Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2003, Qupperneq 32
MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER2003
FRÉTTASKOTIÐ
SIMINN SEM ALDREI SEFUR
550 55 55
Við tökum við fréttaskot-
um allan sólarhringinn.
Fyrir hvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir
besta fréttaskotið í hverri
viku greiðast 7.000 kr.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
H-Laun
... ekkisættaþig við minnai
íslendingur ákærður fyrir að svíkja út hálfa
milljón á Visa-kort varnarliðsmanns:
Erótískur
einkadans
frá morgni
til síðdegis
Rúmlega þrítugur Keflvíkingur
hefur viðurkennt að hafa notað
í heimildarleysi númer á Visa-
korti Bandaríkjamanns í flug-
her Varnarliðsins til að greiða
fyrir klukkustundar erótískan
einkadans á veitingahúsinu
v Strikinu í Keflavík.
Maðurinn er einnig ákærður íyr-
ir að hafa svikið með sama hætti út
„þjónustu" fyrir tæpa hálfa milljón
króna á sama stað viku síðar, eða
þann 28. apríl síðastliðinn. Þannig
þykir ljóst að maðurinn hafi látið
erlenda konu, erótískan dansara,
leika listir sínar fyrir hann einan frá
klukkan hálfníu að morgni þangað
til klukkan að ganga fimm síðdegis.
Máli þessu hefur verið frestað
vegna gagnaöflunar fyrir Héraðs-
dómi Reykjaness en áhöld eru um
hvort kalla eigi til sænskan dansara
frá Svíþjóð fyrir dóminn. Sú kona er
einmitt sú sem maðurinn er grun-
aður um að hafa látið dansa fyrir
sig, eftir að hafa lagt fram Visa-
númerið á korti Bandaríkjamanns-
ins - manns sem hvergi var nálægur.
Hann muni í raun ekki
hvort kona dansaði fyr-
ir hann í hátt í hálfan
sólarhring eða ekki -
hann geti þó ekki þrætt
fyrirþað.
DANS AÐ MORGNI: Maðurinn segist ekki muna hvort kona hafi dansað fyrir hann í hátt í hálfan sólarhring eða ekki.
starfsfólk veitingahússins lét kaup-
anda þjónustunnar kvitta fyrir eru
upphafsstafír ákærða. Maðurinn
segir undirskriftirnar geta verið sín-
ar en „einhver annar hafí getað"
skrifað stafina hans á nóturnar.
Vegna þessa fer fram rithandar-
rannsókn og málið heldur áfram.
onar@dv.is
Kveðst ei muna
dansinn langa
íslendingurinn segist hvorki geta
játað því né neitað að hafa notið
þjónustu dansmeyjarinnar þann 28.
apríl - að hann muni í raun ekki
hvort kona dansaði fyrir hann hátt í
hálfan sólarhring eða ekki - hann
geti þó ekki þrætt fyrir það. Hann
játi að hafa notað nafn Bandaríkja-
mannsins í eitt skipti viku áður til að
svíkja út einkadans í eina klukku-
stund. Stúlkan hafi fækkað fötum
smátt og smátt meðan á dansinum
stóð. Fyrir þetta hafi hann greitt 50
þúsund krónur og notað greiðslu-
kortanúmer Bandaríkjamannsins.
Varðandi það sem kalla má
maraþondansinn viku síðar áttu
greiðslukortafærslurnar sér stað frá
klukkan 8.42 að morgni þangað til
klukkan 15.19 - mestallt 50 þúsund
króna færslur sem eru greiðslur fyr-
ir klukkustundar-einkadans.
