Dagblaðið - 04.11.1975, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 04.11.1975, Blaðsíða 12
Pagblaðið. Þriðjudagur 4. nóvember 1975. Pagblaðið. Þriðjudagur 4. nóvember 1975. 12 13 íþróttir Iþróttir íþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþrottir Iþróttir I Karl Þórðarson og brimið brotnar að baki honum i óveðrinu i gær. Hvernig honum tekst að brjóta niður vörn Rússanna vildi hann litið tjá sig um. Olympíuleikurinn við Doni alltaf minnisstœðastur — segir Þórður Jónsson úr gullaldarliði Skagamanna //Það var gaman að leika á móti Dinamo Kiev þegar þeir komu hérna‘57. Annars man ég furðulitið úr þeim leik. Við unnum 4-3 og ég átti góðan skalla en hann var ekk- ert lamb að leika sér við/ mark- vörðurinn og hann varði/" sagði Þórður Jónsson úr gullaldarliði Skagamanna, þegar við hittum hann við vinnu sína. Þórð þarf ekki að kynna fyrir íslenzkum knattspyrnuáhugamönnum. Enn minnast menn gullaldarframlínu Skagamanna og virðast hverfa inn i annan heim. „Leikurinn á móti Dönum 1959 i Kaup- mannahöfn, er mér minnisstæðastur, 1-1. Þá átti Helgi Dan. góðan leik i markinu og Sveinn Teitsson skoraði minnisstætt mark. En stuttu fyrir leikslok jafna þeir og allt á suðupunkti. Skömmu siðar fékk ég boltann fyrir og ætlaði að skalla — fyrir opnu marki — en Daninn sparkaði boltanum beinlinis af hausnum á mér og hann fór beint upp. Já, það vantaði litið á sigur þá. Einmitt þá áttu Danir sterkt lið, sem varð i öðru sæti á Olympiuleikunum á Italiu árið eftir. Jú, Kalli byrjaði svo sem nógu snemma,” sagði Þórður þegar talið barst að Karli syni hans. ,,En Kirby hefur gert það úr honum sem hann er i dag. Hann hefur verið allt að þvi ómetanlegur fyrir 1A,” sagði Þórður og við Bjarnleifur drifum okkur út i rokið fyrir utan. h.halls. Verið í því ég fótboltanum fró byrjaði að ganga fylgzt mjög vel með minum ferli. Alltaf eftir leiki ræðum við saman og hann bendir mér á það, sem betur hefði mátt fara. Þannig má segja, að hann hafi ákaflega mikil áhrif á ferilminn. Annar, sem hefur haft mikil áhrif, er þjálfari okkar, Kirby. Hann hefur glætt áhuga minn enn frekar og einnig hefur hann verið mér mikil stoð, alltaf reiðubúinn til að ræða við okkur. Það var ánægjulegt að koma inn á leikinn við Frakka, Jóhannes Eðvaldsson kom til min og tók á móti mér, það hafði góð áhrif, þvi að ég var afskaplega taugaóstyrkur. En hvað um ieikinn i Kænugarði, ég frétti að áhorfendur hefðu hyllt þig, þegar þú fórst út af? ,,Já, það var stórkostlegt að leika i Kiev. Völlurinn var af- burða góður og hávaðinn i áhorfendum var gifurlegur. Skömmu fyrir leikslok fékk ég slæmt spark i ökklann og varð að fara út af. Þá fögnuðu áhorfendur og það fór um mig undarlegur straumur. Já, það var ánægju- legt. Um leikinn á miðvikudaginn er það að segja að ég hlakka mikið tii. Það er stórkostlegt að leika gegn þessum sovézku snillingum — já, snillingar eru rétta orðið yfir þá.” h. halls. „Þannig hefur hann alltaf það orð Fékk gœsahúð af spenningi — segir Guðjón Þórðarson bakvörður í liði íslandsmeistaranna \ eígum honum afskaplega mikið að þakka. Úti i Kiev átti Kalli stjörnuleik og einn Rússinn vildi endilega fá eiginhandaráritun hans, vegna þessað hann vildi meina að Kalli ætti eftir að verða einn af þeim beztu i Evrópu. Enda hyllti fólkið hann, þegar hann varð að fara út af skömmu fyrir leikslok vegna meiðsla. Já, þetta var ógleyman- lega þarna úti og ég fékk beinlinis gæsahúð af spenningi. Og hávað- inri, þegar 30 minútur voru