Dagblaðið - 14.10.1975, Page 10

Dagblaðið - 14.10.1975, Page 10
10 Hvort finnst þér betra tannkrem meö viski- eöa bananabragöi? Sigriöur Baldursdóttir nemandi: Ég hef nú hvorugt smakkað, en ég hugsa þó að þetta með viski- bragðinu væri miklu betra. Sigurþór Bjarnason verzlunar- maöur: Já, ég veit nú ekki hvort maður á að svara svona spurn- ingu, ætli maöur segi ekki meö bananabragði. Ingimundur Elisson i Stýri- mannaskólanum: Viski, alveg sannfærður um það, þó ég hafi að visu smakkað hvorugt þeirra. Krnst Kettler kvikmyndageröar- maöur: Hvort! Þaö er dálitiö erf- itt að svara þessu, hverjum dytti i hug að borða banana og drekka viski, auk þess fer það eftir þvi hvaða viskitegund það er. Sigrún Húfa Helgadóttir hús- móöir: Hvorugt smakkaö, en sennilegast væri viskibragðið nú betra ef maður smakkaði það. Þóra Jónsdóttir húsmóöir: Ja, mér finnst það hvorugt gott og langar bara alls ekki til að smakka það. Umferðarmenning og akreinar Bogi Runólfsson simaði: „Ekki alls fyrir löngu flutti Pétur Sveinbjarnarson ágætt erindi i útvarp um biðskyldu og ljósabúnað bila. Það er auðvitað góðra gjalda vert en hvernig væri að kenna mönnum að nota akreinar? Sá þáttur i um- ferðamenningu okkar er stór- Raddir lesenda gallaður, einfaldlega vegna þess að menn kunna ekki að nota akreinar. Allir vita hve gifurlegt álag er nú á gatnakerfi hér i borginni, það hreinlega ber ekki um- ferðarþungann yfir mesta anna- timann. Erlendis hugsa menn um að öll umferðin komist áfram en hér hugsar hver um sjálfan sig. Fyrir bragðið er umferðin mun þyngri i vöfum en hún þarf að vera. Fyrir vikið verða menn argir yfir öllu saman — hve margir árekstrar skyldu hafa orðið vegna þess? Ófáir er ég vissum. Nei, umferðaryfirvöld verða að leggja mun meiri áherzlu á þennan þátt umferðarmála, alls ekki má vanrækja hann. Annars leiðir þetta að áleitinni spurningu: Er einhver reglugerð til um akreinar?” NIÐUR MED FRANKÓ BURT MED EINRÆÐI Þórólfur Eiriksson skrifar: „Astæðan fyrir þessum skrif- um minum er klausa sú, er birt- ist i þættinum þann 3. þessa mánaðar undir yfirskriftinni Lifi Frankó. Þar gerir Halldór nokkur Pétursson það lýði kunnugt, að hér á land leynist ennþá afturhaldsseggir af verstu gráðu og fargaði þar með trú allra góðra Islendinga, að hér á landi fyndust aðeins lýð- ræðis- og framfarasinnaðir menn. t klausu þessari lýsir Halldór yfir stuðningi sinum við morðin á fimm Spánverjum, sem ógn- arstjórn Francos drýgði til að refsa mönnunum fyrir morð á þrem lögregluþjónum. Það er nú svo, að dauðarefsingar til- heyra fortiðinni i öllum löndum hins lýðfrjálsa heims og hljóta allir sæmilegir menn að sjá, að það er enginn grundvöllur fyrir þvi að refsa með dauða, þvi með þvi er einfaldlega verið að drýgja sama glæpinn aftur. Þvi væri það mjög eðlilegt framhald að refsa stjórn Francos með dauða og svo koll af kolli. Við verðum að ætla að sú þróun, sem orðið hefur á stjórnarfari i Evrópu, sé jákvæð og þvi eigi einræði og kúgun engan rétt á sér, en allt er þetta sprottið af sliku. í lok klausunnar spyr Halldór, hvort sé ógeðslegra að myrða lögregluþjón eða að refsa morð- ingjanum með lifláti. Ég á ó- mögulegt með að sjá, að annað sé ógeðslegra en hitt. Bæði lög- regluþjónarnir og morðingjam- ir eru lifandi verur og enginn munur er þar á, þvi allir menn eru fæddir jafnir þótt Halldór Pétursson og Franco ætli annað. Með þökk fyrir birtinguna.” Enn: Niður með Fronkó! 4127-3968 skrifar: „Ekki get ég skilið þann hugs- anagang, sem liggur að baki skrifum Halldórs Péturss. i Dagblaðinu þann 3. þessa mán- aðar. Þar leggur hann blessun sina yfir morð fimm manna á Spáni — já ég kalla þetta morð. Ef ég man rétt, þá voru réttar- höldin yfir þessu fólk, að ekki sé meira sagt, vafasöm. Fimm- menningarnir lýstu sig allir saklausa af ákærum stjórnar Francos, sögðu að játningarnar hefðu verið pyndaðar út úr þeim. Ég vona, að þú Halldór Pétursson látir aldrei aftur frá þér fara slik skrif — verja morð mestu afturhaldsst jórnar i Evrópu. Morð verður aldrei bætt með morði, það ættirðu að hafa hugfast, Halldór minn.” Pagblaöiö. Þriöjudagur 14. október 1975. Kattavinafélag ó kvennaóri