Helgarblaðið - 30.04.1992, Page 15
Helgar 15 blaðið
And-leikhúsið nefnist
nýstofnað leikhús í
Reykjavík. Það frum-
sýnir á laugardags-
kvöldið kl. 21 leikritið
Danni og djúpsævið
bláa eftir bandaríska
leikskáldið John Patrick
Shanley. Leikendur eru
Helga Braga Jónsdóttir
leikur Rúnu en
Þorsteinn Guómunds-
son Danna.
þau Helga Braga Jónsdóttir og
Þorsteinn Guðmundsson. Ásgeir
•Sigurvaldason þýddi og leikstýr-
ir verkinu. Sýningarnar fara
fram í Tunglinu við Lækjargötu
og er gengið inn frá Austur-
stræti hjá veitingastaðnum Pisa.
Danni og djúpsævið bláa var
frumsýnt í New York árið 1984 og
vakti samstundis sterk viðbrögð
gagnrýnenda og áhrofenda.
Leikritið segir frá kynnum
Danna og Rúnu eina kvöldstund á
sóðalegri knæpu í Bronx-hverfinu,
en höfundurinn er fæddur og upp-
alinn í því hverfi. Þau Danni og
Rúna hafa bæði slegið um sig
þykkum skráp, sem þau veija með
kjafti og klóm, í ofsafengjnni til-
raun til að leyna alburðum úr for-
tíð sinni. Danni telur sig hafa
drepið mann fyrr um kvöldið og
yfir fortíð Rúnu liggja dökkir
skuggar. Þau taka tal saman og
brátt hefst ófyrirsjáanleg atburða-
rás þar sem teflt er fram biturri
reynslu, sekt og sjálfsblekkingu.
Ljósahönnun annast Egill Óm
Ámason og tæknistjóri er Kári
Gíslason en auk þess koma á ann-
an tug manna við sögu bakvið
uppsetninguna.
Norrænn
vísnasöngur
víða um land
Norrænir yísnadagar verða
haldnir á íslandi dagana 1.
tíl 5. maí. Listamenn frá öll-
um Norðurlöndunum munu
koma fram á tónleikum í
Reykjavik, á ísafirði, Egils-
stöðum og Akureyri. Þekkt-
astí gesturinn er án efa
Bjöm Afeelius frá Svíþjóð,
sem verður með stórtónleika
í Norræna húsinu sunnu-
daginn 3. maí, en með hon-
um leika Bengt Bygren og
Hannes Rastram.
verða tónleikar í Gamla Lundi á
Akureyri á vegum Norrænu upplýs-
ingamiðstöðvarinnar. Þar koma
fram Hanus Johansen, Jannika
Haggström og Tjamarkvartettinn.
Á sunnudag er komin röðin að
stórtónleikum með Bimi Afzelius í
Norræna húsinu kl. 20.30. Sama
dag verða tónleikar á Hótel KEA á
Akureyri kl. 16 með Hanne Juul og
Jan-Olof. Á Egilsstöðum verða tón-
leikar í Valaskjálf kl. 20.30 með
Hanus G. Johansen, Janniku
Haggström og Övind Sund ásamt
þeim Önnu Pálínu og Aðalsteini
Ásberg og Vísnavinum á Egilsstöð-
Þeir sem koma fram á þessum
Norrænu vísnadögum eru auk
Bjöms, Hanne Juul frá Danmörku,
Hanus G. Johansen lfá Færeyjum,
Jan-Olof Andersson frá Svíþjóð,
Övind Sund frá Noregi og
Jannika
Sænski söngvarinn og lagahöf-
undurinn Björn Afzelius.
Haggström frá Finnlandi. Af Is-
lands hálfu taka eftirfarandi þátt í
vísnadögununv. Hljómsveitin Is-
landica, Anna Pálína Ámadóttir og
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, Sig-
urður Friðrik Lúðvíksson, Tjamar-
kvartettinn, Vísnavinir á Egilsstöð-
um og Hörður Torfason.
Opnunartónleikarnir verða í Nor-
ræna húsinu í Reykjavík kl. 16
föstudaginn 1. mai. Þar koma fram
allir erlendu gestimir fyrir utan
Bjöm Afzelius og auk þess Anna
Pálína og Aðalsteinn Ásberg og Is-
landica.
Á laugardag verða tónleikar í
Stjómsýsluhúsinu á ísafirði kl. 16
og eru þeir haldnir í tilefni af opnun
Norrænnar upplýsingamiðstöðvar
þar. Þar koma fram Hanne Juul,
Jan-Olof Andersson og Sigurður
Friðrik Lúðvíksson. Á sama tíma
Vísnadögunum lýkur svo með
lokatónleikum í Tónlistarskóla FIH
við Rauðagerði kl. 20.30. Þar koma
fram allir erlendu þátttakendumir
ásamt þcim Herði Torfasyni og Is-
landicu.
Erfitt a& fá fólk
úr stofunni
Hanne Juul, Jan-Olof Andersson
og Anna Pálína litu inn á ritstjóm
Helgarblaðsins í vikunni. Anna Pá-
lína, sem cr fomiaður Vísnavina,
sagði að þcssir vísnadagar væru
haldnir í samvinnu Vísnavina, Nor-
rænu fclaganna á Islandi og Nor-
ræna hússins, en Norræni menning-
arsjóðurinn hcfði styrkt hátíðina.
En er mikill áhugi á þessari tón-
list hér á landi?