af siðari hálfleik og þeir ekki búnir að skora mark i hálfleiknum, þá ætlaði allt vitlaust að verða — fólkið beinlinis heimtaði mark og hávaðinn var yfirþyrmandi. Þetta er lifsreynsla, sem verður mér ógleymanleg.” „Mér finnst bakvarðarstaðan skennntilegust, en þá verður maður að bafa góðan kant- inann með sér,” sagði Guðjón Þórðarson, sem i sumar vakti at- liygli allra með þvi að vinna stöð- una af iandsliðsmanninum Birni Lárussyni, svo og með góðum leik sinum. „1 rauninni var ákaflega gott að koma inn i Skagaliðið. Allir hjálp- uðu öllum. Það er svo mikil reynsla hjá leikmönnum, og ekki má gleyma að liðið hefur trú á sjálfu sér. Kirby hefur gefið okk- ur trú á sjálfa okkur og það má ekki vanmeta. Ég skal segja þér, Hallur, að Kirby hefur skipt sköpum fyrir mig, Árna og Kalla. Hann hefur lagt mikla rækt við okkur og við ,,Pabbi dreif mig í fót- bolta, svo að segja strax og ég gatgengið," sagði Karl Þórðarson, þegar við hitt- um hann við vinnu sfna uppi á Skaga i gær. Allir kannast við föður hans, Þórð Jónsson, útherja í gullaIdarliði Skagamanna. Býð konunni - segir ekki meira en mörg „Við munum hafa óbreytt lið frá leiknum i Kiev. Það þýðir, að Þröstur Stefánsson og Björn Lárusson verða báðir með,” sagði George Kirby, þegar við hittum hann f glæsilegu húsi Stur- laugs Böðvarssonar, útgerðar- manns uppi á Skaga. A meðan Kirby undirbýr Skagamenn fyrir leik þeirra við sovézku snilling- ana frá Úkraniu dvelsthann i húsi Sturlaugs. „Dvöl min hér hefur verið afskaplega ánægjuleg og ibúar Akraness hafa verið mér vingjarnlegir. Haraldur Sturlaugsson og hans fólk hefur verið mér mikil stoð. Ég hef boðið konu minni á leik- innogþaðkostarmig 150pund, já 50 þúsund krónur er mikill peningur fyrir einn knattspyrnu- leik og þaðá möl. Segir þetta ekki meira en mörg orð um veru mina hér,” sagði Kirby og brosti. „En svo við snúum okkur að is- lenzkri knattspyrnu,” hélt hann áfram, ,,þá er hér mikill efnivið- ur. Meiri en viða annars staðar. Ég gæti nefnt að minnsta kosti 10 leikmenn, sem myndu sóma sér vel i atvinnuknattspyrnu fengju þeir rétta meðhöndlun. Efnivið- urinn hefur alltaf verið fyrir hendi, og ég held, að með erlendu þjálfurunum hafi málin verið tek- in fastari tökum. Það sem háir ykkur er aðstöðu- leysi — þið verðið að lofa ungling- unum að fara ágrasvelli, svo þeir fái tilfinningu fyrir grasinu. Mik- ið starf er nú unnið að byggingu grasvalla og er það vel. Nú, en leikurinn á miðvikudag- inn erokkar markmið. Strákarnir lita á það sem heiður að fá að leika við þessa snillinga og þeir eru hvergi bangnir. Rússarnir munu gefa okkur meira rúm til athafna og siðan skyndisóknir. Við munum reyna að halda boltanum og spila knatt- spyrnu. Þú skilur ég lit á þennan leik, sem eitthvað sérstakt fyrir islenzka áhorfendur og ég vona að aðstæður verði okkur hagstæðar. Annars skal ég segja þér að mig langaði mikið til að lofa Pétri Péturssyni að spreyta sig, ekki endilega i þessum leik, heldur Evrópukeppninni. Hann er i 3ja flokki og er geysilegt efni, ef hann heldur vel á spöðunum. Hann hefði verið yngsti leikmaður sem tekið hefði þátt i Evrópukeppni. Þvi miður var þetta ekki hægt, fyrir þvi lágu ýmsar ástæður. En hvað um það, leikurinn á miðvikudaginn verður áreiðan- lega minnisstæður islenzkum áhorfendum ekki siður en leik- mönnum Skagans.” h.halls. Kirby að snæðingi á heimili Sturlaugs. „Já, mér finnst islenzkur inatur góður og borða allt sem tönn á festir, enda Rannveig frábær kokkur," sagöi hann. ► Þórður