Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2003, Síða 6
6 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 2003
Eldur í Bónus
AKUREYRI: Betur fór en á
horfðist þegar eldur kom upp í
Bónus á Akureyri síðdegis í
gær. Eldurinn kom upp í vind-
klæðningu þegar unnið var að
viðgerð á vörumóttökuhurð.
Slökkviliði Akureyrar gekk
greiðlega að ráða niðurlögum
eldsins.Tjón af völdum eldsins
er ekki mikið.
Gert að miða verð við kostnað
SÍMTÖb Úrskurðarnefnd fjar-
skipta- og póstmála hefur fall-
ist á kröfu Símans um útnefn-
ingu Og fjarskipta hf. (Og
Vodafone) sem fyrirtæki með
umtalsverða markaðshlutdeild
á samtengimarkaði. Úrskurður-
inn hefur þau áhrif að Og
Vodafone ber héðan í frá að
miða heildsöluverð, þ.e. sam-
tengigjöld, við kostnað. Síminn
hefur selt Og fjarskiptum að-
gang að sínu kerfi á 11,11
krónur mínútuna með vsk en
Og fjarskipti selt Símanum að-
gang að sínu kerfi á 16,81
krónur mínútuna með vsk.
Munurinn er um 50 prósent.
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri
Símans, segist ganga út frá því
að Og Vodafone muni nú
lækka heildsöluverð sitt.
Ekið á par
LÖGREGLA Maður og kona á
miðjum aldri voru flutt á slysa-
deild í gærkvöld eftir að þau urðu
fyrir bifreið á Suðurlandsbraut.
Slysið varð um áttaleytið og var
parið að ganga yfir gangbraut, á
grænu gönguljósi, þegar bíll kom
aðvífandi og ók á þau. Ekki er vit-
að nákvæmlega um meiðsl fólks-
ins en talið var að annað þeirra
hefði beinbrotnað.
B5RB vill nýja hugsun í skattamálum:
Skoðar breytilegan
persónuafslátt
Þing BSRB verður sett í dag og
er yfirskrift þess Réttiátir skatt-
ar - undirstaða velferðar.
Bandalagið vill „losna úr viðj-
um vanans" í skattamálum og
boðar nýjar hugmyndir.
„Við höfum lagt mjög mikla
vinnu í skattamál að undanförnu
og teljum mjög mikilvægt að menn
losi sig úr viðjum vanans hvað
skattamálin snertir og reyni að tefla
fram nýrri hugsun,“ segir Ögmund-
ur Jónasson, formaður BSRB.
„Skattar eru tæki til að afla hinu op-
inbera tekna og einnig til að jafna
kjörin. Þetta tæki þarf að vera í
stöðugri endurskoðun og menn
mega ekki festa sig í þau form sem
við höfum smíðað okkur. BSRB
hefur verið að þróa nýja nálgun í
skattamálum þar sem við viljum
reyna að styrkja staðgreiðslukerfið,
ekki aðeins með tilliti til tekna
heldur einnig til bótakerfisins."
ögmundur segir að nákvæm út-
færsla á tillögunum sé í vinnslu og
verði það enn um skeið. í megin-
dráttum sé hins vegar byggt á því
að skattprósentan verði aðeins ein
- sem þýðir að hátekjuskattþrep
yrði úr sögunni - en persónuaf-
sláttur verði breytilegur. Með því
að hafa persónuafsláttinn breyti-
legan mætti ná fram áhrifum íjöl-
þrepaskattkerfis með einni skatt-
prósentu, að sögn Ögmundar.
I megindráttum sé hins
vegar byggt á því að
skattprósentan verði að-
eins ein - sem þýðir að
hátekjuskattþrep yrði úr
sögunni - en persónuaf-
sláttur verði breytilegur.
Ögmundur segist gefa kost á sér
til endurkjörs sem formaður BSRB
á þinginu. Um kjarasamningana
segir hann að þeir verði að öllum
líkindum á vettvangi hvers aðildar-
félags um sig þannig að heildar-
stefnumótun verði vart mikið til
umræðu á þinginu þótt þar verði
vitanlega margt rætt sem snertir
kjörin; skattarnál, húsnæðismál og NÝJAR ÁHERSLUR: Endanleg útfærsla á skattatillögum BSRB liggur ekki fyrir en Ijóst virðist að hugmyndir um breytilegan persónuafslátt gætu falið í
fleira. olafur@dv.is sér býsna róttækar breytingar. Þótt fátt sé gefið upp að sinni hlyti tekjujöfnun að verða meiri en nú er, en skattprósentan yrði líklega lægri.
Bjóða biskupi á galdrasýningu
Forráðamenn Galdrasýningar á
Ströndum hafa boðið herra
Karli Sigurbjörnssyni biskupi í
heimsókn á sýninguna. Segjast
þeir gjarnan vilja kynna verk-
efnið í heild sinni fyrir honum
þegar hann á leið um Strandir.
