Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2003, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 2003 DV SPORT 29
með sex
Katrín skoraði aftur
Guðjón Valur
HANDKNATTLEIKUR: Læri-
sveinar Alfreðs Gíslasonar í
Magdeburg komust á topp
þýsku deildarinnar með sex
marka sigri á Essen, 30-24, í
gærkvöld.
Magdeburg er í efsta sæti sem
stendur ásamt Flensburg og
Lemgo en Lemgo er búið að
leika einum leik fleira. Guðjón
Valur Sigurðsson skoraði sex
mörk fyrir Essen en Sigfús Sig-
urðsson komst ekki á blað hjá
heimamönnum.
Lemgo sigraði einnig í sínum
leik gegn Pfullingen í miklum
markaleiksem endaði 39-31.
Essen er í 7. sæti sem stendur
og verða Guðjón Valur og fé-
lagar að taka sig saman í and-
litinu ætli þeir sér að blanda
sér ítoppbaráttuna.
Ódýrt hjá HK
HANDKNATTLEIKUR: f gær
var dregið í þriðju umferð í
Evrópukeppni bikarhafa og
óhætt að segja að HK hafi ver-
ið heppið með mótherja, en
HK dróst á móti Drott frá
Svíþjóð. Hins vegar þarf
kvennalið fBV að ferðast lengra
en félagið fékk Etar Veliko
Turnovo frá Búlgaríu.
KNATTSPYRNA: Katrín Jóns-
dóttir, sem er byrjuð að leika á
nýjan leik með Kolbotn í Nor-
egi, gerði sér lítið fyrir og skor-
aði annan leikinn í röð í gær-
kvöld þegar hún og stöllur
hennar lögðu Larvik á útivelli,
1-9. Katrín skoraði fýrsta mark
leiksins á 9. mínútu og eftir það
héldu leikmönnum Kolbotn
engin bönd. Katrín skoraði
einnig á laugardaginn þegar
Kolbotn lagði Klepp með fimm
mörkum gegn einu. Þar kom
hún inn á sem varamaður í
byrjun seinni hálfleiks og skor-
aði aðeins sjö mínútum síðar.
Kolbotn á mikilvæga leiki fram
undan þar sem liðið er komið í
úrslit í bikar á móti Medkila og
síðan gegn Malmö í 8 liða úr-
slitum UEFA bikarsins.
Jón með 2 stig
Körfuknattleikur: Jón Arnór
Stefánsson skoraði tvö stig í
nótt þegar Dallas Mavericks
tapaði fyrir Utah Jazz á heima-
velli, 76-92. Jón Arnór lék síð-
ustu átta mínúturnar og skor-
aði bæði stigin af vítalínunni.
Dallas leikur aftur í kvöld þegar
liðið sækir Sacramento Kings
heim.
Stærsti skandall
íþróttasögunnar?
Fjöldi frjálsíþróttamanna væntanlega fallinn á lyfjaprófi eftir að upp komst um nýtt lyf
ÍÞRÓTTALJÓS
Henry Birgir Gunnarsson
henry@dv.is
Frjálsíþróttaheimurinn nötrar
þessa dagana eftir að banda-
ríska lyfjaeftirlitið komst á
snoðir um að í umferð væri
komið nýtt steralyf sem greind-
ist ekki í venjulegum lyfjapróf-
um. Talið er að minnst 20
manns hafi fallið á A-lyfjapróf-
um sem tekin voru á bandaríska
meistaramótinu í júní sem og í
prófum sem tekin voru
skömmu síðar. Bandaríska
lyfjaeftirlitið hefur ekki viljað
nafngreina þá einstaklinga sem
féllu á prófinu en talið er að
meðal þeirra séu margar af
helstu frjálsíþróttastjörnum
Bandaríkjanna. Ef rétt reynist
að þeir hafa notað ólögleg
meðul verða öll verðlaun sem
þeir hafa unnið til tekin af þeim
ásamt því sem þau met sem við-
komandi aðilar hafa sett verða
afmáð úr frjálsíþróttasögunni.
„Það sem við höfum afhjúpað lít-
ur út fyrir að vera meðvituð lyfja-
neysla af verstu gerð,“ sagði Terry
Madden, formaður bandaríska
lyfjaeftirlitsins, eftir að málið komst
upp.
Lyfið sem um ræðir heitir tetra-
hydrogestrinone eða THG. THG er
anabólískt steralyf sem er á bann-
lista en svo virðist sem lyfjafræð-
ingar hafi átt við lyfið svo það
greindist ekki í venjulegum lyfja-
prófum. Ástæðan fyrir því að upp
komst um notkun þessa lyfs er að
frjálsíþróttaþjálfari, sem vill ekki
„Hér er um að ræða
samsæri hjá lyfjafræð-
ingum, þjálfurum og
ákveðnum íþrótta-
mönnum sem öll hjálp-
uðust að við að búa til
steralyfsem greindist
ekki í lyfjaprófum."
láta nafn síns getið, skilaði notaðri
sprautu með efninu til háskólans í
Kaliforníu þar sem lyfið var greint
og í framhaldinu var gripið til við-
eigandi ráðstafana svo að hægt
væri að rannsaka lyfjaprófm á nýj-
an leik.
