Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2003, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2003, Page 2
2 FRÉTTIR MÁNUDAGUR 6. OKTÓBER 2003 ÚTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið DV ehf. FRAMKVÆMDASTJÓRl: örn Valdimarsson AÐALRITSTJÓRI: Óli Björn Kárason AÐSTOÐARRÍTSTJÓRI: Jónas Haraldsson DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjóm: 550 5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749 Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsingan auglys- ingar@dv.is. - Dreiflng: dreifing@dv.is Akureyri: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerö og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins i stafrænu formi og í gagnabönkum án endur- gjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Efni blaðsins Margir missa vinnuna í Vesturbyggð - frétt bls. 4 Stórfelldar blekkingar - frétt bls. 6 Tónlistarhús kostar 6,4 milljarða — fréttir bls. 10-11 Reykingar hafa áhrif á alla - Líkami og sál bls. 28 Ásthildur og Allan best - DV Sport bls. 16 Bíó og sjónvarp - Tilvera bls. 36-37 Krókódíll og tígrisdýr bjuggu saman í NY Þótt New York haf! oft verið lýst sem borgarfrumskógi er ekki þar með sagt að maður þurfi að taka líkinguna jafnbókstaflega og íbúi nokkur í Harlem. Hann hélt nefni- lega bæði tígrísdýr og krókódfl heima hjá sér. Það voru nágrannar hins 31 árs gamla Antoines Yates sem gerðu lögreglunni viðvart um dýrahaldið um helgina. Leyniskytta úr röðum laganna varða var fengin til að skjóta deyfi- lyfjum í tígurinn, inn um glugga á fimmtu hæð fjölbýlishússins. Að sögn talsmanns lögreglunnar í New York var tígri rúmlega tvö hundruð kíló og krókódfllinn var þriggja metra langur. Yates var ekki heima heldur reyndist hann vera á sjúkrahúsi í Ffladelfíu vegna dýrabita. Hellir í 39. sæti Austurbyggð SVEUARSTJÓRNARMÁL Sveit- arstjórn nýsameinaðs sveitarfé- lags Búða- og Stöðvarhrepps samþykkti á fyrsta fundi sínum í liðinni viku að sveitarfélagið skyldi heita Austurbyggð. Nafn- ið hlaut flest atkvæði í samein- ingarkosningunni. Þá var sam- þykkt að semja við Steinþór Pétursson um að verða sveitar- stjóri Austurbyggðar. SKÁK: Skáksveit Hellis hafnaði í 39. sæti með 4 stig og 16 vinn- inga á Evrópukeppni taflfélaga sem lauk um helgina á Krít. Franska taflfélagið NAO Chess Club sigraði. Kvennasveit Hellis hafnaði í 13. sæti. Hellisliðið var langstigalægsta lið mótsins. Ár- angur Hellismanna, sem allir tefldu 7 skákir, var þannig að Sigurbjörn J. Björnsson hlaut 5 vinninga, Helgi Áss Grétarsson 3, Sigurður Daði Sigfússon, Kristján Eðvarðsson og Bragi Halldórsson 2,5 hver og Ingvar Ásmundsson 0,5 vinning. Af Helliskonum, sem hver tefldi 6 skákir, stóð Lenka Ptacnikova sig best, hlaut 2,5 vinning. Guð- fríður Lilja Grétarsdóttir hlaut 1,5 Anna Björg Þorgrímsdóttir 1 og Áslaug Kristinsdóttir engan. Kom við HEIMSÓKN: Sergei B. Ivanov, varnarmálaráðherra Rússa, átti viðdvöl hér á leið sinni til Banda- ríkjanna í gær. Snæddi hann há- degisverð í ráðherrabústaðnum í boði Halldórs Ásgrímsson utan- ríkisráðherra. Halldór sagði Rússa gera sér grein fyrir mikilvægi Keflavíkurflugvallar fyrir flugum- ferð um Atlantshaf en málefni íraks voru einnig rædd. Heildarútgjöld ríkissjóðs á næsta ári: Næstum 90 