Dagblaðið - 23.10.1975, Page 18

Dagblaðið - 23.10.1975, Page 18
18 DagblaðiO. Fimmtudagur 23. október 1975. Millisvœðamótið í gœrkvöldi: Friðrik vann, — Björn jafntefli Eftir 3 umferðir i svæðismótinu hafa 5 þátttakendur 2 vinninga. Þeir eru Hartston, Friðrik, Zwaig, Timman og Parma. Hamann er með 1 1/2 vinning og oiðskák. iibli og Poutiainen hafa 1 vinning hvor og biðskák sin á milli. Ostermayer og Liberzon hafa 1/2 vinning og biðskák sin á m:lli. Björn McMurray og Laine hafa 1/2 vinning hvor. Liberzon og McMurray eiga óteflda skákina sem frestað var i 1. umferð. Skákirnar i 3. umferð fóru þannig: Hartston — Ribli: 0-1 Hamann — Van Den Broeck: bið- skák Friðrik — Laine: 1-0 Zwaig — Björn: 1/2-1/2 Timman — Parma: 1/2-1/2 Liberzon — Jansa: 1/2-1/2 McMurray — Ostermayer: 1/2-1/2 Poutiainen sat hjá i gærkvöldi. Hartston og Ribli tefldu Sikil- eyjarvörn. Ribli tefldi af öryggi og Hartston gaf eftir 39 leiki, sem var réttur leikur i stöðunni. Skák- in var fjörleg og þótti mörgum skemmtilegasta skák kvöldsins á meðan hún stóð yfir. Hamann og Van Den Broeck tefldu drottningarbragð, og sem fyrr segir fór skákin i bið. Fleiri telja Hamann standa betur, en lengst af var skákin afar tvisýn og ekki lakari hjá Belganum. Enda þótt menn heyrðust spá jafntefli, þegar þessi biðskák verður tefld i dag, er þó sennilegt, að Hamann kræki sér þar i heilan vinning og verði þá efstur i mótinu með 2 1/2 vinning, þegar 4. umferð byrjar á morgun. Friðrik og Laine tefldu f jögurra riddara tafl. Staðan varð mun þyngri og lokaðri hjá Laine og tók hann þann kostað fórna peði til að ná fram uppskiptum. Friðrik hélt peðsmuninum og ekki þurfti að spyrja að leikslokum. Það er eng- inn leikur að tefla við Friðrik með peð undir. Zwaig og Björn Þorsteinsson tefldu vængtafl eða Reti. Skákin varö skemmtileg og spennandi, linudans hjá báðum, en afleikur- inn kom ekki. Jafntefli eftir 34 leiki. 1/2-1/2. Timman og Parma tefldu Sikil- eyjarvörn og sömdu stórmeist- arajafntefli eftir 18 leiki. 1/2-1/2. Liberzon og Jansa tefldu einnig Sikileyjarvörn. Svipað er um þá skák aö segja og viðureign Timman og Parma. Jafntefli eftir 22 leiki Hjá McMurray og Ostermayer kom upp kóngs-indverskt tafl. Það er kannski gróft aðsegja það, en ég gat ekki betur séð en að þetta kóngs-indverska tafl hafi verið að mestu óteflt, þegar þeir McMurray og Ostermayer sömdu jafntefli eftir 23 leiki. í dag verða biðskákir tefldar kl. 1—8, sem og skákin milli McMurray og Liberzon, sem fresta varð i fyrstu umferð. Ribli og Poutiainen eiga bið- skák úr 2. umferð. Sagði Pouti- ainen við undirritaðan i gærvöldi, að hann teldi þá skák tapaða hjá sér. Að visu ætti hann eftir að lita betur á hana, en hann væri ekki bjartsýnn. Ostermayer er aftur á móti með betri stöðu i skákinni við Liberzon, sem fór llka I bið i 2. umferö. Þá verður tefld biðskákin milli Hamann og Van Den Broeck úr 3. umferð. Vera kann, að Belganum takist að ná jafntefli við Danann, en spá okkar er sú, að Hamann vinni skákina og verði þá efstur eftir að allar skákir hafa verið tefldar úr þrem umferðum, með 2 1/2 vinning. Ef hann heldur þvi vinningshlutfalli, er aðgætandi, að það gefur honum áfanga að stórmeistaratitli. Ahorfendur voru allmargir i gærkvöldi. Þess er þó að vænta, að þeim fjölgi, þegar liður á keppnina. Ég saknaði ungra skakáhugamanna á Hótel Esju i gær. Þeir voru að visu nokkrir en settu engan svip á salinn. Þarna voru aftur á móti gamlar skák- kempur eins og Sigurkarl Stef- ánsson, menntaskólakennari og Konráð Arnason, svo einhverjir séu nefndir. Þarna voru einnig Kristján Jónsson, kaupmaður, Eirikur Ketilsson, Björn Bjarm- an, Birgir Ólafsson, Úlfar Krist- mundsson, Björn Sigurðsson, bankamaður, Þráinn Guðmunds- son, Jón Þorsteinsson, Ásgeir As- geirsson, Guðmundur Agústsson, Þórir ólafsson og fjöldi þekktra skákmanna. Keppendur, sem