Dagblaðið - 15.10.1975, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 15.10.1975, Blaðsíða 4
Dagblaðiö. Miðvikudagur 15. október 1975 Þœr koma nœstar á eftir Pöpum — fimm írskar nunnur setjast hér að A myndinni sjáum við nunnurnar fimm, systir Anna haflU brugðið sér frá og gat þvf mlftur ekki veriö meö á myndinni. (DB-mynd Björgvin) LÉNHARÐUR FÓGETI, HINN DÝRI, SÝNDUR Á ÖLLUM NORÐURLÖNDUNUM Fyrsta irska einsetufólkið i rúmlega ellefuhundruð ár kom &■ þessu ári til íslands, þrjár nunnur i júli og aðrar þrjár i september. Eru nunnurnar komnar hingað til ársdvalar til að byrja með en að árinu loknu eiga þær að gera upp hug sinn um hvort þær vilja setjast hér að til fram- búðar. Systurnar sex heita: Nellie, Deirdre, Maud, Anna, Teresita og Ita. Sem stendur starfa þær allar að hjúkrun i sánkti Jóseps spitala I Hafnarfirði, þær eru lærðar hjúkrunarkonur og tvær þeirra eru auk þess kennslukonur. Þær munu svo, þegar valdi á is- lenzkri tungu er náö, hefja kennslustörf. Við heimsóttum nunnurnar fyrir skömmu og tókum þær tali. Við rákum augun i bók á borðinu hjá þeim „Teach your- self Icelandic” kváðust þær styðjast viö þá bók auk þess sem þær nytu tveggja tima kennslu i islenzku á viku. Eru þær ánægðar með dvölina hér, enn sem komið er, rómuðu gestrisnina og hiýtt viðmót þeirra er þær höfðu átt sam- skipti við. Hvort þær söknuðu einhvers? Jú, að visu, ættingja sinna og tungumálsins. Einnig væri maturinn á margan hátt frábrugðinn þvi er þær áttu að venjast. Veðrið? Sumarið i sumar á Irlandi var ekki neitt þjóðhátiðarsumar i ár fremur en hér. Sögðu þær jafn kalt hafa verið á írlandi þegar þær héldu þaðan og þegar komið var til Islands. Rigningasamt væri á eyjunni grænu, Irlandi, ekki siður en á tslandi. Þegar hugmyndin kom upp i reglu þeirra á trlandi að senda nokkrar hjúkrunarkonur til tslands var i fyrstu óskað eftir sjálfboöaliöum og buðu sig nokkuð margar fram. Voru þaö þær sex sem fóru sem nokkurs- konar frumherjar og ef áfram- hald veröur á dvöl þeirra á Islandi eftir fyrsta reynsluárið munu væntanlega koma fleiri á eftir og þá e.t.v. einnig prestar. t irsku dagblaði var íarar þeirra systranna getið og viðtal við yfirmann þeirra, dr. Daly biskup i Derry. I viðtalinu lýsti hann ferð þeirra systranna til tslands sem erfiðri för og sagöi: „A lslandi er ekki sú sama hætta fyrir hendi og vlða annars staöar á hinum ýmsu sjúkdómum og veikindum,” og bætti svo við: „1 háþróuðu sam- félagi eins og á tslandi, þar sem áhrif kirkju vorrar eru þverr- andi, er aftur á móti fólgin hætta fyrir andann.” Þegar við sögðum nunnunum frá þessum ummælum bisk- upsins við irska blaðamanninn kváðu þær það rétt að sam- nunnur þeirra sem sendar höfðu verið til Afriku, hefðu fengið marga illkynjaöa sjúkdóma en að siðari hluta svars biskups þeirra gátu þær ekki annað en brosað og kváðust ékki háfa orð1 ið varar þeirrar andlegu hættu sem biskupinn minntist á og þó svo væri, þá óttuðust þær hana ekki, sögðu þessar ungu og glað- legu stúlkur okkur að lokum. Sjónvarpið hefur selt leikritið „Lénharður fógeti” til sýninga á Norðurlöndum og standa yfir athuganir á möguleikum til sölu þess til annarra landa. „Lénharður verður fyrst sýndur núna á næstunni 1 Noregi og siðan