Dagblaðið - 18.10.1975, Side 6
6
Dagblaöiö. Laugardagur 18. október 1975.
mmiABiB
frjálst, úhád dagblað
(Jtgefandi: Dagblaöiö hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfuiltrúi: Haukur Helgason
íþróttir: Hallur Slmonarson
Hönnun: Jóhannes Reykdal
Blaöamenn: Asgeir Tómasson, Atli Steinarsson, Bragi Sigurösson,
Erna V. Ingólfsdóttir Hallur Hallsson, Helgi Pétursson, ólafur
Jónsson, Ómar Valdimarsson.
Handrit: Asgrlmur Pálsson, Hildur Gunnlaugsdóttir,
Guömannsdóttir, Maria ólafsdóttir.
Ljósmyndir: Bjarnleifur Bjarnleifsson, Björgvin Pálsson
Gjaldkeri: Þráinn Þorleifsson
Auglýsingastjóri: Asgeir Hannes Eirfksson
Dreifingarstjóri: Már E.M. Halldórsson
Askriftargjald 800 kr. á mánuöi innanlands.
i lausasölu 40 kr. eintakiö. Blaðaprent hf.
Ritstjórn Siöumúla 12, simi 83322, auglýsingar, áskriftir
greiösla Þverholti 2, slmi 27022.
Inga
og af-
Úrkynjaðir lífeyrissjóðir
Þegar verðbólgan fer yfir 40% og
jafnvel yfir 50% eins og verið hefur
hér á landi um tveggja ára skeið, sést
á óskemmtilegan og átakanlegan
hátt, hve ófullkomið er kerfi is-
lenzkra lifeyrissjóða. Þeir valda eng-
an veginn þvi meginhlutverki sinu að
sjá sjóðfélögum fyrir sómasamlegum
ellilifeyri.
Flestir sjóðanna stefna að þvi að greiða sjóðfélög-
um i mánaðarleg eftirlaun sem svarar 60—70% af
launum þeirra siðustu árin i starfi. Þetta væri út af
fyrir sig sómasamlegt, ef verðbólgan kæmi ekki til
skjalanna. Upphæð eftirlauna stendur i stað, meðan
laun og verðlag rýkur upp.
Eftirlaunin eru nægileg i aðeins nokkra mánuði
eftir að menn hætta störfum. Raungildi eftirlaun-
anna minnkar jafnt og þétt i samanburði við laun
starfandi fólks. Um þetta má setja fram skýrt
dæmi:
Maður, sem nú hættir störfum, hefur haft 100.000
krónur á mánuði og fær 60.000krónur i eftirlaun.Við
gerum ráð fyrir, að 50% verðbólga haldi áfram
næstu árin. Eftir ár er 60.000 króna lifeyririnn
orðinn 40.000 króna virði. Eftir tvö ár er hann orðinn
27.000 króna virði. Eftir þrjú ár 17.000 króna virði.
Og eftir aðeins fjögur ár er ellilifeyrir mannsins
kominn niður i 12.000 krónur á núverandi verðgildi.
Ljóst er af þessu, að við núverandi verðbólgu tek-
ur það aðeins tvö eða þrjú ár að ónýta ellilifeyrinn.
Við hægari verðbólgu tekur það lengri tima, en
verkar samt á sama veg.
Undanþegnir þessu böli eru rikisstarfsmenn. Lif-
eyrissjóðir þeirra eru verðtryggðir á kostnað skatt-
greiðenda. Venjulegir lifeyrissjóðir, sem byggðir
eru upp af vinnuveitendum og launþegum, geta ekki
seilzt með slikum hætti i vasa almennings. Þeir
verða þvi að finna sér aðra lausn.
í samtökum verzlunarmanna hafa á undanförn-
um mánuðum verið að ryðja sér til rúms hugmynd-
ir um breytt form lifeyrissjóða. Þessar hugmyndir
unnu mikinn sigur á nýafstöðnu þingi Landssam-
bands islenzkra verzlunarmanna, þar sem gerðar
voru ýtarlegar samþykktir um lifeyrismál.
Verzlunarmenn vilja leggja niður þá hugmynd,
að lifeyrissjóðsþegar séu að safna i sjóð til sinna
eigin elliára. í stað þess verði sjóðirnir eins konar.
gegnumstreymissjóðir. Tekjur sjóðanna frá starf-
andi félagsmönnum verði jafnskjótt notaðar til að
greiða þeim félagsmönnum, sem hættir eru störfum
fyrir aldurs sakir. Jafnframt hætti sjóðirnir að úr-
kynjast i þá átt að verða ibúðalánasjóðir.
Ef lifeyrissjóðirnir i hinu breytta formi hafa efni
á að lána fé til ibúða eða annars, þurfa þau lán að
vera visitölutryggð, svo að ekki sé verið að brenna
upp peningum á kostnað þeirra, sem i framtiðinni
munu þurfa að fá ellilifeyri úr þessum sjóðum.
