Helgarblaðið - 03.04.1992, Síða 2
Helgar 2 blaðið
Manchester United og Leeds
heyja har&a baráttu um enska
meistaratitilinn í knattspyrnu.
Enski boltinn
á skjánum
Fyrir tilstuðlan íslenskra get-
raana og Samvinnuferða-
Landsýnar gefst áhugafólki um
enska fótboltann kostur á að
fylgjast með beinum útsending-
um í Sjónvarpinu næstu fimm
laugardaga.
Þeir leikir sem ákveðnir hafa
verið heíjast allir kl. 14 og eru
sem hér segir: Tottenham - Aston
Villa laugardaginn 4. apríl,
Sheffield Wednesday - Manchest-
er City 11. apríl, Liverpool - Le-
eds 18. apríl, Chelsea - Arsenal
25. apríl og 2 maí er ráðgert að
sýna leik Manchester United og
Tottenham á Old Trafford. Það er
þó ekki öruggt en að því er unnið.
Það að aðilar eins og íslenskar
getraunir og Samvinnuferðir-
Landsýn skuli kosta þessar út-
sendingar er virðingarvert í ljósi
þess að þeim hefur verið hætt á
hinum Norðurlöndunum. íslensk-
ir knattspymuáhugamenn eru því
einir úr þeim hópi sem fá notið
enska boltans á næstunni eða allt
fram að úrslitaleik bikarkeppn-
innar á Wembley þann 9. maí
næstkomandi.
Kvennalistinn
hafnar Hjörleifi
Heitar umræður urðu um hugs-
anlega aðildarumsókn islendinga
að Evrópubandalaginu á Alþingi í
vikunni. Margt skemmtilegt bar á
góma í umræðunni. í andsvari við
ræðu Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur, Kvennalista, sagði Hjör-
leifur Guttormsson, Alþýðu-
bandalagi, að hann skildi ekki
þingkonuna sem segðist vera á
móti aðild að EB en héldi eigi að
síður hurðinni inn í bandalagið
galopinni. Það gerði hún með því
að vilja umræðu um málið, taldi
Hjörleifur. Ingibjörg Sólrún svar-
aði honum að bragði og sagðist
honum sammála um að þau tvö
greindi á um baráttuaðferðir í
andstöðunni við aðild að EB.
Hins vegar fyndist henni hún ekki
þurfa leyfi Hjörleifs til að berjast
á þennan hátt gegn aðild íslands
að EB. Hún lauk svari sínu með
þeim áréttingarorðum að Hjör-
leifur væri ekki í sama flokki og
hún. Rödd Ingibjargar Sólrúnar,
sem oftast hljómar einsog rödd
skynseminnar á Alþingi, var
reiðileg þegar hún afneitaði Hjör-
leifi á þennan hátt.
■
Hverra manna ertu?
Faðir minn heitir Bergsveinn Sigurðsson og er
yfirverkstjóri hjá Hafnaríjarðarbæ. Móðir min er
Rut Jónsdóttir og hún vinnur á símanum á bæjar-
skrifstofunni. Þau komu til Hafnarljarðar frá
Siglufirði þannig að þau eru ekki innfædd.
Heimilishagir?
í sambúð með Gígju Hrönn, unnustu minni, og
við búum á Vesturbrautinni í Hafnarfirði.
Aldur, menntun og fyrri störf?
Ég er 24 ára og gekk fyrst í Viðistaðaskólann og
síðan Iðnskólann. Á sumrin var ég í bæjarvinn-
unni og þrjú sumur í öskunni, sem var fina iífið.
í hvaða stjörnumerki ertu?
Vatnsberi.
Hvenær byrjaðirðu að æfa handbolta?
Ég byijaði svona 7-8 ára.
Hefurðu alltaf verið í FH?
Nei, ég var fyrst í Haukum og á tímabili var ég í
handboltanum þar en æfði fótbolta með FH. Það
varð dálítið flókið og þcgar ég var 12 eða 13 ára
flutti ég mig alveg yfir i FH.
Hver vildir þú vera ef þú værir ekki þú?
Annar Haíhfirðingur.
Hvað er það besta sem fyrir þig hefur komið?
Unnustan.
Hvaða bók lastu síðast?
Lömbin þagna, sem mér fannst betri en óskars-
verðlaunamyndin sem gerð var eflir henni.
Á hvaða plötu/disk hlustaðirðu síðast?
Ég keypti nýju plötumar með Bmce Springsteen
í ferðinni til Austurríkis og þótt ég hafi ekki haft
mikinn tíma til að hlusta á þær lýst mér bara vcl
á.
Ertu með einhverja dellu auk handboltadell-
unnar?
Já, golfdellu.
Hvað er hamingja?
Ást er hamingja. Það fylgir því líka hamingjutil-
finning að vinna bronsið í B-keppninni og kom-
ast áfram í keppninni.
Er þér meinilla við eitthvað?
Já, að tapa fyrir Kristjáni Arasyni og hinum
gamlingjunum í fótbolta þegar við erum að hita
upp á æfingum.
Hver er þinn helsti löstur?
Ég er rosaléga þvcr og á erfitt með að bakka ef
ég bít eitthvað í mig.
En kostur?
Því verða aðrir að svara.
Ertu sá sem þú sýnist?
Ég rcyni a.m.k. að vera eins eðlilegur og ég get
og fela ekkert.
Ertu sáttur við tilveruna?
Jájá.
Hefurðu migið í saltan sjó?
Ekki í orðsins fyllstu merkingu en kannski á
gleðistund á bryggjusporði.
