Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2003, Síða 4
4 FRÉTTIF. MÁNUDAGUR 6. OKTÓBER2003
KEA vill kaupa ÚA
Andrés nýr formaður UJ
VIÐSKIPTI: Stjórn Kaupfélags Ey-
firðinga vill kaupa Útgerðarfélag
Akureyringa og mun stjórnin
óska eftir viðræðum við nýja
stjórn Eimskipafélagsins þess
efnis. Hluthafafundur verður í
Eimskipi í næstu viku og þar mun
samningur sem leiðir af sér að
Landsbankinn muni eignast ráð-
andi hlut í Eimskipafélaginu
verða ræddur. Eimskip er eigandi
Brims en Útgerðarfélag Akureyr-
inga tilheyrir þeirri samstæðu.
Ljóst þykir að nýir eigendur Eim-
skips ætli sér ekki að eiga sjávar-
útvegsfyrirtækin sem tilheyra
Brimi til langs tima og því hefur
stjórn KEA óskað eftir viðræðum
við Landsbankann um kaup á Út-
gerðarfélagi Akureyringa. Verð-
mæti fyrirtækisins er talið vera
um 5-6 milljarðar króna.
I
STJÓRNMÁL: Andrés Jónsson úr
Reykjavík var kjörinn formaður
Ungra jafnaðarmanna á lands-
þinginu um helgina. Hlaut hann
298 atkvæði eða 67,6 prósent en
Margrét Gauja Magnúsdóttirfrá
Hafnarfirði hlaut 139 atkvæði eða
31,5 prósent atkvæða. Andrés tek-
ur við af Ágústi Ólafi Ágústssyni
sem verið hefur formaður frá
2001. Brynja Magnúsdóttir verður
varaformaður Ungra jafnaðar-
manna, Bryndís Nielsen ritari og
Dagbjört Hákonardóttir gjaldkeri.
Þær voru allar sjálfkjörnar. (kjöri til
framkvæmdastjórnar UJ var Hilm-
ar Kristinsson var kjörinn alþjóða-
ritari. Meðstjórnendur voru kjörnir
Andrés Fjeldsted, Rósa María Ósk-
arsdóttir, Hinrik Már Ásgeirsson og
Guðjón Egill Guðjónsson.
A 128 km
HRAÐAKSTUR: Lögreglan í
Reykjanesbæ stöðvaði í gær
mann sem ók á 128 km hraða á
Reykjanesbraut, nánartilekið
við Hvassahraun. Þar er 90 km
hámarkshraði. Getur ökumað-
ur átt von á 30.000 króna sekt
fyrir að virða ekki reglur um
hámarkshraða, að aka á ríflega
40 prósenta meiri hraða en
leyfilegt er.
Dapurlegt atvinnuástand í Vesturbyggð
Bátar seldir og margir
sjómenn missa vinnuna
Mjög dapurlega horfir hjá
mörgum sjómönnum á Patreks-
firði í Vesturbyggð þessa dag-
ana vegna sölu á bátum úr
plássinu. Nærri tíu manns munu
missa vinnuna á næstu dögum
vegna þessa og eru fá eða eng-
in atvinnutækifæri á staðnum
fyrir þessa menn.
Skipverjum á Garðari BA, sem er
einn af hinum svokölluðu Kínabát-
um, brá heldur betur í brún fyrir
helgina. Þá voru stjórnendur Odda,
sem á skipið, á leið til sólarlanda og
hringdu þeir af Keflavíkurflugvelli
rétt fyrir brottför og tilkynntu skip-
stjóranum, Þorsteini Ólafssyni, að
hann ætti að sigla bátnum suður
næstkomandi fimmtudag því búið
væri að selja skipið. Brá skipstjór-
anum mjög í brún við þessi óvæntu
tíðindi. Við söluna á bátnum missa
fimm sjómenn vinnuna og eiga
vart í önnur pláss að venda.
