Dagblaðið - 23.10.1975, Side 12

Dagblaðið - 23.10.1975, Side 12
Dagblaðið. Fimmtudagur 23. október 1975. Dagblaðið. Fimmtudagur 23. október 1975. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Valur og Haukaró toppnum Úrslit leikja i gærkvöldi: Grótta-Fram FH-Haukar Staðan i 1. deild: Valur Haukar Fram FH Vikingur Ármann Þróttur Grótta Markhæstir eru nú: Hörður Sigmarsson Páll Björgvinsson Björn Pétursson Viðar Simonarson 12-16 16-18 44-26 4 40- 30 4 28-24 3 41- 36 2 39-36 2 26-37 1 10-20 0 46-65 0 17/2 11/4 1Ö/5 l(|/4 Bezt hjá þeim hollenzku Hollenzka liðið Eindhoven náði athyglis- verðasta árangrinum i Evrópubikarnum — keppni meistaraliða —i gær. Sigraði þá Ruch Chorzov i Póllandi 3-1. Lubse, Edström og Kerkhof skoruðu mörk liðsins — en Bula fyrir Rucli fyrsta mark lciksins. -/,*• Hadjuk Split vann stærsta sigurinn 'i-O á heimavelli gegn Molenbeek, Belgiu, Zungul, Rozic, Surjak og Mijac skoruðu fyrir júgóslavneska liðið. Benfica vann einnig stórsigur, 5-2 I Lissa- bon gegn Ujpesti Dozsa, Ungverjalandi, 3-1 i hálfleik. Moinhos, Baptista (2), Sheu og Toni skoruðu fyrir portúgalska liðið, en Dunai og Fazekas fyrir Ujpcsti. Varnarleikur varð Glasgow Rangers að falli i St. Etienne I Frakklandi, — Hann brást. Revelli skoraði fyrir hlé — á lokaminútunni urðu Jardine á mistök og Baphenay skoraði annað mark Frakkanna. 2-0 og erfitt verður fyrir Rangers að vinna það upp. Malmö vann sigur á Evrópumeisturum Bayern, 1-0. Tommy Andersson skoraði eina mark teiksins fyrir hlé — og kannski leika Sviarnir sama leikinn oggegn Magdeburg i 1. umferð. Hins vegar vann hitt þýzka liðið i Evrópu- bikarnum, Borussia Mönchengladbach, góðan sigur á Juventus. Leikið var i Dussel- dorf og þar var mesti áhorfendafjöldinn, 65 þúsund. Jupp Heynckes og Alan Simonsen skoruðu fyrir Borussia i fyrri hálfleik. Þetta ætti að nægja, þvi Borussia hefur náð ein- stökum árangri á útivöllum undanfarið. ttalski landsliðsmarkvörðurinn, Dino Zoff, átti snilldarleik i marki Juventus — en það nægði ekki. Dundee Utd. lá Dundee United mótherjar Keflvikinga i I. umferð UEF A-bikarsins, máttu þola tap á heimavelli — gegn Porto frá Portúgal. Aðeins 6.500 áhorfendur komu til að sjá leikinn. Mörk Portúgalanna skoruðu Oliveira og Seninho en fyrir Skotana skoraði Rennie. Liverpool vann góðan sigur á Spáni. Þar léku þeir við San Sebastian og sigruðu 3-1. Mörk Liverpool gerðu Heighway, Gallaghan og Thompson. Fyrir Spánverjana skoraði Amas. Ahorfendur voru 30 þúsund. Ipswich vann sannfærandi sigur á belgíska liðinu Brugge — 3-0. Mörk Ipswich gerðu Gates, Peddelty og Austin. Ahorfendur voru 26.817. Sviarnir sönnuðu enn einu sinni mátt sinn. Öster fra Vaxjösigraði Roma frá italiu 1—0. Mark Svianna gerði Tommy Everson við gifurleg fagnaðarlæti hinna 10 þúsund áhorfenda. Á irlandi kom frammistaða Athlone Town á óvart gegn AC Milanó frá italiu. Jafntefli varð 0-0. 