Dagblaðið - 23.09.1975, Blaðsíða 7
Dagblaöið. Þriðjudagur 23. september 1975.
7
Erlendar
fréttir
Saint-
John
Porse
látinn
Franska nóbelsskáldið
Saint-John Perse lézt á laug-
ardaginn, 88 ára gamall.
Hann var einnig vel þekktur
stjórnarerindreki.
Nóbelsverðlaun fékk hann
1960 fyrir ljóðlist sina, sér-
staklega ,,La Gloire des Rois”
og „Exil”. Hann lézt á heimili
sinu á Giens-skaga í Suður-
Frakklandi.
Hunda-
bann
í Pisa
Borgarstjóranum í Pisa á
ftaliu hefur verið hótað lifláti.
Ástæðan er sú, að hann hefur
sett bann við hundahaldi i
borginni og hefur það mælzt
misjafnlega fyrir.
SAMIÐ UM
SÍNAÍ
Egyptar og fsraelsmenn
luku snemma i morgun end-
anlegum samningaviðræðum
um framkvæmd Sinaí-sam-
komulagsins. Höfðu nefndirn-
ar þá setið á 14 klukkustunda
löngum fundi á skrifstofum
Sameinuðu þjóðanna i Genf.
Nefndirnar voru bundnar af
timaákvæðum, sem sett voru i
heildarsamkomulagið, er gert
var að undirlagi Kissingers.
Egyptar skrifuðu undir i
morgun en tsraelsmennirnir
settu aðeins upphafsstafi sina
og ætla áður að ráðfæra sig við
stjórnvöld heima fyrir.
Enii reynt að myrða Ford
í þetta skipti
hljóp skot
úr byssunni
Sarah Jane Moore, sem ákærð
er fyrir að hafa reynt að ráða
Ford Bandarikjaforseta af dög-
um i San Francisco i gær, vann
um tima við matvæladreifingará-
ætlun Randolphs Hearst, föður
Patty Hearst.
Var þetta haft eftir starfsfólki
Hearst i gærkvöldi. Hafði frú
Moore (fráskilin með 9 ára gaml-
an son) boðið sig fram sem sjálf-
boðaliði til starfa við bókhald
dreifingarinnar.
Útvarpsstöð i San Francisco
skýrði svo frá i gær, að frú Moore
hefði hringt þangað hvað eftir
annað undanfarna daga og kynnt
sig sem skrifstofustjóra Hearst.
Sarah Moore skaut einu skoti að
forsetanum, þegar hann var að
koma út úr hóteli i San Francisco.
Er þetta i annað sinn á skömm-
um tima,sem Ford er sýnt bana-
tilr'æði.
Oryggisverðir fóru þegar i stað
með forsetann til flugvallarins og
kom hann til Washington i gær-
kvöldi. Þar sagðist hann siður en
svo hafa i hyggju að láta ofbeldis-
seggi kúga sig og stjórna gerðum
sinum. „Eitthvað er að i þjóðfé-
lagi okkar,” sagði forsetinn.
Ford forseti hefur fyrir sið að fara mikiO út á meOal fólks og þvier hann auOvelt skotmark. öryggisverö-
ir hans hafa miklar áhyggjur. Á myndinni sést einn standa fyrir framan bil forsetans — skimandi eftir
grunsamlegum andlitum i fjöldanum.
Sarah Jane Moore var yfir-
heyrð af lögreglu skömmu áður
en forsetinn kom til San
Francisco i fyrrakvöld. Hún var
siðan látin laus. Hún er sögð eiga
að baki nokkurn feril sem andófs-
kona — og hefur það nægt til þess,
að hún var yfirheyrð áður en for-
setinn kom til borgarínnar.
Finnsku kosningarnar:
Línumar skýrast lítið
Kommúnistar og miðflokks-
menn i Finnlandi voru sigurveg-
arar kosninganna þar i landi um
helgina. Jafnaðarmannaflokkur-
inn er enn stærsti flokkurinn,
þrátt fyrir að hafa misst fjögur
þingsæti.
f Reuters-fréttum i morgun
segir.aðfátteitt bendi til þess, að
ný stjórn verði mynduð til að
takast á við erfiðan efnahags-
vanda, breytingar á fylgi flokk-
anna hafi ekki verið nægilega
miklar.
Samkvæmt tölum, sem bárust i
morgun, fengu kommúnistar 41
þingsæti og bættu við sig fjórum.