Jónsson og að sjálfsögöu er Dagblaðið nærliggjandi, fjölbreytt og Ijölhæft að vanda. — segir Karl Þórðarson, landsliðsmaðurinn ungi í Akranesliðinu, sem fagnað var innilega í fyrri leik Dinamo Kiev og ÍA í Kœnugarði Matthias Hallgrimsson á verkstæði sinu i gær. Skiptir þá engu að leika á möl! „Ég held að það skipti Úkraínu- mennina engu þó þeir leiki á möl- inni. Þeir eru það flinkir — sterk- asta lið, sem ég hef spilað á móti fyrr og siðar,” sagði Matthias Hallgrimsson, Iandslcikjakóngur okkar islendinga þegar við liitt- um hann i nýju og glæsilegu i- þróttahúsi þeirra á Skaganum. „Þetta hús kemur til með að skipta sköpum fyrir iþróttalff hér á staðnum, það er ég viss um. Annars fer ég sennilega til Nor- egs næsta sumar til að kynna mér nokkuð sem ég kalla stýritækni og þá mun ég leika með Brann frá Osló. Þessi bylting, sem hefur átt sér stað i sovézkum fótbolta er at- hyglisverð — þetta er orðin hrein list hjá þeim, áður voru þeir þekktir fyrir þungan fótbolta. En það var afleitt þarna i Kiev — fékk dauðafæri. Markmaður- inn sló boltann út — beint til min og hann einn fyrir framan mig — ég lét vaða en framhjá. Já, ann- aðhvort fara þeir inn eða út i busk- ann. Ég kom inn i meistaraflokkinn '65, þá 19 ára. Það árið nægði okk- ur jafntefli gegn KR til að vinna titilinn. Við vorum orðnir 9 og KR hafði yfir 2-1. Skömmu fyrir leikslok fékk ég boltann fyrir framan markið og þurfti bara að pota inn en Bjarni Felixson hreinlega sóp- aði mér og boltanum út fyrir endamörk — púra viti, en ekkert dæmt og titillinn til KR — það var hroðalegt. Já, það er oft skammt á milli sigurs óg ósigurs.” — h.halls Guðjón Þórðarson við vinnu slna, auövitað hjá Þorgeir og Ellcrt, hvar annars staðar. Mun betra en Olympíuliðið segir Björn Lórusson um lið Dinamo Kiev Leikhæsti maður íslenzkrar knattspyrnu cr Björn Lárusson og 13 ár eru siðan hann byrjaði með mcistaraflokki og nú á hann 7 landsleiki að baki. Þvi var eðli- legt að við spyrðúm, hvort hann væri ánægður mcð þann tima sem liefur farið i knattspyrnu. „Jú, þeim tima hefur verið vel varið. Þó auðvitað sé þetta af- skaplega bindandi og reyndar er ég ekki enn búinn að gera það upp við mig, hvort ég hætti eður ei. Jú, við áttum góðan léik úti — en við vorum lika heppnir. Þessir karlar eru miklu sterkari en landsliðið, sem lék hér i sumar. Þeir eru svo flinkir og fljótir að undrum sætir. Nú, en ég verð að segja alveg eins og er, að mér dauðleiddist þegar ég var settur i bakvörðinn. En það breyttist fljótt — ég hef spilað allar stöður á veliinum fyrir utan markið — held ég láti þá stöðu vera og haldi mig viö bakvörðinn,” sagði Björn og brosti um leið og við héldum út i óveðrið. Björn Lárusson við vinnu sina hjá skipasiniðastöð Þorgeirs og Kllerts. Þar liafa llestir lcikmcnn ÍA unniö. Akranes - Kiev Siöari leikur Akurncsinga og D inamo Kicv i Evrópubikarnum — keppni mcislaraliða — verður áður á Melavellinum annað kvöld og liefst kl. átta. Leikið verður i flóðljósum. Leikmenn Dinamo æfðu á Melavcllinum i morgun — og mæta þar aftur i kvöld kl. sex. Létu bara vel af aðstæðum og Baldur Jónsson, vallarstjóri sagði völlinn i finu ástandi. A morgun leika Akurnesingar við meistara Evrópu — sennilega bezta lið, scm komið hefur til islands. Hallur Ilallsson, blaöamaðurog Bjarnleifur ljósmyndari brugðu sér upp á Akranes i gær — ræddu við nokkra islandsmeistarana og tóku myndir. Arangurinn er hér i opnunni. -hsim.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.