Dagblaðið - 14.10.1975, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 14.10.1975, Blaðsíða 24
LOKUÐU VEGINUM MED BÍLUM SÍNUM „Méira að segja sjúkraflutningar eru erfiðleikum bundnir vegna þess að vegurinn er að heita má alveg ó- fær,” sagði Guðmund- ur Sigurðsson i Þor- lákshöfn i viðtali við DAGBLM)IÐ. Þorlákshafnarbúar lokuðu veginum á vegamótum Þor- lákshafnar og Þrengslavegar kl. 22 í gærkvöldi til þess að mótmæla aðgerðaleysi Vega- gerðarinnarí viðhaldi vegarins. Var tveim fólksbilum lagt þann- ig á veginn, að ekki varð komizt fram hjá, nema brýna nauðsyn bæri til. Að sögn Guðmundar hefur vegurinn verið illfær undan- farna daga. Vegagerðin á Sel- fossi hefur daufheyrzt við beiðn- um um vegheflun og ofaniburð. „Þegar við báðumst ásjár hjá verkfræðingi Vegagerðarinnar voru svörin þau, að þeir sendu mann til að skoða veginn. Hann mun hafa sagt að vegurinn væri að visu slæmuren ekki nærri þvi ófær. Fólksbflar lokuðu veginum fyrir allri ónauðsynlegri umferð — næturlangt til að byrja með. Okkur er lofaö vegheflum i dag, en einnig þarf að bera hér ofan i veginn. Hann verður lok- aður þar til bót verður gerð á þessu ófremdarástandi,” sagði Guðmundur að lokum. Ekki kom til átaka eða af- skipta' lögreglu Ut af lokun veg- arins i nótt. A siðasta ári gripu Þorláks- hafnarbúar til þess ráðs að loka veginum á sama hátt og nú var gert og af sömu ástæðu. Siðan hefur nýr vegur verið lagður til Þorlákshafnar, sá með mörgu beygjunum. En það er ekki nóg að leggja vegi á Islandi. Það þarf að halda þeim við. —BS. Áhafnasprúttið: ÞEIR FÁ JAFNVEL 10%AFSLÁTT FRÁ FRÍHAFNARVERÐI Flugáhafnir fá 10% afslátt af frihafnarverði á tóbaki og áfengi. Samkvæmt upplýsing- um Frihafnarstarfsmanna á Keflavikurflugvelli, er þessi af- sláttur kominn til á sérstakan hátt, og var raunar nokkru meiri, eða 30%. Þegar Frihöfnin á Kefla- vikurflugvelli tók til starfa árið 1959, var með ýmsu móti reynt að laða viðskipti til hennar. Meðal annars vár tekið til þess ráðs, að gefa flugáhöfnum 30% afsláttaf öllum vörum. Erlendir flugstjórar ráða nokkru um það, hvar þeir millilenda, og þótti þetta gefa góða raun i sam- keppni við t.d. Shannon-flugvöll á Irlandi. Islenzkar flugáhafnir voru látnar sitja við sama borð og annað flugvéiastarfsfólk. Raunar var þessu breytt fyrir 10-12 árum á þann veg, að af- slátturinn var færður niður i 10% af tóbaki og áfengi en felld- ur niður af öðrum vörum, og er svo enn. Hefur oft komið til tals að af- nema þetta siðleysi, sem engan munar um hvort eð er. — BS- Lánasjóður íslenzkra námsmanna er ennþa galtómur: M R ER FULLKOMLEGA LJÓST, AÐ FÓLK SVELTUR", ' ŒT — rœtt við nokkra námsmenn erlendis —- Þvi miður, það er ekkert hægt að gera, — okkur hefur ennþá ekki tekizt að útvega fjármagn til að mæta fjárþörf sjóðsins, sagði Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráð- herra, er blaðið innti hann eftir horfum á námslánum til náms- manna hér heima og erlendis. — Mér er það fyllilega ljóst að þessi dráttur á útborgun lán- anna kann að hafa slæmar af- leiðingar i för með sér og að fólk kunni að þurfa að herða sultar- ólina um einhvern tima. Ekki gat ráöherra upplýst hvenær möguleiki væri á þvi að hefja greiðslur lánanna né heldur hvort þær gætu hafizt yf- irleitt. — Nefndin, sem sett var á stofn til að kanna leiðir til úr- bóta og endurskoöunar á náms- lánakerfinu hefur nú hafið störf og vonast ég til þess að hægt verði að taka tillögur hennar til umræðu nú á fyrri hluta þessa þings, sagði Vilhjálmur ennfremur. — Vonast ég til þess að þá fari hlutirnir að lagast og að kjör námsmanna batni. Stangast vonir menntamála- ráðherra þó verulega á viö gerðir fjármálaráðherra, sem hefur i hinu nýja fjárlagafrum- varpi farið fram á niðurskurð fjármagns til sjóðsins, sem fel- ur i sér allt að 50% skerðingu á kjörum námsmanna frá þvi sem verið hefur undanfarin ár og hefur það nú ekki verið mik- ið. Dagblaðið kannaði ofurlitið ástand fjármála hjá náms- mönnum og fjölskyldum þeirra erlendis og höfðum við m.a. samband við Hörð Halldórsson tæknifræðinema i Arósum i gær. Sagði hann að ekki mætti drag- ast úr hófi að lánin kæmu og alls ekki lengur en til mánaða- móta. Taldi hann að dráttur þessi kæmi án efa verst niður á einhleypum, þar eð i nokkuð mörgum tilfellum hefði eigin- konum námsmanna þar tekizt að verða sér úti um einhverja vinnu, s.s. skúringar og annað i nokkra tima á viku og drýgði það að