23 þúsund áhorfendur sáu leikinn, sem er óvenju mikið á irlandi. Þess má geta að ekki er nema ár siðan litlu munaði að Athlone legði upp laupana — og nú leika þeir gegn cinu frægasta liði Evrópu, já, það skiptast á skin og skúrir. í Moskvu sigraði Spartak Moskva v-þýzka liðið FC Köln 2-0. Lovchev skoraði bæði mörk Itússanna. Liðiö hans Einars Magnússonar SV Hamborg gerði jafntefli í Belgrad — gegn Red Star 1-1. Susic skoraði fyrir Júgóslavana en Daninn Björnmose skoraöi fyrir Þjóðverj- ana. h halls Hörður sá um mörkin Gunnar markvörzluna! — þegar Haukar sigruðu FH 18-16 í 1. deild í Hafnarfirði í gœrkvöldi — Sigur Haukaliðsins var aldrei í hœttu og FH skoraði aðeins fjögur mörk í fyrri hálfleik ,,Ég man ekki eftir Gunnari Einarssyni verja eins vel og nú. Þetta þjappaði okkur saman i vörninni — stappaði i okkurstál- inu,” sagði Hörður Sigmarsson úr Haukum eftir góðan sigur Hauka gegn FH i gærkvöldi, 18-16. Já, Gunnar varði stórkostlega vel. Fékk aðeins fjögur mörk á sig i fyrri hálfleik, en það þarf lika mann til að skora. — Um það sá Hörður. Hann skoraði 11 mörk i leiknum. Var hreint óstöðvandi. Haukar verða með i toppbar- áttunni i vetur, Það fer ekkert á milli mála. — Á laugardag unnu þeir stóran sigur á fslandsmeist- urum Vikings og i gærkvöldi lögðu þeir erkifjandann FH að velli. — Mun öruggari sigur en tölurnar gefa til kynna. En snúum okkur að leiknum. Strax i upphafi komust stórstjörn- ur FH ekkert áleiðis gegn sterkri vörn Hauka og það sem fór i gegn varði Gunnar. Það segir sina sögu, aðeins 4 mörk i 30 minútur hjá FH. Slikt er óvenjulegt. Hörður Sigmarsson var iðinn við kolann i leik FH og Hauka. Hér gnæfir hann yfir Guðmund Stefánsson og skorar örugglega. Meistarar Derby léku Real grátt Önnur eins stemmning hefur aldrei fyrr verið á Baseball Ground i Derby og i gærkvöld. Troðfullur völlur áhorfenda, 34.839, sá Englandsmeistara Derby vinna stórsigur á frægasta liði Evrópu, Real Madrid, 4-1, og fögnuður þeirra var svo mikill að á stundum var litið hægt að heyra i þulunum vegna söngs og fagnaðarhrópa. Real Madrid, sem sex sinnum hefur orðið Evrópumeistari félagsliða, var yfirspilað og aðeins snilldarmarkvarzla kom i veg fyrir nokkur mörk Derby til viðbótar. Kokkney-strákurinn Charlie George var hetja Derby i leiknum — skoraði þrjú mörk, þar af tvö úr vitaspyrnum, en var samt tek- inn útaf 10 min. fyrir leikslok og Roger Davies kom i stað hans. Einnig fór Kevin Hector þá út af — Jeff Bourne var varamaður hans. Derby náði strax góðum tökum á leiknum óg á 9. min. skoraði George fyrsta markið. Sex min. siðar var Lee á fullri ferð innan vitateigs, en var felldur og vita- spyrna dæmd. George tók spyrn- una af öryggi 2-0. Real tókst að minnka muninn á 24.min., þegar Pirri skoraði — en yfirleitt var liðið litið i sókn — Martinez oftast einn frammi. A 43. min. skoraði bakvörðurinn Nish 3ja mark Derby i leiknum. Framan af siðari hálfleiknum fóru Þjóðverjarnir Breitner og Netzer hjá Real að láta meira að sér kveða — en komust litið áleið- is, þar sem Colin Todd átti hreint stórkostlegan leik i vörn Derby, og var oftast sá klettur, sem sóknarlotur Real brotnuðu á. En á 65. min léku þeir vel saman með Martinez og Pirri — og skelfing fór um áhorfendur, sem allir — utan 120 frá Spáni — voru á bandi Derby. Eftir gott skot Pirri lá knötturinn i marki Derby. Dómarinn sneri sér eins og hann ætlaði að dæma mark — en leit þá á linuvörð sinn, sem veifaði mjög. Eftir að hafa ráðfært sig við linu- vörðinn dæmdi dómarinn markið af vegna rangstöðu til mikils létt- is fyrir áhorfendur. En leikmenn Real voru ekki hrifnir — og þeir áttu eftir að skeyta skapi sinu á sovézka dómaranum — þeim fræga linu- verði Ivanoff, sem var á linunni i úrslitaleik HM 1966 og dæmdi mark, þegar Geoff Hurst átti hörkuskot i þverslá, og knötturinn hrökk svo niður á marklinuna. Enn i dag hefur ekki verið