Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2003, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2003, Qupperneq 22
34 TILVERA MÁNUDAGUR 6. OKTÓBER 2003 Stórafmæli 90 ára Anna Guðjónsdóttir, Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi. 85 ára Sveinbjöm Benediktsson, Skólastíg 16, Stykkishólmi. 80ára Guðrfður Friðriksdóttir, Furugerði 1, Reykjavík. 75 ára Guðbergur Nielsen, Víðinesi, Reykjavík. 70 ára Jóhanna Guðbjörg Jóhannsdóttir, Flúðaseli 95, Reykjavík. 60ára Baldvin Garðarsson, Nýbýlavegi 80, Kópavogi. Emilía Petrea Árnadóttir, Bjarkargrund 20, Akranesi. Gunnar Sighvatsson, Fannafold 125a, Reykjavík. Helga Slgurbjörg Bjarnadóttir, Sunnubraut 14, Garði. Sigríður R. Björgvinsdóttir, Hátúni 10a, Reykjavík. 50ára Ásdfs Björgvinsdóttir, Nesbala 78, Seltjarnarnesi. Einar Ingi Magnússon, Dalseli 32, Reykjavík. Herdís Svava Hjaltadóttir, Leirutanga 17b, Mosfellsbæ. Ingvar Kristinsson, Lækjarbrekku, Akureyri. Jóhann Bjami Knútsson, Jörundarholti 204, Akranesi. Þorbjörg S. Þorsteinsdóttir, Safamýri 34, Reykjavík. Þorsteinn Þröstur Jakobsson, Dísarási 4, Reykjavík. 40ára Edgar E. Cabrera Hidalgo, Birkimel 6, Reykjavík. Guðrún Kormáksdóttir, Sílatjörn 9, Selfossi. Ingólfur Jensson, Fannafold 12, Reykjavík. ÓlafurJónsson, Álfholti 10, Hafnarfirði. Ólöf Guðmundsdóttir, Borgarási 10, Garðabæ. Sigrfður Jóhannsdóttir, Álakvísl 50, Reykjavfk. Stefán Baldvin Guðjónsson, Framnesvegi 29, Reykjavík. Þorsteinn Pálmar Einarsson, Hverfisgötu 35b, Hafnarfirði. Þórhaliur Einarsson, Sandbakka 15, Höfn. íslendingar Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson Netfang: aettir@dv.is Sími: 550 5826 Fólk í fréttum Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor í stjórnmálafræöi viö Hí Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor við HÍ, sem nú vinnur að ritun ævisögu Halldórs Laxness, hefur mikið verið í fréttum að und- anfornu eftir að aðstandendur Hall- dórs hafa lokað fyrir aögang að bréfasafni hans sem áður hafði ver- ið afhent Landsbókasafninu til varðveislu. Starfsferill Hannes fæddist í Reykjavík 19.2. 1953. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1972, BA-prófi í sögu og heim- speki frá HÍ 1979, cand. mag. prófi í sagnfræði frá HÍ 1982 og doktors- prófi í stjórnmálafræði frá Oxford 1985. Hannes varð lektor í sögu við heimspekideild HÍ 1986, lektor í stjómmálafræði við Félagsvísinda- deild 1988-92, dósent 1992-95 og er prófessor þar frá 1995. Hannes var ritstjóri tímaritsins Frelsisins 1980-86, situr í stjóm hins virta Mont Pelerin Society, al- þjóðasamtaka frjálslyndra fræði- manna, situr í nokkrum fleiri sijómum erlendra stofnana og sam- taka og í bankaráði Seðlabankans. Hannes hefur verið gistiprófessor víða erlendis. Af miklum fjölda rita hans má nefna: Hayek's Conserva- tive Liberalism, New York 1987; Fjölmiðlar nútímans 1989; Fiski- stofnamir við ísland 1990; Island: Arvet frán Thingveilir, Stokkhólmi 1990; Jón Þorláksson forsætisráð- herra 1992, ævisaga; Benjamín Ei- ríksson í stormum sinna tíða 1996, ævisaga; Hádegisverðurinn er aldrei ókeypis 1997; Stjórnmála- heimspeki 1998; Overfishing: The Icelandic Solution, London 2000. Hannes samdi, ásamt öðrum, handrit að átta þáttum um 20. öld, sem sýndir voru nýlega í Sjónvarp- inu, og hefur gert fjölda heimilda- mynda fyrir sjónvarp. Fjölskylda Systkini Hannesar eru Salvör Kristjana, f. 26.2. 