Helgarblaðið - 03.04.1992, Blaðsíða 19

Helgarblaðið - 03.04.1992, Blaðsíða 19
Helgar 19 blaðið IBOLTAVIKING TILISRAELS Enn á ný heldur íslenska knattspyrnulandsliðið í víking og að þessu sinni er forinni heitið til ísraels. Ferðin er liður í undirbún- ingi liðsins fyrir komandi átök í undankeppni HM en liðið hefur m.a. keppt á Möltu og í Dubai í Samein- uðu arbísku furstadæmun- um. Leikurinn gegn ísraelska landsliðinu verður næstkom- andi þriðjudag, 8. apríl. Til fararinnar hefur Ásgeir El- íasson landsliðsþjálfari valið sextán manna hóp og meðal þeirra sem valdir hafa verið eru helstu atvinnumennimir í íþróttinni. Hins vegar geta þeir Olafur Þórðarson Lyn og Andri Marteinsson FH ekki tekið þátt í leiknum vegna meiðsla. Þar eð leikurinn við Isra- elsmenn er síðasti landsleik- ur íslenska liðsins áður en það mætir Grikkjum í und- ankeppni HM í Áþenu þann 13. maí næstkomandi, þótti ekki annað fært en að kalla á islensku atvinnumennina. Eins og svo oft áður hafa forráðamenn erlendu lið- anna haft uppi væl við Knattspymusambandið vegna þessa en Snorri Finn- laugsson, framkvæmdastjóri KSl, segir að þeir muni standa fast á sínum rétti til að fá viðkomandi leikmenn til lsraels. Markverðir verða þeir Birkir Kristinsson Fram og Friðrik Friðriksson ÍBV. Aðrir leikmenn eru þeir Ein- ar Páll Tómasson Val, Hörð- ur Magnússon FH, kemur í stað Atla Helgasonar Vík- ingi sem kemst ekki vegna náms, Framaramir Kristján Jónsson, Baldur Bjamason og Kristinn R. Jónsson, Val- ur Valsson og Amar Grét- arsson Breiðabliki, Rúnar Kristinsson KR, Ormarr Ör- lygsson KA, sem kemur á ný í landsliðshópinn eftir þó nokkra fjarveru, Eyjólfur Sverrisson Stuttgart, Amór Guðjohnsen Bordeaux, Guðni Bergsson Tottenham og Þorvaldur Örlygsson Nottingham Forest. Arnór Guójohnsen ó gó&um degi meS islenska landslióinu. Keflavík og Valur í úrslit Eftir æsispennandi undanúr- slitaleiki þar sem Keflvíkingar unnu KR-inga og Valsmenn lið Njarðvíkinga verða það Keflvík- ingar og Valsmenn sem leika til úrslita um íslandsmeistaratitil- inn í körfuknattleik í ár. Fyrsti leikur þessara liða l'er fram í Keflavík í kvöld, föstudag- inn 3. apríl, og það lið sem sigrar í þremur leikjum stendur uppi sem sigurvegari. Þótt Keflvíkingar verði að teljast sigurstranglegri gegn Val er engin ástæða til að af- skrifa Hlíðarendaliðið og þá sér- staklega þegar höfð er í huga sú staðreynd að þeir unnu Njarðvík- inga tvívegis á dögunum í Ljón- grytjunni þar syðra. En að tapa tveimur leikjum í röð á heimavelli mun ekki hafa hent Njarðvíkurlið- ið í rúman áratug og muna næst- elstu menn ekki eftir öðm eins þar á bæ. Með fullri virðingu fyrir öðmm liðsmönnum Vals þá er það engin spuming að geta liðsins fer mikið eftir því í hvemig fonui Franc Booker verður þegar kemur að þessum úrslitaleikjum gegn Keflvíkingum. Það fengu áhorf- endur að sjá í síðustu viðureign Vals og Njarðvíkinga þar sem Booker skaut andstæðinginn í kaf og skoraði 39 stig en næsti Vals- maður aðeins 13 stig. Þetta vita Keflvíkingar og munu því kappkosta að taka Booker úr umferð með öllum tiltækum ráð- um. Hvort þeim tekst betur upp í þeim efnum en Njarðvíkingum skal ósagt látið en hitt er víst að Keflvíkingar ætla sér ekkert annað en sigur - eins og Valsmenn að sjálfsögðu. Það stefnir því allt í æsispennandi úrslitaleiki og því eins gott fyrir áhorfendur jafnt sem leikmenn að mæta með taug- amar í lagi. Spáð í Evrópukeppni sumarsins Gary Lineker og fé- lagar hans í enska landslióinu í knatt- Ef marka má tölfræðina verða það landslið Englands og Hollands sem mætast í fyrri imdanúrslitaleiknum í Évrópukeppni landsliða í knattspyrnu í Svíþjóð í sum- ar og Þjóðverjar og Júgósiav- ar í seinni undanúrslita- leiknum. Þótt enn séu rúmir tveir mánuðir þangað til boltinn fer að rúlla í úr- slitum Evrópukeppninnar á sænsk- um grasi grónum sparkvöllum em „sérfræðingamir" þegar famir að spá í spilin. í því sambandi er mjög vinsælt til fróðleiks og skemmtunar í senn að taka mið af viðureignum liðanna og markamun í gegnum tíð- ina og þeim tölfræðilegu staðreynd- um sem út úr því koma. Samkvæmt því munu Englendingar verða í fyrsta sæti í sínum riðli með fimm stig, Júgóslavar í öðm