Helgarblaðið - 03.04.1992, Page 7

Helgarblaðið - 03.04.1992, Page 7
Helgar ~7 blaðið Inga Backman segist aldrei hafa ætlað að verða söng- kona hlutskipti listamannanna. í stað þess að fara á götuna einsog flestar stelpur gerðu sem lifðu við hennar kjör, lifir hún af því að sauma blóm og skraut fyrir heldra fólkið í París. Hún býr ein og þjáist af næringar- skorti og tæringu þegar þama er komið sögu. Mér fmnst Mimi mjög skemmti- leg persóna. Hún hefur fyrir löngu fellt hug til Rudolfs og notar tæki- færið þegar það gefst. Hún er dul og ábyggileg en einmana.“ Sé textann í myndum Operusöngvarar verða að túlka hlutverk sín bæði með söng og leik. Hvemig gengur það? „í nn'nuin skóla fékk ég ekki sömu þjálfun og leikarar fá í sínum skóla, en ég hef alltaf haft gaman af að túlka og fara með texta sem höfðar til mín. Það sem hjálpar mér, er að ég held að ég teikni allar mín- ar tilfinningar með andlitinu. Eg finn mikið til þegar ég syng og ég vona að ég komi því vel frá mér. Textinn skiptir mig miklu máli. Eg sé hann í myndum og reyni að túlka þær myndir. Geri söngvari það ekki er hann bara að syngja nótur. Það er nauðsynlegt að túlka innihald text- ans með röddinni, alveg einsog leikari þarf að túlka rullu sína og ræðumaður að koma með áherslur á réttum stöðum.“ La Bohéme Óperusmiðjan frumsýnir í Borg- arleikhúsinu óperuna La Bohéme eftir Puccini miðvikudaginn 8. apr- íl. Með helstu hlutverk fara Þorgeir Andrésson, sem syngur hlutverk Rodolfos. Mimi syngja þær Inga Backman og Ingibjörg Guðjóns- dóttir til skiptis og þær Jóhanna Linnet og Ásdís Kristmundsdóttir syngja hlutverk Musettu. Keitli Re- ed og Sigurður Bragason syngja Marcello. Önnur hlutverk eru í höndum Jóhanns Smára Sævars- sonar, Ragnars Davíðssonar og Stefáns Amgrimssonar. Þá taka Kristinn Hallsson, Eiður Ágúst Gunnarsson, Bjöm Jónatan Emils- son og Magnús Steinn Loflsson þátt í sýningunni. Guðmundur Óli Gunnarsson stjómar 47 manna hljómsveit sem skipuð er hljóðfæraleikurum úr Sin- fóníuhljómsveit íslands. Ámi Harðarson og Margrét Pálmadóttir hafa æft þrjátíu manna blandaðan kór auk tuttugu bama. Leikstjóri er Bríet Héðinsdóttir. Messíana Tómasdóttir sá um leik- mynd og búninga og Láms Bjöms- son um lýsingu. Föstudagurinn 3. april íwí r Verið velkomin á skíðaviku Isafjarðarkaupstaðar SKÍÐAVIKAN ÍSAFIRÐI1992 Dagskrá: Fimmtudagur 16. apríl Skíðakennsla fyrir alla kl. 14:00 - 15:00. kl. 15:30 Setning skíðavikunnar - Halla Guðmundsdóttir. Hugvekja - séra Magnús Erlingsson. Harmonikufélagar verða á staðnum. Hljómleikar - Síðan skein sól. Kl. 21:00 Skemmtikvöld á Hótel ísafírði. Föstudagur 17. apríl Skíðakennsla fyrir alla aldurshópa kl. 11:00- 12:00. Kl. 13:30 f A Seljalandsdal: Furðufatadagur - félagar út Litla leikklúbbnum aðstoða. Grillveisla, sælgætisregn, skíðaþrautir. Félagar úr snjósleðafélagi rúnta með bömin. Kl. 24:00 Unglingadansleikur í Sjallanum - Síðan skein sól. Laugardagur 18. apríl Skíðakennsla fyrir alla aldurshópa kl. 11:00 - 12:00. Kl. 12:00 Á Seljalandsdal: Páskaeggjamót fyrir böm. Kl. 15:00 Fallhlífastökk. Kl. 15:30 Plastpokakeppni fyrir alla fjölskylduna. Kl. 20:00 Skemmtikvöld fyrir unglinga 13 ára og eldri í Félagsheimilinu í Hnifsdal. Leikþáttur - "Elskaðu mig". Karokee keppni - umsjón Eiríkur Bjömsson. Dansleikur - Stórhljómsveit M.í leikur. Kl. 21:00 Skemmtikvöld á Hótel ísafirði. Sunnudagur 19. apríl Kl. 14:00 Á Seljalandsdal: Garpamót - skráning klukkutíma fyrir keppni, þátttökugjald. Harmonikufélagar verða á staðnum. Kl. 24:00 Dansleikur í Félagsheimilinu í Hnífsdal. Verðlaimaafhending vegna Garpamóts. Skíðaviku slitið. Skemmtinefnd Skíðavikunnar áskilur sér rétt til breytinga á dagskrá í samræmi við veður. Upplýsingasími Skíðavikunnar er 94-4111 - Hótel ísafjörður. Rútuferðir frá Hnífsdal, Eyrinni og Firðinum alla daga Skiðavikunnar. Hægt verður að kaupa skíðavikukort sem gildir alla dagana.

x

Helgarblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarblaðið
https://timarit.is/publication/259

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.