„Hér er um að ræða samsæri hjá
lyfjafræðingum, þjálfurum og
ákveðnum íþróttamönnum sem öll
f SKUGGANUM: Það er óhætt að segja að bandariskt frjálsíþróttafólk feli sig í skugganum þessa dagana vegna lyfjahneykslisins stóra. Kelli White er einn þeirra frjálsíþróttamanna sem
er grunuð um græsku en hún fagnar hér sigri í 200 metra hlaupi á síðasta heimsmeistaramóti. Gullverðlaunin þar og í 100 metra hlaupinu voru tekin af henni eftir að (henni greindist
ólöglegt lyf sem þó er ekki komið á banniista. Reuters
hjálpuðust að við að búa til steralyf
sem greindist ekki í lyfjaprófum.
Þetta er háþróað steralyf sem er bú-
ið til af færum lyfjafræðingum.
íþróttamennimir sem tóku lyfið
vom fullkomlega meðvitaðir um að
lyfið greindist ekki í lyfjaprófum.
Áhrifin af lyfinu vara svo mánuðum
skiptir en við höldum að aðeins
hafi verið hægt að greina lyfið í lfk-
amanum í mjög skamman tíma.
Jafnvel ekki nema í 3-7 daga,“ sagði
Madden sem mun lyfjaprófa og yf-
irheyra fjölda íþróttamanna næstu
vikurnar en ekki er búist við því að
greint verði frá nöfnum þeirra sem
féllu fyrr en í desember. Þeir sem
falla á B-prófmu fara sjálfkrafa í
tveggja ára bann.
Greina 400 próf upp á nýtt
Alþjóða frjálsíþróttasambandið
er að sjálfsögðu stokkið í leikinn en
það hyggst rannsaka öll lyfjapróf
sem tekin vom á heimsmeistara-
mótinu í frjálsum í lok ágúst upp á
nýtt. Sambandið er með 400 próf í
fómm sínum sem það hyggst rann-
saka og þegar hefur verið gefið út
að þeir sem greinast með THG fái
alvarlega refsingu. Það þýðir að
verðlaun og met verði tekin af ein-
staklingum. „Ef einhverjir íþrótta-
menn hafa viljandi ætlað sér að
svindla þá verður að koma upp um
þá og refsa þeirn," sagði Istvan
Gyulai, framkvæmdastjóri Alþjóða
frjálsíþróttasambandsins.
Fjöldi frjálsfþróttastjarna verður
kallaður í vitnaleiðslur vegna máls-
ins á næstu vikum og meðal þeirra
eru hlauparaparið Marion Jones og
Tim Montgomery. Einnig verður
hóað í hafnaboltastjörnuna Barry
Fyrir utan þá rannsókn
sem nú stendur yfir á
Balco er einnig verið að
rannsaka fyrirtækið
fyrir skattsvik.
Bonds. Eins og áður segir verður
ekki gefið út á næstunni hvaða
íþróttamenn það em sem taldir em
hafa fallið á lyfjaprófmu en þó hef-
ur nafn Kevins Toth lekið út en
hann er Bandaríkjameistari í kúlu-
varpi. Toth hafnar því að hafa vilj-
andi neytt ólöglegra lyfja. Forkólfar
frjálsíþróttasambandsins taka ekki
mikið mark á slíku og halda því
fram að íþróttamennirnir viti vel
hvað sé í þeim fæðubótarefnum
sem þeir nota.
Balco sökudólgurinn?
Ástæðan fyrir því að Marion Jo-
nes, Tom Montgomery og Barry
Bonds em kölluð í vitnaleiðslur er
sú að þau em viðskiptavinir fyrir-
tækisins Balco sem framleiðir
fæðubótarefni en Balco er einmitt
fyrirtækið sem er grunað um að
hafa framleitt THG. Fyrirtækið
greinir blóð og þvag íþróttamanna
og útbýr síðan pakka með fæðu-
bótarefnum sem henta hverjum og
einum íþróttamanni. Fyrir utan þá
rannsókn sem nú stendur yfir á fyr-
irtækinu er einnig verið að rann-
saka það fyrir skattsvik.
Málið er reiðarslag fyrir banda-
ríska íþróttamenn yfir höfuð enda
hafa margir af fremstu íþrótta-
mönnum þjóðarinnar verslað við
Balco undanfarin ár. Barry Bonds
hefur verslað við þá síðan árið 2000
og hefur hann margoft þakkað fyr-
irtækinu fyrir þátt þess í velgengni
hans. Sömu sögu er að segja af Jo-
nes og Montgomery.
Fyrrverandi eiginmaður Jones,
kúluvarparinn CJ Hunter, var
einnig viðskiptavinur Balco en
hann féll eftirminnilega á lyfjaprófi
fyrir nokkrum ámm þegar magn
stera í líkama hans reyndist 1000
sinnum meiri en leyfilegt var að
hafa. Victor Conte, stofnandi og
eigandi Balco, tók á sig sökina í því
máli og sagði að mistök hefðu átt
sér stað þegar fæðubótarpakki var
útbúinn fyrir Hunter.
Nýjasta hlaupadrottning heims-
ins, Kelli White, sem vann bæði 100
og 200 metra hlaup á heimsmeist-
aramótinu í ágúst, féll á lyfjaprófi
eftir mótið. Hún neitaði öllum
ásökunum og sagðist hafa tekið lyf
við svefnleysi sem læknir hennar,
Brian Goldman, hefði gefið henni
en Goldman hefur unnið með
Conte í 20 ár.
Varanlegur skaði
Ljóst er að það á eftir að taka
langan tíma að fá botn í þetta mál
og á meðan engin nöfn em gefin
upp liggja allir frjálsíþróttamenn
undir gmn. Málið á eftir að fá mikla
athygli næstu vikurnar og ljóst að
ekki em öll kurl kominn til grafar
en eitt er ljóst og það er að þetta
mál hefur skaðað íþróttina í heild
sinni - og það varanlega.
4
*
r
<