Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2003, Page 24
24 TILVERA MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 2003
íslendingar
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
Netfang: aettir@dv.is
Sími: 550 5826
Fjörutíu ára
Steinþór Jónsson
framkvæmdastjóri og hótelstjóri í Reykjanesbæ
Steinþór Jónsson, Bragavöllum
7, Keflavík, Reykjanesbæ, er fertug-
ur í dag.
Starfsferill
Steinþór fæddist í Keflavík og
ólst þar upp. Hann lauk grunn-
skólaprófi frá Myllubakkskóla,
stundaði nám við Hlíðardalsskóla í
ölfusi 1976-80 og lauk stúdents-
prófi frá FS af viðskiptafræðibraut
1982.
Steinþór starfaði með skóla í fyr-
irtæki foreldra sinna, Ofnasmiðju
Suðurnesja, frá tólf ára aldri, hóf
störf á skrifstofu fyrirtækisins 1983
og er nú framkvæmdastjóri þess.
Steinþór stofnaði, ásamt föður
sínum, Hótel Keflavík 1986 og hef-
ur starfað þar sem hótelstjóri frá
upphafi. Þá var hann umboðsmað-
ur flugfélagsins Canada 3000
1995-99 og er umboðsmaður fyrir
flugfélagið HMY á íslandi.
Steinþór sat í ferðamálanefnd
Keflavíkur í nokkur ár, var fyrsti
varamaður í bæjarstjórn fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn 1998-2002, situr í
bæjarstjórn og bæjarráði Reykja-
nesbæjar frá 2002, var varaformað-
ur í markaðs- og atvinnuráði
1998-2002, var formaður Staðar-
dagskrár 21 2002-2003, er formað-
ur og upphafsmaður að Ljósanótt í
Reykjanesbæ, formaður í umhverf-
is- og skipulagsnefnd, er meðlimur í
Rotarýklúbbi Keflavíkur, formaður
áhugahóps um að tvöfalda Reykja-
nesbraut og situr í stjórn Samtak-
anna Betri bær í Reykjanesbæ.
Steinþór var valinn maður ársins
á Suðurnesjum af Víkurfréttum ár-
ið 1997.
Fjölskylda
Steinþór kvæntist 21.6. 1986.
Hildi Sigurðardóttur, f. 11.5. 1966,
leikskólakennara. Hún er dóttir
Sigurðar Guðfinns Sigurðssonar
brunavarðar og Guðríður Helga-
dóttir leikskólafulltrúa.
Börn Steinþórs og Hildar eru
Lilja Karen Steinþórsdóttir, f. 29.9.
1987, nemi við MR; Katrín Helga
Steinþórsdóttir, f. 21.9.1989, nemi í
Heiðarskóla; Unnur María Stein-
þórsdóttir, f. 6.11. 1995, nemi í
Heiðarskóla; Guðríður Emma
Steinþórsdóttir, f. 30.6.1997, nemi í
Heiðarskóla.
Systkini Steinþórs eru Magnús
Jónsson, f. 2.2. 1962, útgerðarmað-
ur á Bfldudal, kvæntur Ellu Björk
Björnsdóttur og eiga þau þrjú böm,
Sigrúnu Ellu, Jón Þór og Önnu
Marý; Guðlaug Helga Jónsdóttir, f.
31.10. 1966, kennari í Myliubakka-
skóla í Keflavík og á hún þrjá syni,
Samúel Albert, Jakob Elvar og Sig-
urð Hauk; Davíð Jónsson, f. 16.8.
1976, aðstoðarhótelstjóri á Hótel
Keflavík, en unnusta hans er Eva
Dögg Sigurðardóttir.
Foreldrar Steinþórs eru Jón
William Magnússon, f. 16.12. 1940,
framkvæmdastjóri og Unnur Ing-
unn Steinþórsdóttir, f. 13.2. 1942,
húsmóðir.
Ætt
Jón William er sonur hjónanna
Magnúsar Jónssonar útgerðar-
manns og Guðlaugar Helgu Jó-
hannesdóttur en þau voru bæði frá
Ólafsflrði.
Unnur Ingunn er dóttir hjón-
anna Steinþórs Sighvatssonar frá
Kirkjubóli í Vöðlavík, en hann ólst
upp á Karlsskála í Reyðarfirði, og
Sigríðar Stefánsdóttur frá Hafnar-
firði. Þau voru búsett í Keflavík.
Opið hús verður í félagsheimil-
inu Stapa föstudagskvöldið 24.10.
frá kl. 19.30 þar sem Steinþór og
Hildur eiginkona hans bjóða uppá
veitingar og skemmtun fram eftir
kvöldi. Allir vinir og kunningjar em
hjartanlega velkomnir.
Níutíu ára
MagnúsJ. Jóhannesson
fyrrv. oddviti á Bakkafirði
Magnús Jónas Jóhannesson sjó-
maður, Hraungerði, Bakkafirði,
varð nfræður á mánudag.
>
Starfsferill
Magnús fæddist á Grænhóli á
Barðaströnd og ólst þar upp fyrstu
árin. Hann var íjögurra ár er hann
missti föður sinn og stóð þá móðir
hans uppi ekkja í annað sinn á fá-
um ámm. Skólaganga hans var átta
vikur veturinn fyrir fermingu.