taka hin löndin hann til sýningar hvert af öðru, sagði Jón Þórarinsson, yfirmaöur Lista- og skemmtideildar Sjón- varpsins I viðtali við Dagblaðið. „Ýmsir aðrir aðilar hafa látið i ljós áhuga á aö fá leikritiö til sýningar og vonum við að svo verði raunin.” Sagði Jón enn- fremur að allmikið samninga- þref væri i kringum sölu á myndinni, enda væri hún og þá einnig Brekkukotsannáll, að visu óbeint, kveikjan að fyrstu viðskiptum íslands á alþjóða- markaöi á þessu sviði og hefði þvi reynzt nauðsynlegt að gera fyrsta grundvallarsamning við leikara og aðra aðstandendur listaverka um rétt þeirra i þvi sambandi. „Löndin greiða ákaflega mis- jafnar upphæðir fyrir sýninga - réttinn,” sagði Jón. „Fer það veröeftir viðtækjafjölda þar þvi þeir hafa ekki fast verö, eins og við.” Taldi Jón flest viðskipti okkar viö Norðurlöndin okkur i hag, við fengjum yfirleitt miklu meira fyrir okkar snúð, allt upp i fjögur erlend leikrit fyrir eitt islenzkt. Heyrzt hefur að sala á leik- ritinu „Veiðiferð I óbyggðum” sem gert er eftir handriti Hall- dórs Laxness.gangi erfiðlegaen Jón sagðist ekki hafa áhyggjur af þvi máli, enda væri sannleik- urinn sá að vegna þess að Noröurlöndin væru öll að sýna Lénharð fógeta um þessar mundirmætti segja að markað- urinn væri mettaður. Heföi leik- ritiö veriö sýnt fulltrúum sjón- varpsstöðva Norðurlandanna og þeirlátið I ljósáhuga, en ákveð- ið að taka Lénharö fyrst til sýn- inga og sjá svo til. „Norðmenn eiga t.d. ennþá inni eitt ósýnt leikrit frá okkur,” sagði Jón að lokum. Ríkisskattstjóri fœr eitt bréfið enn: Starfsmenn Tryggingqnna styðjq Bolvíkingq Starfsmannafélag Trygginga- stofnunar rikisins tekur undir kröfur Bolvikinga og annarra um leiðréttingu á ranglátri skattalöggjöf. A félagsfundi starfsmannafé- lagsins var eftirfarandi ályktun gerð: Stjórn og félagsfundur Starfs- mannafélags Tryggingastofn- unar rikisins fagnar frumkvæði 50skattgreiðenda i Bolungarvlk er þeir rituðu skattstjóra Vest- fjarðaumdæmis bréf og mót- fmæltu óréttlátri skattalöggjöf. Félagið tekur af alhug undir sanngjarnar kröfur þeirra Bol- vikinga og annarra sem fylgt hafa þeim eftir og hvetur skatt- greiöendur i landinu til að láta ekki staðar numið fyrr en leið- rétting hefur fengizt og menn greiða gjöld sin til þjóðfélagsins i samræmi við raunverulegar tekjur. Alyktun þessa sendi starfs- mannafélagið til rlkisskatt- stjóra. —BS— Kjarvals- sýning utan Kjarvals staða ,,Ég held að ekkert hafi verið reynt til þess að fá inni á Kjar- valsstöðum fyrir þessa sýningu,” sagöi Sveinn Kjarval i viðtali viö DAGBLAÐIÐ, er fréttamaður spurði hann um Kjarvalssýning- una, sem nú á að halda. 54 myndir, sem flestar hafa fundizt i kössum og handröðum eftir lát listamannsins, verða á þessari sýningu. Flest eru þetta teikningar, sem Jóhannes Sveins- son Kjarval gerði á árunum allt frá 1911 og fram til slðustu daga sinna. Hann andaðist 13. april 1973 en hefði orðið niræður mið- vikudaginn 15. október i ár. Að sýningunni standa börn listamannsins, Asa Lökken Kjar- val og Sveinn Kjarval og þeirra börn. Verður hún haldin að Brautarholti 6 á 3. hæð. —BS. Sveinn Kjarval stendur hér vio gamla sjálfsmynd föður slns á sýningunni

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.