sannað hvort knötturinn fór inn fyrir eða ekki. A 76. min. dæmdi dómarinn aðra vitaspyrnu á Real — Hector brugðið innan vitateigs, og þegar dómarinn benti á vitaspyrnu- punktinn hópuðust leikmenn Real utan um hann — ýttu við honum og jafnvel hrintu. En Ivanoff breytti ekki dómnum — og það merkilega var að hann bókaði heldur engan. George skoraði örugglega úr vitinu, þegar ró komst á aftur. Var svo tekinn út af rétt á eftir — og þá fagnað sem konungi. Hann er kominn til að vera á Baseball, strákurinn siðhærði, sem var svo óþekkur á Highbury hjá Arsenal. Fleiri urðu mörkin ekki i leikn- um og með 3ja marka forskot ætti Derby-liðið að vera nokkuð öruggt um að komast i 3. umf. — þó svo allt geti skeð i siðari leikn- um i Madrid, þegar 120 þúsund áhorfendur hvetja Real-liðið. En yfirburðir Derby i gærkvöldi voru ótviræðir — aðeins frábær markvarzla kom i veg fyrir, að Francis Lee skoraði tvivegis og Bruce Rioch átti hörkuskot, var- in. Haukar skoruðu tvö fyrstu mörkin og FH svaraði með mörk- um Geirs og Guðmundar Stefáns- Kúbumenn harðir í boxinu — d Ameríku- leikjunum í Mexíkó Amerikuleikarnir eru nú komn- ir á lokastig — en þar keppa sem kunnugt er þátttakendur frá 33 Amerikuþjóðum. Gullstraumur- inn hélt áfram til Bandaríkjanna i gær. Þá var keppt i sundi og bandarisku keppendurnir — mest efnilegir unglingar — hafa unnið 14 gullverðlaun af þeim 16, sem keppt hefur verið um. Eins og oft- ast áður i fréttaskeytum Reuters frá Mexikó-borg er ekkert getið um árangur. Bandarikin hafa nú hlotið 74 gullverðlaun. Kúba er i öðru sæti með 38 gull og Kanada i 3ja með 15 gullverðlaun, þá Mexikó og Brazilia með sex. Frábær árang- ur keppenda frá Kúbu hefur vakið mesta athygli á leikunum. Fyrst 1971 vakti Kúba athygli á þessum Amerikuleikjum sem afl i iþrótt- um. Hlaut þá 30 gullpeninga — og nú þegar, eftir 10 keppnisdaga af 14, eru keppendur Kúbu komnir með fleiri verðlaun en þá. Og gullstraumur á enn eftir að verða til Kúbu. Framan af leikun- um komu keppendur frá eyjunni á óvart i frjálsum iþróttum og stóðu sig mjög vel i glimu og lyftingum. Nú er hnefaleikakeppnin að komast á lokastig — og þar hafa Kúbumenn slegið niður flesta mótherja sina, fljótt og vel. Reiknað er með niu gullverðlaun- um Kúbu i 11 þyngdarflokkum, sem keppt er i. sonar. Það var eRi eina skiptið, sem jafnt var — eftir 20 minútna leik var staðan 5-4 fyrir Hauka og FH fékk viti, en Guðmundur Sveinsson tók, en Gunnar gerði sér litið fyrir og varði — Haukar bruna upp og Hörður skorar 6-4. Við þetta tviefldust þeir og skor- uðu þrjú siðustu mörk hálfleiks- ins — 9-4. „Þeir halda þetta aldrei út — Gunnar getur ekki varið eins stórkostlega tvo hálfleiki i röð,” sagði áhorfandi i hálfleik. En hafi menn haldið, að Haukarnir gæfu eftir, þá var það mikill misskiln- ingur. — Afram hélt bilið að breikka. Eftir 15 minútna leik var staðan 14-6 og Hörður lék aðal- hlutverkið, skoraði hvert markið á fætur öðru og Gunnar varði eins og berserkur. Þegar aðeins 7 minútur voru eftir var staðan 18-12 og FH-ingar tóku Hörð og Elias úr umferð. — Við það riðlaðist leikur Hauka og hvað eftir annað sendu þeir bolt- ann i hendurnar á FH-ingum sem brunuðu upp. Þó þeim tækist ekki alltaf að koma boltanum framhjá Gunnari breyttist. úr 18-12 i 18-16 en i raun var allt um seinan fyrir FH. Þeir áttu aldrei mögu- leika — til þess höfðu Haukar náð of miklu forskoti, en