Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 15.10.1975, Qupperneq 14

Dagblaðið - 15.10.1975, Qupperneq 14
14 Dagblaöið. Miövikudagur 15. október 1975 FRAMLEIÐA TRÉSMÍÐA- VÉLAR Á HEIMAMARKAÐ — og hugsa til útflutnings á bókbandsvélum til Danmerkur Neyöin kennir naktri konu að spinna, segir máltækið og á þessum tfmum gjaldeyrisvand- ræða eru allar ráðstafanir, er spara hann, vel þegnar. Fyrir- tækið Stálvirkinn hf. hefur und- anfarin ár framleitt eftir teikn- ingum Alexanders Sigurðssonar vélar til ýmissa léttari iðn- greina, s.s. bókbands og tré- smíöa. Auk þess hefur fyrirtæk- ið framleitt vélar sem létta dekkjaviðgerðamönnum verk sitt. Sveinn Gústavsson fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins sýndi okkur fjórar nýjustu gerð- ir véla sem fyrirtækið hefur rní á boðstólum, fjölblaðsög, bókar- kjölskerara, bókarpressu og sið ast en ekki sizt svonefnda spón- skurðarsög sem breyta má i plötusög. „Helztu kostir við þessa vél eru þeir aö sagarblaðið er sjálf- virkt og hægt er með einu hand- taki að breyta söginni i plötu- sög,” sagði Sveinn. „Auk þess er vélin ódýrari en eríendar vél- ar svipaörar tegundar og er þvl hentug fyrir smærri fyrirtæki.” Sveinn sagði það helzt ábend- ingar viðskiptavina og eftir- spurn sem hefði valdið þvi að fyrirtækiö hefði farið út I fram- leiöslu þessara véla. Hefðu þær venjuiega verið pantaðar fýrir- fram en vegna hagræðingar i framleiöslu ættu þeir nú jafnan nokkrar vélar á lager. Þó kvaðst Sveinn búast við þvi að flestar spónskurðarvélarnar mundu seljast innan skamms og bætti við að vegna hagstæðs verös á bókbandsvélunum væru þeir nú i sambandi við danska aðila er áhuga hefðu á þvi aö flytja inn þær vélar til Dan- merkur. HP Kaupmenn athugið Til sölu er frystiklefi, 21 rúmmetri, flytj- anlegur hvert sem er. Upplýsingar i sima 82153 eftir kl. 19. ' Úrvals k jötvöru r og þjónusta AVALLT EITTHVAÐ gott í matinn Stigahlíð 45-47 Sími 35645 Lánasjóðurinn: FULLTRÚAR NÁMSMANNA SEGJA SIG ÚR STJÓRN í MÓTMÆLASKYNI Spónskuröar- og plötusög Alexanders Sigurössonar — fyiliiega sambærileg viö erlendar vélar af svip- aöri gerö. DB-mynd: —BP HUSLER KOMINN AFTUR Einnig: Penthouse, Playboy, Club o.fl. amerísk timarit fiOftA HUSIÐ LAUGAVEGI 178. Allir fulltrúar námsmanna i stjórn Lánasjóðs islenzkra námsmanna lögðu niður störf i sjóðstjórn i gær I mótmælaskyni við aðgerðir og afstöðu stjórn- valda gagnvart L.I.N., sem þeir telja alófæran að gegna þvi hlutverki er honum ber við núverandi ástand. „Til að bæta gráu ofan á svart,” segir i bókun er þeir lögðu fram á fundi sjóðstjórnar i gær, „hefur fjármálaráðherra nú lagt fram fjárlagafrumvarp á Alþingi, sem felur i sér fólsku lega árás á kjör námsmanna. Ef þetta frumvarp nær fram að ganga þýðir það um það bil 50% skerðingu, frá þvi sem verið hefur undanfarin 2 ár, á námsaðstoð til þeirra 3500 námsmanna og fjölskyldna þeirra sem eiga lifsafkomu sina að verulegu leyti undir L.l.N. meðan á námi þeirra stendur.” Segja fulltrúarnir viðkomandi ráðuneyti hafa haft fullkomnar upplýsingar um fjárþörf sjóð- sins og skuldbindingar fyrir- liggjandi mánuðum saman en ekki sé sjáanlegt að neitt hafi verið aðhafzt til þess að leysa þau vandamál. Muni þeir ekki hefja störf i sjóðstjórn fyrr en breyting hafi, orðið þar á. HP KJARABARÁTTUNEFND LÝSIR YFIR STUÐNINGI SÍNUM Kjarabaráttunefnd, sem er samstarfsnefnd allra náms- manna er njóta eiga náms- iána, hefur samþykkt ályktun þar sem hún lýsir yfir stuðningi sinum við aðgerðir fulltrúa námsmanna i sjóðs- stjórn Lánasjóðs islenzkra námsmanna. 1 ályktuninni eru rakin svipuð atriði og greint er frá I bókun fulltrúa náms- manna i sjóðsstjórninni en jafnframt telur kjarabaráttu- nefnd einsýnt að námsmenn muni á næstu dögum gripa til aðgerða til að verja kjör sin. HP HOFUM KAUPANDA AÐ TVEIM ÍBÚÐUM í SAMA HÚSI ÚTBORGUN 10-10,5 MILU. FASTEIGNASALA, Laugavegi 17, 2 hæð Pétur Axel Jónsson simi 28311. Kaupfélagið með nýjungar: HAGKAUPSSNIÐ Á NÝRRI MATVÖRUBÚÐ „Fólk kann auðsjáanlega að Gunnarsson verzlunarstjóri i meta þetta nýja fyrirkomulag i hinni nýju verzlun Kaupfélags verzlunarháttum,” sagði Magnús Suöurnesja, sem hlotið hefur Starfsfólk Sparkaups I hinnl nýju verzlun f Keflavfk (DB-mynd: Magnús Gislason). nafnið Sparkaup og er við Hring- brautina i Keflavik. „Það hefur flykkzt hingað til að verzla i langtum rikarimæli en við reikn- uðum með. Kaupfélagið hefur jafnan geng- ið á undan með nýja verzlunar- hættiá Suðurnesjum og Sparkaup er verzlun með svokölluðu vöru- markaðssniöi sem mjög ryður sér til rúms viðast hvar. Vörumerk- ingar eru þannig að merkt er með tveimur verðum, leyfilegu verði og svo söluverði. Vöruverð er lægra á flestum tegundum, allt að 10% lægra. Engin afgreiðsla er i búðinni. Þetta hús er hið fyrsta sem byggt er eingöngu til slikrar verzlunar,” sagði Magnús verzlunarstjóri. —EMM

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.