Dagblaðið - 18.10.1975, Blaðsíða 20

Dagblaðið - 18.10.1975, Blaðsíða 20
Slökkviduftið kom í veg fyrir stórtjón Fátt er óhugnanlegra fyrir bflstjóra en að finna að eldur er laus i farartækinu. Það gerðist hjá einum bilstjóranna, sem ók norður Kringlumýrarbrautina i hinni þungu föstudagsumferð. Skyndilega fór hann aö finna siæma lykt frá biivélinni, og svo tók reykur að liðast upp úr henni. En betur tókst til en á horfðist. Eldinn tókst að slökkva áöurenhann grandaði ökutækinu en þá var lögreglan komin á staðinn og rétt á eftir kom slökkviliðið. Ökumaður einn, sem átti leið þarna framhjá, var svo forsjáll að hafa i bil sinum slökkvitæki með dufti en þau duga mjög vel gegn oliu og 'bensineldi. Tæki þessi ættu ökumenn almennt að Slökkviliðið þurfti ekki mikið að gera, enda þótt bill væri kominn á staðinn eftir örskamma stund. Slökkviduft forsjáls bilstjóra sá um að eldurinn varð ekki lang- lifur. (Ljósmynd Lárus Þor- valdsson). hafa i bilum sínum og reyndar ætti það að vera hagur tryggingafélaganna að sem flestir hefðu slik tæki i bilum sinum, þvi mikið er i húfi. — JBP GESTUR UM BORÐ í DAG- STJÖRNUNNI Þeir fengu gest um borð i Pag- stjörnuna frá Keflavik þegar þeir voru á siglingu 25-30 milur út af sunnanverðum Vestfjörðunum núna um daginn. Þettá var smyrill, sem kom fljúgandi og lenti á brúarglugganum. Greini- lega var fuglinn örmagna orðinn. Skipverjar tóku hann upp, út- bjuggu handa honum búr og fæddu hann á hráu kjöti, sem hann hámaöi brátt i sig af mestu áfergju. Ekki leið nema sólarhringur þar lil fuglinn var orðinn hinn hressásti oggaf til kynna að hann vildi halda sinni för áfram. Var honum sleppt og frclsinu feginn tók hann stefnuna upp á land. (Ljósmynd Guöbjartur Gunnarsson). Stórórekstur á Seyðisfirði Þá má vist telja á fingrum annarrar handar árekstrana, sem verða á Seyðisfirði á einu ári, en i gær varð þar samt einn af kröftugra taginu. Áreksturinn atvikaðist þannig að fólksbill, sem ekið var á mikilli ferð, lenti á öðrum, sem kom bakkandi i mestu rólegheitum út úr innkeyrslu. ökumanni fólks- bílsins brá að vonum við þennan óvænta árekstur og sveigði hann frá i skyndi en ekki tókst betur til en svo að hann lenti á enn öðrum bil. Tv.eir bilanna eru stór- skemmdir. öj/AT— BLÓÐUG ÁTÖK í HAFNARHÚSINU Blóðug átök urðu milli þriggja manna niðri i Hafnarhúsi á þriðja timanum ; gær. Til átakanna kom á 3. hæð hússins en þar eru skrifstofur BÚR til húsa og i hlut áttu þrir sjómenn sem Maöurinn, sem fyrir árásinni var allir voru vel við skál. Talið er að tveir mannanna hafi i upphafi ráðizt að hinum þriðja. Var hann allilla leikinn og var fluttur i slysadeild alblóðugur i andliti, enda munu fætur hafa , borinn út i sjúkrabifreiö. verið látnir ráða ásamt hnúum. Annar „árásarmannanna” er i fangageymslu og vitað er hver sá þriðji var en hann hafði ekki náðst kl. 7 i gærkvöldi. —ASt. (DB-mynd Björgvin). Það hlœja allir, nema gagnrýnendur ,,Það hiæja allir innilega á sýningum á Bör — nema gagn- rýnendurnir, þeir eru i súrasta lagi,” sagði einn af aðstand- endum Leikfélags Kópavogs, sem hefur nú frumsýnt Bör Börsson i Kópavogsbiói. Tvær sýningar eru búnar og aðsókn ágæt. Sú þriðja er á sunnudags- kvöld og verður siðan sýnt á fimmtudags og sunnudags- kvöldum. Um 50 manns vinna við þessa litskrúðugu sýningu. JBP— frjálst, úháð dagblað Laugardagur 18. október 1975. Lögreglust jóri: Var aldrei á móti skeggi sinna manna ,,Ég var aldrei með þá hug- mynd að banna skegg,” sagði Sigurjón Sigurðsson lögreglu- stjóri i viðtali við DAG- BLAÐIÐ. „Ég legg áherzlu á snyrtimennsku lögregluþjóna, en það kom eiginlega aftan að mér að deila skyldi vera komin upp um skegg þeirra, þegar ég kom heim”, sagði iögreglustjóri. DAGBLAÐIÐ skýrðí frá þvi að upp hefði komið ágrein- ingur um það hvort lögreglu- þjónar mættu hafa skegg þegar þeir væru við störf. Ekki var hann viðtækur né langvinnur en lögreglustjóri var erlendis, er hann kom upp. DAGBLAÐÍD hefur eftir áreiðanlegum heimildum að innan lögreglu séu fullar sættir. Er mála sannast að deila þessi var ein hinna mörgu sem staðið hafa um „keisarans skegg” fremur en lögreglumanns, ef deilu skal GEKK ÚT MEÐ ÞÝFIÐ UM HÁ BJARTAN DAG — með fullu samþykki starfsfólks Dularfullt þjófnaðarmál er nú á dagskrá hér i borginni og snýst um 60 þús. kr. reiknings- tölvu, sem komið var með i viðgerð til Skrifstofuvéla. Viðgerðarmenn urðu þess fljótt varir að búið var að sverfa út númer vélarinnar. En auk númersins setur IBM á leynilegan stað i hverja vél talnanúmer er skýrir söluár og mánuð. Út frá þvf númeri fannst út að talvan átti að vera i eigu Tryggingastofnunar rikisins. Er þangað var leitað kom i ljós að maður einn hafði þar birzt og sagðist sá eiga að ná i reiknitölvu til viðgerðar. Stúlka visaði honum á ákveðna vél og sagðist halda að það hlyti að vera þessi. Maðurinn bað um yfirbreiðslu vélarinnar, fékk hana og labb- aði siðan út. Nú á eftir að rannsaka tengsl milli þess aðila, er kom með tölvuna til viðgerðar, og Tryggingastofnunarinnar. ASt.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.