engu að siður, leikurinn var æsispennandi til siðustu minútu eins og alltaf, þegar þessir keppinautar úr Firð- inum leika saman. Áhorfendur gera lika sitt til að gera þessa leiki spennandi. Loftið er ávallt þrungið spennu. Það fór ekkert á milli mála, að Haukar voru sterkari i gærkvöldi — lið með Gunnar Einarsson i markinu og Hörð Sigmarsson til að skora mörkin er ekki á flæði- skeri statt. En það þarf lika fleira til — vörnin er ákafl. sterk og i sókninni eru allir virkir — góðir linumenn og Elias stjórnar spil- inu mjög vel. Hörður skoraði 11 — 2 viti — af 18 mörkum Hauka — það segir sina sögu, Sigurgeir Marteinsson 3, Ingimar Haralds- son 2 , Elias Jónasson og Jón Hauksson 1 mark hvor. Það er langt siðan FH hefur aðeins skorað fjögur mörk i 30 minútur og þegar stutt var eftir höfðu þeir aðeins gert 12 mörk. En þeir spiluðu oft skemmtilega — Geir virðist vera að komast i betri æfingu og Guðmundur Sveinsson var ávallt ógnandi. Viðar var eitthvað miður sin — kannski ekki nema von. Gunnar varði bókstaflega allt frá honum. Geir og Guðmundur voru markhæstir FH-inga, skoruðu 4 mörk hvor — Geir 1 viti — Þórar- inn Ragnarsson skoraði 3 mörk, Viðar, Guðmundur Stefánsson 2 hvor og örn Sigurðsson 1 mark. Le'ikinn dæmdu Karl Jóhanns- son og Hannes Þ. Sigurðsson og fórst það vel. — —h.halls. Gunnar Einarsson átti stóran dag i markinu I gærkvöldi — varði hvað eftir annað stórvel og meðal annars tvö viti. Fram vann Gróttu í leík mistakanna Skelfing var að sjá leik Fram og Gróttu i gærkvöldi — liðin gerðu sig sek um mistök á mistök ofan. Það var ekki fyrir snilli Framara, að þeir sigruðu, heldur einfaldlega — þeim urðu ekki -á eins mörg mistök og leikmönnum Gröttu. Framarar voru alltaf sterkari i þessum leik. Höfðu yfir i hálfleik 8-6 og hafði Pálmi þá gert fjögur mörk. Fljótlega i siðari hálfleik varð munurinn fjögur mörk 10-6, STOÐU I MEISTURUM MEIST- ARANNA EINS OG MEISTARAR Davið Kristjánsson, markvörð- ur Akurnesinga, átti snilldar leik i Kænugarði i gærkvöldi — varði hvað eftir annað á undraverðan hátt. Bjargaði liði sinu frá stærra tapi gegn Pynamo-liði, sem var að sleikja sár sin eftir tapið mikla i Tashkent á dögunum, seg- ir I fréttaskeyti Reuters. Akurnesingar áttu við erfiðan mótherja að etja — Dynamo átti snilldarleik til mikillar ánægju fyrir fimmtiu þúsund áhorfendur og skoraði þrivegis. Aldrei fyrr hefur islenzkt lið leikið frammi fyrir svo mörgum áhorfendum — en islenzku piltarnir létu það ekki Ég næ honum! En Polli nær knettinum og... Enn sóknarlota heimaliðsms © King Fealutci Syndicate. Inc.. 1974. World righv rrved. |.T á sig fá.Léku eins og meistarar við meistara meistaranna, Kænu- garðsliðið, sem nú er talið bezta félagslið Evrópu og hefur reyndar sannað það með sigri sinum gegn Evrópumeisturunum Bayern. Sennilega hefur islenzkt lið aldrei lent i erfiðari raun en þarna i Kænugarði — aldrei leikið við betri mótherja. Én Akurnes- ingar stóðu sig eins og hetjur. Varnarleikur var góður — og það þó sovézku sóknarmennirnir héldu uppi gifurlegum hraða út allan leikinn, að sögn Reuters Greinilegt, að þeir vildu sanna getu sina á ný frammi fyrir hin- um tryggu áhorfendum sinum — eftir áfallið i Tashkent. Oieg Blohkin, sem skoraði öll þrjú mörkin i sigurleikjunum gegn Bayern, skoraði fyrsta mark leiksins i gær á 31. min. Siðar skoraði Vladimir Buryak og staðan i leikhléi var 2-0. Buryak