Annar bátur, Bensi BA, sem er lít-
ill krókaveiðibátur, mun þegar hafa
BÁTARNIR SELDIR: Nærri tíu manns munu missa vinnuna á Patreksfirði á næstunni vegna sölu á bátum úr plássinu.
verið seldur úr plássinu til útgerðar
Guðmundar Einarssonar í Bolung-
arvík með öllum kvóta, hátt í 200
þorskígildistonnum. Við þetta tap-
ast 3 til 4 störf á Patreksfirði. Vitað
er að fleiri bátar eru á sölulista og er
mikill uggur í sjómönnum þar
vestra.
Brá skipstjóranum
mjög í brún við þessi
óvæntu tíðindi.
Á Bíldudal, sem tilheyrir nú sama
sveitarfélagi, Vesturbyggð, er
ástandið jafnvel enn verra og mikil
svartsýni rfkjandi eftir að írskt fyrir-
tæki hætti við áform um að reisa
þar kalkþörungaverksmiðju. At-
vinnuþróunarfélag Vestfjarða hefur
verið fengið til að meta ástandið og
á að leggja fram skýrslu um málið
innan fárra daga fyrir þingmenn
Norðvesturkjördæmis. hkr@dv.is/
Strætó bs. fékk fyrstu vetnisvagnana afhenta ígær:
Tveir vagnar
Strætó bs. fékk afhenta fyrstu
vetnisvagna íslands í gær, þeg-
ar fslensk NýOrka ehf. afhenti
Strætó bs. lykla aö tveimur af
þremur efnarafalknúnum vetn-
isvögnum sem veröa í almenn-
um akstri Strætó bs. á höfuð-
borgarsvæðinu næstu tvö árin.
Drægi vetnisvagnanna er áætlað
um 200 km sem á að duga vel fyrir
hefðbundinn dagsakstur hjá
Strætó. Hámarkshraði vagnanna er
um 80 km á klukkustund. Gert er
ráð fyrir að vagnarnir fari í almenn-
an akstur á allra næstu dögum á
leið 2.
Vagnarnir og vetnisstöðin, sem
opnuð var í vor, eru hluti af stóru
rannsóknar- og þróunarverkefni
um vetnisnotkun sem kallast ECT-
ÁFYLUNG: Vetnisvagnarnir verða þrír en tveir voru teknir í notkun í gær. Hér er fyllt á á
vetnisstöðinni.
í akstur næstu daga
VETNISVAGNAR: Fyrstu vetnisvagnarnir voru afhentir Strætó bs. í gær. Drægi þeirra er um 200 km sem dugir vel fyrir daginn.
OS. Heildarkostnaður verkefnisins
nemur ríflega 700 milljónum
króna. Evrópusambandið sfyrkir
verkefnið um 40 prósent kostnaðar
en eigendur íslenskrar NýOrku og
Skeljungur leggja fram stærsta
hlutann. íslensk stjórnvöld hafa
stutt verkefnið en það er í samræmi
við stefnu þeirra sem miðar að
sjálfbæru vetnissamfélagi og auk-
inni nýtingu endumýjanlegra
orkulinda og stefnu í umhverfis-
málum. Reykjavíkurborg hefur
einnig stutt verkefnið með ýmsum
hætti.
. Gert er ráð fyrir að
vagnarnir fari í al-
mennan akstur á allra
næstu dögum á leið 2.
Markmiðið með ECTOS verkefninu
er að prófa þrjá strætisvagna sem
nota vetni sem orkubera og em
knúnir efnarafölum. Einnig er rekin
DV-mynd Hari
vetnisstöð sem framleiðir vetni
með rafgreiningu vatns og skilar
eldsneytinu beint á eldsneytis-
geyma farartækja. ECTOS verkefn-
ið er fyrirrennari annarra svipaðra
verkefna sem nú em að hefjast f níu
borgum Evrópu og einni í Ástralíu.
Meginmunurinn á íslenska verk-
efninu og öðmm er sá að vetnis-
stöðin, sem reist varvið Selectstöð-
ina við Vesturlandsveg, er sú eina
sem er aðgengileg almenningi.
-hlh