Dagblaðið - 23.10.1975, Side 2
2^
Hagblaðiö. Fimmtudagur 23. október 1975.
„Hann er meinleysisgrey../#
w
KISA VAR ROFUBROTIN OG
VIÐÞOLSLAUS AF KVÖLUM
„Þetta er meinleysisgrey og
mér finnst rétt að skýringin á
þessu slysi komi fram,” sagði
kona i Asparfelli 4, sem hringdi i
DAGBLAÐIÐ vegna fréttar
blaðsins i gær. Þar var sagt frá
þvi að köttur réðst á sex ára
telpu og klóraöi hana illa. Móöir
barnsins kom þarna að og þurfti
að sparka i köttinn til þess að
flæma hann i burtu. Konunni,
sem hringdi, fórust svo orð:
„Þetta slys, sem blaðið sagði
frá, varö þannig að börn, áem
eru hér i húsinu i gæzlu, voru að
leika sér með þennan kött.
Nokkuð þung hurð hefur cvo
lokazt með þeim afleiöingum að
kötturinn klemmdist á milli
stafs cg hurðar og rófubrotnaði.
Krakkinn, sem var fyrir innan,
fór að toga i köttinn, þar sem
hann var þarna klemmdur.
Þegar kattargreyiö losnaði hef-
ur hann eflaust verið yfir sig
hræddur og viti sinu fjær af
sársauka. Mér finnst rétt að
þetta komi fram, þvi að þessi
köttur er augsýnilega heimilis-
köttur sem hefur eitthvað villzt.
Honum hefur verið gefiö hérna i
húsinu og krakkar hafa leikið
sér við hann. Þetta slys er
hörmulegt, en þaö lýsir alls ekki
hegðun heimiliskatta almennt,
þvert á móti eru þeir elskir að
mönnum, bæði börnum og full-
orðnum, alveg eins og þessi
köttur hefur verið.
Ég veit ekkert hvað verður
gert við kattargreyið. Hann er
kominn hér i húsið aftur og er
alveg eins og hann var, nema
hann er rófubrotinn. Það þyrfti
kannski að veita honum hjúkrun
og ég held að það sé gert, þrátt
fyrir það sem kom fyrir.”
Sorgarsaga ungro bíleigenda:
Bíllinn bilaði í
torfœruakstri,
var sem flak
er að var komið
Það er hálfgerð sorgarsaga
sem þessi bill hefur að segja.
Hann liggur nú fram á
framlappirnar i sandgryfjunum
við Fifuhvamm i Kópavogi.
Strákar höfðu kevpt bilinn,
pappiralaus. ogá ólögformlegan
hátt, fóru að keyra og lentu fyrr
en varði i torfæruakstri i gömlu
malargryfjunum á farartæki
sinu, Vauxhall, 10—12 ára
gömlu módeli.
Slikir bilar eru kannski ekki
gerðir fyrir svona ániðslu, og
fyrr en varði gaf eitthvað sig i
bílnum og þeir urðu að skilja
hann eftir þarna á staðnum.
Strákarnir sáu auðvitað að á
þessum stað var bifreiðin þeirra
hreint ekki vel stödd. Tóku þeir
forláta góð framdekk undan
henni til að bjarga þó einhverju
frá þjófum, sem gætu runnið á
bráðina.
Liklega hefur billinn þótt
heldur ámátlegur svona á sig
kominn þarna i gryfjunum, þvi
strax fyrsta sólarhringinn var
framrúðan brotin. Siöan var
farið að kroppa i einn hlutinn af
öðrum. Loks var sandur settur
niður i vélarhúsið. Billinn var
Svona lKur bilflakið út eftir aö úr honum hefur veriö tekiö og skemmdarvargar spreytt sig á honum
(DB-mynd, Björgvin.)
hreinasta flak, þegar hans var
loks vitjað, og liklega hafa ein-
hverjir kannski haldið að þarna
mætti fá ókeypis varahluti i
samsvarandi bil, en aðrir sval-
að skemmdarfýsn sinni.
I dag eiga strákarnir þvi ónýt-
an bil að mestu, en auðvitað
heföu þeir átt að reyna að drösla
bil sinum á betri stað i manna-
byggð strax og bilunin varð. Þá
hefði hann liklega ekki fengið
þessa útreið.