bætti við 3ja markinu i siðari hálfleik i 57. min. en þrátt fyrir þunga sókn tókst Dynamo ekki að skora fleiri mörk i leiknum — mest vegna snilli Daviðs. Siðari leikur liðanna verður I flóöljósum á Melavelli miðvikudaginn 5. nóvember, en þá leika flest liðin i Evrópumótunum siðari leik sinn I 2. umferðinni. og sá munur hélzt til loka 16-12. Leikmenn Gróttu gerðu sig seka um hreint ótrúleg mistök. Hvað eftir annað glopruðu þeir boltanum, — vægast sagt klaufa- •lega. Heáu þeir leikið á móti betra liði en Fram hefðu þeir ein- faldlega verið kafsigldir. — Það vantar skyttu i liðið. Landsliðs- maðurinn þeirra gerirhrein byrj- endamistök — kannski ekki nema von hann falli niður á sama plan og aðrir leikmenn liðsins. Fram leikur ekki skemmtileg- an handknattleik — litil hreyfing er I liðinu og aldrei eru reynd hraðaupphlaup. — Sem sagt, þeir blanda sér hvorki i topp- né fall- baráttu i vetur. Fyrir Fram skoraði Pálmi 7 mörk, Arnar 5 — 2 viti, Andrés Bridde 2, Gústaf Björnsson og Pétur Jóhannesson 1 mark hvor. Fyrir Gróttu skoruðu Björn Pétursson 3 — 1 viti, Magnús Sig- urðsson 3 — 1 viti — Arni Indriðason, Björn Magnússon 2 hvor, Atli Þór og Kistmundur As- mundsson 1 mark hvor. Leikinn dæmdu Óli Ólsen og Björn Kristjánsson. _____h.halls íþróttir Enskur bjargaði Iskozkuml! Enski markvörðurinn Peter Latchford bjargaði skozku bikarmeisturunum Celtic með snilldarmark- i vörzlu i gær i Oporto i Portú- gal. Hann fékk ekki á sig i mark i leiknum i Evrópu- keppni bikarhafa við Boa- i visto. Celtic-liðið var mest allan leikinn pressað á eigin vallarhelmingi — en Peter varði aUt sem á markið kom — oftast snilldarlega. Fimm min. fyrir leikslok kórónaði i hann leik sinn. Þá var vita- spyrna dæmd á McClusky — og Peter kastaði sér i hægra hornið eins og Fallon fram- | kvæmdastjóri hafði sagt honum að gera — og viti i menn. Þangað var knettin- um spyrnt — og Peter varði. Celtic lék sterkan varnarleik — og þar átti Jóhannes Eð- valdsson stóran hlut. Áhorf- endur voru 25 þúsund og á heimavelli ætti Celtic að tryggja sér rétt i 3ju umferð eftir hálfan mánuð. Gott hjó West Ham Ensku bikarmeistararnir, ' West Ham, gerðu það gott einsl log Nói forðum i Yerevan, þeg-1 ar þeir gerðu jafntefli við Ara-I Irat i Kákasus i gær 1-1 ij Evrópukeppni bikarhafa. Þar| ívar mesti áhorfendafjöldinn á Evrópuleikjunum, eða 70 þús-| und, og þeir voru ekki hrifnir þegar Alan Taylor náöi for-l justu fyrir Lundúnaliðið á 58 J min. Petrosjan jafnaði á 68.1 Imin. eftir að hafa fyrst spyrntj knettinum úr höndum Day( | markvarðar. Mesta athygli i þessari ’keppni vakti sigur Eintracht iFrankfurt i Madrid gegn Atle-1 ' tico 2-1. Holzenbein skoraðij kbæði mörk Eintracht, en] 'Bccerra fyrir Atletico. Staðanl ii hléi var 2-0. Anderlecht.j 'Bclgiu vann góðan sigur ál IBanja Luka, Júgóslaviu, 3-0.] 'Resenbrink (2) og Coeck skor- kuðu. Haag, HolIancU,vann Lenz, rFrakklandi 3-2 eftir að Frakk-I iarnir skoruðu tvö fyrstu mörk] ' leiksins. \h>lit aiiil Straufría sængurfataefnið er nú fyrirliggjandi í mörgum mynztrum og litum. i Einnig í saumuðum settum. Kærkomin gjöf, hverjum sem hlýtur. Sparið húsmóðurinni erfitt verk, sofið þægilega og lífgið upp á litina í svefnherberginu. Reynið Night and Day og sannfærizt. Samband íslenzkra samvinnufélaga Innflutningsdeild Sambandshúsið Rvik sími28200

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.