Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2003, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2003, Side 28
28 DVSPORT MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 2003 Keppni (hverju orði Netfang: dvsport@dv.is Sími: 550 5885 • 550 5887 • 550 5889 KR-stelpur styrkjast KÖRFUKNATTLEIKUR: Kvennalið KR hefur náð sér í liðsstyrk fyrir veturinn en leik- maður að nafni Katie Wolfe er væntanleg í vesturbæinn fijót- lega. Wolfe er bandarískur bak- vörður sem lék með BC Kaup- mannahöfn í Danaveldi í haust en eftir að liðið var gert gjald- þrota var Wolfe laus allra mála. ( kjölfarið ákvað hún að slá til og skella sértil fslands. Wolfe er sögð vera góður skorari og var með um 20 stig í leik sið- asta vetur hjá Oakland-háskól- anum sem er 1. deildar skóli í Bandaríkjunum. KR-liðið hefur misst marga sterka leikmenn að undanförnu og því kemur Wolf væntanlega til með að hjálpa liðinu að ná fyrri styrk. Tvenna Signýjar í fyrsta leik KÖRFUKNATTLEIKUR: Signý Hermannsdóttir spilaði sinn fyrsta leikfyrirTenerife í spænsku 2. deildinni um helg- ina. Þrátt fyrir ósigur með eins stigs mun stóð Signý sig vel og náði tvöfaldri tvennu. Hún skoraði 16 stig ásamt því að taka 12 fráköst, þar af sjö þeirra í sókn. Skotnýting henn- ar var þó ekki eins og hún ger- ist best og fóru aðeins fimm skot af 17 niður. Signý samdi við spænska liðið í haust eftir rúmlega þriggja ára veru með Cameron-háskólanum í Banda- ríkjunum. Þar áður lék Signý með Stúdínum hér heima. Signý er fjórði atvinnumaður- inn í kvennakörfunni og eini konan í dag. Intersportdeildin í körfubolta: Jesper aftur til KR-inga Verður löglegur íleik gegn Haukum 18. nóvember KR-ingar hafa fengið kunnug- legt andlit til liðs við sig og er það enginn annar en Jesper Winter Sörensen sem lék með félaginu síðast þegar KR hampaði fslandsmeistaratitl- inum fyrir rúmum þremur ár- um. „Ég er gríðarlega ánægður með að vera að koma til íslands aftur þar sem ég var mjög ánægður með veru mína þar síðast. Það stóð alls ekki til að ég færi til ís- lands en félagið mitt fór á haus- inn fyrir stuttu. Framkvæmda- stjórinn fór illa með fjármuni fé- lagsins og því er gjaldþrot orðið staðreynd. Ég hafði gert tveggja ára samn- ing við BC Kaupmannahöfn og hafði áætlað að spila fyrir það næstu tvö árin. Við vorum með frábært lið og það allra besta í Danmörku. Við áttum að spila í Evrópukeppinni og ýmislegt var lagt undir. Þegar ljóst var að liðið yrði lagt niður kom upp sá möguleiki að koma aftur til Islands og leika með KR. Ég vonast til að geta tek- ið upp þráðinn frá því að ég var með KR síðast þar sem við urðum „Ég samdi til loka þessa tímabils en er vel tilbúinn að skoða það að vera með KR í nokkurár." íslandsmeistarar. Ég samdi til loka þessa tímabils en er vel til- búinn að skoða það að vera með KR í nokkur ár. Ég hef fylgst vel með boltanum á íslandi frá því að ég fór eftir tímabilið 2000. Grindavík, Njarð- vík og Keflavík eru allt hörkulið sem koma til með að vera