Helgarblaðið - 03.04.1992, Page 8
Helgar 8 blaðið
Áður en haninn gól tvisvar afheitaðirðu mér þrisvar. Þetta gæti Evrópu-
bandalagið sagt við Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra eftir lestur
skýrslu hans til Alþingis 1992. Stefiiubreyting hefur orðið í afstöðunni til
EB-aðildar og þótt ráðherra afneiti EB nokkrum sinnum í skýrslunni bland-
ast engum hugur um að hann hefur mikinn áhuga á bandalaginu. Skýrslan
dregur einnig upp á yfirborðið spennuna á milli formanna stjómarflokkanna
sem hefur ágerst að undafomu.
Jón Baldvin Hannibalsson utan-
rikisráðherra kastaði svo gott sem
rekunum yfir samkomulagið um
evrópskt efnahagssvæði í skýrslu
sinni til Alþingis og í umræðum
um hana í vikunni. Fram kom í
máli hans að tveir kostir væru þá
eftir, tvíhliða viðræður eða aðildar-
umsókn að Evrópubandalaginu.
Tvíhliða viðræðumar afgreiddi
hann í einni setningu sem gagns-
litlar. Aðild telur ráðherrann hins-
vegar að þurfi könnunar við og
tekur undir með Þórami V. Þórar-
inssyni, framkvæmdastjóra Vinnu-
veitendasambands Islands, sem
sagði nýlega að rétt væri að máta
flíkina og átti við að nauðsynlegt
væri að kanna hvað íslendingar
fengju út úr aðildarumsókn að
bandalaginu. Ekki nóg með það
heldur sagði Jón Baldvin að sú
þjóð sem léti staðar numið í EES
væri metnaðarlítil þjóð. Hann við-
urkenndi í raun þá skoðun að EES
væri fordyri EB með þeirri afsök-
un þó að allar forsendur hefðu
breyst.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
er honum ekki sammála og marg-
sagði að aðild væri ekki á dagskrá
ríkisstjómarinnar. Hann bætti þvi
við að ef fara ætti út í það að taka
grundvallarafstöðu til aðildar að
EB væri málið innanríkismál og
þannig á hans könnu en ekki Jóns
Baldvins.
Á aðeins örfáum dögum hefur
umræðan tekið algerlega nýja
stefnu. Hún er hætt að snúast um
hið evrópska efnahagssvæði og
snýst nú um Evrópubandalagið.
Jón Baldvin hefur iðulega bent á
að verði ekkert af EES myndi
þrýstingur á EB-aðild aukast inn-
anlands. Þetta hefur hann sagt til
vamar EES. Nú virðist hann telja
EES af og vill virkja allt stjóm-
kerfið til könnunar á aðild. Hann
gengur þó ekki svo langt að segjast
vilja senda inn umsókn fyrir árslok
einsog flokksbróðir hans K.arl
Steinar Guðnason hefur lýst yfir.
Ótti vi2> einangrun
Jón Baldvin óttast að íslcndingar
einangrist og segir í skýrslunni að
þótt EES skipi Islandi ekki á innsta
bekk þá yrði með samningnum
koinist hjá einangrun. Olafur
Ragnar Grímsson taldi Jón Bald-
vin ekki búinn að átta sig á því að
jörðin væri hnöttótt en ckki flöt og
að Island lægi mitt á inilli þriggja
stórra viðskiptablokka hnattrænt
séð.
Þannig snýst umræðan fyrsta
kastið um stöðu íslands í alþjóða-
málum og spuminguna um ein-
angmn. Kvennalistinn hefur þó
alla tið haldið því fram að Island
ætti ckki á hættu að cinangrast og
þyrfti þar af lciðandi ekki einu
sinni á EES að halda. Lýsandi
dæmi um þau stórstökk sem um-
ræðan hcfur tckið er sú yfirlýsing
Hjörlcifs Guttonnssonar að af
tveimur kostum væri EES illskárri
en EB, og munar þar miklu, sagði
Bakarí Brauðbergs
að Hraunbergi 4
Nýbökuð brauð, gómsœtar
tertur og kökur í miklu
úrvali.