„Það virðist vera, en hann er
mjög dæmigerður fyrir íslending-
inn. Það hafa allir áhuga á þessari
tónlist heima í stofu cn það er rnjög
erfitt að fá fólk út úr stofunni á tón-
leika,“ sagði Anna Pálína.
Hin tóku undir þctta og sögðu að
það sama gilti í Svíþjóð og Dan-
mörku.
Töluvert samstarf er á milli flytj-
enda vísnatónlistar á Norðurlöndun-
um, einkum í gegnum Nordvisa,
setn eru samtök vísnasöngvara á
Norðurlöndum. Tengsl Islands við
þessi samtök eru ekki síst að þakka
Hanne Juul. Hún var búsett á Is-
Iandi í 9 ár frá 1969 og var stofnfé-
lagi að Vísnavinum. Héðan flutti
hún til Svíþjóðar og hefur ferðast
um öll Norðurlöndin og flutt vísur á
öllum Norðurlandatungumálunum,
m.a. íslensku, en hún segist ætíð
reyna að flytja nokkur íslensk lög á
tónleikum sínum.
„Eg hef alltaf hafl mikið sam-
band við ísland efiir að ég flutti og
reyni að koma hingað eins oft og ég
get. Mér finnst ég ailtaf vera að
koma heim þcgar ég kem hingað,“
segir hún á nær lýtalausri íslensku.
„íslensk vísnahefð er mjög bók-
menntaleg, dönsk og finnsk vísna-
hefð byggir mikið á revíum og ka-
barett, Svíamir eru mjög fastir í
náttúrulýrik og Norðmenn í pólitík-
inni.“
Jan-OIof er ekki á því að hægt sé
að flokka þetta svona niður: „Tón-
listarmenn í dag hólfa sig ekki nið-
ur á þennan hátt. Hvert yrkisefni
kallar á sitt form. Það skiptir ekki
máli hvort vísa er eftirEvert Taube
eða John Lennon, hvort hún er pól-
itísk eða náttúrulýnsk. Listamaður-
inn reynir að túlka sérhveija vísu á
sinn eigin hátt. Mörkin á milli vís-
natónlistar og popptónlistar eru
meira og minna horfin. Hver leitar í
smiðju til annars."
Að öðrum ólöstuðum er Bjöm
Afzelius þekktastur af þeim lista-
mönnum sem taka þátt í vísnadög-
unum. Á þijátíu ára ferli sínum hef-
ur hann selt rösklega miljón plötur
og frá 1980 hefur hann gefið út 10
plötur sem allar hafa náð gullsölu,
þar af þrjár platínuplötur, en það
em plötur sem selst hafa í meira en
100 þúsund eintökum.
Það var árið 1970 að Bjöm stofn-
aði hljómsveitina Hoola Bandoola
Band ásarnt Michael Wiehe og kom
fyrsta plata þeirra út ári seinna. Alls
gaf hljómsveitin út fjórar plötur á
jafnmörgum ámm og varð geipivin-
sæl.
Árið 1976 var hljómsveitin leyst
upp fomilega og í framhaldi af því
hóf Bjöm sólóferil, en hann haíði
reyndar gefið út eina sólóplötu á
meðan Hoola Bandoola var og hét.
Bjöm Afzelius hefur síðan verið
með ástsælustu listamönnum
Svíþjóðar og auk þess átt miklum
vinsældum að lagna á hinum
Norðurlöndunum, þó einkum og sér
í lagi í Danmörku. Hljómsveit hans,
Globetrotter, ferðaðist um alla
Skandinavíu og hélt tónleika fyrir
fullu húsi hvar sem þeir komu fram.
1986 tóku þeir Bjöm og Michael
Wiehe aflur upp samstarf og gáfu út
plölu saman, auk þess sein þeir
héldu styrktartónleika fyrir menn-
ingarstarf í Nicaragua. Álls söfhuðu
þeir um 17 miljónum íslenskra
króna til þess starfs.
Anna Pólina Árnadóttir, forma&ur Visnavina, danska vísnasöng
konan Hanne Juul og sænski vísnasöngvarin Jan-Olof Andersson.
Mynd: Kristinn.
Jan-Olof Andersson er söngvari
og gítarleikari frá Svíþjóð og er
cfnisskrá hans mjög fjölbreytt;
spannar allt frá 16. öld Elísabctar 1
Englandsdrottningar, gegnum
sænska vísnahefð og allt til fiutn-
ings eigin laga við vísur eftir skáld
á borð við Nils Ferlin og Dan And-
erson. Auk þess sem liann hefur á
seinni árum samið eigin vísur og
lög.
Jan-Olof hefur einu sinni áður
komið lil lslands, en það var í des-
ember sl. í boði Blásarakvintetts
Reykjavíkur. Hann kom fram á af-
mælistónlcikum kvintettsins og hélt
auk þess tónleika í Norræna húsinu.
Jan-Olof segist undrandi á því
hversu vel íslendingar þckki lil
sænskrar vísnahcfðar. Hinsvegar er
tungumálið hindmn fyrir hann til
þess að setja sig almennilega inn í
íslenskan vísnasöng.
En er munur á vísnahefð Norður-
landanna? Það er Hanne Juul sem
verður fyrir svömm:
TRESMIÐIR !
Sýnum öfluga samstöðu í kjarabaráttunni.
Fjölmennum á útifundi
og í kröfugöngu verkalýðsfélaganna.
Trésmiðafélag Reykjavíkur
Fimmtudagurinn 30. april
V
J