Miðflokkurinn fékk 39 sæti og
bætti við sig fimm. 1 haldsflokk-
urinn bætti við sig einu þingsæti
og héfur nú alls 34 sæti. Af litlu
flokkunum bætti Kristilegi flokk-
urinn mestu við sig, fékk sex sæti
til viðbótar þeim fjórum, sem
fyrir voru.
Á finnska þinginu eiga tvö
hundruð fulltrúar sæti. Þegar
aðeins örfá atkvæði voru ótalin
var staðan sem hér segir og er
fyrri staða i svigum:
Jafnaðarmenn: 52sæti(56)
Kommúnistar: 41 sæti (37)
Miðflokkur: 39 sæti (34)
Frjálslyndir: 9sæti( 6)
Sænski flokkurinn: 10sæti( 9)
fhaldsflokkurinn: 34sæti(33)
Kristilegirfl.: 10sæti( 4)
Sameiningarfl.: lsæti(13)
Dreifbýlisflokkurinn: 2 sæti ( 5)
Stjómarskrárafl.: lsæti( 2)
Kekkonen Finnlandsforseti. Hans biður þess nú aö ný stjórn verði
mynduð. Forsetinn er sagður hlynntur samsteypustjórn miðflokks,
jafnaðarmanna og kommúnista.
LIKLEGT AÐ ÞINGIÐ
HEFJI Á NÝ RANNSÓKN
Á JFK-MORÐINU
Frank Church, öld-
ungadeildarþingmaður í
Bandarikjunum, sem sæti
á í rannsóknarnefnd öld-
ungadeildarinnar um
starfsemi leyniþjónusta
ríkisins, hefur skýrt frá
því, að athugað verði,
hvort CIA og FBI liggi á
upplýsingum um morðið
á Kennedy forseta.
Church sagði ennfremur, að
ef til vill yrðu haldnar opinberar
yfirheyrslur, ef ástæða þætti tiL
„Með tilliti til allra þeirra
efasemda, sem uppi eru vegna
vinnu Warren-nefndarinnar,”
sagði hann á fundi með frétta-
mönnum, „munum við að sjálf-
sögðu taka til athugunar allar
skýrslur CIA og FBI til að rann-
reyna, hvað þessar stofnanir
báru fyrir nefndinni.”
Fréttamaður spurði þing-
manninn, hvort hann mundi
styðja nýja rannsókn á morði
forsetans og sagði hann afstöðu
sina velta á þvi, sem út úr rann-
sókn nefndarinnar kæmi.
Portúaal:
Dregur
enn úr
áhrifum
komma
Hin nýja stjóm Portúgals
kemur saman til fundar i
fyrsta skipti i dag. Mikill
vandi blasir við stjórninni, þar
sem er stórfellt efnahagslegt
og félagslegt hrun undanfarna
18 mánuði, allt frá aprilbylt-
ingunni ’74.
Jose Pinheiro de Azevedo
mun i dag leggja fram lista
yfir aðstoðarráðherra sina. Er
búizt við, að sigur lýðræðis-
flokkanna i kosningunum i
april sl. verði jafnvel enn
skýrari i þeim lista en sjálfum
ráðhe rr alistanum.
Reuter hefur eftir öruggum
heimildum i Lissabon i morg-
un, að Sósialistaflokkurinn,
sem fékk 38% atkvæða i kosn-
ingunum og fékk fjögur ráð-
herraembætti i nýju stjóm-
inni, hafi þegar tryggt sér 14
af 30 aðstoðarráðherraemb-
ættum. Hin sextán embættin
fá kommúnistar og miðflokks-
menn.
Kommúnistar, sem aðeins
fengu eitt ráðherraembætti i
stjórninni, eru taldir öruggir
um að fá fjögur aðstoðarráð-
herraembætti.-
Stefnuskrá hinnar nýju
stjómar Azevedos gerir ráð
fyrir, að aftur verði komið á
aga I hemum, kommúnisk
stjórn fjölmiðla taki enda sem
og verkalýðsfélaga og sveitar-
stjórna. Þá er einnig á verk-
efnalista stjórnarinnar að
hrinda i framkvæmd um-
fangsmikilli landnýtingar-
áætlun.
Azevedo sagði I gærkvöldi —
og kom mjög á óvart, — að ef
stjórn sin myndi reynast of
hægrisinnuð, þá teldi hann
sjálfan sig ■ sjálfkrafa vera
kominn i stjórnarandstöðu.