Magnús vann ungur við fjár-
gæslu, var mörg sumur hjá Gunn-
laugi Kristóferssyni á Brekkuvöll-
um í Haukabergsþorpi, tvö sumur á
handfæraskútu frá Flatey á Breiða-
firði, fór til Reykjavíkur í vinnu
1930, var á vertíð næstu árin í Vest-
mannaeyjum, Grindavík og í Höfn-
unum á veturna, en á sumrin í
* kaupavinnu víða á Suðurlandi,
stundaði sjóróðra á Hafnarhólma
við Steingrímsfjörð 1938, fór til
Bakkafjarðar sumarið 1939 og var
þrjú sumur við sumarróðra hjá
Þórhalli Jónassyni.
Haustið 1940 fór Magnús vetrar-
maður til Einars Ófeigs Hjart-
arsonar og Stefaníu Jónsdóttur í
Saurbæ í Skeggjastaðahreppi, bjó
þar 1941-47 með lítils háttar bú-
skap en stundaði jafnframt sjó á
bátkænu sem hann átti. Vorið 1947
flutti fjölskyldan til Bakkafjarðar og
hefur búið þar síðan. Þar stundaði
Magnús sjó auk þess sem þau vom
einnig með kindur og kýr fyrstu ár-
in. Hann byggði húsið Hraungerði
1950, flutt inn um haustið og hefur
átt þar heima síðan.
Magnús var oddviti 1958-74,
sinnti ýmsum öðrum trúnaðar-
störfum og átti m.a. þátt í stofnum
hlutafélags um sfldarverksmiðju til
atvinnueflingar á staðnum.
Fjölskylda
Magnúskvæntist8.11.1941 Járn-
brá Einarsdóttur, f. 13.4. 1918, d.
9.6. 2001, stöðvarstjóra Pósts og
síma 1953-88 og umboðsmanni
Flugfélags Austurlands. Foreldrar
hennar vom Einar Ófeigur Hjartar-
son, f. 11.5. 1896, d. 11.4. 1963, og
Stefanía Jónsdóttir, f. 23.3. 1892, d.
12.5. 1960, bændur í Fjallalækjar-
seli á Hallgilsstöðum í Þistilfirði og
í Saurbæ í Skeggjastaðahreppi.
Börn Magnúsar og Járnbrár:
Gunnar Jóhannes, f. 29.4. 1942,
rekur bókhaldsskrifstofu í Reykja-
vík, búsettur á Seltjarnarnesi,
kvæntur Ólínu Ingibjörgu Hákon-
ardóttur, f. 27.4. 1945, og eiga þau
einn son; Stefnir Einar, f. 30.9.
1943, útgerðarmaður á Bakkafirði,
var kvæntur Kristbjörgu Khorchai,
f. 4.1. 1962, en þau skildu og eiga
þau tvö börn; Sólrún, f. 11.4. 1945,
d. 10.9.2000, síðast starfsmaður hjá
Landssíma Islands, búsett í Hafnar-
firði, var gift Grétari Bjarnasyni, f.
15.6.1943, húsasmið en þau eignuð-
ust fimm börn og eitt barnabarn en
tvö barnanna eru látin; Björg, f. 3.4.
1947, starfsmaður hjá Landsbanka
íslands, búsett í Kópavogi, gift Þórði
Sigurgeirssyni, f. 20.6. 1949, raf-
eindavirkja og eiga þau fjögur börn
og þrjú barnabörn; Freydfs Sjöfn, f.
12.8. 1951, bréfberi hjá Islandspósti
á Bakkafirði, gift Elíasi Ingjaldi
Helgasyni, f. 8.7. 1952, útgerðar-
manni og eiga þau fimm syni; Rósa
Björk, f. 27.7. 1957, afgreiðslustjóri
hjá íslandspósti á Bakkafirði, gift
Ólafi Birni Sveinssyni, f. 3.4. 1958,
bifvélavirkja og eiga þau fjögur börn
og eitt bamabarn.
Systkini Magnúsar er öll látin.
Alsystir hans var Jóhanna, hús-
móðir í Reykjavík.
Hálfsystkini Magnúsar, sam-
mæðra: Bjarnfríður, dó ung; Guð-
munda, dó ung; Sigríður, húsmóðir
í Reykjavík; Bjarni Þórarinn, bóndi
að Neðra-Rauðsdal á Barðaströnd;
Ólafur Gísli, verkstjóri á Patreks-
firði.
Foreldrar Magnúsar vom Jó-
hannes Kjartansson, f. 1.12. 1882,
d. 29.3.1918, húsmaður og sjómað-
ur, og Guðrún Guðmundsdóttir, f.
19.4. 1874, d. 20.11. 1954.
Sextíu ára
Stórafmæli
95 ára
Eva Pétursdóttir,
áður að Strandgötu
93, Eskifirði, en dvelur
nú í Hulduhlíð, dvalar-
heimili aldraðra á Eski-
firði. Eiginmaður Evu var Ind-
riði Valdimars Ásmundsson,
vélstjóri á fiskiskipum, sem lést
1970. Af heilsufarsástæðum tek-
ur Eva ekki á móti gestum.
