Dagblaðið - 23.09.1975, Side 10
10
Dagblaðið. Þriðjudagur 23. september 1975.
Útvarp
Sjónvarp
BOLLI
HÉÐINSSON
Sjónvarp kl. 21.40:
Dick Cavett og Norman Mailer
Marlyn viö töku myndarinnar ,,The Seven Year Itch”.
m
umrœðu
Marílyn Monroe
Hinn velþekkti bandariski
sjónvarpsmaður Dick Cavett
ræðir við Norman Mailert
sem skrifað hefur ævisögu
Marlyn Monroe og er talsvert
umdeild um þessar mundir i
Bandarikjunum. Það er ef til
vill að bera i bakkafullan lækinn
að rekja æviatriði Marlyn
Monroe, svo mikið hefur verið
um hana ritað og rætt, en þó eru
það vafalaust margir af yngri
kynslóðinni, sem hafa sjaldan
heyrt um hana getið.
Norma Jean Martenson eða
öðru nafni Marlyn Monroe var
fædd þann 1. júni 1925. Af föður
sinum hafði hún aldrei neitt að
segja og móðir hennar var
taugasjúklingur. Hún lék i
fyrstu kvikmynd sinni 1948 og
sagði þar aðeins eitt orð
„halló”. Seinna komu fleiri
myndir og að þvi kom að hún
varð hreimsfræg fljótlega upp
úr 1950. Eitt sinn sét hún ljós-
mynda sig allsnakta og var
myndin prentuð á almanak. Þá
þótti hneykslanlegt að hún
skyldi hafa sýnt sig nakta á ljós-
mynd og var mikið um talað.
Var hún m.a. spurð: „Didn’t
you have anything on?” og
Marlyn svaraði um hæl: „Oh
yes, I had the radio on.” Hún
var um tima gift einum
frægasta beisboltaleikara
B a n d a r i k j a m a n n a Joe
DiMaggio og seinna hinu heims-
fræga leikritaskáldi Arthur
Miller. Hann samdi seinna kvik-
myndahandrit fyrir hana og um
það bil sem töku þeirrar
myndar var að ljúka var hjóna-
bandi þeirra einnig lokið. Þetta
var árið 1961, en i byrjun ágúst
1962 bárust þær fréttir, aö
Marlyn Monroe hefði tekið inn
of stóran skammt af svefnlyfj-
um og látizt af. _bh
útvorp ki. 23,00 INNFLUTT MENNING AF SEGULBANDI
James Thurber var Banda-
rikjamaður, sem lézt áriö 1961.
Hann var álitinn einn albezti
satirski rithöfundur Bandrikja-
manna frá þvi Mark Twain leið.
James Thurber myndskreytti
jafnframt bækur sinar með sér-
stæðum og skemmtilegum
teikningum. Ég held ekki að
nema ein bóka hans hafi verið
þýdd á islenzku og hafi hún i
þýðingunni heitið „Siðasta
blómið”. Var hún myndskreytt
af Thurber. Bæði skopskyn hans
og teiknihæfileikar féllu vel að
starfi hans hjá hinu þekkta riti
„The New Yorker” og var hann
einn af leiðandi rithöfundum
þar frá 1927—’33.
Peter Ustinov ætlar að lesa
sögurnar eftir James Thurber
fyrir okkur og ennfremur
„nokkrar vellognar sögur
Munchausens baróns.” Ustinov
er vigur maður á fjölda hluta,
semur leikrit og starfar sem
leikari jöfnum höndum.
Hann mun vera jafnvigur
á þrjú tungumál, ensku,
þýzku og frönsku. Gæti þvi
vel svo farið að við fengjum
að heyra sögur James Thurber i
kvöld á ensku, en lygasögur
Munchausens á þýzku. Peter
Ustinov lék, eða öllu heldur tal-
aði Jóhann landlausa (bróður
Rikharðs ljónshjarta) i teikni-
mynd Walt Disneys um Hróa
hött, bæði i ensku og þýzku út-
gáfu myndarinnar. —bh
Q Utvarp
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl), 9.00og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Baldur Pálmason les
söguna „Siggi fer i sveit”
eftir Guðrúnu Sveinsdóttur
(2). Tilkynningar kl. 9.30.
