Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2003, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2003, Page 36
36 DVSPORT MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003 DV Sport Keppni í hverju orði Netfang: dvsport@dv.is Sími: 550 5885 • 550 5887 ■ 550 5889 íslenskur sigur KNATTSPYRNA: (slenskaU-19 ára lið kvenna lék fyrsta leik sinn í undankeppni EM í gær en riðillinn ferfram í Slóvakíu. Leikið var gegn Lettum og er skemmst frá því að segja að ís- lenska liðið hafði mikla yfir- burði í leiknum og vann að lok- um öruggan sigur, 4-0. Stjörnustúlkan Harpa Þor- steinsdóttir skoraði tvö mörk í gegn Lettum leiknum og Blikastúlkan Greta Mjöll Samúelsdóttir og Vals- stúlkan Dóra María Lárusdóttir skoruðu eitt mark hvor. Næsti leikur liðsins er gegn heimamönnum í Slóvakíu en þær byrjuðu mótið einnig vel með góðum sigri á Tékkum, 2-0. Láki áfram KNATTSPYRNA: Þorlákur Árnason verður áfram við stjórnvölinn hjá Valsmönnum. „Ég verð áfram með Valsliðið á næstu leiktíð. Það er búið að ganga frá því. Við Valsmenn ætlum ekki að dvelja lengi í 1. deildinni heldur er stefnan sett á að komast strax upp aftur," sagði Þorlákur Árnason. Makan laus KNATTSPYRNA: Að erlendu leikmönnunun frátöldum er Þorvaldur Makan Sigbjörnsson eini KA-maðurinn með lausan samning. Forráðamenn KA hyggjast bjóða honum nýjan samning en hann vildi ekkert gefa upp um það í gær hvort hann yrði áfram í KA. „Ég er samningslaus og ætla mér að spila en hvar veit ég ekki." Staðan Fram Valur 2 2 0 0 50-45 4 Vfkingur 3 1 1 1 84-79 3 KA 3 1 0 2 82-78 2 Aftureld. 2 1 0 1 52-50 2 Grótta/KR 2 0 2 0 45-45 2 ÞórAk. 3 0 0 3 76-96 0 Næstu leikir: Þór-Grótta/KR fös. 26. sept. kl. 19.15 Valur-Vfkingur fös. 26. sept. kl. 20.00 Afture.-Vfking. fös. 26. sept. kl. 19.15 Framarinn Héðinn móttökur hjá 9* u/KR á Nesinu i gær rsson sem tekur Domarar: Guðjón L. Sigurðsson Ólafur Haraldsson. 8/10 Sorglegur sóknarleikur f boði á Nesinu þegar Grótta/KR og Fram gerðu sanngjarntjafntefli, 21-21 Gæði leiks: 3/10 Áhorfendur: 600. Maður leiksins: Hlynur Morthens, Grótta/KR Gangur leiksins: 0-1, 0-3, 3-4, 5-9,8-9, (9-11), 9-12, 11-14,15-15,17-16, 20-19, 21-21. Það var haustbragur á leik Gróttu/KR og Fram á Nesinu f Jt gærkvöld.Leikur beggja liða var fullur af mistökum og það var vel við hæfi að liðin skiptu með sér stigunum að lokum - jafnvel þótt hvorugt liðið hafi í raun átt skilið stig fyrir frammi- stöðuna. Framarar byrjuðu leikinn með miklum látum og náðu fljótlega þriggja marka forystu fyrir tilstilli Björgvins Björgvinssonar. Gróttu- menn komust þó fljótlega inn í leikinn og voru drifnir áfram af Gintaras, sem virtist vera eini mað- urinn í sóknarleik Gróttu/KR sem þorði að skjóta á markið. Sóknar- leikur liðsins var ráðleysislegur, hægur og tilviljanakenndur. Með því er ég ekki að segja að sóknar- leikur Framara hafi verið á háu plani en hann var þó lengstum skömminni skárri og þeim gekk betur að opna Gróttuvörnina. Fyrir vikið fengu þeir mörg víti og þeir refsuðu Gróttumönnum oft með vel útfærðum hraðaupphlaupum sem voru ekki til hjá heimamönn- um. Hlynur Morthens var í feikna- formi í marki Gróttu/KR og hélt lið- inu á floti á löngum köflum. Sóknarleikur Framara versnaði í síðari hálfleik og þeir féllu niður á sama plan og heimamenn voru á í fyrri hálfleik. Kristinn Björgúlfsson hafði haft hægt um sig í fyrri hálf- leik en hann datt í