Biskup fslands hefur séð ástæðu til
að bendla Galdrasýningu á Ströndum
við það sem hann nefnir „hin myrku
öfl" oghaftereftirhonumíblaðaviðtali
að Strandamenn geri „galdrabrennur
og kukl að skemmtiefni fyrir ferða-
menn", segir m.a. í yfirlýsingu ífá for-
ráðamönnum sýningarinnar.
„Okkur sem að sýningunni stöndum
þykja þetta undarlegar fúllyrðingar og
einkennast öðm fremur af fákunnáttu
um markmið Galdrasýningarinnar og
tilgang," segir enn fremur.
Forráðamennimir segja Galdrasýn-
inguna sögusýningu með það að
markmiði að draga saman vitneskju
um sögu sautjándu aldar og þjóðtrú á
Islandi með fræðilegum aðferðum og
miðla henni til almennings.
„ Við teljum okkur hafa sinnt verk-
efhinu af heilindum hvort sem um er
að ræða uppsetningu sýningarinnar
eða annað útgefið efni, svo sem marg-
miðlunardisk og Angurgapa, bók um
galdramál á íslandi sem styrkt var af
Ásgeir sagði að í þeim trygging-
um sem sveitarfélögin væru með
fyrir skólabörn væri innifalin slysa-
trygging, dánarbætur, trygging
vegna örorku og kostnaður sem
félli til vegna slysa. Þá voru þar inni
bætur vegna tanntjóns. jss
Krismihátíðarsjóði og kom út nú í
sumar. Auk þess er óumdeUt að menn-
ingarverkefni af þessu tagi hafi jákvæð
áhrif á byggðaþróun með því að styrkja
ferðaþjónustu og auka fjölbreytni í at-
vinnulífi. Þetta hefúr sannað sig á
Ströndum og okkur sámar mjög að
þessi starfsemi og vinna með menn-
ingararf þjóðarinnar sé kennd við lág-
kúru. Aðstandendur Galdrasýningar á
Ströndum hafa hingað til ekki haft
Kjötvinnslufyrirtækið Ferskar
afurðir á Hvammstanga fengu
ekki framlengda greiðslustöðv-
un fyrirtækisins sem farið hafði
verið fram á.
Héraðsdómur Norðurlands vestra
hafnaði beiðninni. Fyrirtækið fékk
3ja vikna greiðslustöðvun 23. sept-
ember sl. og þá var félagið sagt eiga
fyrir öilum skuldum. Ekkert þokaðist
t' samkomulagsátt á þessu þriggja
vikna tímabili. Nú við framlengingar-
áhyggjur af ranghugmyndum þeirra
sem ekki hafa kynnt sér verkefnið. Það
truflar okkur ekki þótt einhverjar ný-
aldamomir haldi að á Ströndum sé
kennt fomt kukl, en öðm máli gegnir
þegar æðsti maður íslensku þjóðkirkj-
unnar dæmir verk okkar opinberlega,
augljóslega af vanþekkingu."
Ekki náðist í Karl Sigurbjömsson
biskup.
JSS
beiðni em skuldir umfram eignir
taldar vera 147 milljónir króna. For-
senda greiðslustöðvunar var góð
eignastaða. Kaupþing Búnaðarbanki
hefur þegar óskað eftir því að fyrir-
tækið verði tekið til gjaldþrotaskipta.
Ferskar afurðir sökuðu bankann, sem
var viðskiptabanki fyrirtækisins, um
að draga fé af viðskiptareikningum
félagsins en Ferskar afurðir munu
hafa fengið afurðalán út á birgðir sem
alls ekki vom fyrir hendi. Því greip
bankinn til sinna ráða. GG
Vátryggingafélag íslands:
Langflest sveitarfélög
tryggja skólabörn
Langflest sveitarfélög, sem
tryggja hjá Vátryggingafélagi
(slands, eru með slysatrygg-
ingar fyrir skólabörn.
Eins og fram kemur í DV í dag
hafnar Reykjavfkurborg því að
tryggja skólabörn í grunnskólum.
Hafa borgaryfirvöld hafnað hug-
myndum um slíkar tryggingar þeg-
ar þær hafa komið upp á borð hjá
þeim. Samkvæmt upplýsingum
Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur er
reynt að leysa hvert einstakt tilvik,
þar sem slys í skóla koma við sögu,
fyrir sig.
Fjölmörg sveitarfélög tryggja hjá
VÍS, að sögn Ásgeirs Baldurs, for-
stöðumanns hjá félaginu. Þar á
meðal eru stærri sveitarfélög, að
undanteknum Reykjavík, Hafnar-
firði og Akureyri.
Óskað gjaldþrotaskipta
á Ferskum afurðum