Fyrir kemur að bilar eru
skildir eftir á afviknum stöðum,
en slikt er óheimilt. Eru þeir
yfirleitt fjarlægðir fljótt og vel,
en erfitt reynist að ná til eigend-
anna. Þó kemur það fyrir og fá
þeir þá að borga þann kostnað
sem flutningum er samfara.JBP
GRÝTTI BÍLINN
I ÖLÆÐINU
Aöfaranótt sunnudagsins var
ráðizt að bil er stóð á götu á Pat-
reksfiröi og hann grátt leikinn.
Voru rúður bilsins brotnar, bill-
inn grýttur, i hann sparkað og
billinn stórskemmdur eftir svo
lauslega er áætlað að tjóniö
nemi 100—200 þúsund krónum.
Patreksfjarðarlögreglan fékk
rannsóknarlögreglumenn úr
Hafnarfirði sér til aðstoðar við
rannsókn málsins og fór John
Hill á vettvang. Allmargir voru
yfirheyrðir i snatri og bárust
böndin aö þeim sem minnst
þóttist muna um ferðir sinar.
Hefur hann nú játað á sig verkn-
aðinn, sem framinn var i áfeng-
isvimu og i hreinni vitleysu.
ASt
Góð heimsókn í Hólabrekkuskóla:
Kiwanismenn gefa
600 endurskinsmerki
Þeir fengu góða heimsókn i
Hólabrekkuskóla á dögunum. Fé-
lagar úr Kiwanisklúbbnum Elliða
i Breiðholti komu þá i skólann og
færðu 6 ára börnunum endur-
skinsmerki að gjöf, en lögreglu-
kona ræddi við börnin um mikil-
vægi þess að bera slik merki á yf-
irhöfnum sinum.
Félagarnir i Elliða gefa öllum 6
ára börnum i Breiðholti endur-
skinsmerki, en einnig börnunum i
Heyrnleysingjaskólanum, Bjark-
arási, Lyngási og i öskjuhliðar-
skóla, — alls um 600 börnum.
„Vonandi verða þetta árlegar
heimsóknir,” sagði Sigurjón
Fjeldsted skólastjóri i Hóla-
brekkuskóla eftir heimsókn
þeirra félaga.
Nú er bara spurningin hvort
ekki þurfi að gefa slik merki öll-
um börnum i öllum borgarhverf-
um Reykjavikur og raunar um
allt land. Kiwanismenn safna fé
til þess fyrst og fremst með jóla-
tréssölu i Breiðholti.
—JBP-
Hlýindi ó Austurlandi:
DÆMI UM AÐ
BLÓM SÉU AÐ
SPRINGA ÚT
Það er ekki alvanalegt aö fá
nýútsprungnar morgunfrúr á
afmælisdaginn, siöla i
október, austur á landi. Þaö
fékk þó tengdadóttir Reginu
Thorarensen á Eskifiröi. Hlý-
indin eystra hafa verið með
eindæmum aö undanförnu, 10
til 12 stiga hiti dag hvern.
Regina kvaðst hafa sett niður
10 morgunfrúr og væru þær i
fullum skrúða og sumar væru
nýútsprungnar. —JBP—
Spurning
dagsins
Hvaða mála-
flokkum œtlar
þú sem varu-
þingmaður að
sinna meðan þú
situr þing?
ólafur Þ. Þórðarson, varaþingm. <F): Þennan
tima, sem ég hef verið varaþingmaður hef ég
flutt tvær þingsályktunartillögur um afnám oliu-
sjóðs fiskiskipa og um endurskoðun á heil-
brigðislöggjöfinni fyrir Vestfirði. Þessum mál-
um fylgi ég fast eftir.
Bragi Sigurjónsson, varaþm. A): Ég verð nú
varla hér nema i hálfan mánuö I þetta skiptið
svo mér gefstekki timi til stórra hluta. Þegar ég
hef verið hér hef ég annars fylgt eftir þings-
ályktunartillögu um eignarráð yfir landinu,
gögnum þess og gæðum.
Mauaor Biondal, varþm. (S): Ég held aö allir,
sem sitja á Alþingi, hljóti að hugsa fvrst oe
fremst um efnahagsmálin.