milljarða hækkun frá 1997 SÖGULEG TfMAMÓT: Á þarnæsta ári mun ríkisstjórnin líklega ná þeim magnaða árangri að hafa hækkað útgjöld ríkissjóðs um hvorki meira né minna en 100 milljarða króna á aðeins átta árum. Fjárlagafrumvarpið felur í sér að ríkisútgjöld verða 47% hærri en þau voru árið 1997. Á núverandi verðlagi voru heild- arútgjöld ríkisins 186 milljarðar árið 1997. Samkvæmt fjárlagafrum- varpinu verða þau 273 milljarðar á næsta ári. Hækkunin nemur 87 milljörðum króna. Hiutfallslega er þetta 47% hækkun. Hækkunin er svipuð og allar tekjur af virðisaukaskatti og meiri en allur tekjuskattur einstaklinga á næsta ári. Hún jafngildir um 300.000 krónum á hvert manns- barn eða 1,2 milljónum króna á hverja fjögurra manna fjölskyldu. f langtímaáætlun fjárlagafrum- varpsins kemur fram að árið 2005 er áætlað að ríkisútgjöld verði tæp- ir 285 milljarðar. Þá munu ríkisút- gjöld sem sagt hafa aukist um 100 milljarða frá árinu 1997. í nýlegri samantekt Verslunar- ráðs fslands kemur fram að opin- ber útgjöld hafa aukist úr 37% af vergri landsframleiðslu árið 1997 í um það bil 42%. í samanburði OECD-þjóða á hlutfalli samneyslu af landsframleiðslu hefur ísland farið úr 16. sæti árið 1980 upp í 11. sæti árið 1990 og nú í 3. sæti. Telja má víst að ein stærsta or- sökin fyrir raunhækkun ríkisút- gjalda undanfarin ár sé kaupmátt- araukning ríkisstarfsmanna. olafur@dv.is Flugdagur í Mýrdal: Langþráður draumur rættist Flugmálafélag fslands hélt síð- asta hópflug ársins í Mýrdaln- um á laugardag. Rúmlega 20 flugvélar voru á Höfða- brekkuflugvelli þegar mest var og er þetta þar með annað mesta hópfiug félagsins á seinni árum. Að sögn Reynis Ragnarssonar, einkaflugmanns, flugdellukarls og fyrrv. lögregluþjóns í Vík, var þetta frábær dagur á allan hátt, enda gat veður varla verið betra, logn og sól. Hann sagðist vera búinn að vinna að því í tvö ár að flugdagur væri haldinn í Mýrdalnum. Gunnar Þor- steinsson, starfsmaður flugmálafé- lagsins, sagði að þessi ferð hefði toppað allar ferðir sumarsins en til- gangur svona ferða væri að skoða Island, njóta góðrar leiðsagnar heimamanna og sýna flugvélarnar. Hópflug þetta var skipulagt af Gunnari og Reyni Ragnarssyni í Vík, sem var gestgjafi í þessari heimsókn. FLUGVtLAFJÖLDI: Fjöldi flugvéla tók þátt I flugdeginum í Vik í Mýrdal. FLUGDAGUR: Reynir Ragnarsson, einkaflugmaður og flugdellukarl hafði undirbúið flugdaginn í Mýrdal í tvö ár. Hann heppnaðist frábærlega enda veður gott. Þegar allar vélarnar voru lentar á flugvellinum var farið á bflum í Höfðabrekkuafrétt, þar sem snæddur var matur í Þakgilshelli. Hjónin Helga Ólafsdóttir og Bjarni Jón Finnsson, staðarhaldarar í Þak- gili, sáu um að framreiða matinn en þar borðuðu um 60 manns. f Þakgilshelli var einnig tekið lagið undir stjórn Önnu Björnsdóttur og Sesselju G. Sigurðardóttur. Eftir mat og söng í Þakgilshelli var gam- all gangnamannahellir í Miðfelli skoðaður. Farið var í Remundagil og að lokum var sungið í Stórhelli á Höfðabrekkuheiðum. Þegar komið var á flugvöllinn aftur var búið að hita kaffi og baka vöfflur í flugskýl- inu. Þá hófst listflug sem Arngrímur Jóhannsson, forseti Flugmálafé- lagsins, og Magnús Nordal sáu um. -SKH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.