gírinn í síðari hálfleik og var maðurinn á bak við góðan kipp hjá heimamönnum sem endaði með því að þeir komust yfir þegar 18 mínútur voru eftir af leiknum. Liðin héldust nán- ast í hendur það sem eftir lifði leiks en Framarar náðu forystunni á nýj- an leik þegar mínúta var eftir af leiknum. Risinn Héðinn Gilsson vaknaði þá af værum blundi og skoraði tvö síðustu mörk Framara í leiknum. Mark hans mínútu fyrir leikslok dugði þó ekki til því Krist- inn Björgúlfsson kom til bjargar og hann jafnaði leikinn með góðu skoti þegar aðeins fimm sekúndur voru eftir. Bæði lið mega muna sinn fífil fegri því leikurinn var ekki glæsileg- ur. Þau geta þó huggað sig við það að leiðin getur vart legið annað en upp á við eftir þetta. Hlynur mark- vörður var bestur í liði heima- manna, varði jafnt og þétt allan leikinn og hélt sínum mönnum inni í leiknum lengi vel. Framlag Kristins var mikilvægt, ekki síst þar sem Gintaras fylgdi ekki eftir góð- um fyrri hálfleik. Petkevicius var öflugur í marki Bæði lið mega muna sinn fífil fegri því leikurinn var ekki glæsilegur. Framara og hann sá til þess að þeir fengu stig í leiknum með frábærri markvörslu á lokakaflanum. Guð- jón nýtti færin vel og Valdimar skoraði mikilvæg mörk, rétt eins og Héðinn. Sanngjörn úrslit „Miðað við það hvernig leikurinn þróaðist voru þetta sanngjörn úr- slit. Það er klárt mál að við spiluðum ekki vel í þessum leik og þá sérstaklega ekki í sókninni. Við klúðruðum of mörgum góðum fær- um og óðagotið í sóknarleiknum var fullmikið," sagði Ágúst Jó- hannsson, þjálfari Gróttu/KR, sem lagði jakkafötunum í gær en sýndi þrátt fyrir það sparihliðamar í sam- skiptum sínum við dómarana. Heimir Ríkharðsson, þjálfari Fram, var sammála Ágústi í því að úrslitin hefðu verið sanngjörn. „Ég er mjög sáttur við að hafa náð stigi af því að við spiluðum þennan leik gríðarlega illa sóknar- lega. Varnarleikurinn hélt samt oft- ast bærilega og það er h'nt að ná stigi þegar við leikum mjög illa,“ sagði Heimir sem fékk rauða spjaldið í lok leiksins en misskiln- ingur varð á milli hans og annars dómara leiksins. Sá sagði að leikur- inn væri búinn og því gekk Heimir út á völlinn og fékk fyrir vikið rautt spjald hjá hinum dómaranum sem hafði bætt við tíma. henry@dv.is GRÓTTA/KR Mörk/ þar af víti (skot/vrti) Hraðaupphl. Gintaras Savukynas 8/4 (13/6) 1 Kristinn Björgúlfsson 5(7)0 Magnús Agnar Magnússon 4(7)0 Þorleifur Björnsson 2(7)1 Kristján Geir Þorsteinsson 1(1)0 Sverrir Pálmason 1 (3)0 Brynjar Hreinsson 0 13) 0 Páll Þórólfsson 0 (\) 0 Samtals: 21/4 (42/6)2 Fiskuð víti Magnús Agnar Magnússon 4 Gintaras Savukynas 1 Þorleifur Björnsson 1 Varin skot/þar af víti (skot á sig/víti) Hlynur Morthens 18/3 35/6)51% Gísli Guðmundsson Brottvfsanin 6 mínútur. 0 (4/2)0% FRAM Mörk/ þar af víti (skot/vfti) Hraðaupphl. Björgvin Björgvinsson 6/4 (7/5! 1 Guðjón Drengsson 4 1 Valdimar Þórsson 3 (6/2) 1 Héðinn Gilsson 2(6/1)1 Jón Björgvin Pétursson 2/1 (3/1! 0 Arnar Þór Sæþórsson 2(3)0 Þorri Björn Gunnarssön 1(2)1 Hafsteinn Ingason 1(2)1 HjálmarVilhjálmsson 0 0 Guðlaugur Arnarsson 0(1)0 Samtals: 21/5(41/9)6 Fiskuð vfti Arnar Þór Sæþórsson MBMM Héðinn Gilsson 3 Hafsteinn Ingason 1 Valdimar Þórsson 1 Varin skot/þar af vfti (skot á sig/víti) Egidijus Petkevicius 20/2 (41 48 % Brottvisanin 14 minútur. Björgvin útilokaður og Heimir þjálfari rautt. 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.