Dagblaðið - 15.10.1975, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 15.10.1975, Blaðsíða 24
„VIÐ HOLDUM f AUSTURÁTT" Skipstjóri á þýzkum togaraí morgun „Skipstjórinn segist vera að veiðum... Við höldum núna F austur- átt..: Við gefum ekki upp hvert við ætlum... Mér þykir það leitt, við getum ekkert frekar um málið sagt." Þetta fékkst út úr samtali, er Dagblaðiö náði við þýzka togar- ann Eckernförde rétt fyrir kl. 10 i morgun. Rætt var við loft- skeytamanninn og hann kallaði svo i skipstjórann og flutti svör hans. — Eruð þið að veiðum núna? — Skipstjórinn segist vera að veiðum. — Eruð þið við Reykjanes, SV-af landinu? — Við höldum i austurátt, segir skipstjórinn. — Eruð þið á leið út fyrir 200 milur? — Við gefum ekki upp hvert við ætlum, segir skipstjórinn. — Eruð þið búnir að vera lengi á þessum sömu lóðum? — Mér þykir það leitt... skip- stjórinn vill ekkert láta eftir sér hafa, I am sorry. —A.St. Sjómenn mótmœla fiskverði: UM AÐ LOKA HAFNAR- í REYKJAVÍK HAFA RÆTT KJAFTINUM Sjómenn mótmæla fiskverði og lýsa vantrausti á fulltrúa útgerð- armanna, sjómanna og odda- mann i Verðlagsráði sjávarút- vegsins. Ahafnir 119 fiskiskipa allt i kringum land, sendu sjávar- útvegsráöherra skeyti i gær- morgun, þar sem þetta kemur fram. Mótmæla sjómenn þeirri kjaraskerðingu, sem þeir telja sig verða að þola vegna óhagstæðrar stærðarflokkunar á fiski og ört minnkandi aflamagni, og svo hins, að sjómenn fái ekki raun- verulegt verð til skipta. „Krefjumst við lagfæringar á fiskverði okkur til hagsbóta og teljum hæfilegan frest eina viku, svo róðrar falli ekki niður og öll forsenda hlutaskipta sé ekki al- gjörlega brostin”, segir i skeyti sjómanna til sjávarútvegs- ráðherra. Einn sjómanna er ræddi við Dagblaðið kvað mikinn urg út af fiskverði og i talstöðvum bátanna siðustu daga hefði verið rætt um að sigla skipunum til Reykjavik- ur og loka innsiglingunni i höfnina til að undirstrika mótmælin á svipaðan hátt og danskir sjómenn gerðu i sumar. —BS— TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN! Island hefur margfaldazt að stærð i dag, þegar 200 sjómilna landhelgin er orðin að veru- leika. Sjávarsvæðið við Island eitt saman verður nær fjórum sinnum stærra en fyrr, eða 3,6 sinnum stærra. Landsmenn fögnuðu i morgun útfærslunni. Viða um land var islenzki fáninn við hún i morg- unsárið, og menn heyrðust óska hver öðrum til hamingju. Undir þessari útfærslu landhelginnar og framkvæmd gæzlu á henni eru framtiðarhorfurnar mjög komnar. DB-MYNDIR, Bjarnleifur: Þeir voru að flagga hjá prent- arafélaginu i morgun (eindálka myndin), og á Látraströnd á Seltjarnarnesi var heil fánaborg eins og sjá má. BRETINN VERÐUR AÐ FLÝJA INN FYRIR 50 MÍLURNAR Brezkir togarar verða nú að flýja inn fyrir 50 milna mörkin, ef þeir ætla ekki að gerast land- áelgisbrjótar samkvæmt nýju útfærslunni, og út fyrir 12 milna mörkin. Samkvæmt núgildandi fisk- veiðisamningum milli Islend- inga og Breta hafa brezkir tog- arar leyfi til að veiða á tiltekn- um svæðum á milli 12 milna markanna og 50 milna mark- anna, en hvorki fyrir innan þessi mörk né utan. Gildir þessi samningur tij 13. nóvember næstkomandi. Með nýju útfærslunni i 200 milur, er þvi komin upp sú staða, að brezkir togarar, sem i gærkvöldi voru að veiðum um io milum utan við 50 milna mörk- in, verði nú að fara inn fyrir þá markalinu til að veiða þar. —BS- frýálst, nháð dagblað Miðvikudagur 15. október 1975 Stal kopar- vír fyrir 79 þús. kr. Á föstudaginn sigldi Laxá úr Sundahöfn og meðal farms skipsins voru um 20 tonn af kopar og eirvir, sem seld eru utan i bræðslu. Lögreglan komst i þetta mál á siðustu stundu vegna gruns um ólög- legan útflutning. 