Maðurinn kveðst hins vegar ekki
muna eftir að hafa verið inni á um-
ræddum veitingastað á þessu tíma-
bili. Á greiðslukortanótunum sem
Ágúst í KR
Einn öflugasti miðjumaður
landsins, Ágúst Gylfason, skrif-
aði f gærkvöld undir tveggja
ára samning við íslandsmeist-
ara KR. Ágúst var með lausan
samning hjá Frömurum og þau
voru fjölmörg félögin í efstu
deild sem vildu fá Ágúst í sitt lið
en hann valdi eftir góðan um-
hugsunartíma að semja við KR.
rValið varmjög erfitt.‘
„Ég er mjög ánægður með að
þessi mál eru í höfn," sagði Ágúst í
samtali við DV Sport í gærkvöld.
„Valið var mjög erfitt. Það var um
mikið að velja og vonandi valdi ég
það besta," sagði Ágúst og bætti við
að einn helst áhrifavaldurinn í
ákvörðun hans hefði verið að KR
leikur í Evrópukeppninni næsta
„Það eru mjög spennandi verk-
efhi fram undan. Það er mikill heið-
ur að vera kominn til íslandsmeist-
aranna og jafn framt heiður að þeir
skyldu vilja fá mig í sitt lið. Það
verður gaman að taka þátt í Evrópu-
keppninni og verja titilinn næsta
sumar. Ég á að ég held 20-30 leiki í
Evrópukeppninni og vonandi nýtist
sú reynsla liðinu," sagði Ágúst sem
hefur þrisvar orðið bikarmeistari en
aldrei fslandsmeistari.
„Ég vona að ég verði mikilvægur
hlekkur í þessu KR-liði og það
verður gaman að spila á KR-vellin-
um fyrir heimafólkið. Það verður
dálítið að skrýtið að vera á heima-
velli fyrir framan fullt af fólki í
Frostaskjóli eftir að hafa alltaf leik-
ið þar á útivelli. Þetta verður nokk-
ur breyting og það er mjög spenn-
andi að takast á við þetta verkefni.
Ég óttast ekki baráttu um sæti í lið-
inu því að samkeppni er bara af
hinu góða og vonandi tekst mér að
vinna mér fast sæti í liðinu og vera
mikilvægur hlekkur," sagði Ágúst
en hann hafði verið í viðræðum
við KR í tvær vikur eða allt frá því
KSÍ-hófið fór fram.
Jónas Kristinsson, formaður
rekstrarfélags meistaraflokks KR,
var hæstánægður með nýja liðs-
manninn. „Við erum virkilega
ánægðir með að hafa fengið Ágúst
í okkar raðir því þar er á ferð gffur-
lega reyndur og öflugur leikmaður
sem kemur til með að styrkja okk-
ar lið." henry@dv.is
Veðríð á morgun
Hæg breytileg eða suðlæg átt, en suðvestan 5-10 m/s norðan til. Skýjað með
köflum og smáskúrir á Suður- og Vesturlandi, en annars víða léttskýjað. Hiti 0
til 8 stig að deginum en næturfrost austan til.
SíMI - 698-9696 og 564 6415
Veðriðídag
4
fí
BON5TO0
MoSSUH - PIÍTTUN * IAKKVÖRN
mmrnmu
blágata
Veðríð kl. 6 í morgun
Sólarlag
I kvöld
Sólarupprás
á morgun
Rvík 17.46 Rvfk 8.41
Ak. 17.24 Ak.8.20
Síðdegisflóð
Rvík 16.13
Ak. 20.46
Árdegisflóð
Rvik 04.03
Ak. 08.36
Akureyri
Reykjavík
Bolungarvík
Egilsstaðir
Stórhöfði
Kaupmannah.
Ósló
Stokkhólmur
Þórshöfn
London
Barcelona
NewYork
París
Winnipeg
heiðskírt
skýjað
léttskýjað
-4
3
4
léttskýjað -3
alskýjað
léttskýjað
léttskýjað
slydduél
rigning
4
-4
0
-2
5
5
alskýjað 13
skýjað 1
heiðskírt 6
Sm áaugl 5 ysmgor < V-í
550 5000 £