okkar helstu andstæðingar." fngi Þór Steinþórsson var að sjáifsögðu ánægður með það að vera búinn að fá Sörensen til sín aftur. „Þetta kom mjög óvænt „Þetta þýðir líka það að það verður aukin samkeppni í liðinu sem er afhinu góða." upp á. Maður átti alls ekki von á þessu en við tökum honum fegins hendi. Hann á eftir að hjálpa okk- ur mikið bæði innan sem utan vallar. Við þekkjum hann ein- göngu að góðu og vitum hversu góður karakter hann er. Þannig að ég er gríðarlega sáttur við þetta. Þetta þýðir líka það að það verður aukin samkeppni í liðinu sem er af hinu góða," sagði Ingi um þenna liðsstyrk. ben@dv.is TÖLFRÆÐI JESPERS Jesper Sörensen lék í eitt og hálft tímabil í vesturbænum á árinum 1999 til 2000. Alls spilaði Daninn 25 leiki með KR í deildinni og 13 leiki í úrslitakeppninni. Jesper í úrvalsdeildinni: Leikir 25 Mínútur að meðaltali 31,3 Stig að meðaltali 12,2 Fráköst að meðaltali 2,6 Stoðsendingar aö meðaltali 4,0 Stolnir boltar að meðaltali 1,60 Tapaðir boltar að meðaltali 3,08 Skotnýting 46,2% 3ja stiga körfur aö meðaltali 1,0 3ja stiga skotnýting 27,1% Vítanýting 76,3% ooj@dv.is l TITILLINN KOM SfÐAST: KR-ingar urðu fslandsmeistarar í körfubolta síðast þegar Daninn Jesper Sörensen lék með liðinu. Hér sést hann með aðra höndina á fslandsbikarnum og með Inga Þór Steinþórsson þjálfara sér við hlið. VELKOMNIR: Þorlákur Árnason og Jón Sveinsson skrifuðu í gær undir þriggja ára samning við Fylki. Þorlákur verður aðalþjálfari en Jón aðstoðarþjálfari ásamt því sem hann mun þjálfa 2. flokk félagsins. Ásgeir Ásgeirsson, formaður meistaraflokksráðs Fylkis, býður hér þá Jón og Þorlák velkomna í Árbæinn. DV-mynd Pjetur Hálfur hraði nægði ÍBV til 10 marka sigurs gegn Gróttu/KR IBV-GRÓTTA/KR 34-24 (15-11) Oómaran ArnarSigurjónsson og Svavar Pétursson 7/1Q Gæöi leiks: 3/10 Áhorfendun 210. Bestur á vellinum: Alla Gokorian, fBV Gangur leikslns: 1-0, 3-5,8-7,12-9,(15-11), 15-12,21-14, 26-19,30-21,34-24 Mörk/ þar af viti (skoVvfti) Hraðaupphl. AnnaYakova 9/6 1 Guðbjörg Guðmannsdóttir 6(10,4 Alla Gokorian 5 3 SylviaStrass 4(4)1 Birgit Engl 4 1 Nfna Kristin Björnsdóttir 3 :4) 0 Anja Nielsen 1 1 Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 1 (3) 1 Etísa Sigurðardóttir 10 Samtals: 34/6(54/6)12 Fiskuð vfti Guðbjörg Guðmannsdóttir 2 Anja Nielsen 2 Sylvia Strass, Birgit Engl 1 Varin skot/þar af viti (skot á sig/víti) Júlia Gantimorova 14 37% Brottvtsanin 8 mínútur. GRÓTTA/KR Mörk/ þar af vlti skot/víti Hraðaupphl. Eva Björk Hlöðversdóttur 00 o Aiga Stefane 6(9) 1 Ragna Karen Siguröardóttir 4 15} 2 Eva Margrét Kristinsdóttir 3 (9) 0 Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 1 (2) 0 Kristln Þórðardóttir 1(2)0 TheodoraVisockaite 1 0 Samtals: 24/4(47/4)3 FiskuÖ víti Eva Margrét Kristinsdóttir 3 Anna úrsúla Guðmundsdóttir 1 Varin skot/þar af viti (skot á sig/vlti) Hildur Gísladóttir 10 23% Brottvfsanln 12 mlnútur. f RE/MAX-deild kvenna áttust við Grótta/KR og ÍBV en leikur liðanna fór fram í Eyjum og hafði