1 ljós er nú komiö að 790 kg af þessum farmi var notaður koparvir úr loftlinum, sem var i eigu Landssima Islands, en hafði verið stolið og seldur i brotakopar. Verðmæti þess magns er 79.000 kr og hefur sá er seldi vlrrúllurnar játað stuldinn. Rannsókn málsins var ekki að fullu lokið i gær en enginn gæzluvaröhaldsdómur hefur fallið. —ASt. 24. október og konurnar: ERLENDIR FJÖLMIÐLAR ÁHUGASAMIR og mikill stuðningur við verkfallið Kvennaverkfallið 24. október hefur þegar vakið niikla athygli erlendis. Vitað er að erlendir blaðamenn koma hingað og sagði Vilborg Harðardóttir i morgun að f jöl- miðlahópi Kvennafrisnefndar- innar hefði borizt vitneskja um tvo norræna blaðamenn, sem hingað kæmu, en án efa yrðu þeir miklu fleiri. Vilborg kvað stuðning við kvenna- verkfallið fara stórlega vax- andi. Hvaðanæva bærust stuðningsyfirlýsingar, frá verkalýðsfélögum, starfshóp- um, pólitiskum félögum, allt frá sjálfstæðisfólki til eining- arsamtaka kommúnista og allt þará milli. Þá hefðufram- kvæmdanefndinni borizt fjár- framlög frá hinum ólikustu aöilum. —JBP— FÆR RÚMA MILLJÓN FYRIR NEFNDASTÖRF HJÁ RÍKINU — en Jóhannes Nordal er skœður keppinautur Guðmundur Skaftason nefnda- kóngurinn í ór: Guðmundur Skaftason, fyrr- verandi skattrannsóknastjóri var i efsta sæti nefndakónganna áriö 1974. Þessi siðbúna ^Viður- kenning er með þeim fynrvara, að innifaiin i nefndaþóknun til Guðmundar eru laun hans fyrir störf, sem hann vann fyrir rikis- skattanefnd. Samkvæmt skýrslu um stjórnir, nefndir og ráð rikisins árið 1974 hafði Guðmundur Skaftason samtals kr. 1.066.808.00 fyrir hvort tveggja. Næstur kemur Jóhannes Nor- dal, bankastjóri, með kr. 742.954.00, og eru áhöld um, hvor fær hærri nefndaþóknun, þegar launahluti Guðmundar er hafðuri huga. Jón Sigurðsson, forstöðumað- ur Þjóðhagsstofnunar, fékk kr. 563.884.00 fyrir nefndastörf, Þorsteinn Geirsson, skrifstofu- stjóri i fjármálaráðuneytinu, kr. 529.300.00, Gunnar Guð- bjartsson, formaður Stéttar- sambands bænda, kr. 502.803.00, Guðlaugur Þorvaldsson, há- skólarektor, kr. 498,579.00^ Ingi R. Helgason, hæstaréttarlógm. kr. 489.579.00, Ragnar Olafsson, hæstaréttarlögm. kr. 473.009.00 Helgi Bergs, bankastj. kr. 441.625.00, Daviö Ólafsson, bankastjóri, kr. 388.165.00, Jón Skaftason, alþingismaður, kr. 380.020,00, Gisli Blöndal, for- stöðumaður hagsýslustofnunar fjármálaráðuneytisins, kr. 358.084,00, og ioks teljum við upp Jónas Haralz, bankastjóra, meö kr. 327.036,00 fyrir nefnda- störf á vegum rikisins. Þriðjungur launaöra nefnda hafði enga þóknun fengið fyrir árið, sem skýrslan greinir frá. Er þvi skýrslan að þvi leyti ó- fullnægjandi. Augljós er vax- andi tilhneiging til að geta þeirrar staöreyndar fremur en þess, hversu mikil laun nefnd- armanna voru. Skýrslan greinir frá 2.292 nefndarmönnum i 466 nefndum, ráðum og stjórnum rikisins árið 1974. Rúmlega 40 nefndir eru ó- launaðar eða Iaunaðar af öðrum en rikinu. 141 nefnd hafði ekki fengið neina þóknun greidda fyrir árið 1974. Hafa ráðuneyti þau, sem bjuggu gögnin I hendur útgef- anda skýrslunnar, ekki séö á- stæðu til að geta þeirra og ekki heldur, hvers nefndarmenn eiga að gjalda fremur en hvað þeim var goldiö. —BS—

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.