spurðir voru, létu vel af keppnisaðstöðunni og áhorfendum. Mótsstjórinn, hinn bandariski stórmeistari sér Lom- bardy, stýrir öllu styrkri hendi kunnáttumannsins, hreinasta bæjarprýði. Á morgun verður 4. umferð svæðismótsins tefld. Þá tefla þessir saman (hvitur talinn fyrr): Ribli — Hamann Poutiainen — Hartston Van Den Broeck — Friðrik Laine — Zwaig Björn — Timman Parma — Liberzon Jansa — McMurray Ostermayer situr hjá I þessari umferð. A laugardaginn verða tefldar biðskákir aftur, ef einhverjar verða, en á sunnudag verður tefld 5. umferð. Hefst hún kl. 2. Þá hef- ur Friðrik hvitt gegn Ribli, Hamann gegn Poutiainen, Zwaig g. V.D. Broeck,Timman g. Laine, Liberzon g. Birni, McMurray g. Parma.Ostermayerg. Jansa. —BS— Frá Vestf irðinga- félaginu i Reykjavik Aðalfundur Vestfirðingafélags- ins verður haldinn að Hótel Borg næstkomandi sunnudag, 26. októ- ber, klukkan 4. Venjuleg aðal- fundarstörf. Onnur mál. Nýir og gamlir félagar fjölmennið. Klúbburinn: Pelican og Haukar. Opið frá 8—11.30. Röðull: Stuðlatrió. Opið frá 8—11.30. Sesar: Diskótek Erlendur Magnússon velur lögin. Opið frá 8—11.30. Þórscafé: Trió 72. Opið frá 9—1. óðal: Diskótek. Opið til kl. 11.30. Á þriðja þúsund nóms- menn mótmœla Námsfólkið I veðurbliðunni á Austurvelli I gær. Skyldu ráðamenn irnir nokkuð taka mark á okkur? hugsar pilturinn á bekknum e.t.v með sér, eöa kannski eru það áhyggjur af framtiðinni, hver veit það? (DB-mynd Ragnar Th. Sig.) Námsmenn fjölmenntu á fund á Austurvelli I gærdag. Var safnazt saman við þá skóla er viðurkenndir eru til námslána og siðan farið i nokkrum göng- um niður i miðbæinn. Er álitið að tala fundarmanna hafi nálg- azt þriðja þúsundið er fundurinn var settur laust eftir kl. 13.30. Kjörorð fundarins var „Efna- hagslegt jafnrétti til náms” en auk þess voru settar fram kröf- ur og hvatningar til rikisstjórn- arinnar i borðum og spjöldum. A fundinum töluðu fulltrúar nemenda hinna ýmsu náms- brauta og bárust honum fjöl- mörg skeyti og baráttukveðjur frá verkalýðsfélögum, BSRB, ASt og námsmönnum erlendis. Mótmæltu ræðumenn harðlega skerðingu námslána og studdu kröfur sinar með óyggjandi rök- um, sem fundarmenn tóku með dynjandi lófaklappi. 1 lok fund- arins var Geir Hallgrimssyni forsætisráðherra afhent ályktun fundarmanna þar sem skorað var á rikisstjórnina að skerða NÁMSMENN STYÐJA SJÓMENN Fundur námsmanna á Austurvelli samþykkti eftir- farandi ályktun með dynj- andi lófaklappi: „Fjöldafundur framhalds- skólanema á Austurvelli lýs- ir yfir fullum stuðningi við baráttu sjómanna fyrir bætt- um kjörum. Sameiginleg barátta okkar gegn fjand- samlegu rikisvaldi hlýtur að skipa okkur i sameiginlega fylkingu. Við mótmælum þvi að láglaunafólki i landinu sé ætlað að axla kreppu auð- valdsins.” Verða nóms- menn erlendis að snúa heim? Af fregnum sem berast af fundarhöldum námsmanna i London, Kaupmannahöfn, Osló og Arósum má ráða að sumartekjur þeirra, ef ein- hverjar hafa verið, séu nú á þrotum eða þrotnar fyrir nokkru. Hafa sumir orðið að taka vixillán til þess að fleyta sér fram að lánum, eins og það er kallað, en nú eru horfur á þvi að lánin verði mun minni en ætlað var. Hafa námsmenn erlend- is haft á orði að skammt sé þess að biða að þeir verði að hverfa frá námi og koma heim. Má reikna með að þaö séu um 400 manns alls. HP ekki námslánin og hún vöruð við að taka þessa geigvænlegu stefnu varðandi málefni náms- fólks hér heima og erlendis. Tók Geir við yfirlýsingunni og óánægjuhrópum fólksins með brosi og veifaði til mannfjöld- ans. Að öðru leyti fór fundurinn vel fram. 1 dreifibréfi, sem námsfólk hefur dreift til alþýðufólks á vinnustöðum og á götum úti i dag, er bent á ýmis atriði kjara- baráttu námsmanna til skýringa, m.a. að námslánum sé ætlað að brúa bilið milli tekna námsmanns og f járþarfar og að lánin hafi aldrei brúað bil að fullu. Óskert