Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2003, Side 24
24 TILVERA MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003
Tilvera
Fólk • Heimilið ■ Dægradvöl
Netfang: tilvera@dv.is
Sími: 550 5824-550 5810
Kylie með splunkunýja plötu
Ástralska söngstjarnan Kylie gefið sér tíma til að vinna að
Minogue hefur ekki MMpngr------nýrri plötu.
setið auðum hönd- - flH Undanfarna mánuði
um síðustu mánuð- Hftý^, .1 Hft hefur stjarnan smá-
ina og misserin. Auk ft wfíJ? gaflftj vaxna dvalið löngum
þess að vera á kafi í K. T stundum í hljóðveri - í
nýju ástarsambandi H HH London, á frlandi og
við franska K Spáni - og þess verður
hjartaknúsarann og ekki langt að bíða að
kvennagullið Olivier M almenningurfái að
Martinez hefur hún ftftftft[___\ | heyra.
Undir sól
BROS Á FRUMSÝNINGU:
Kvikmyndin Undir sólinni í
Toscana var frumsýnd vestur
í Los Angeles á dögunum og
þarvoru mættar fjórar
brosmildar konur. Þær eru
leikkonan Sandra Oh, leik-
stýran Audrey Wells, leikkon-
an Diane Lane og Nina Jac-
obson, forseti Buena Vista
kvikmyndafyrirtækisins.
Sem fugl
áflugi
Þótt ístendingar séu orðnir vanir því
að sjá konur í prestaskrúða er ekki
jafnalgengt að sjá kvenprest í mótor-
hjólaskrúða. En sr. íris Kristjánsdóttir,
klerkurí Hjallakirkju, á einn slíkan.
Sr. íris er nýlega búin að taka mót-
orhjólapróf en á eftir að kaupa sér
hjól. Fær bara eitt lánað til að láta
mynda sig á en vill alls ekki vera með
prestakraga á myndinni. „Mótor-
hjóladellan kemur mínum prestskap
ekkert við,“ segir hún, ákveðin.
Kveðst fyrst og fremst líta á mótor-
hjólaaksturinn sem tómstundagam-
an en telur þó ekki útilokað að hún
hjóli í vinnuna á sumrin þegar hún
hafi íjárfest í viðeigandi farartæki.
„Ekki vegna þess að það sé eitthvað
„kúl“ að vera prestur á mótorhjóli
heldur af því að það er svo æðislegt
að hjóla,“ segir hún brosandi og
heldur áfram. „Ég heyrði konu segja
það í sjónvarpinu nýlega að þetta
væri það næsta sem maður kæmist
þeirri tilfinningu að vera fugl á flugi
og mér finnst það mjög góð lýsing.
Maður er svo frjáls og frír og fær nátt-
úruna beint í æð. Ég fæ mikið út úr
því og mitt ráð til fólks sem langar að
læra á hjól er: Látið drauminn ræt-
ast."
Létu vindinn leika um hárið
Sr. Iris er fædd og uppalin í Kefla-
vík, yngst þriggja systkina. Hún
kveðst hafa kynnst mótorhjólum á
unglingsárunum þegar vinkona
hennar fékk skellinöðrupróf. Þær
stöllur hafi þá vasast svolítið á hjóli
og látið vindinn leika um sítt hárið.
Þá kviknaði aftur þessi
unaðslega frelsistilfinn-
ing sem fylgirþví að
vera á hjóli og ég lofaði
sjálfri mér því að láta
gamlan draum rætast
og taka mótorhjólapróf.
Það var svo starfsbróðir hennar úr
nágrannaprestakallinu í Digranesi
sem smitaði hana að nýju. „Hann er
með algera mótorhjólabakteríu,"
segir hún og upplýsir að eftir náms-
ferð sem prestamir í Reykjavíkurpró-
fastsdæmi eystra fóru til Danmerkur
í fyrra hafi þrír leigt sér mótorhjól í
Þýskalandi og hjólað svolítið um. „Þá
kviknaði aftur þessi unaðslega frels-
istilfinning sem fylgir því að vera á
hjóli og ég lofaði sjálfri mér þvf að
láta garnlan draum rætast og taka
mótorhjólapróf. Það efndi ég núna í
sumar," segir hún brosandi.