1954, viðskipta- fræðingur, gift Magnúsi Gíslasyni rafmagnsverkfræðingi, og á hún tvær dætur; Kristinn Dagur, f. 11.7. 1957, verslunarmaður í Kópavogi; Guðrún Stella, f. 9.4. 1962, forstöðu- maður á Isafirði, gift Jóhanni Hannibalssyni, bónda á Hanhóli við Bolungarvík, og á hún þrjár dætur á lífi. Foreldrar Hannesar voru Gissur Jörundur Kristinsson, f. 11.7. 1931, d. 28. 8. 1993, trésmiður og fram- kvæmdastjóri Verkamannabústað- anna í Kópavogi, og k.h., Ásta Hannesdóttir, f. 26.7. 1926, d. 26.9. 2000, kennari. Ætt Gissur var sonur Kristins, vél- stjóra í Reykjavík, Guðbjartssonar, b. á Sléttu í Aðalvík, Péturssonar, Eldjárnssonar. Móðir Kristins var Kristjana Kristjánsdóttir, b. á Sút- arabúðum í Grunnavík, bróður Pét- urs Eldjámssonar. Móðir Gissurar var Salvör Giss- urardóttir, b. á Hvoli í Ölfusi, Gott- skálkssonar, b. í Sogni, Gissurar- sonar, b. á Reykjum, Þóroddssonar. Móðir Gissurar á Reykjum var Guð- rún Sigurðardóttir, systir Bjarna riddara Sívertsen. Móðir Salvarar var Jónrnn Snorradóttir, b. á Þóm- stöðum í Ölfusi, Gíslasonar, b. á Kröggólfsstöðum, Eyjólfssonar, ætt- föður Kröggólfsstaðaættar, Gísla- sonar. Móðir Snorra var Solveig, systir Ólafar, langömmu Guðrúnar, móður Bjarna Benediktssonar for- Fertugur sætisráðherra, foður Bjöms, cdþm. og borgarfulltrúa. Móðir Jórunnar var Kristín, systir Bjöms, afa Bíla- Steindórs, afa Geirs Haarde fjármálaráðherra. Kristín var dóttir Odds, b. á Þúfu í Ölfusi, Bjömsson- ar. Móðir Odds var Guðrún Eyjólfs- dóttir, systir Gísla á Kröggólfsstöð- um. Móðir Kristínar var Jómnn Magnúsdóttir, b. í Þorlákshöfn, Beinteinssonar, lrm. í Þorlákshöfn, Ingimundarsonar, b. í Hólum í Stokkseyrarhreppi, Bergssonar, ætt- fóður Bergsættar, Sturlaugssonar. Ásta var dóttir Hannesar, b. á Undirfelli í Vatnsdal, bróður Björns, fyrrv. alþm. á Löngumýri, og Huldu, móður Páls Péturssonar, fyrrv. félagsmálaráðherra. Hannes var son- ur Páls, b. á Guðlaugsstöðum í Blöndudal, bróður Guðmundar pró- fessors. Faðir Páls var Hannes, b. á Eiðsstöðum, Guðmundsson, alþm. á Guðlaugsstöðum, Arnljótssonar, b. á Guðlaugsstöðum, Ulugasonar, b. á Guðlaugsstöðum, Hannessonar. Móðir Hannesar var Guðrún Björns- dóttir, b. í Grímstungu í Vatnsdal, Eysteinssonar, bróður Ingibjargar, langömmu Friðriks Sophussonar, fyrrv. ráðherra og forstjóra Lands- virkjunar, og langalangömmu Bjark- ar Guðmundsdóttur söngkonu. Móðir Ástu var Hólmfríður Jóns- dóttir, b. á Undirfelli, Hannessonar. Móðir Hólmfríðar var Ásta Bjarna- dóttir, langamma Hólmfríðar Karls- dóttur, ungfrú alheims 1985. Bjarni, faðir Ástu, var b. í Þórormstungu og bróðir Kolfinnu, móður Bríetar Bjarnhéðinsdóttur, móður Héðins Valdimarssonar., alþm., forstjóra PB og formanns Dagsbrúnar. Bjarni var sonur Snæbjarnar, b. i Forsæludal, bróður Margrétar, móður Arnljóts Ólafssonar, pr. á Bægisá. Kristján Jón Blöndal húsasmiður í Hofnarfiröi Kristján lón Blöndal húsasmið- Fjölskylda ur, Selvogsgötu 15, Hafnarfirði, er Systkini Kristjáns Jóns: Elsa Lára fertugur í dag. Blöndal, f. 24.9. 