Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2003, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 6. OKTÓBER 2003 PRÉTTIR 13
Öttast um öryggi sitt
HVfTA HÚSIÐ: Joseph Wilson,
fyrrum sendiherra, segir ríkis-
stjórn Bush ábyrga fyrir því að
störf konu hans, Valerie Plame,
fyrir CIA hafa verið gerð opin-
ber. Hann segir þau hjónin
óttast mjög um öryggi sitt.
Nafn Plame var nefnt í pistli
Roberts Novaks í júlí síðast-
liðnum. New YorkTimes
greindi frá því í gær að starf
Plame fyrir CIA hafi verið
hættulegt og hún hafi notið
ýtrustu leyndar. Wilson segir
„lekann" vera hefndaraðgerð
vegna þess að hann hafi gagn
rýnt innrásina í (rak. Wilson
sagði jafnframt að stjórnvöld
hefðu ekki boðið konu sinni
vernd þótt vitað væri að hún
væri hugsanlegt skotmark
hryðjuverkamanna.
Kallaður „Kohl" óvart
KAIRÓ: Gerhard Schröder,
kanslari Þýskalands, sýndi að
hann hefur húmorinn í lagi
þegar hann sat blaðamanna-
afund í Kairó um helgina. -
Egypskur túlkur ruglaðist
eitthvað í ríminu og tilkynnti
að „næstu spurningu væri
beint til Kohl". Þetta þótti
Schröder afar fyndið og veltist
hann um af hlátri. Þótti
honum einkennilegt að ein-
hver skyldi líkja honum, lág-
vöxnum dökkhærðum mann-
inum, við hávaxinn, sköllóttan
öldung eins og Kohl.
Schröder, sem er sósíalde-
mókrati, var kjörinn kanslari
árið 1998 og tók þá við emb-
ætti af íhaldsmanninum Kohl,
sem hafði gegnt embættinu í
16ár.
íbúum í fátækra-
hverfum fjölgar
Ef ekki verður gripið til rót-
tækra aðgerða er hætta á að
íbúar í fátækrahverfum borga
heimsins verði orðnir um tveir
milljarðar eftir þrjátíu ár. Þeir
eru nú um einn milljarður, eða
einn sjötti jarðarbúa.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
Sameinuðu þjóðanna sem verður
kynnt í Rio de Janeiro í dag.
Skýrsluhöfundar hvetja stjórn-
völd um heim allan til að horfast í
augu við vandann áður en hann
verður óviðráðanlegur.
I þróunarlöndunum búa um 43
prósent íbúanna í fátækrahverf-
um, að sögn skýrsluhöfundanna
FJÖLGAR: (búafjöldi fátaekrahverfa á eft-
ir að tvöfaldast á næstu 30 árum ef ekki
verður gripið til aðgerða.
en aðeins um sex prósent í þró-
aðri ríkjum.
Lokaspretturinn hafinn í Kaliforníu:
Kvennamálin eru
í brennidepli
FJÖRUGUR FUNDUR: Arnold Schwarzenegger var í feikna stuði á kosningafundi í
Sacramento í gær. Hann tók meðal annars lagið fyrir stuðningsmenn sína og hét þeim
sigri í kosningunum á morgun.
Kosningabaráttan um embætti
ríkisstjóra í Kaliforníu snerist að
miklu leyti um kvennamál
Arnolds Schwarzeneggers um
helgina.
Schwarzenegger, sem er
repúblikani, er sem kunnugt er tal-
inn líklegastur til að vinna kosning-
ar sem fara fram á morgun.
Þúsundir fýlgismanna
Schwarzeneggers hylltu hann á
flötinni fyrir framan ráðhúsið f
Sacramento í gær. Schwarzenegger
hélt ræðu þar sem hann hét því að
hann myndi „þurrka Gray Davis" út
í komandi kosningum.
• Davis er núverandi ríkisstjóri í
Kaliforníu og ganga kosningarnar
út á hvort hann haldi sæti sfnu sem
ríkisstjóri eða verði rekinn úr
embætti.
Nemi niðurlægður
Andstæðingar Schwarzeneggers
mættu einnig til fundarins og báru
skilti þar sem frambjóðandinn var
hvattur tii að leysa frá skjóðunni
varðandi meinta aðdáun sína á
Hitler. Gamall vinur Schwarzen-
eggers, George Butler, hélt því fram
fyrir helgina að Schwarzenegger
hefði lýst aðdáun sinni á Hitler í
einkasamtali sem þeir áttu fyrir
aldaríjórðungi. Þessu neitar
Schwarzenegger nú, kveðst raunar
ekki muna eftir samtalinu, og segist
fyrirlíta allt sem Adolf Hitler stóð
íýrir.
Nú hafa fimmtán konur komið
fram opinberlega og ásakað
Schwarzenegger um fjölþreifni í
ástarmálum. Ein þeirra, Colette
Brooks, segir Schwarzenegger hafa
gripið í sig aftan frá þegar hún var
lærlingur á CNN sjónvarpsstöðinni
árið 1982. Hún segir niðurlæging-
una hafa verið mikla og hún hafi
ekki þorað að koma fram fyrr.
Schwarzenegger sagðist í gær
undrandi yfir ásökunum kvenn-
anna; engin þeirra hefði sagt sér að
hætta eða að hegðun hans væri
ósæmileg, fyrr en nú.
Schwarzenegger baðst fyrir helgina
afsökunar á að hafa sýnt konum
kynferðislega áreitni.
Kaliforníubúar ákveða á morgun
hvort Gray Davis situr áfram sem
ríkisstjóri. Af 135 frambjóðendum
þykir Schwarzenegger eiga mesta
möguleika.
Aukablað um
Akureyri og
Norðurland fylgir
Magasiní í næstu
vikuf 9. október.
Fjallað verður um
mannlíf, menningu,
atvinnulíf og
ótalmargt fleira.
Blaðinu er dreift í 82
þúsund eintökum.
Sölu auglýsinga annast annast Ingibjörg Gísladóttir í síma 550 5734 eða
inga@dv.is ogKatrín Theódórsdóttir ísíma 550 5733 eða kata@dv.is
Umsjón með efni og greinum hafa Sigurður Bogi Sœvarsson í síma 550 5818,
eða sigbogi@dv.is og Geir Guðsteinsson í síma 550 5821 eða gg@dv.is