Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2003, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2003, Blaðsíða 30
30 DVSPORT MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 2003 Barthez í biðstöðu Rio skilar sönnunargögnum KNATTSPYRNA: Leigusamn- ingur Fabiens Barthez frá Manchester United til Marseille hefur verið settur á bið af frönskum knattspyrnuyf- irvöldum þar sem beðið er eft- ir leyfi frá FIFA til þess að af vistaskiptunum verði. Barthez er ekkert að örvaenta þótt mál- ið komi til með að taka aðeins lengri tíma en í fyrstu var hald- ið. „Frá fyrstu mínútu er ég heyrði að United og Marseille væru að tala saman var ég spenntur. Marseille á sérstakan stað í mínu hjarta því að ég byrjaði minn feril hér og það hefur ávallt verið von mín að ég gæti leikið aftur með félag- inu. Það verður frábært að spila aftur á Stade Velodrome," sagði Fabien Barthez. SMÁBIÐ: Barthez kemst ekki frá United strax. KNATTSPYRNA: Enska knatt- spyrnusambandið staðfesti í gær að það hefði fengið öll nauðsynleg gögn frá Rio Ferdinand og Man. Utd. til þess að Ijúka málinu. Meðal þeirra gagna sem send var útprentun afvarsímanotk- un Ferdinands sem gæti verið lykillinn í málsvörn hans en það á að sanna að hann hafi hringt í sambandið þegar hann gerði sér grein fyrir því að hann hefði misst af lyfja- prófinu. Hvað sem gerist í málinu er Ijóst að Rios bíður refsing fyrir að mæta ekki í lyfjaprófið en það er undir enska knattspyrnusambandinu komið að dæma um hvort hann hafi gert það viljandi eð- ur ei. STYTTIST: Mál Rios vel á veg kom- ið. "t > SVEKKELSI: Arsene Wenger, stjóri Arsenal, gat ekki leynt vonbrigðum sin um í Úkraínu í gær enda enn eitt tapið hjá hans mönnum staðreynd og þeir i verulega vondum málum. Skytturnar skotnar Arsenal í vondum málum eftir tap í Úkraínu - Inter tapaði í Moskvu Arsenal er í verulega vondum málum í B-riðli meistaradeildar- innar eftir tap gegn Dynamo Ki- ev í gær. Þeir sitja langneðstir en baráttan á toppi riðilsins er mjög hörð eftir að Lokomotiv Moskva gerði sér lítið fyrir og pakkaði Inter saman. Juventus er aftur á móti í verulega huggulegum málum eftir sann- færandi sigur á Real Sociedad. Sigurmark leiksins í Úkraínu var skrautlegt í meira lagi og skrifast á Jens Lehmann, markvörð Arsenal. Arsene Wenger, stjóri liðsins, vildi þó ekki kenna honum um tapið. „Ég er ekki hér til þess að kenna einhverjum um tapið því að við fengum tækifæri til þess að klára leikinn sjálfír. Svona mörk eru óheppileg þegar maður biður leik- menn sfna um að spila boltanum frá aftasta manni en það má alltaf búast við þeim. Það er eingöngu hluti af leiícnum. Jens var í öngum sínum inni í búningsklefa en það voru reyndar allir strákarnir. Jens er reyndur markvörður og við megum ekki kenna neinum um heldur standa saman,“ sagði Wenger en hann var ekki tilbúinn að játa það að baráttan væri búin. „Staðan er vissulega mjög erfið en strákarnir búa yfir þeim andlega styrk sem þarf að hafa til þess að komast yftr svona áföll og aftur á skrið. Við erum ekki búnir að syngja okkar sfðasta og ég hef fulla trú á því að við komumst áfrarn," sagði Wenger en hans mönnum hefur ekki tekist að sigra í níu síð- ustu leikjum sínum í meistara- deildinni. O'Neill bjartsýnn Martin O’Neill, stjóri Celtic, var enn á því að hans menn réðu sín- um örlögum í keppninni þrátt fyrir tap gegn Anderlecht sem lék manni færra frá 