Þessi hugmynd verzlunarmanna er ekki einungis
mjög athyglisverð, heldur virðist hún einnig eina
raunhæfa leiðin til að gera lifeyrissjóðum kleift að
gegna þvi hlutverki, sem þeir eru stofnaðir til að
gegna.
r
Umfangsmikil „fín-
pússning" sœnska vel-
ferðarþjóðfélagsins
Fínpússning sænska velferð-
arþjóöfélagsins heldur áfram og
nú siöast meö þvi aö verkalýös-
félögin munu áður en langt um
liöur standa jafnfætis fram-
kvæmdastjórnum við stjórn
fyrirtækja.
Samkvæmt frumvarpi, sem
fljótlega verður lagt fyrir
sænska þingiö, veröur verka-
lýösfélögum heimill aðgangur
aö öllum skjölum og gögnum
um rekstur fyrirtækja og alla á-
kvaröanatöku þar aö lútandi.
Þetta mun einnig eiga viö um
fyrirtækisleyndarmál.
Verkalýösfélögunum verður
heimilt, skv. frumvarpinu, að
semja um hlutdeild sina I stjórn
fyrirtækja, bæöi einkafyrir-
tækja og rikisfyrirtækja. Verk-
fallsréttinum halda félögin jafn-
vel i tilfellum, þegar i gildi eru
heildarkjarasamningar sem
vinnuveitendur vilja ekki ræða
um endurskoöun á.
Frumvarpiö er hluti lang-
timaáætlunar sem’ætlað er að
jafna enn velferðina. Er hún þó
talin allnokkur — og Sviþjóð
raunar einskonar dæmi fyrir á-
gætlega heppnaöan sósialisma.
Olof Palme forsætisráöherra
hefur lýst þessari áætlun sem
þriðja þættinum i langri baráttu
Svia fyrir umbreytingu auð-
valdsþjóöfélagsins I þjóðfélag
jafnréttis og lýðræöis.
Sex stunda vinnudagur
Þessi nýju markmiö voru
kynnt á landsfundi sænska Jafn-
aöarmannaflokksins, stjórnar-
flokks um áratuga skeiö. Þar
var einnig kynnt áætlun um að
veita um það bil 7 milljörðum
Isl. króna á næstu fimm árum til
daggæzlu barna og félagsmið-
stöðva fyrir börn eftir skóla-
tima.
Flokkurinn hefur einnig heitið
þvi aö beita sér fyrir 6 stunda
vinnudegi foreldra barna sem
ekki hafa enn hafið skólagöngu.
Sú áætlun verður jafnvel komin
til framkvæmda I árslok 1978.
Auk þessa munu foreldrar ung-
barna njóta ýmissa annarra
friðinda.
Heildaráætlunin, sem allt
þetta er hluti af, er til þess gerð
að móta hugsanagang jafnaðar-
stefnunnar næstu 10-12 ár.
Sænski jafnaðarmannaflokk-
urinn hefur veriö viö völd siöan
1932. Palme sagði i ræöu á
landsfundinum að flokkurinn
hefði náð fyrsta áfanganum I
stjórnmálalegri baráttu sinni
snemma á þessari öld, þegar
flokkurinn átti sinn þátt I þvi að
þingræði var komið á I landinu
og kosningaréttur v£rð almenn-
ur.
Annar áfanginn náðist i lok
fjórða áratugarins — I 23 ára
stjórnartið Tage Erlanders —
þegar Sviar byggðu upp um-
fangsmesta og fullkomnasta al-
mannatryggingakerfi veraldar.
Hefðbundinn réttur
vinnuveitenda
úr sögunni
Þótt þessi áform virðist rót-
tæk þá er t.d. fyrirhuguð vald-
dreifing I stjórn fyrirtækja ekki
annaö en aukning á þeim rétt-
indum sem jafnaðarmenn hafa
þegar komið á. 1 ýmsum tilfell-
um verður löggjöfin til þess að
gilda reglur sem þegar eru I
heiðri hafðar I sænskum fyrir-
tækjum.
Snemma á þessum áratug
unnu sænskir verkamenn sér til
þeirra réttinda að eiga fulltrúa I
stjórn stórfyrirtækja. Sam-
kvæmt gildandi atvinnuöryggis-
lögum verða vinnuveitendur að
hafa fullgilda ástæðu fyrir
brottrekstri starfsmanna. Jafn-
framt er öryggiseftirlitsvörðum
— kosnum til þeirra starfa af
verkalýðsfélögunum — heimilt
að stöðva starfsemi og fram-
leiðslu verksmiðja ef þeim sýn-
ist sem svo að vinnuaðstæöur
séu hættulegar heilsu manna
eða á annan hátt óöruggar.