Dýravinur skrifar „Eins og mörgum mun ef- laust kunnugt hefur Dýra- verndunarfélag Reykjavikur oft mælzt til þess að fólk gefi ekki kettlinga hverjum sem er.Samt má oft sjá þá auglýsta gefins i blöðum .Einnig hafa kattaeig- endur oft verið áminntir um að merkja ketti sina en eigi að siður sjást heimiliskettir ennþá ómerktir á strætum úti og þeir ófáir. Trassaskapur fólks í þess- um efnum virðist þvi eiga sér djúpar rætur. Ekki þarf að fara mörgum oröum um hve mjög það angrar sanna dýravini að sjá flækings- ketti þéttbýlisins hrjáða og hrakta og flestum bjargráðum svipta. Það er eigi sizt af þess- ari ástæðu að sú hugmynd hefur orðið til að stofna beri katta- vinafélag. Nú er það svo. að samfélög manna viða um heim, þó ólik séu, eiga þá sameigin- legu trú að kisa sé konum and- lega skyld. Það væri þvi vel að kattavinafélag yröi stofnað á yf- irstandandi kvennaári. Þó mér sé ógeðfellt að minnast ódæðisverk það, sem fjórir ó- knyttastrákar frömdu á heimilisketti i Grindavik nýlega og sagt var frá i Morgunblaðinu 23. sept., get ég eigi stillt mig um að geta þess lítið eitt. Það er alvarlegt mál þegar varnarlaus dýr eru kvalin til dauða eins og þama átti sér stað. Slikt getur enginn heilvita maður látið sem vind um eyru þjóta. Vissulega er mér sú spurning ofarlega i huga hvort sá möguleiki sé fyrir hendi að glæpamál þetta verði látið niður falla og þögninni ætl- aö að sveipa það huliðsblæju. Getur Dýraverndunarsamband tslands látið þetta afskipta- laust? Óliklegt verður það að teljast. Vist er að glæpaverk hliðstæð þessu stöðvast ekki af sjálfu sér. Það verður að taka i taumana af festu og kasta silki- hönzkunum.” Utanbœjarbílar með ódýrari tryggingu „Lœknaþjónusta ó Hrafnistu" Athugasemd vegna iesenda- bréfs i Dagblaöinu þann 3/10. „A Hrafnistu er einn læknir i fullu starfi, sem sinnir hjúkrunardeildum stofnunar- innar en þar er stór hluti vist- fólks Hrafnistu. Þá er annar starfandi læknir á Hrafnistu i hálfu starfi, sem sinnir öðru vistfólki. Þessir tveirlæknarskiptastá að vera á bakvöktum allan sólarhringinn til að sinna bráðatilfellum. Þess ber einnig að geta, að stór hluti vistfólks Hrafnistu hefur og leit- ar til þeirra heimilislækna, sem það hafði áður en það kom til vistunar á Hrafnistu. Auk þess koma á Hrafnistu reglulega háls-, nef- og augn- læknar. Eins og fram kemur i ofan- greindu er „læknaþjónusta á Hrafnistu” ekki eins takmörkuð og lesendabréf i Dagblaðinu þann 3/10 gefur til kynna.” XXX sendi blaöinu eftirfarandi bréf: ,,Ég las i dagbl. Visi hér ein- hvern tima i sumar eftirfarandi spurningu: „Hvar hafa eigéndur eftirtalinna bifreiða lögheimili, — siðan voru talin upp nokkur bilnúmer, svo sem P-197, Þ-500, S-1015 og H-190 og að ógleymdum öllum D-bilun- um, sem eru hérailt árið um kring að aka fólki i Straumsvfk o.R.?” Þar sem ég hef ekki fundið neitt svar frá fyrrgreindum bflaeigendum langar mig til þess að gera dálitinn lista yfir það hvað við Reykvikingar og hins vegar eigendur þessara bfla greiða i gjöld af bílum sin- um. Við skulum byrja á N-505, sem er Ford Escort og er búinn að vera hér i borginni nokkur und- anfarin ár. Á N-númeri kostar ábyrgðartryggingin 15.800, en ef þessi sami er á R-númeri, kostar tryggingin 24.300. Mis- munurinn er 8.500. Tökum t.d. Toyota Carina, H-565. Trygging hans er 12.000, en ef þessi sami bill væri á R- númeri, myndi tryggingin kosta eigandann 24.300. H-554 borgar 10.100 en þyrfti að borga 20.400, ef hann væri á R-númeri. Þ-848 er búinn að aka um götur Reykjavikur árum saman. Hann greiðir 10.100 fyrir trygg- ingu sina, en hún myndi kosta hann 27.300 væri hann á R- númeri. Sömu sögu er að segja um P-1334, og allar þessar tölur eru án bónus. Nú langar mig til þess að spyrja: Er ekkert eftirlit með þessu, eða geta menn komizt upp með alla hluti? Hvað gerir Bifreiðaeftirlitið i slikum mál- um, eða er bara meiningin að láta þetta danka? Ég mun á næstunni birta númer á öllum þeim utanbæjar- bifreiðum, sem ég hef séð á göt- um Reykjavikur að undanförnu til þess að sýna Reykvikingum fram á hvaða órétti við erum beittir”

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.