1955, sjúkraliði, Starfsferill Kristján Jón fæddist á Blönduósi en ólst upp á Skagaströnd. Hann stundaði nám við Iðnskólann f Reykjavík og lauk þaðan prófum sem húsasmiður. Þá hefur hann stundað nám í tölvuskólum und- anfarin ár. Kristján Jón hefur stundað húsa- smíðar undanfarin ár, fyrst á Skagaströnd, þar sem hann var lengst af búsettur, en síðan á höf- uðborgarsvæðinu. Hann hefur auk þess unnið nokkuð við gerð heima- síðna á netinu. búsett í Hafnarfirði; Magnús Bjarni Blöndal, f. 12.1. 1959, d. 7.9. 2001, tamningamaður; Númi Orri Blön- dal, f. 4.7. 1966, húsasmíðameist- ari, búsettur í Hafnarfirði. Foreldrar Kristjáns Jóns eru Sveinbjörn Helgi Blöndal, f. 1932, myndlistarmaður, og Birna Ingi- björg Blöndal, f. 1932, húsmóðir. Ætt Sveinbjörn Helgi er sonur Magn- úsar Blöndals, framkvæmdastjóra Síldarverksmiðja ríkisins á Siglu- firði, bróður Kristjönu, kaupkonu í Reykjavík, og Gunniaugs Blöndals listmálara. Magnús var sonur Björns Blöndals, læknis á Blöndu- ósi, bróður Magnúsar, ritstjóra og skálds. Björn var sonur Gunnlaugs Blöndals, sýslumanns í Barða- strandarsýslu, Björnssonar, ætt- föður Blöndalsættar Auðunssonar. Móðir Björns læknis var Sigríður, systir Benedikts Gröndals, skálds og kennara í Reykjavík. Sigríður var dóttir Sveinbjarnar, skáids og rekt- ors, Egilssonar. Móðir Sigríðar var Helga Benediktsdóttir Gröndal, skálds og yfirdómara. Móðir Magn- úsar framkvæmdastjóra var Sigríð- ur Möller, dóttir Carsten Möller lögmanns og Ingibjargar Einars- dóttur, kaupmanns í Reykjavík, Jónassen. Móðir Sveinbjörns var Elsa Mar- ía Schiöth, dóttir Axels Hendriks Riddermanns Schiöth, bakameist- ara á Akureyri, og Elise Margrethe, dóttur Friis, óðalsb. í Vejen í Dan- mörku. Birna Ingibjörg er dóttir Jóns Þorbergs Bjarnasonar verkamanns og Guðmundu Sigurjónsdóttur, í Búðardal í Landeyjum. Pálssonar. Kristján Jón verður að heiman á afmælisdaginn. Andlát Magnús ögmundsson frá Syðri- Reykjum, áðurtil heimilis á Grandavegi 47, andaðist á hjúkr- unarheimilinu Skjóli föstud. 3.10. Þuríöur Snorradóttir frá Steini ( Vestmannaeyjum andaðist laug- ard. 20.9. Jarðarförin hefur farið fram (kyrrþey. Hallberg Kristinsson, Iðufelli 2, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtud. 2.10. Jarðarfarir Jóhann Róslnkranz Bjömsson, Ugluhólum 12, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Áskirkju mánud. 6.10., kl. 15.00. Brynjar Guöbjöm ívarsson, Möðru- felli 3, Reykjavík, verður jarðsung- inn frá Fella- og Hólakirkju mánud. 6.10., kl. 13.30. Lilja Pálsdóttir, Meistaravöllum 25, Reykjavík, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánud. 6.10., kl. 13.30. Otför Ragnars Jóhannssonar, fýrrv. skipstjóra frá (safirði, fer fram frá Háteigskirkju mánud. 6.10., kl. 15.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.