Mjólkurvörur og fleira.
Opið virka daga frá kl. 8:30 til 18:00,
laugardaga frá kl. 9:00 til 16:00 og
sunnudaga frá kl. 10:00 til 16:00.
Brauðberg
Hraunberg 4, sími 71272
Viðskiptajöfrar
Evrópubanda-
lagsins risa úr
hafi meb sjóvar-
útvegsstefnu EB i
farteskinu í
óþökk litla
mannsins ó göt-
unni sem snýst
til varnar. Al-
einn.
þinginaðurinn.
Spumingar um hvað EB-aðild
hefði í för með sér hafa ekki enn
komið upp á yfírborðið aðrar en
þær sem hafa komið til umræðu í
tengslum við EES-samningagerð-
ina. Sjávarútvegsmál og landbún-
aðarmál, svo dæmi séu tekin, hafa
ekkert verið rædd. Ekki heldur
hvort stórar EB-þjóðir hafi nokk-
um áhuga á smáþjóðum inn í
bandalagið og benti Guðrún
Helgadóttir á það í umræðunum að
háttsettir menn innan bandalagsins
hefðu lýst því yfir að Island fengi
ekki aðild að EB.
Ennþá er ólíklegt að íslendingar
velji aðild nema sjávarútvegs-
stefnu EB verði breytt. Sjávarút-
vegsráðherra Dana telur reyndar að
Islendingar misskilji sjávarútvegs-
stefnuna og hafi ekkert að óttast.
Eins bendir Jón Baldvin á það í
skýrslunni að með Maastricht-
samkomulaginu hafi Bretum verið
gert kleift að standa utan samstarfs
á félagsmálasviðinu, en slíkt hefði
verið óhugsandi hingað til. Það
opni möguleika á því að Islending-
ar stjómi alfarið sjávarútvegsmál-
um hér. Landbúnaðarstefna banda-
lagsins er hinsvegar þannig að
hugsanlega gæti vömverð lækkað
hérlendis og bændur jafnframt
fengið meira í sinn hlut þar eð EB
styrkir bændur mun meira en
nokkum tíma íslendingar og hefur
það ekki verið svo lítið gagnrýnt af
utanríkisráðherra.
Fer herinn?
Jafnvel herinn gæti farið ef tekið
er mið af þeirri mynd sem Jón
Baldvin hefur dregið upp. Hann
sagði að með innri styrkingu EB
og Vestur-Evrópusambandsins
sem hemaðarbandalags hyrfu
Bandaríkjamenn frá Evrópu, frá
EB- löndum, og þá einnig frá ís-
landi, væri ísland í EB. En hugsan-
lega yrðum við að taka á móti
Þjóðverjum í staðinn eða einhverri
annarri EB-þjóð.
Þetta er dæmi um atriði sem um-
ræðan um EB-aðiId gæti snúist um
en er algerlega ósnertur umræðu-
gmndvöllur.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir vill
umræðu um þessi mál þótt flestir
aðrir EB-andstæðingar telji enga
þörf á umræðu. Hún hefur bent á
hættuna á því að án umræðu verði
okkur laumað inn í bandalagið rétt
einsog okkur var komið í Nató og
bandarísku herliði var hleypt inn í
landið. Hún bendir á að Keflavík-
ursamningurinn 1946 hafi farið í
gegn vegna þess að margir töldu
okkur tryggð með því bæði útávið
og eins gegn því að hingað kæmi
erlendur her. Samsvömnin nú væri
þá EES. Keflavíkursamningurinn
var gerður þrátt fyrir afneitanir
stjómmálamanna árið áður. Og
þrátt lyrir áframhaldandi afneitanir
gengu íslendingar í Nató 1949 og
herinn kom hingað til lands tveim-
ur ámm seinna. Það myndi þá
samsvara inngöngu í EB.