90 ára
Steingrfmur Þorsteinsson,
Vegamótum, Dalvík.
85 ára
Hermann Ólafsson,
Hjallabraut 33, Hafnarfirði.
Steinn Jónsson,
Hátúni 7, Eskifirði.
80 ára
Alda Rannveig
Þorsteinsdóttir,
áður Helgamagra-
stræti 46, Akureyri, nú
Dvalarheimlinu Hlíð.
Hún tekur á móti ættingjum og
vinum að Dvalarheimilinu Hlíð eft-
ir kl. 16.00 á afmæisdaginn. Blóm
og gjafirafþökkuð.
Ólaffa Jónasdóttir,
Vallargötu 27, Þingeyri.
Sigurður Ragnar Guðbrandsson,
Aðalgötu 19, Keflavík.
75 ára
Birgir Magnússon,
Gullsmára 7, Kópavogi.
Guðmundur Ólafsson,
Suðurgötu 4a, Keflavík.
Trausti Adolf Ólason,
Ásholti 2a, Dalvík.
aLeifur Ragnar
Magnússon,
verkfræðingurog
framkvæmdastjóri,
Barónsstíg 80, Reykja-
vík. Eiginkona hans erOddrún
Kristjánsdóttir, umhverfisfræðing-
ur og framkvæmdastjóri. Þau eru í
útlöndum.
Ásgerður Ulja Hólm,
Grímsgerði, Akureyri.
Magnús Andrés Jónsson,
Byggðavegi 117, Akureyri.
60 ára
Bjöm Þór Jónsson,
Heiðarvegi 10, Reyðarfirði.
Sigrfður Gunnlaugsdóttir,
Borgarholtsbraut 76, Kópavogi.
Þorvarður Guðmundsson,
Stekkum 1, Selfossi.
Þórður Kristján Pálsson,
Dúfnahólum 4, Reykjavík.
50 ára
Anna Ólfna Guðmarsdóttir,
Keilusíðu 11 d, Akureyri.
Bjami Marfus Jónsson,
Ásholti 8, Reykjavík.
Friðrik Karl Friðriksson,
Leifsgötu 12, Reykjavík.
Helga Hjaltadóttir,
Kríuási 7, Hafnarfirði.
Kristfn Gunnarsdóttir,
Irabakka 14, Reykjavík.
Slgbert Berg Hannesson,
Strandaseli 7, Reykjavík.
Theodór Guðjón Jónsson,
Smáratúni 10, Keflavík.
Ema Pálsdóttir
* bóndi á Sveinsstöðum
Erna Pálsdóttir, bóndi að Sveins-
stöðum á Mýrum, er sextug í dag.
Starfsferill
Ema fæddist í Álftártungu á Mýr-
um og ólst þar upp við öll almenn
y sveitastörf þess tíma. Hún hefúr
verið bóndi á Sveinsstöðum á Mýr-
um.
Fjölskylda
Eiginmaður Ernu er Pétur Val-
berg Jónsson, f. 4.5.1933, vélamað-
ur. Hann er sonur Jóns H. Jónsson-
ar og Nellýjar Pétursdóttur.
Börn Ernu og Péturs eru Einar
Páll, f. 16.10. 1968, bifreiðarstjóri f
Borgarnesi; Nellý, f. 7.1.1981, nemi
við Tækniháskóla Islands; Svan-
hvít, f. 21.3. 1982, nemi; Helga, f.
9.11. 1984, nemi.
Systkini Ernu: Anna Þóra, f. 16.6.
1939, kaupmaður í Keflavík; Svan-
ur, f. 29.4. 1942, bóndi í Álftár-
tungu; Egill, f. 30.9. 1945, vegagerð-
armaður í Borgamesi; Birgir, f.
4.11. 1947, bflstjóri í Borgarnesi;
Steinunn, f. 27.2. 1950, húsmóðir í
Borgamesi; Ásgerður, f. 29.6. 1953,
húsmóðir og bóndi á Arnarstapa.
Foreldrar Ernu: Páll Þorsteins-
son, f. 3.2.1913, d. 8.3.1988, hrepp-
stjóri í Álftártungu, og k.h., Gróa
Guðmundsdóttir, f. 4.6. 1917, bú-
sett í Álftártungu.
Erna tekur á móti gestum í fé-
lagsheimilinu Lyngbrekku föstud.
24.10. frákl. 21.00.
40 ára
Arndfs Fannberg,
Arnkötlustöðum, Hellu.
Birgir Þórisson,
Hverfisgötu 37, Reykjavík.
Bjaml Haraldsson,
Stóru-Mástungu 1a, Selfossi.
Guðrún Ósk Jakobsdóttir,
Heiðarási 22, Reykjavík.
Hallgrfmur Lárusson,
Ólafsgeisla 39, Reykjavík.
Hllmar Sigurðsson,
Skaftahlíð 18, Reykjavík.
Ólafur Aðalsteinsson,
Birtingakvísl 26, Reykjavík.