Hvernig heldurðu að sé að búa með þér?
Ég hcld að ég sé bara þægilegur í umgengni.
Áttu þér draum?
Já.
Ertu handlaginn?
Biddu mömmu að sýna þér blómasúluna sem ég
smíðaði handa henni í handavinnu!
Ertu matvandur?
Nei.
Hvernig myndirðu verja stóra vinningnum?
Ég myndi koma mér vel fyrir og fjárfesta í ein-
hverju viturlegu.
Ertu misskilinn?
Já, oft.
Kanntu brauð að baka?
Nei, en það kemur fyrir að ég sting sleif í pott.
Fer herinn?
Hann er ekkert fyrir mér.
Hvað er það sem þú hefur ekki glóru urn?
Hvemig það er að spila í 2. deild.
Ertu ástfanginn?
Já.
Á hvað stefnirðu?
Bara að koma mér vel fyrir í tilverunni.
Hvað er fegurð?
Falleg kona og Hafnarfjörður.
Hvernig er fólk flest?
jslendingar eru frábært fólk.
Hvað skiptir máli?
Að allir séu jákvæðir og hreinskilnir.
Hversu mörg ár áttu eftir í handboltanum?
Ég verð hættur um þrítugt.
Myndirðu gerast iandsliðsþjálfari ef þér byð-
ist það?
Nei, ekki eins og staðan er í dag.
Hvernig viltu verja ellinni?
Mig myndi langa til að kaupa mér hús erlendis
og spila golf með konunni.
Glaður
gaflari
„Og Bergsveinn ver!“ Ánægjuleg setn-
ing sem margsinnis glumdi í eyrum
þjóðarinnar í síðustu viku. Já, Berg-
sveinn Bergsveinsson markvörður úr
FH er einn af „strákunum okkar" sem
eru nýkomnir heim með bronsið úr
vægast sagt viðburðaríkri B-keppni í
handbolta. Við hittum hann morgun-
inn eftir heimkomuna t Prentsmiðju
Áma Valdemarssonar þar sem hann
starfar sem offsetprentari.
Föstudagurinn 3. april
Oft veltir
lítil þúfa...
Ákvörðun mun hafa
verið tekin um að sam-
eina lífeyrissjóði Málm-
og skipasmiðafélags ís-
lands og Sambands bygg-
ingarmanna og hefur
þegar verið ráðinn fram-
kværadastjóri hins sam-
einaða sjóðs sem verður
sá stærsti innan SAL,
Sameinuðu almennu líf-
eyrissjóðanna.
Nýi framkvæmdastjór-
inn, Jóhannes Siggeirsson,
hefur verið einn af fram-
kvæmdastjórum íslands-
banka en áður var hann
m.a. framkvæmdastjóri líf-
eyrissjóðs Málm- og skipa-
smiðafélagsins. Getum hef-
ur verið að því leitt að efl-
irmaður Jóhannesar verði
Bjöm Bjömsspn, einn af
bankastjórum íslands-
banka, og að Ásmundur
Stefánsson, forseti ASÍ,
taki við af honum í haust
að afloknu þingi Alþýðu-
sambandsins. Talið er
einna líklegast að eftirmað-
ur Ásmundar verði Öm
Friðriksson, varaforseti Al-
þýðusambandsins og for-
maður Málm-og skipa-
smiðafélags íslands.
EB-afstaðan
aprílgabb
Fjölmiðlarnir kepptust
við að gabba landsmenn
fyrsta apríl einsog hefðin
gerir ráð fyrir. Þannig
var útvarpið með tvöfalt
aprílgabb, kolkrabbann á
Eimskipafélagshúsinu og
7 gáma af hræbillegum
matvörum frá EB.
Tíminn greip til þess
gamalkunna bragðs að
setja brennivín á útsölu en
það var verra með Mogg-
ann. Lesendur lúslásu blað-
ið í þeirri von að finna eitt-
hvert aprílgabb. Sumir
veltu því fyrir sér hvort
frétt á síðu tvö um að
kostnaður vegna ráðhúss-
ins hefði farið 35% fram úr
áætlun væri gabbið, vitandi
það að 135% væri nær
sanni. Svo mun þó ekki
vera því þrátt fyrir tilburði
blaðamanna Moggans til
frjálsrar óháðrar blaða-
mennsku eru viss heilög vé
sem ekki má hrófla við
með sannleikanum.
Hið raunverulega apríl-
gabb Moggans var á bak-
síðu blaðsins. Hvort gabbið
skrifast á blaðið eða sjálfan
forsætisráðherra er hins-
vegar álitamál. í fréttinni
cr greint frá afstöðu Davíðs
Oddssonar til kúvendingar
Jóns Baldvins Hannibals-
sonar í EB- málunum. Fyr-
irsögn fréttarinnar er: For-
sætisráðherra um umræður
um skýrslu um utanríkis-
mál: An efa að aðild að EB
er ekki á dagskrá ríkis-
stjórnarinnar.
Það vakti athygli þegar
umræða unt skýrsluna var
á dagskrá Alþingis hversu
seinl foræstisráðherra var á
mælendaskrá. Eðlilegast
hefði verið að hann kæmi í
pontu strax á eftir Stein-
grími Hermannssyni. en
Davíð kaus að bíða. Segja
gárungamir að hann hafi
verið að bíða eftir að 1.
apríl gengi í garð á mið-
nætti og hann slyppi því
við að vera ábyrgur orða
sinna. Það tókst þó ekki og
því þjófstartaði hann apríl-
hlaupinu.