Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2003, Síða 15
MÁNUDAGUR 6. OKTÚBER 2003 SKOÐUH 27
Þrælahaldarar nútímans?
KiALiARI
Sigríöur Víðis Jónsdóttir
BAiheimspeki
Ég er ofsalega vinsæl. Það vilja
mig bókstafiega allir. Bankarnir
keppast um að vera vinir mínir,
bílasalar brosa til mín og menn
bíða mín í röðum með sjúk-
dóma- og líftryggingar. Ég fæ
bréf send heim þar sem ég er
ávörpuð með nafni og mér
boðnir gull og grænir skógar.
Kreditkortafyrirtækin elska
mig.
Mér fínnst dálítið erfítt að sinna
öllum þessum vinum mínum og
alltaf vandasamt þegar gera þarf
upp á milli þeirra. Bankarnir eru
sérstaklega mikill höfuðverkur.
Stundum finnst mér eins og ís-
landsbanki verði fúll þegar ég tek
frekar tilboði frá Búnaðarbanka
eða Landsbanka. Ég reyni að gæta
fyllsta jafnræðis. Þessar elskur vilja
nefnilega allar hag minn sem mest-
an. Þær vilja ólmar lána mér og það
skiptir meira að segja engu máli
fyrir hverju. Umhyggjan fyrir vel-
ferð minni er takmarkalaus.
Ekki vera púkó
Þessa dagana er þeim mjög um-
hugað um að ég eignist fartölvu.
Það er fallega gert því ég á enga
slíka tölvu og í dag er enginn mað-
ur né mönnum nema hann geti
státað af DVD-drifi, skrifara, þráð-
lausu netkorti og svoleiðis fí'niríi. í
þessu máli eru bankastjórarnir hár-
réttir menn á hárréttum stað. Þetta
eru vinir í raun. Þeir sjá til þess að
ég falli inn í hópinn, sé ekki púkó
og út undan. Ég á ekki bót fyrir bor-
una á mér og fartölvukaup væru
fjarlægur draumur ef ekki væri fyrir
blessaða bankana. Eins og sönnum
vini sæmir koma þessar elskur
brosandi til hjálpar. Þær lána mér
einfaldlega fyrir gripnum og allir
eru ánægðir. Vextirnir eru reyndar
dálítið háir en ég hef engar áhyggj-
ur vegna þess að bankinn leyfir mér
að geyma afborganir þangað til eft-
ir hálft ár. Og þá verður hann ör-
ugglega með einhver ráð í fartesk-
inu, getur kannski boðið mér víxil
eða eitthvað.
Frítt í bíó
En þótt ég eigi fartölvu er ég ekki
hólpin. Það er margt annað sem
þarf til að vera ekki utanveltu á ís-
landi í dag. Aftur fljúga bankarnir
inn í líf mitt sem frelsandi englar.
Þeir bjóða mér kreditkort sem
bjarga málunum og eru meira að
segja á ofsalega góðum kjörum.
Þegar ég stofna reikning og sæki
um kortin fæ ég ferðaávísun og
fyrsta árið frítt og alls kyns flottheit.
Svo fæ ég líka vænan yfírdrátt. Nú
get ég keypt mér nýjan gemsa og
lagt gamla hlunknum mínum.
Hann er orðinn þriggja ára og er
hvorki með litaskjá eða möguleika
á nýjum hringitónum, alveg glatað-
ur.
Hjá símafyrirtækjunum verð ég
ákaflega glöð því þar er mér svo vel
tekið. Menn keppast um að vera
vinir mínir. Þetta er bara eins og að
koma í bankana. OgVodafone býð-
ur mér ókeypis handfrjálsan búnað
og Síminn segist muni gefa mér
fimm bíómiða og fúllt af fleira dóti
EKKI FJARLÆGUR DRAUMUR: „Ég á ekki bót fyrir boruna á mér og fartölvukaup væru fjarlægur draumur ef ekki væri fýrir blessaða bankana. Eins og sönnum vini sæmir koma þessar
elskur brosandi til hjálpar," segir greinarhöfundur.
með síma sem er svakalega flottur.
Hann kostar reyndar meira en þrjá-
tíu þúsund krónur en maður má
skipta greiðslunni á tólf mánuði.
Það er eins gott að ég sé með
góðan sfma því það er vinsælt að
hringja í mig. Á kvöldin hafa sam-
band djúpraddaðir karlmenn sem
bjóða mér á stefnumót. Þeir koma
síðan til mín og segja mér allt um
tryggingar eða bækur á góðu verði.
Stundum er mér boðinn viðbótar-
h'feyrissparnaður og fyrst var ég dá-
lítið móðguð. „Hvað haldiði eigin-
lega að ég sé gömul?" spurði ég
hneyksluð. En nú lít ég bara á þetta
sem þroskamerki. Ég er vinsæl ung
kona á uppleið.