sæti með þrjú stig, Frakkar í þriðja sæti einnig Gudmundur Rúnar Heiðarsson með þijú stig og heimamenn í íjórða sæti með eitt stig. Með sama hætti verða Þjóðveijar sigurvegarar í hinum riðlinum með fimm stig, Hollendingar í öðm sæti með þijú stig, Samveldi sjálfstæðra ríkja, fyrmrn Sovétríkin, í þriðja sæti incð tvö stig eða jafnmörg og Skotar sem munu þó reka lestina í sínum riðli. Leikur a& tölum I viðureignum Svía og Frakka er tölfræðin 1:2 Frökkum í vil en þessi lið hafa att kappi alls tíu sinnum. Þar hafa Frakkar unnið fimm sinn- um, Svíar Ijórum sinnum og einu sinni orðið jafntefli. I þssum leikj- um hafa Frakkar skorað 16 mörk en Sviar 10. Á sama hátt er tölffæði- legt jafntefli 2:2 í viðureignum Júgóslava og Englendinga. Alls hafa þessi lið mæst 14 sinnum á knattspymuvellinum og þar af hafa Englendingar unnið fimm sinnum, Júgóslavar fjómm sinnum og fimm sinnum hafa liðin skilið jöfn. Markatalan er 23-21 Englendingum í vil. Að sama skapi er tölfræðilega niðurstaðan í viðureignum Hollands og Skotlands 1:1. Átta sinnum hafa þessar þjóðir leitt saman hesta sína og þar af hafa Skotar borið hærri spyrnu hafa nokkuó oft þurft að gripa um höfuð sér til aðlýsa vonbrigðum með órangur liðsins ó alþjóðlegum stórmótum. En ef að likum lætur ættu þeir að sleppa við það i Svíþjóð i sum- ar. hlut fjómm sinnum, Hollendingar tvisvar og tveimur leikjum lyktað með jafhtefli. Markatalan er 11:10 Skotum í vil. Þá hafa Þjóðveijar vinninginn í viðureignum sínum við fyrmm Sovétríkin eða 2:1.1 tólf viðureignum hafa Þjóðveijar unnið níu sinnum en Sovétmenn þrisvar og markatalan er 22-11 Þjóðveijum í vil. í viðureignum Svía og Júgó- slava er tölfræðilegt jaffitefli 2:2. Alls hafa þjóðimar leikið ellefú sinnum hvor gegn annarri og Júgó- slavar hafa unnið fimm leiki en Sví- ar Ijóra og tveim lyktað með jafnt- efli. í þessum leikjum hafa Júgó- slavar skorað 19 mörk gegn 17 mörkum Svía. Þá hafa Englending- ar vinninginn gegn Frökkum eða 3:1. Þjóðimar hafa att kappi í bolt- anum í 21 skipti og þar hafa Eng- lendingar unnið 15 sinnum, Frakkar fjómm sinnum og tvisvar sinnum hefur orð- ið jafntefli. I þessum leikjum hafa Eng- lendingar skorað hvorki meira né v minna en 61 mark og fengið á sig 27. Að sama skapi hafa Hol- lendingar vinninginn gegn fyrmrn Sovétmönnum, 2:1 Sex sinnum hafa þessar þjóðir mæst á knattspymuvellinum og hafa Hollendingar unnið þrisvar en Sovétmenn tvisvar og einu sinni orðið jafntefli. í þessum leikjum hafa Hollendingar skorað átta mörk en Sovétmenn íjögur. Skotar og Þjóðveijar hafa barist tíu sinnum um boltann og þar er staðan 2:2. Báðar þjóðir hafa sigrað þrisvar sinnum, Ijórum sinnum gert jafnt- efli og markatalan er 17-15 fyrir Skota. Stórsigur Tjallans Enlendingar hafa yfir gegn Svíum 3:1, samkvæmt tölfræðinni. Þessar þjóðir hafa leikið alls sextán leiki þar sem Englendingar hafa unnið í níu skipti og þar af fyrstu sjö leikina, Svíar þrisvar en fjórum sinnum hafa liðin skilið jöfn að skiptum. Markatalan er 50- 16 fyrir Englendinga og munar þar mest um stórsigur þeirra árið 1908 í London þegar þeir gersigruðu sænska liðið 12:1. fræðimii hafa Þjóðveijar vinninginn yfir Hollendinga eða 2:1. Þessir þjóðir hafa 30 sinnum att kappi hvor gegn annarri á fótboltavellin- um; Þjóðveijar hafa unnið tólf leiki, Hollendingar sjö en ellefu sinnum hefúr orðið jafntefli. Markatalan er 64-51, Þjóðveijum í hag. I innbyrð- is virðureignum Skota og fyrrum Sovétmanna er tölfræðin 0:2 fyrir þá síðastnefndu eftir að þjóð- imar hafa fjórum sinnum mæst á vellinum. Sovét- menn hafa unnið þrisvar sinnum og einu sinni orðið jaíhtefli. Markatalan er 6:4 fyrir Sovétríkin sálugu. \ Viðureignir Frakka og Júgóslava hafa hinsvegar verið mun jafnari í gegnum tíðina og samkvæmt löl- fræðinni er jafnræði með liðunum, 2:2. Alls hafa þessar þjóðir mæst 25 sinnum á knattspymuvellinum; Júgóslavar hafa unnið tíu sinnum, Frakkar átta sinnum og í sjö skipti hefúr orðið jafhtefli. Bæði liðin hafa skorað 38 mörk. Samkvæmt töl- Föstudagurinn 3. apríl

x

Helgarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarblaðið
https://timarit.is/publication/259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.