Fékkyfir sig gusu
Þótt ekki sé skylda að æfa mótor-
hjólaakstur á malarvegum til undir-
búnings prófs, að sögn írisar, þá var
hún látin reyna sig við slíkar aðstæð-
ur. „Það gilda önnur lögmál á möl-
inni, til dæmis í sambandi við heml-
un, fyrir utan það að á malarvegi geta
menn átt á hættu að lenda í grjót-
kasti ef þeir mæta b£l,“ segir hún.
Pollarnir geta líka verið varasamir,
bæði á bundnu slitlagi og óbundnu.
Því fékk hún að kynnast í ökuprófinu
því að þann dag var stórrigning og
rok. „Það getur verið slæmt að lenda
í djúpum hjólförum, fullum af vatni,
og því hélt ég mig úti í kantinum en
stór trukkur keyrði samhliða mér og
sendi yfir mig þvílíka gusu. Þetta er
bara nokkuð sem maður þarf að
venjast hér á landi," segir hún hetju-
lega.
Bara fyrir gangstera
Þegar prófið var í höfn var næsta
skref hjá írisi að kaupa sér leðurgalla
og hanska. Enn á hún eftir að fá sér
hjálm og endurskoða skóeignina.
„Maður þarf að vera í góðum upphá-
um skóm," segir hún. Þegar múnder-
ingunni er líkt við prestsskrúða bros-
ir hún af kristilegu umburðarlyndi og
segir rólega: „Skrúði prestanna við
athafnir er auðvitað með sérstökum
hætti og ákveðnar reglur gilda í þeim
efnum en um mótorhjólaklæðnað
gilda líka ákveðnar reglur vegna þess
að hann er ekilsins eina vöm ef eitt-
hvað kemur fyrir."
Hún þegir um stund, segir svo:
„Þetta var það sem fólkinu mínu datt
fyrst af öllu í hug þegar ég sagði því
hvað ég væri að bralla, að það væri
svo hættulegt að vera á mótorhjóli og
KÓPAVOGSKLERKUR: „Éq er ekki með hióladellu af því það sé svo „kúl" að vera prestur á vélhjóli hel
(ris.
svo fékk ég að heyra að mótorhjóla-
akstur væri bara fýrir gangstera. Fólk
gerir sér ákveðna mynd af mótor-
hjólafólki, að það sé á bilinu 20-30
ára, algerir brjálæðingar sem spæna
um götur á ofsahraða. En það er bara
misskilningur."
INÚfTI: Er kannski ekki svo óskyldur norraenum mönnum.
Ný heimildaþáttaröð í þre-mur hlutum:
DNA-slóð víkinga og
norrænna manna rakin
Sjónvarpið mun í október taka til
sýninga nýja heimildaþáttaröð f
þremur hlutum þar sem fylgst er
með undirbúningi, framkvæmd og
niðurstöðum úr verkefni dr. Agnars
Helgasonar og dr. Gísla Pálssonar
þar sem kanna átti með erfðarann-
sóknum hugsanlegan skyldleika
inúíta og norrænna manna á
Grænlandi miðalda, varpa ljósi á
afdrif byggða þeirra og á ferðir
inúíta um norðurhjarann.
Mörgum spurningum er svarað í
þáttunum og nýjar vaktar. Meðal
spurninga sem lagt er upp með má
nefna: Eru inúítar í Kanada með
ljóst yfirbragð afkomendur nor-
rænna manna? Blönduðust ís-
lensku nýlendurnar grænlenskum
inúítum? Hvaða hugmyndir eru
uppi um vegferð norrænna manna
í vestri? Hvernig má rekja skyld-
leika með erfðarannsóknum?