lán ætti að vera um 300 þús. kr. sem námsmanni væri gert að lifa á i heilan vetur og i mörgum tilfellum fjöl- skyldu hans jafnframt. Nú eigi að skerða þessa upphæð um helming og hljóti hver maður að sjá hverjar afleið- ingar slikt hafi i för með sér. Má vitna i bréf lækna- nema á 3ja ári til fjölmiðla þar sem þeir setja dæmið upp á einfaldan hátt: „Við lukum prófum 15. júni, fengum fri til 12. júlf, en þá tók við ólaunað skyldunámskeiö i 4 vikur. Skól- inn hófstsiðan 1. september. Við höfðum þvi 7 vikna sundurslitið fri til þess að afla okkur tekna sem eftir atvinnuleysissumar eru litlar sem engar”. Guð- fræðinemar segja i bréfi að niðurskurðaraðgerðir þessar geri láglaunamönnum nær ókleift að senda börn sin til framhaldsnáms og sé megintil- gangur Lánasjóðsins þvi úr sög- unni en hann sé einmitt að tryggja jafna aðstöðu til náms. HP. Þessi ágæta mynd sýnir gjörla að mannfjöldinn á Austurvelli var mikill i gærdag. (DB-mynd, Björgvin). Austan stinnings- kaldi eöa allhvasst og rigning fram eftir degi. Suðaustan kaldi og súld með köflum slðdegis. Hlýtt verður áfram. Andlát Ilalldór Erlendsson Iþróttakennari lézt á Landakots- spitalanum 14. október siðastlið- inn og verður jarðsettur i dag klukkan 15 frá Fossvogskirkju. Halldór fæddist á Isafirði 16. marz 1919. Foreldrar hans voru Erlendur Jónsson skósmiður og Gestina Guðmundsdóttir. Hann lauk prófi frá Kennaraskóla Islands árið 1938 og fór sama ár til Kaupmannahafnár til náms við Statens Gymnastik-Institut og lauk þaðan prófi sem iþrótta- kennari. Að námi loknu kenndi hann leikfimi við Kgl. Blindein- stitut. Arið 1940 hélt Halldór heim og kenndi við barnaskólann á ísafirði 1940—45. Arið 1945 fluttist hann til Reykja- vikur og gerðist kennari við Mið- bæjarskólann. Síðar kenndi Halldór leikfimi og smiðar við ýmsa skóla og siðustu árin var hann kennari við Alftamýrarskól- ann. Arið 1942 kvæntist Halldór Arn- disi Ásgeirsdóttur. Þau eignuðust fjögur börn, Asgeir, Sigriði, Erlend og Asu. Einn stjúpson átti Halldór einnig, Hrafn. Um ellefu ára bil starfrækti Halldór fyrirtækið Sportvöru- gerðina. Hann var um langt skeið forsvarsmaður kastnefndar Stangaveiðifélags Reykjavikur. Jón H. Halldórsson bifreiðastjóri Kleppsvegi 120 verður jarðsettur frá Fossvogs- kirkju i dag kl. 13.30. Hann var fæddur 8. apríl 1917 að Minni-Bakka i Skálavik. Foreldr- ar hans voru Ingibjörg Björns- dóttir og Halldór Benediktsson. Eiginkona Jóns var Asta Stefáns- dóttir og eignuðust þau fjögur börn. Þrjú þeirra eru á lifi, Dagný, Stefán og Guðný Hafbjörg. Jón var bifreiðarstjóri á Sendi- bilastöðinni. Kristján Bender rithöfundur, Melhaga 7, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju á morgun klukkan 15. Herdis Simonardóttir verður jarðsett frá Fossvogs- kirkju á morgun klukkan 10.30. Jóhanna Þórðardóttir Pétursborg, Blönduósi, verður jarðsungin frá Blönduóskirkju laugardaginn 25. október kl. 14. Halldór F. Arndal. frá Ardal lézt 18. október. Hann verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju laugardaginn 25. október kl. 10.30. Sigurður Guðmundur Þorkelsson verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni laugardaginn 25. október kl. 10.30. liarnaverndardagurinn 1975 er fyrsta vetrardag. Merki dags- ins og barnabókin Sólhvörf verða seld i Reykjavik og annars staðar þar sem barnaverndarfélög starfa. Merki og bækur til sölu I Reykja- vik verða afhent i barnaskólum borgarinnar frá kl. 10 árdegis. Sölubörn, mætið vel og verið hlý- lega klædd. Barnaverndarfélag Reykjavíkur Opið hús Jafnréttisnefnd Stúdentaráðs Há- skóla tslands býður stúdentum, mökum þeirra og börnum i Stúdentakjallarann (Gamla Garði) i kvennafriinu. Það verður opið hús, veitingar og barnapöss- un allan föstudaginn, og þar verða ræddar ýmsar hliðar jafn- réttismálanna.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.