Létt lög á milli atriða.
Morgunpopp kl. 10.25.
Illjómplötusafnið kl. 11.00:
Endurtekinn þáttur Gunn-
ars Guðmundssonar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 i léttum dúr. Jón B.
Gunnlaugsson sér um þátt
með blönduðu efni.
V. ... ...... n
14.30 Miðdegissagan: „Dag-
bók Þeódórakis” Málfriður
Einarsdóttir þýodi. Nanna
Ólafsdöttir les (15). Einnig
les Ingibjörg Stephensen
ljóð og flutt er tónlist við
ljóð Þeódórakis.
15.00 M iðdegistónleikar:
hin fagra ”, lagaflokkur eftir
Jón Laxdal. Þuriður
Pálsdóttir syngur, Guðrún
Kristinsdóttir leikur á
pfanó. b. Sextett fyrir
flautu, klarinettu, trompet,
horn og tvö fagott eftir Pál
P. Pálsson. Jón Sigur-
björnsson, Gunnar Egils-
son, Jón Sigurðsson, Stefán
Þ. Stephensen, Sigurður
Markússon og Hans P.
Franzson leika. c. Lög eftir
Þórarin Guðmundsson.
Margrét Eggertsdóttir
syngur, Guðrún Kristins-
dóttir leikur á pianó. d.
„Landsyn”, hljómsveitar-
forleikur eftir Jón Leifs.
Sinfóniuhljómsveit Islands
leikur, Jindrich Rohan
stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Siðdegispopp.
17.00 Tónleikar.
17.30 Sagan „Ævintýri Pick-
wicks” eftir Charles Dick-
ens.Bogi ólafsson þýddi.
Kjartan Ragnarsson leikari
les (12)
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.30 Evrópukeppni í knatt-
spyrnu: ÍBK — Dundee
UnitedJón Ásgeirsson lýsir
frá Keflavik.
19.45 Trú, töl'rar, galdur.
Haraldur Ólafsson lektor
flytur siðara erindi sitt. -
20.05 Lögunga fólksins.Sverr-
ir Sverrisson kynnir.
21.00 Úr erlendum hlöðum.
Ólafur Sigurðsson frétta-
maðurtekur saman þáttinn.
21.25 Serenaða fyrir hljóm-
svcit op. 31 eftir Wilhelm
Stenhammar Sinfóniu-
hljómsveit sænska útvarps-
ins leikur, Stig Westerberg
stjórnar. (Frá sænska út-
varpinu).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Rúbrdk” eftir Poul
Vad.úlfur Hjörvar les þýð-
ingu sina (18).
22.35 Harmonikulög Myron
Floren leikur.
23.00 A hljóðbergi. Peter
Ustinov les nokkrar dæmi-
sögur handa okkar öld eftir
James Thurber og endur-
segir nokkrar vellognar
sögur Miinchausens baróns.
23.40 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
^ Sjónvarp
&
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.35 Lifandi myndir. Þýskur
fræðslumyndaflokkur. 8.
þáttur. Þýðandi Auður
Gestsdóttir. Þulur ólafur
Guðmundsson.
20.50 Svona er ástin. Banda-
risk gamanmyndasyrpa.
Þýðandi Jón O. Edwald.
21.40 Gestur hjáDick Cavett.
Norman Mailer. 1 þessum
þætti ræðir Dick Cavett við
höfund hinnar umdeildu
ævisögu leikkonunnar
Marilyn Monroe. Þýðandi
Jón Thor Haraldsson.
22.30 Dagskrárlok.
%