26. mínútu. „Staðreyndin er að við ráðum enn okkar örlögum. Við spiluðum alls ekki nógu vel í þessum leik en þrátt fyrir það fannst mér við eiga skilið að fá eitthvað úr honum. Þeg- ar þeir misstu manninn út af var ég ekkert viss um að við myndum sigra. Við spiluðum ekki nógu vel á ákveðnum svæðum til þess að setja pressu á þá. Við getum vissulega gert betur en við gerðum í kvöld en ég tek ekkert frá Anderlecht. Þeir sönnuðu svo sannarlega hversu gott lið þeir eru og þessi riðill er enn þá opinn alveg upp á gátt." Mark var dæmt af welska fram- herjanum John Hartson og það skipti sköpum að mati O’Neills. „Ef markið hefði fengið að standa þá er ég klár á því að við hefðum klárað leikinn." Inter kælt niður Lokomotiv Moskva kom verulega á óvart þegar það rúllaði yftr ítalska risann, Inter, í Moskvu, 3-0. Yuri Semin, þjálfari Lokomotiv, hrósaði fyrirliða sínum, Dmitri Loskov, sér- staklega. „Hann tapaði aldrei boltanum og „Jens var í öngum sín- um inni í búningsklefa en það voru reyndar allir strákarnir. Jens er reyndur markvörður og við megum ekki kenna neinum um held- ur standa saman." gaf margar stórkostlegar sendingar. Meira að segja þegar við vorum ekki að sækja vann hann varnar- vinnuna frábærlega. Stórkostleg frammistaða hjá honum í kvöld." Semin sagði að fyrsta markið í leiknum hefði gert útslagið. „Það hjálpaði okkur mjög mikið. Inter er ekki mjög gott lið gegn liði sem beitir skyndisóknum. Þeir þurftu að pressa á okkur og við það opn- aðist pláss fyrir skyndisóknirnar okkar. Leikurinn hefði orðið mun erfíðari ef við hefðum fengið fyrsta markið á okkur," sagði Semin sem var í skýjunum með lið sitt. „Ég vil óska öllum mínum leik- mönnum til hamingju með frábær- an leik. Enginn leikmaður átti dapran dag og ég er einnig ánægð- ur fyrir hönd stuðningsmanna okk- ar sem var boðið til veislu." Bjargvætturinn Tristan Diego Tristan kom Deportivo til bjargar þegar hann skoraði eina mark leiksins gegn Monaco á Ri- azor. „Tristan fékk það sem hann átti skilið úr leiknum. Hann stóð sig virkilega vel,“ sagði Javier Irureta, þjálfari Deportivo. „Monaco kann listina að verjast vel. Við þurftum að hafa mikið iyrir sigrinum og stuðningsmennirnir gáfu okkur þann kraft sem við þurftum svo sannarlega á að halda til þess að landa sigrinum." henry@dv.is L. Moskva-lnter 3-0 1-0 Dmitri Loskov (2.), 2-0 Mikhail As- hvetia (50.), 3-0 Dmitri khoklov (57.). AEK Aþena-PSV Eindhoven 0-1 0-1 Theo Lucius (36.). Anderlecht-Celtic 1-0 1-0 Dindane Aruna (72.). Deportivo-Monaco 1-0 1-0 DiegoTristan (82.). Dynamo Kiev-Arsenal 2-1 1-0 Maksim Shatskikh (27.), 2-0 Val- entin Belkevich (64.), 2-1 Thierry Henry (80.). Galatasaray-Olympiakos 1-0 1-0 Cihan Haspolatli (9.) Juventus-Real Sociedad 4-2 1-0 David Trezeguet (3.), 2-0 Marco Di Vaio (6.), 3-0 Marco Di Vaio (45.), 4-0 David Trezeguet (63.), 4-1 Igor Tudor sjm, (67.), 4-2 Javier De Pedro (80.). Lyon-Bayern Munchen 1-1 0-1 Roy Makaay (25.), 1-1 Peguy Luy- indula (88.). A-riölll: Bayern 3 1 2 0 4-3 5 Anderl. 3 1 1 1 2-2 4 Lyon 3 1 1 1 2-3 4 Celtic 3 1 0 2 3-3 3 B-riöill: D. Kiev 3 2 0 1 5-3 6 Inter 3 2 0 1 5-4 6 L. Moskva 3 1 1 1 3-2 4 Arsenal 3 0 1 2 1-5 1 C-riðill: Deport. 3 2 1 0 4-1 7 Monaco 3 2 0 1 6-2 6 PSV 3 1 0 2 2-4 3 AEK 3 0 1 2 1-6 1 D-riölll: Juvent. 3 3 0 0 8-4 9 R.Socied. 3 2 0 1 5-5 6 Galatasa. 3 1 0 2 3-4 3 Olympia. 3 0 0 3 1-4 0

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.