Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2003, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2003, Side 26
26 TILVERA MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003 M Ræktun lýðs og lands Umsjón: Páll Guðmundsson Netfang: palli@umfi.is Sími: 568 2929 £2) LANOQMÓT LEIÐTOCJA SKOUNN Ungmennafélögin burðarásar í félagslífi í dreifðum byggðum landsins: Á ÍÞRÓTTAMÓTI: Ungmennafélögin gegna viðamiklu hlutverki í félagslífi úti um land, hvort heldur er litið til íþróttastarfs þeirra eða margs konar félagslífs sem þau halda úti. Jónas Þór Jóhannsson, sveitarstjóri Norður-Héraðs, er fæddur á Breiðavaði * í Eiðaþinghá. Hann ólst upp í ung- mennafélögunum og JC- hreyfing- unni. Einnig starfaði hann meðal ann- ars í Samvirkjafélagi Eiðaþinghár sem hafði sömu reglur og ung- mennafélag. Hlutverk félagsins var að virkja alla saman til átaka. Unnið var að íþróttamálum, haldnar skemmtanir og einnig var annað fé- lagsstarf, til dæmis spilakvöld, kvöldvökur og fleira. Jónas segir " þetta hafa verið góðan skóla. Þjálfaðist upp í ræðu- mennsku „í skólum í þá daga var agi meiri en er í dag. Námið snerist um að sitja og þegja og taka eftir því sem kennarinn sagði. Niðurstaðan af því var að maður hafði skoðanir á hin- um ýmsum málum en þorði ekki að tjá sig um hlutina," segir Jónas. Það var svo þegar hann kynntist ungmennafélögunum og síðar JC- starfmu að hann lærði að tjá sig - og hefur að eigin sögn ekld þagnað síð- an. Félagsmálanámskeið á vegum UMFÍ vom haldin víða um land á .*■ fyrri ámm. „Þau vom í sjálfu sér ágæt og þar lærði maður margt ágætt. Maður þjálfaðist mildð upp f ræðumennsku og varð síðar ís- landsmeistari í einstaklingsræðu- keppni innan JC.“ Fengu sinn félagslega skóla Ungmennafélögin og kvenfélögin vom þau félög í sveitinni sem héldu uppi öllu félagsstarfi í byggðarlag- inu, að sögn Jónasar. „Þarna fengu menn alla þá þjálfun sem nýttist mönnum enn frekar í störfum til dæmis fýrir sveitarfélög, önnur fé- lagasamtök eða lyrirtæki. Margir sem gegna ýmsum forystuhlutverk- um í þjóðfélaginu í dag fengu sinn félagslega skóla og reynslu í gegnum ungmennafélagsstarf." Sé fyrir mér aukið samstarf Jónas starfar í dag sem sveitar- stjóri Norður-Héraðs. Ég held til dæmis að við Austfirðingar gætum átt gott lið í úrvalsdeild í knattspyrnu efmenn ynnu meira saman. „Ég held að það væri mjög af hinu góða ef samstarfið innan íþrótta- og æskulýðsmála yrði enn meira. Hvað ef ungmenna- og íþróttafélög í landinu myndu hætta sínu starfi. Þá held ég að staðan í mörgum sveitarfélögum yrði slæm og menn myndu kannski fyrst þá átta sig á því mikla starfi sem félög- in standa fyrir. Ég sé fyrir mér auk- ið samstarf milli sveitarfélaga og ungmennafélaga, til dæmis með að síðarnefndu félögin taki enn frekar að sér starfið en fái greitt fyrir það frá sveitarfélögunum. Við erum reyndar í dag að greiða þessum fé- lögum og styrkja, en það er ekki alltaf í samræmi við þeirra mikla starf.“ Ef við stöndum saman Jónas var framkvæmdastjóri UÍA frá 1990 til 1998 og sat einnig í nefndinni sem stýrði Landsmótinu á Egilsstöðum 2001. „Mjög afhinu góða ef samstarfið innan íþrótta- og æskulýðs- mála yrði enn meira. Hvað efungmenna- og íþróttafélög í landinu myndu hætta sínu starfi." „Mótið á Egilsstöðum var stór- kostlegur atburður. Það var töluvert átak að koma þessu á enda þurfti að byggja upp milda aðstöðu en niður- staðan er sú að í dag er ein glæsileg- asta íþróttaaðstaða landsins á Egils- stöðum. Fyrir vikið eru miklir sókn- armöguleikar til staðar. Það var mjög gaman að koma að þessu móti og fjöldi fólks vann þar gott starf." Landsmótið segir Jónas að hafi meðal annars sameinað Austfirð- inga í því að halda þetta mót. „Þegar við Austfirðingar stöndum saman þá getum við hlutina. Til dæmis var meistaramót íslands haldið á Egils- stöðum í sumar - það er meðal ann- ars að þalcka þeirri reynslu og að- stöðu sem við byggðum upp og öðl- uðumst á landsmótinu." Héraðssamböndin ómissandi Á seinni árum hefur komið upp umræða um héraðssamböndin. Slíkt er kannski ekki óeðlilegt því að sum félögin eru svo stór og öflug að þau telja sig jafnvel geta verið án sambandanna. „Minni félög gætu," segir Jónas „alls ekld verið án héraðssambanda. Stóru félögin eru oft með ftam- kvæmdastjóra á eigin vegum og starfa meira sjálfstætt. Engu að síður er starf sambandanna mikilvægt sem sameiginlegur málsvari félag- anna á svæðinu. Ættu héraðssam- böndin að vinna að málum sem eru jafnvel þessum sterku félögum of- viða, til dæmis í fræðslustarfi, kynn- ingarstarfi og innra félagslegu starfi," segir Jónas. Gætum átt úrvalslið í knattspyrnu Hann segir að verið sé að nota mikla fjármuni í meðalmennsku í íþróttum en ekki eins mildð í æsku- lýðsstarf. „Það er kannski verið að kaupa menn jafnvel niður í þriðju deildar lið og síðan ferðast hingað og þangað um landið. Þegar menn eru famir að tala um afreksmennsku í íþróttum þá er það dýrt dæmi og má kannski segja að þar séu margir kallaðir en fáir útvaldir. Ég field til dæmis að við Austfirðingar gætum átt gott lið í úr- valsdeild í knattspymu ef menn ynnu meira saman. Á það hefur hins vegar aldrei verið látið reyna til nógu langs tíma. Aftur á móti höfiim við átt marga ágætis einstaldinga í hin- um ýmsu greinum." Keppum í tölvuvinnslu Starfið í ungmennafélögunum er fjölbreytt. Jónas segir félagsmála- starf löngum hafa verið umfangs- mildð og segir að það þurfi sífellt að endumýja og efla það, meðal ann- ars með fræðslu og námskeiðum. „Starfsíþróttir njóta mikilla vin- sælda á landsmótum og stundum á héraðsmótum - og ég held að við ættum alveg eins að keppa f félags- málum og í fótbolta eða frjálsum. Keppni í ræðumennsku er til dæmis ákaflega skemmtileg. Síðan þurfum við jafhvel að endurskoða starfs- íþróttimar, alveg mætti hugsa sér að keppa í tölvuvinnslu enda starfa margir á þeim vettvangi," segir Jónas Þór Jóhannsson, sveitarstjóri Norð- ur-Héraðs, að síðustu. SVEITARSTJÓRINN: Niðurstaðan af því var að maður hafði skoðanir á hinum ýmsum málum en þorði ekki að tjá sig um hlutina," segir Jónas Þór Jóhannsson. Alltaf ódýrast á www.flugfelag.is FLUGFÉLAG ÍSLANDS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.