vonum krónurnar. Jón Gislason, nemi i Osló, sagði að hann ætti rétt tæpar tiu krónur i vasanum og væri satt aö segja ekki tilbúinn til þess að segja hvað til bragðs skyldi taka. — Hér rikir megn óánægja með seinagang þennan, sagði Jón. — Fólk vili ógjarna fara að svifa á nágrannana og snapa lán svo að bankar eru eina leiðin. Ekki eru þeir aliir auðfúsir að lána eigna- lausum útlendingum peninga, enda skiljanlegt. Taldi Jón þetta framkvæmdaleysi stjórnvalda um útvegun fjármagns fyrir neðan ailar hellur og að heldur hefðu þau gengið á bak orða sinna, þegar tillit væri tekið til þess að þau hefðu meira að segja lofað greiðslu fyrri hluta haustlána um miðjan september en greinilega hunz- að málið algjörlega. — Sumarhýran er að ganga til þurrðar hjá flestum, sagði Valdimar Harðarson, nemi i arkitektúr i London, er við höfð- um samband við hann. Astandið er þvi verulega slæmt hjá flest- umog eru menn viö sulti bornir. Sagði Valdimar það Ijóst að flestir yrðu orönir peningaiausir um næstu mánaðamót og væri þegarorðinnkurrmikilli röðum námsmanna. Hefðu mótmæla- aögerðir nú þegar verið ræddar og taldi hann að draga kynni til tiðinda, — mótmælagangna og jafnvel vandalisma, eins og hann komst að orði, ef ekki yrði úr þessum málum bætt hiö skjótasta. — Ég borga 435 kr. danskar i húsaleigu. en á um 400, sagöi Salvör Aradóttir nemi er við höfðum samband við i húsi Jóns Sigurðssonar i Kaupmanna- höfn.” Ég býst þvi við að tölu- veröur haili verði á minum reikningum, er þeir verða gerð- ir upp. Þó stend ég betur en margir aðrir. Að sögn Salvarar eru urn 200 manns við nám i Kaupmannahöfn og taldi hún sig geta ábyrgzt, að ástandið væri verulega slæmt og þörf væri mjög skjótra úrbóta. —III*— frjálst, úháð dagblað Þriðjudagur 14. október 1975. Eldavélarnar í Þjóðleikhúsinu: Fjórmagns- skortur hef ur tafið úrbœtur Vegna brunans i Þjóðleikhúsinu á sunnudagsmorguninn vakna ýmsar spurningar, svo sem hvort eldvarnir hússins séu nógu góðar. Að sögn fróðra manna vantar töluvert upp á að svo sé. Húsið er orðið gamalt, og þegar það var teiknað um 1930, þá voru allt aðrar kröfur gerðar til eldvarna en nú er. Eldvarnaeftirlit Reykkjavikur hefur fyrir löngu gert ráða- mönnum hússins aðvart um, að ekki sé allt i lagi, en ýmislegt hefur tafið úrbætur, til dæmis fjármagnsskortur. Hins vegar má fullyrða að bruninn á sunnu- daginn hafi opnað augu manna fyrir þvi, að nú þurfi eitthvað að fara að gera áður en stórslys hlýzt af. —AT— ,,/Etlum ekki í dómsmól" — segir Byggingar- samvinnufélag atvinnu- bifreiðastjóra „Við ætlum okkur ekki að reka mál fyrir dómstólum fyrir Verð- lagseftirlitið”, sagði Óskar Jóns- son, framkvæmdastjóri Bygg- ingasamvinnufélags atvinnubif- reiðastjóra, i viðtali við DAG- BLAÐIÐ. „Við ætlum að minnsta kosti fyrst að sjá það svart á hvitu, hvort rangir útreikningar byggingameistara hafa j meira en tvö ár farið i gegnum verðlags- eftirlitið athugasemdalaust.” Stjórn BSAB var að fara á venjulegan mánaðarlegan stjórn- arfund i morgun, þegar frétta- maður DAGBLAÐSINS náði i Óskar Jónsson, framkvæmda- stjóra. Hann sagði, að þettá mál væri ekki sérstaklega á dagskrá fundarins. „Okkur finnst ótrúlegt að svona geti skeð,” sagði óskar, ,,og það er óhætt að lofa þeim að skjóta fyrstu skotum. Ef þetta er stað- reynd, þá ætlum við fyrst að sjá, hvað verðlagsyfirvöld gera i mál- inu,” sagði Óskar að lokum. Athugun verðlagsstjórans hef- ur leitt i ljós, að byggingameist- arar hafa i heimildarleysi lagt alít að 4% á launatengda kostnað- arliði við útreikning ákvæðis- vinnu, eins og DAGBLAÐIÐ hef- ur skýrt frá. Deildarforsetar og þingflokkaformenn A þingfundum i gær var Asgeir Bjarnason (F) kjörinn forseti Sameinaðs þing og varaforseti var kjörinn Gils Guðmundsson (Ab). Forseti neðri deildar var kjörin Ragnhildur Helgadóttir (S) og varaforseti Magnús Torfi Ólafsson (SFV). I efri deild var Þorvaldur Garðar Kristjánsson (S) kjörinn forseti og varaforseti Eggert Þorsteinsson (A). A fundum þingflokkanna var Þórarinn Þórarinsson kjörinn formaður þingflokks Framsókn- arflokksins, Karvel Pálmason formaður þingflokks Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, Gunnar Thoroddsen formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, formaður þingflokks Alþýðu- bandalagsins er Ragnar Arnalds og formaður þingflokks Alþýðu- flokksins er Gylfi Þ. Gislason. —HP

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.