Alþýðublaðið - 23.04.1969, Síða 2
2 Alþýðublaðið 23. apríl 1969
FRUMSÝNING
A DARIO FO
ÁLAUGARDAG
Leikfclag Reykjavíkur frumsýnir
á laugardagskvöld klukkan 20.30
skopleik eftir Dario Fo — Sá sem
stelur fæti er heppinn í ástum.
Áður hefur Leikfélagið sýnt þrjá
einþáttunga eftir hann, Þjófa, lík og
falar konur sem frumsýndir voru
veturinn 1965 og síðan sýndir á
þremur leikárum alls 100 sýning-
um, og urðu Þjófarnir því með
virisælustu sýningum félagsins.
Dario Fo rekur eigin leikflokk í
Milanó sem sýnir einatt leikrit
hans sem liann stjórnar sjálfur,
leikur aðalhlutt'erkið og gerir leik-
myndir og jafnvel auglýsingar eigin
hendi. Hefrir orð hans borizt víða
um lönd undanfarin ár og eru verk
hans mjög víða lei-kin, nú síðast í
Ameríku, en einnig ferðast Dario
Fo víða með flokk sinn til sýninga.
— Leikur sá sem Leikfélagið sýnir
nú er nokkurra ára gamalt verk,
yngra þó en Þjófárnir og heil
kvöldsýning — en efni þess sagði
Sveinn Einarsson leikhússtjóri sein
hefur þýtt leikinn, að væri ógern-
ingur að rekja í viðtali við frétta-
menn í gær.
Helgi Skúlason setur leikinn á
svið, Steinþór Sigurðsson gerir leik-
myndir, en átta leikendur koma
fram í Sá sem stelur fæti er hepp-
inn í ástum: Steindór Hjörleifsson,
Helga Bachmann, Jón Sigurbjörns-
son, Guðmundur Pálsson, Brynjólf-
ur Jóhannesson, Bryndís Pétursdótt-
ir, Borgar Garðarsson og Kjartan
Ragnarsson,
j Vilja ekki báta
| menn í sjódinn
I
I
I
i
I
I
TOGARASJOMENN hafa nú
skorið upp herör gegn þvf að báta-
sjómenn fái aðild að lífeyrissjóði
þeirra. Hefur farið fram atkvæða-
greiðsla meðal skipshafna 20 tog-
ara um ályktun, þar sem segir að að-
ild bátasjómanna að lífeyrissjóðnum
sé meiri skerðing á kjörum og rétt-
indum en við verði unað. Samþykk-
ir þessum mótmælum voru 496, en
andvígir þeim 54. 30 vildu ekki taka
afstöðu. Mótmælaályktunin var sam-
þykkt með yfirgnæfandi meirihluta
á öllum skipunum, nema tveimur,
togurunum Narfa og Sigurði, en
skipverjar á Jóni Þorlákssyni sendu
engar atkvæðatölur, heldur skeyti
þar sem þeir sögðust mótmæla ein-
dregið aðild bátasjómanna að líf-
eyrissjóðnum.
Alþýðublaðið sneri sér í morgun
til Jóns Sigurðssonar, formanns Sjð-
mannasambandsins vegna þessara
tíðinda, og sagði hann, að togara-
sjómenn hefðu líka mótmælt á sín-
um tíma, þegar undirmenn á farskip-
um fengu aðild að lífeyrissjóðnum,
eri reynslan hefði orðið sú, að sjóð-
urinn hefði eflzt við þá aukningu
og það orðið mcðlimum hans til
hagsbóta en ekki kjaraskerðingar.
Ekki væri útlit til að annað gerðist
núna, og væru því mótmæli togara-
sjómanna byggð á alröngum for-
sendum. Hins vcgar hefði vegna
fyrri reynslu verið búizt við ein-
hverjum mótmælum frá togara-
mönnum, og þess vegna væri kveð-
ið svo á í samningunum, að stofná
skuli sérstakan sjóð bátasjómanna,
reynist ekki unnt að koma þeiní
inn í sjóðinn, sem fyrr er.
AÐALFUNDIR
deilda KRON verða sem hér segir:
Aíhugið breytta deildaskiptingu.
Mánudaginn 28. apríl 3. og 4. idleild: Samfcomusal Afurðaisölu SÍS Kiirkju-
sandi.
Þriðjudaginn 29. apríl. 1. iog 2. deild: Fundarsal Sambandsíhúsinu við Sölv-
bólsgötu 4. bæð. Gengið inn úr portinu frá Ingólfsstræti.
Miðvikudáginn 30. apríl 5. deild: Á skrifstofu KRON, SkólavörðUstíg 12.
MiðvKkudaginn 30. apríl 6. dieild: Fél'agSheimilinu Kópatvogi (l.hæð).
UMSÓKNARFRESIUR
Frestur til að 'skiEa umsóknum um verka-
mannavinnu í ikerskála og kersmiðju sem
auglýst voru í dagblöðunum 30. marz, 1969,
framlenigist hér með til 5. maí, 1969.
Þeir sem sótt hafa um önnur störf hjá fyrir-
tækinu en hafa eklki verið látnilr vita u!m
hvort af ráðningu verður er bent á að hafa
samband við starfsmannastjóra.
íslenzka Álfélagið hf.
Fundirnir hfefjast allir kl. 20.30.
Sjá auglýsingar í matvörubúðum KRON
DEILDASKIPTING KRON:
1. deiíld: Seltjarnarnes og Vesturbær sunnan Hringbrautar að Flugvallarbr.
2. deiild: Vesturbær norðan Hringbrautar og Miðbær að Rauðarárstíg.
3. deild: S.A.Jbær frá- Rauðarárstíg, norðan Laugavegar og Suðurlandsbraut
að Elliðaárvogi.
4. de.Ud: S.A.-bær frá Rauðarárstíg, sunnán Laugavegar og Suðurlandsbraut
ar aústur að Grensásvegi og suður að mörkum Kópavogs.
5. deild: Austurbær, austan Grensásvegar og sunnan Suðurlandsbrautar 'að
mörkum Kópavogs, einnig Árbæjar- og Breiðholtshverfi.
6. deild: KópaVogur.
KAFFISALA - VEITINGÁR
Sumardaginn fyrsta gangast Skógarmenn
K. F. U. M. fyrir kaffi- og veitinga'sölu í
húsi K: F. U. M. og K. við Amtimannsstíg,
til ágóða fyrir sumarstarfið í Vatnaskógi.
Hefst kaffisalan um kl. 14.00.
Um kvöld-6 fefna Skógarmenn til
ALMENNRAR SAMKOMU
á sarná istað kl. 20.30. Dagskrá verður fjöl-
'breytt, m. a. verður sýnd kvikmynd í sum-
arbúðunum.
Reykvíkingar! Drekkið síðdegiskaffið hjá
Skógarmönnum og sækið samkomu þeirra.
SKÓGARMENN K. F. U. M.