1 þessu sambandi má einnig
benda á hraðann í þessum málum
bæði í Svíþjóð og í Finnlandi.
Skyndilega em þjóðir sem hafa
hafnað aðild blátt áfram búnar að
senda inn umsókn, án mikillar um-
ræðu innanlands. Til þess vannst
einfaldlega ekki tími.
Enn sem komið er hefur ekki
verið bent á kosti eða galla þess að
vera í EB, hvorki afþeim sem vilja
umræður né þeim sem vilja ganga
í EB. Krafan um umræður og
könnun á þessu virðast sprottnar af
ótta við einangrun, að lsland muni
sitja hjá í einshverskonar hagvaxt-
arleysi.
Davíð og Jón Baldvin
takast á
Davíð hafnaði algerlega þeim
orðum í skýrslu Jóns Baldvins að
þær pólitísku forsendur sem leiddu
til EES virtust ekki eiga við leng-
ur, hvorki í EB né í EFTA. Þótt
Davíð hafi hafnað því að ágrein-
ingur væri í ríkisstjóminni er ljóst
að þessir tveir formenn takast á.
Jón Baldvin er enn ekki búinn að
fyrirgefa Davíð það að hann kom á
stöðu ráðgjafa í alþjóðamálum við
forsætisráðuneytið án þess svo
mikið sem tala um það við Jón
Baldvin. Utanríkisráðherra virðist
ekki hafa borið þessa stefnubreyt-
ingu í Evrópumálum undir Davíð
sem nú vill að þau verði innanrík-
ismál, a.m.k. fýrst um sinn. Bjöm
Bjamason, sem er í innsta hringn-
um umhverfis forsætisráðherra
hefur og gagnrýnt Jón Baldvin íyr-
ir framsetningu hans á þessu máli í
skýrslunni. Þama er ekki verið að
takast á um hvort ísland eigi að
sækja um aðild eður ei. Mennimir
em einfaldlega í valdabaráttu.
Einsog áður sagði er ekki sama
hvemig málið verður lagt upp en
ef stjómkerfið kannar málið á ann-
að borð er allt útlit fýrir að það
verði gert undir stjóm forsætis-
ráðuneytisins. Davíð fái að ráða.
Hitt er svo annað mál að stjóm-
kerfið veit býsna vel hvað aðild að
EB felur í sér, enda hafa menn ver-
ið á kafi í Evrópumálum þó að
skýrslur hafi ekki verið skrifaðar
fýrir almenning.
Afhverju núna?
Á göngum Alþingis spurðu
menn sig í vikunni hvers vegna
Jón Baldvin kysi að leggja til
könnun á aðild einmitt núna. Sum-
ir töldu að hann hlyti að vita eitt-
hvað meira um afdrif EES en fram
hefur komið og það er ekki ólík-
legt miðað við hversu hæpið hann
taldi að svæðið yrði að veruleika.
Einnig er hugsanlegt að þetta út-
spil hans tengist valdabaráttu hans
og Davíðs. Sumir hafa líka sagt að
Jón Baldvin sé með þessu að taka
áhættu til að tryggja sér áframhald-
andi formennsku í Alþýðuflokkn-
um - gangi fiéttan upp. Með því
að Alþýðufiokkurinn kæmi fram
sem EB-flokkur og væri vilji til
þess innan flokksins héldi hann
völdum auk þess sem í næstu
kosningum gæti fiokkurinn krækt í
atkvæði, sem annars hefðu lent hjá
Sjálfstæðisflokknum, út á það að
Alþýðuflokkurinn væri eini flokk-
urinn sem væri hlynntur EB.
Sjálfstæðisflokkurinn mun að
vísu eiga úr vöndu að ráða meðan
fullvíst má telja að Alþýðubanda-
lagið, Framsóknarflokkurinn og
Kvennalistinn ljái ekki máls á EB-
aðild.
Föstudagurinn 3. apríl