verið frestað frá því í síð- ustu viku. Það var hins vegar eins og leikmenn liðanna nenntu ekki að spila leikinn því að gæði handboltans voru á mjög lágu plani. Engu að síður unnu Eyjastúlkur, 34-24, og tíu marka sigur (BV var ótrúlega stór miðað við getu liðsins í leiknum. Gestirnir byrjuðu betur og voru yfir fyrstu tíu mínúturnar en það var eins og leikmenn ÍBV væru að bíða eftir því að einhver tæki við sér í þeirra liði. Andleysið var hins vegar ótrúlegt á köflum, leikmenn virtust hreinlega ekki nenna því að spila leikinn en baráttan var örlítið meiri hjá gestunum. Grótta/KR tefldi fram nýjum leikmanni, Theodora Vidockaite, sem spilaði einmitt með ÍBV tímabilið 2001-2002. Hún kemur eflaust til með að styrkja liðið þegar líður á veturinn en hún náði sér ekki á strik í þessum leik. Varnarleikurinn small Staðan f hálfleik var 15-11 og forusta ÍBV var fýrst og fremst að þakka góðum fimm mínútna leikkafla undir lok hálfleiksins. í upphafi síðari hálfleiks virtist ekki vanta mikið upp á að leikmenn Gróttu/KR kæmust aftur inn í leik- inn en þá loks sást lffsmark hjá fs- landsmeisturunum. Vamarleikur- inn small saman og fyrir vikið fékk ÍBV töluvert af hraðaupphlaupum sem nýttust vel. Alla Gokorian var greinlega orðin þreytt á andleys- inu en hún var dugleg í varnar- leiknum og skoraði sjálf þrjú mörk úr hraðaupphlaupum, nokkuð sem hún er ekki þekkt fyrir. Eftir þennan ágæta leikkafla ÍBV gáfust leikmenn Gróttu/KR hrein- lega upp og heimaliðið þurfti ekki að hafa mikið fyrir því að skora mörk. Undir lokin kom Nína K. Björnsdóttir fersk inn í lið ÍBV, skoraði þrjú mörk á stuttum tíma og virðist óðum vera að fmna sitt gamla form. Hún sagði eftir leik- inn að sér þætti fyrst og fremst gott að vera komin aftur af stað. „Ég neita því ekki að það er gaman að vera farin að spila aftur. Ég er bú- in að bíða lengi og mér sýnist að höndin ætli að hanga saman. Leikurinn var ekki vel spilaður af okkar hálfu en við gerðum það sem til þurfti. f raun var þetta allt of stór sigur miðað við frammi- stöðu okkar en við áttum líka von á meiri mótspymu.” „ Við duttum alveg niður á hælana og náðum aldrei að rífa okkur upp eftir það." Eva Hlöðversdóttir, fyrirliði Gróttu/KR, sagði að leikmenn hefðu einfaldlega gefist upp. „Við vorum yfir f fyrri hálfleik en svo kom eitthvert andleysi yfir okkur. Við duttum alveg niður á hælana og náðum aldrei að rífa okkur upp eftir það. Það gekk ekkert upp hjá okkur í sókninni, lélegar sendingar og fyrir vikið fengu þær hraðaupp- hlaup. Theodora á líka eftir að styrkja okkur í vetur, hún er góður leikmaður og þarf kannski að komast aðeins inn í okkar leik." 19' K O N U R RE/MAXDEILD Wm r Staðan: Valur 7 7 0 0 185-151 14 (BV X 5 0 1 174-130 10 FH 7 r 0 2 186-171 10 Haukar 7 4 1 2 189-185 9 Stjarnan 7 4 0 3 144-139 8 Vikingur 7 2 1 4 152-154 5 Grótta/KR X 2 1 3 138-143 5 KA/Þór 8 1 1 6 195-234 3 Fylkir/lR 7 1 0 6 176-194 2 Fram 6 1 0 5 129-167 2

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.