Samkvæmt nýju löggjöfinni,
sem atvinnuráöherrann, Inge-
mund Bengtsson, útskýrði ræki-
lega á landsfundinum, verður
hefðbundinn réttur atvinnurek-
enda til að ráða og reka fólk að
eigin geðþótta þar meö úr sög-
unni. Allir sjá að þar er um
hreina byltingu I verkalýðsmál-
um að ræða.
í stað þessa hefðbundna rétt-
..........
Eflaust má deila um það hvar
afleiðingar verkfalla og vinnu-
deilna hafi á undanförnum ára-
tugum skapað fólki þau ytri
skilyrði bezt sem menn, al-
mennt, búa við i vestrænum
neyzluþjóöfélögum. Hitt er ó-
umdeilanlegt að sú þjóð, sem
hvað fastast hefur ánetjazt
verkföllum og mótmælum til að
fylgja eftir launakröfum eða
hvers konar hlunnindum, sann-
gjörnum eða ósanngjörnum, eru
Islendingar, og verkföll hér-
lendis eru boðuð af allt öðru og
áhyggjuminna hugarfari en
annars staðar er raunin, oftar
en ekki nánast með glæsilegu
kæruleysi, eins konar skóla-
krakka-tilhlökkun um langþráð
fri.
Skollaleikur
rikisstarfsmanna
Dæmi um áhyggjuleysi sam-
fara fádæma sýndarmennsku
kemur einna gleggst fram hjá
svokölluðu forystuliði BSRB
sem reynir að æsa aðildarfélaga
upp til að samþykkja verkfalls-
réttinn eða taka sér hann, ef
ekki vill betur.
Hér er af ásettu ráði notað
orðalagiö ,,að æsa upp” þvi vit-
að er að ekki eru allir opinberir
starfsmenn svo skyni skroppnir
að sjá ekki að hér er á ferðinni
slóttugt bragö fámennrar kliku
til að afla sér persónulegs fylgis
sem nota á til framdráttar i
pólitiskri baráttu.
Fjöldinn allur af opinberum
starfsmönnum er mjög andsnú-
inn þvi að krefjast verkfallsrétt-
ar, gegn þvi að eiga á hættu að
missa þau mikiu og sérstæðu
sérréttindi sem þeir njóta, og
vart verða metin til fjár, svo
sem verðtrygging lifeyrissjóða,
uppsagnarákvæðin og fleira i
þeim dúr.
Þannig segir i tilkynningu frá
BSRB þ. 10. þ.m. að haldnir hafi
verið 40 „verkfallsréttarfund-
Verkföll og
vanangur
Geir R. Andersen
ir”, — en ekki hafi nema 2500
manns mætt á öllum þessum
fundum af þeim 11.400 sem aöild
eiga að samtökunum. Það er þvi
augljóst mál að ekki ríkir sam-
staða eða eining um þá „réttlæt-
iskröfu” sem forystulið rikis-
starfsmanna setur fram til að
fylla þann mæli sem eyrna-
merkir að fullu opinbera starfs-
menn sem forréttindastétt i
þjóðfélaginu númer eitt, á
kostnaö allra annarra lands-
manna sem greiða hundruð
milljóna á ári I formi skatta sem
m.a. eru notaðir til verðtrygg-
ingar lifeyrissjóðsins sérstæða.
1 tilkynningu frá BSRB þ. 14.
þ.m. segir enn að um 50 „verk-
fallsréttarfundir hafi nú verið
haldnir og samtals hafi um 3000
manns mætt á þeim. Það virðist
þvi ekki vera áhuganum fyrir að
fara hjá obbanum i þessu
stærsta stéttarfélagi lands-
manna með 11.702 meðlimi, ef
með eru taldir þeir sem ólög-
lega hefur verið bætt á starfs-
mannaskrá eöa ráðair i heim-
ildarleysi, eins og skýrt er frá i
starfsmannaskrá sem er fylgi-
skjal með fjárlagafrumvarpi
næsta árs.
Það virðist þvi vera næsta
vafasöm ástæöa til þess af hendi
forráðamanna þessa fjölmenna
stéttarfélags að æsa menn upp
með jafnfáránlegri hugmynd og
fram kemur i „verkfallsréttar-
málinu”, og alla vega er þörfin
ekki eins knýjandi, eins og ber-
lega kemur I ljós af áhugaleysi
meölima sjálfra um málið. En
kannski ætlar forystan að lita
fram hjá þeirri staöreynd og
„taka sér verkfallsrétt”, eins og
það er svo faglega orðað af þeim
áköfustu, eða „gripa til að-
gerða”.
„Byltingin étur börnin sin” er
alkunn setning úr pólitiskum
umræðum. Sú bylting sem nú er
boðuð til hagsbóta fyrir opin-