skífan
Lengd: 49:25 mín.
Flytjandi: Lisa IVlaffia
Platan: First Lady
Útgefandi: Independentc,
Skífan
Lengd: 54:07 min.
stoðreyndir
Þá er David Bowie mættur með sína 26. plötu. Eins og plata Bowie frá því í fyrra, Hetahen, þá er Reality tekin upp undir stjórn Tony Visconti sem pródúseraði margar helstu Bowie-plötur áttunda ára- tugarins. Bowie spilar sjálfur á gítar, hijómborð, synta, xylophone, ásláttar- hljóðfæri og barítónsaxófón en Eari Slick, Mike Garson og Steriing Campbell eru á meðal annarra hljóðfæraleikara. Platan er skyld Heathen en þó nokkuð rokkaðri. Hún ætti að vera gömlum Bowie-aðdáendum vel að skapi. Auk frumsömdu laganna eru tvö tökulög á plötunni, Pablo Picasso eftir andhetj- una og sérvitringinn viðkunnarlega Jonathan Richman (Something About Mary) og Try Some, Buy Some eftir George heitinn Harrison. Platan heitir Reality (Raunveruleiki). Að sögn Bowies hefur orðið .raunveru- leiki" misst merkingu sína í þeirri óreiðu sem einkennir samfélag nútím- ans. Margt af því sem var álitið stað- reynd fýrir tuttugu árum er t.d. f dag spurning. Við erum hætt að geta treyst á sannleikann. Á plötunni veltir Bowie fyrir sér þessum hlutum og hug- takinu „raunveruleiki" ... Þetta er fín plata og aö minu mati tölu- vert sterkari en Heathen. Hér eru mörg flott lög, t.d. New Killer Star, Bring Me the New Disco King, titillagið sem er hörkurokklag, og Fall Dog Bombs sem er nánast eins og tilvísun i Heroes, git- arleikurinn i því minnir á gítarleik Ro- berts Fripps í Heroes og uppbygging lagsins er svipuð. Bowie á greinilega nög eftir ennl trausti Júlíusson
Þetta er fyrsta plata So Solid Crew söngkonunnar, Lisu Maffia. Þegar So Solid sló í gegn með laginu 21 Seconds fyrir þremur árum var sveit- inni strax spáð mikilli velgengni sem sólólistamanni. Það eru m.a. félagar hennar úr So Solid, G-Man, Megaman, Swiss, Jo, Thug Angel, Tiger S, Face og AC Burrell sem vinna lögin á plöt- unni með henni. Þetta er sambland af UK garage, r&b og poppi með hip-hop áhrifum. Hér er greinilega reynt aö höfða til fleiri en bara gömlu So Solid Crew aðdáend- anna. Platan er líka ætluð þeim sem hafa gaman tónlist r&b stórstjarna eins og Aaliyah, Beýoncé, Brandy eða Kelly Rowland. Það hefur gengið frekar brösuglega hjá So Solid undanfarið. Ofbeldi hefur loð- að viö tónleika sveitarinnar og nokkrir meðlimanna hafa verið teknir fastir, sakaðir um aö hafa skotvopn og eitur- lyf í fórum sínum. Asher D hlaut átján mánaða fangelsi og G-Man, sem er kærasti Lisu, var í sumar dæmdur í flögurra ára fangelsi fyrir að vera með hlaðna byssu á sér. Þessi plata er vægast sagt mikil von- brigði. Eins og oft þegar reynt er að höfða til allra er niðurstaðan engum að skapi. Platan er vægast sagt mjög mátt- laus og stefnulaus. Skástu lögin - All Over, Women of The Worid og Down - eru ekkert annaö en léleg stæling á því sem snillingar eins og Timbaland hafa verið að gera með bandariskum r&b- stjörnum. trausti júlíusson