Ég lifi í kredit
Einmitt af því að ég lít ekki leng-
ur á mig sem ungling heldur unga
konu, finnst mér tæpast sæma
sjálfri mér að berjast um götur
borgarinnar í stormi og stórhríð.
Það er glatað að mæta hvert sem er
með rytjulegt hár og rennandi hor
úr nefi. Auðvitað gæti ég tekið
Ólíkt Eyva lifi ég hins
vegar ekki bara í
draumi. Ég lifi nefni-
lega líka í kredit, dreg
hvergi mörkin
skulda og eigna.
strætó en það er einhvem veginn
ekki inn. Eg er heldur ekki þessi
listamannstýpa sem skröltir allt á
ryðguðum hjólgarmi með körfu. Og
ekki er ég harðgerði skátinn á fjalla-
hjólinu og í hlífðarjakkanum í stfl.
Ég er líka í svo lélegu formi að ég
verð lafmóð við tilhugsunina eina
um að dröslast á hjóli upp brekku.
Viti menn, hér em bílalánin sem
frelsunarengill. Ég fæ lán fyrir álinu
og í kaupbæti fylgir hágæða geisla-
spilari. Ég er lukkunnar pamfíll. Nú
get ég ekið beint í Kringluna og
keypt fimm þúsund króna belti, tíu
þúsund króna skó og fimmtán þús-
und króna gallabuxur. Ég sveifla
kreditkortinu og brosi breitt, enda
hef ég með góðra manna hjálp
keypt mér hamingju og tryggt mér
aðgang að hringiðu fslensks samfé-
lags.
„Þrælahaldarar nútímans," fúll-
yrðir eldri frænka mín um bankana
en ég hristi bara höfuðið. „Nau,
hau, þeir em æði. Lána manni fyrir
öllu, alveg geðveikt!" svara ég.
Frænkan heldur áfram að muldra:
„Hafa allar klær úti og draga menn
inn í vítahring neyslu - sérstaklega
óharðnaða unglinga sem standast
ekki fartölvu- og kreditkortatilboð.
Halda gylliboðum að þeim, búa tU
kröfur um ákveðinn lífsstíl og bjóða
blessuðum bömunum svo að velta
skuldunum á undan sér."
En ég hristi bara höfuðið. „Er sú
gamla endanlega orðin snar?" hugsa
ég og herði takið um kreditkortið.
„Come on," segi ég og brosi. Ég er
hipp og kúl, töff og tískuleg, með
nýja klippingu og flottar strípur.
Eyjólfur Kristjánsson söng að
hann lifði í draumi, drægi hvergi
mörkin dags og nætur. Og nú er líf
mitt algjör draumur. Ólíkt Eyva lifi
ég hins vegar ekki bara í draumi. Ég
lifi nefnilega líka í kredit, dreg
hvergi mörkin skulda og eigna.
Síst betra hér
Ástandið hér á landi er síst
betra en f Svíþjóð. Þeim sem eru
andlega vanheilir er reglulega
vísað frá sjúkrastofnunum, ætlast
er til að fjölskyldan sjái um þá og
þeir eiga jafnvel í engin hús að
venda. Nýlega framdi maður
sem átti (slfkum hremmingum
morð hér á landi, þó að ekki væri
það ráðherra sem féll I valinn.
Armann Jakobsson á MúrinnJs
Ármann Jakobsson.
Engar launahækkanir
öruggt má telja að farið verði
fram á vaxandi kaupmátt launa
og sérstaka hækkun á launatöxt-
um kjarasamninga. Þar sem mikl-
ar launahækkanir annars vegar
og stöðugleiki og lág verðbólga
hins vegar eru ósamrýmanleg
markmið, sem ekki verður náð
samtimis, er mikilvægt að menn
geri það upp við sig hvor leiðin
verði farin við gerð komandi
kjarasamninga.
AriEdwaid, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnuiifsins, ása.is,
þarsem hann segir ekkert svigrúm
tii iaunahækkana.
Versnandi fer
Auðvitað máttu kjósendur bú-
ast við þvi að stjórnarflokkarnir
gleymdu kosningaloforðunum
um leið og þeir væru komnir f
Jóhanna Sigurðardóttir.
ríkisstjórn. f fyrstu fjárlögum rík-
isstjórnarinnar birtast skatthækk-
anir i stað skattalækkana. Ekkert
kemur fram í fjárlagafrumvarp-
inu um hækkun húsnæölslána i
90%. Þetta allt er siðan kórónað
með þvi að nota á skattalækkan-
ir sem skiptimynt i kjarasamn-
ingum, sem auðvitað var aldrei
sagt við kjósendur ( kosninga-
baráttunni.
Jóhanna Sigurðardóttir á vef
sinum, aithingi.is/johanna
r